Tíminn - 20.04.1986, Page 11

Tíminn - 20.04.1986, Page 11
Sunnudagur 20. apríl 1986 „Okkur varðar ekkert um þvott blaðamanna, okkur varðar um þvott þjóðfélagsins," segir Indriði. (Timamynd Róbert) Tíminn 11 geta borið höfuð og herðar yfir samtíðina. Já, maður bar miklá virðingu fyrir forystumönnunum, bæði þeim Hermanni og Eysteini, Ólafi Thors og Bjarna Benediktssyni. Manni fannst þetta vera miklir karlar, sem þeir og voru. Það var talsvert um stjórnarsamstarf siálfstæðis- manna og framsóknarmanna á þessum íyrstu árum mínum og svo kom Alþýðuflokkurinn inn í þetta. í>á kynntist ég Stefáni Jóhanni nokkuð og mikið fannst mér hann ágætur maður. Það var þá sem ég uppgötvaði hvað það var að fá aðra reynslu af manni en þá sem fékkst við að lesa blöð, sbr. skrif Þjóðvilj- ans um Stefán Jóhann. Maður hafði verið uppalinn við þá Bibl- íulestraraðferð að það sem stóð á prenti væri satt, og því tók það nokkurn tíma að jafna sig á því að það gat verið helv... lygi sem stóð á prenti. Pólitíkin átti sinn virðuleika þá og virðuleikatíma, sem var indæll. “ Þú hefur gagnrýnt að nú til dags sé blaðamönnum gjarnara en góðu hófi gegnir að viðra eigin persónu í skrifum? „Því miður finnst mér blöðin oft inni á því að einhverjar duldir, einhverjar skoðanir ritstjóra og blaðamanna sjálfra gægist í gegn um fréttaskrif. Séu einhverjir skavankar eða agnúar á skapgerð manna sem eru á blöðum eða við blöð, eða þá mjög sterkar pólitísk- ar tilfinningar, þá fara blöðin að bera mót af þessu. Einkum hefur verið áberandi að blaðamenn hafi farið að kalla sig mjög til „vinstri" eins og þeir orða það. Það verður leiðinlegur blær á fréttaflutningi, þegar ekki er beinlínis verið að snúa málinu, en maður finnur hvar andinn liggur f blaðamanninum eða ritstjóranum sem skrifa frétt- ina. Þótt við værum á miklu pólit- ískari blöðum hér áður, þá var þetta nokkuð sem við þvoðum hendur okkar fullkomlega af. Sem framsóknarmaður gat ég skrifað grein með Framsóknarflokknum, alveg gallharður, en ef ég átti að skrifa frétt, þá kom ekki til mála að halda Framsókn fram í sam- bandi við fréttina: Á vissum tíma olli þetta erfiðleikum og einu sinni talaði Ólafur Jóhannesson um það á blaðstjórnarfundi að erfitt væri að eyða fjármunum, pappír og vinnuafli í fréttaskrif, sem Fram- sókn skini ekkert gott af. En þá benti ég honum á að blaðamönnum okkar væri ætlað að halda jafnvægi gæta sín og standa undir skyldu sinni gagnvart almenningi í skrifum - en aftur á móti værum við stundum með fyrirsagnirnar þannig að þær hentuðu flokknum. Og þetta var alveg satt! - þótt textinn væri hreinn af þessu. Og Ólafur gat fallist á þetta.“ Þið hafíð sem sé reynt að sækja á í frjálsri fréttamennsku. „Okkar barátta hér fyrrum sner- ist mikið um það að geta sagt frá hlutum sem við vissum, en voru hálfgert trúnaðarmál, hlutum sem við töldum ekki svo mikið trúnað- armál að þeir þyrftu að liggja í láginni. Það var enginn illvilji í þessu, en okkur var sagt að þetta mættum við segja og ekki meira. Við vorum alltaf að reyna að víkka þetta gat og það gekk sæmilega . Viðreisnarstjórnin sat í þrettán ár og lengst af þeim tíma var ég ritstjóri, löngum undir Eysteini Jónssyni. Eysteinn stóð sig frábær- lega vel í stjórnarandstöðunni þótt viðreisnin væri gott stjórnarform og félli ekki á öðru en því að ungt fólk vildi breyta um breytinganna einna vegna. Við vorum með Tím- ann í 18.500 eintökum nær allt þetta tímabil og blaðið gekk ákaf- lega vel. Líklega var maður frjáls- ari vegna þess að flokkurinn var ekki í ríkisstjórn. Maður hafði gott olnbogarými hjá Eysteini, þótt hann gæti verið nákvæmur og ögn smámunasamur ef um eitthvað það var að ræða sem hann hafði tekið að sér sérstaklega. En hann fylgdist vel með Tímanum og var afskap- lega góður yfirmaður. Þótt stjórnarandstöðutímabilið liði hjá, þá stóð þetta eftir sem við gáfum aldrei til baka og það voru þær rúmu hendur sem við höfðum til þess að segja frá, - án þess þó að vera með einhvern djöfulskap og læti. Nú er orðið allt of mikið um það að blaðamaðurinn og rit- stjórinn, sem eru meira og minna háðir einhverjum undarlegum meiningum, skrifi frétt sem er samhræringur af staðreyndum og þeirra eigin tilfinningum og stjórn- málamaðurinn sem les þetta heldur að það sé almenningsálit. Ekkert eru menn jafn hræddir við og almenningsálit og þannig hefur þessi nýja blaðamennska áhrif á stjórnmálamanninn. Hann tekur kannski ákvarðanir samkvæmt því sem er bara dellukeyrsla hjá blaða- mönnum. Það er þetta sem ég er að mótmæla. Við vildum frelsi og fengum það á vissan hátt, þótt það sé miklu rýmra nú, en það á ekki að nota til þess að blaðamaðurinn geti hengt út þvottinn sinn. Blaða- maðurinn er ekki annað en penni eða ritvélahendur á milli atburð- anna og lesenda. Hann er eins og tölva að því leyti, tilfinningalaus. Það á hann líka að vera sem góður blaðamaður. Okkur varðar ekkert um þvott blaðamanna, okkur varðar um þvott þjóðfélagsins. Það unnu hjá mér menn sem komu af Morgun- blaðinu og menn sem komu af Þjóðviljanum, en það bar aldrei á því hjá þessu fólki í skrifum að það hefði pólitískar meiningar. Hvorki með né móti Framsókn, Alþýðu- bandalaginu eða Sjálfstæðisflokkn- um. Þetta er grundvallaratriði og í þessu þarf blaðamannastéttin og fréttamannastéttin að taka sig al- varlega á. Þeir eru hvorki kjörnir til þess né í aðstöðu til þess að nota starf sitt undir prívatmeiningar. En margt hefur drifíð á daga Tímans frá því þú hélst um stjórn- völinn? „Já, mér finnst hann hafa villst af leið. Til dæmis skil ég ekkert í hvaða nauður rak Tímann til þess að fara upp í Síðumúla þegar hann bjó frítt í Edduhúsinu, og baka sér þannig 2.5 milljóna bagga í húsa- leigu. Það fylgja þessu að vísu þægindi að fara í Síðumúlann, en þau eru ekki nægjanleg til þess að réttlæta svona breytingu. Áð vísu bjuggum við við vondan vélakost í Eddunni, vorum með vonda pressu sem knúði okkur til að vera í aðeins 16 síðum og stækka í 12 og 12 síður, þegar svo bar undir. En við höfðum þó þessa aðstöðu og vorum í ágætu upplagi. Það er eitt að kunna að skrifa góða íslensku og annað að kunna að halda úti blaði sem þjónar kaupandanum og hann vill fá. Ég held að á síðari árum hafi gleymst að gera blaðið þannig úr garði að það þjónaði kaupandanum. Við vorum alltaf með augað á kaupandanum, þann- ig að hann var eins og einn ritstjór- inn í viðbót. Ekki svo að skilja að við vildum slaka á neinu, en við vissum það mikið um kaupandann að við vorum alltaf með hluti sem hann varðaði um. En svo er einn hlutur sem Tím- inn geldur fyrir núna. Það hefur orðið ákveðin fækkun í dreifbýli þar sem Tíminn var alltaf sterkur og er kannske enn. Þegar ég varð ritstjóri um 1960 og við vorum komnir upp í 18.500 eintök var ég alltaf að segja: „Nú bíðum við, þar til ég get skrifað þvert yfir forsíð- una: „Tíminn kemurútí20þúsund eintökum.“ En þá gerist annar hlutur sem er alveg merkilegur og er hreinpólitískur: Stór hluti Reykjavíkur er lokaður fyrir Tímanum. Það er sama hve mikið þú leggur í útbreiðslu. Þú kemur blaðinu bara alls ekki inn um dyrnar. Það er málið. Þetta skilst mér að hafi átt að leysa með því að gera blaðið að NT. En það er ekki leiðin. Á þeim fjölmiðlatímum sem nú eru og ég er ekki beinlínis hrifinn af, hefði blaðið átt að ráða til sín djarfa stráka og segja við þá: „Keyriði eins og þið eigið lífið að leysa.“ Ég er sannfærður um að þá hefði Tíminn komið réttur út úr þessu. En þótt nú sé verið að spá Fram- sókn ósigri í kosningum, þá er ég sannfærður um að bæði flokkurinn og blaðið á sér langa framtíð hér. Hins vegar má ekki hengja á Tím- ann kostnaðarbagga sem draga blaðið niður. Það á að eyða pening- unum í blaðið sjálft til þess að keyra það áfram. Loks á ég þær óskir Tímanum til handa að hann hristi af sér kurteis- ina og fari að gera einhverja hluti. Þegar Churchill dó man ég að við sendum mann til Bretlands, Jón Hákon Magnússon, að fylgjast með útförinni. Þegar Edward Kennedy var myrtur hringdum við út og náðum sambandi við blaða- fulltrúa hans fyrir heppni, sem sagði okkur allt af atvikinu. Þetta var kannski ekki svona á hverjum degi, en við áttum þennan vilja og kraft sem mér finnst þurfa. Ég skýri þetta kannski best með því að minnast á pinnann, sem Andrés Kristjánsson hafði alltaf hjá sér, en á hann stakk hann öllum fréttatilkynningum sem blaðinu bárust. A þessu lá hann meðan við hinir vorum alltaf að grafa eitthvað upp, berja eitthvað upp úr freran- um. Stundum báðum við Andrés að bjarga málinu og láta okkur fá eitthvað af pinnanum. En nei! „Við höldum áfram,“ sagði Andrés. Þannig gekk það oft fram undir miðnætti og Andrés vissi að ef í nauðirnar rak mátti alltaf á endanum grípa eitthvað af pínnan- um. En hann ætlaði okkur að koma með efnið og það var þessi vinnumórall sem skipti máli. Mér líst ekkert á þessa eftir- vinnutíma og þetta tímaskyn blaða- manna. Mér finnst að blaðamenn eigi að vera ógift fólk, fólk sem er tilbúið að fara úr landi með tveggja tíma fyrirvara, ef eitthvað er að gerast, og borga þeim vel. Fjár- mununum á að eyða í þetta en ekki húsaleigu. Ég óska Tímanum þess að hann fari að opna dyrnar út í heiminn meira, verði kosmopoliti- skara blað enda er landsbyggðin ekki til mikilla hluta fyrir hann héðan af. Hann hefur efni á því og flokkurinn hefur gott af því.“ AM

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.