Tíminn - 20.04.1986, Blaðsíða 14

Tíminn - 20.04.1986, Blaðsíða 14
Sunnudagur 20. apríl 1986 14 Tíminn Vatnslækningar sem eru með elstu læknisað- ferðum manns- ins hafa nú á seinniárumöðl- ast meiri virð- ingu. Hérverður stuttlega greint frá þessum að- ferðumog saga þeirra rakin. maðurinn óbilandi trú á skynsemi sinni, og því að vísindin væru sá farvegur sem hæfði henni best. Menn trúðu því að ef vísindalegum aðferðum væri beitt væri hægt að útrýma hungri, tryggja öllum jarðar- búum ákjósanleg vaxtarskilyrði og jafnvel væri hægt að færa manninum eilíft líf með því að etja læknavísind- unum á sjálfan dauðann. í anda þessarar trúar var leitað laúsnar á öllum vandamálum í akademíunum, og eftir hennar reglum og hefðum. Vísindin urðu máttug, einskonar flaggskip á leið til mannlegrar full- komnunar. Og með tímanum urðu þau æ fjarlægari öðrum þáttum mannsins. 1 upphafi höfðu þau ein- ungis verið alþýðuspeki færð í mót rökréttra hugsana, en með tímanum fjarlægðust þau þetta upphaf sitt, og á endanum vildu þau sem minnst úm það vita. Nú á síðustu árum hefur gætt æ meiri vantrúar á óskoruðu forustu- hlutverki akademískra aðferða. Með tímanum hafa komið í ljós ýmsir slæmir fylgifiskar þeirra lausna sem vísindin hafa fundið á vanda- málunum, og fólk hefur orðið gagn- rýnara á vísindin. Eitt dæmi unt þetta er það bakslag sem nú virðist hafa komið á hefð- bundin vestræn læknavísindi. Fólk hefur treyst þeim blint, en er nú farið að efast um að þau séu á réttri leið. Það er einkum mikil notkun á lyfjum - og oft án tillits til aukaverk- ana - sem sætt hefur gagnrýni. Læknavísindin virðast leggja höfuð- áherslu á að útrýma sjúkdómsein- kennum með utanaðkomandi efnum, í stað þess að vinna með líkamann sem lífræna heild. Upp á síðkastið hafa æ fleiri leitað nýrra leiða til að kljást við sjúkdóma og veikindi. „Nýjar leiðir“ er kannski ekki rétta orðið því menn hafa einkum leitað til annarra menn- ingarheilda eða til gleymdra þátta í sinni eigin sögu. Nálarstungur, nátt- úrulækningar og orkulækningar eru nú komnar í samkeppni við hin hefðbundnu vestrænu læknavísindi, og það er farið að gæta togstreitu á milli þessara aðferða. Eitt af því sem nú hefur verið dregið úr þagnargildi eru vatnslækn- ingar. Þær þóttu góð vísindi á öldinni sem leið og höfðu fastan sess í akademískri læknisfræði. f Evrópu voru reknar margar vatnslækn- ingastofnanir þar sem fólk leitaði sér lækninga við mismunandi sjúkdóm- um. Jón Hjaltalín, síðar landlæknir, rak eina slíka stofnun í Klampen- borg á austurströnd Sjálands til margra ára, eða allt þar til hann var kvaddur hingað heim til að rannsaka bráðapestina svokölluðu. En hvað eru vatnslækningar? Saga vatnslækninga Maðurinn hefur sjálfsagt notað vatn til heilsubótar frá örófi alda. Flestir kannast við að hafa farið í kalda sturtu til að hressa sig við, eða þá að bregða sér í heitt bað til að slaka á stífum vöðvum. Kaldir bakstrar og fótabað eru einnig þekkt meðul. Ein af fyrstu rituðu heimildunum um vatnslækningar eru tengdar musteri gríska guðsins Asclepíus, sem var guð lyfja og meðala. í musterinu voru böð og nudd notuð gegn sjúkdómum. Hippocrates, sem er oft kallaður „faðir læknavísind- anna“, hefur sjálfsagt þekkt til must- erisins, og hann notaði böð til að lækna hita og nteðhöndlaði fleiri sjúkdóma á sama hátt. Hann rann- sakaði og notaði misheit böð til lækninga á ýmsum kvillum. Síðar notuðu rómversku læknarn- ir, Galen og Celsus, böð við lækning- ar, og þau voru stór þáttur í læknis- fræði þeirra. Eftir að læknar höfðu gefist upp á að lækna Ágústus keis- ara, af óskiljanlegum sjúkdómi, með ýmsum aðferðum, tókst það loks með því að beita daglegum köldum böðum. Eftir það urðu köld böð algeng læknisaðferð í Róm. Það eru fleiri lönd sem eiga sér heimildir um vatnslækningar. Pers- neski læknirinn Rhazes, sá sem fyrst aðgreindi mislinga og bólusótt sem sitthvorn sjúkdóminn, notaði vatns- lækningar. Hann skilgreindi þær svo að með heitum böðum hreinsaðist orsök sjúkdómsins út með svitanum. Þetta er velþekkt kenning í vatns- lækningum og þekkist meðal svo óskyldra þjóða sem Indverja, Tyrkja, Rússa, Finna og meðal galdralækna indjána í Norður-Am- eríku. Þegar fram liðu stundir komu fram aðrar læknisaðferðir og urðu þá vatnslækningar oft að víkja fyrir þeim. Guldu þær oft einfaldleika síns, því hinar nýju aðferðir þóttu tilkomumeiri. En á átjándu öldinni varð endurvakning meðal kirkjunn- ar manna á Ítalíu, í Þýskalandi og Englandi. Á þeim tíma ritaði vel- þekktur skoskur skurðlæknir bók sem vakti athygli; Verkun heits og kalds vatns á liita og aðra sjúkdóma. I henni lýsir læknirinn, Dr. James Currier, hvernig drykkja á köldu vatni getur slegið á hita, og hvernig vatnsböð geta læknað bólusótt og taugaveiki, og flýtt fyrir bata á hinum ýmsu sjúkdómum. Currier skrifaði sína fyrstu bók árið 1797. Það verður samt ekki fyrr en í upphafi nítjándu aldar sem Vincent Preissnitz, bóndi frá Slesíu, leggur grunninn að stórkostlegum framförum í vatnslækningum. Preissnitz kynntist vatnslækningum fyrir tilviljun. Hann slasaði sig á fingri þegar hann var unglingur og nábúi hans vafði fingurinn með rök- um klút, sem varð til þess að hann greri hraðar en Preissnitz hafði áður búist við. Stuttu síðar varð hann fyrir það alvarlegu slysi að læknar töldu að hann bæri merki þess allt sitt líf. En Preissnitz mundi hversu fljótt fingurinn hafði gróið og hóf að Iækna sig sjálfur. Hann þvingaði snúinn hrygginn í rétta stellingu og vafði um sig rökum klútum og drakk ómælt af köldu vatni. Þetta linaði þjáningar hans og honum til mikillar furðu varð hann alheill að stuttum tíma liðnum. Mannkynssagan er uppfull af slík- um einangruðum lækningarsögum, en það sem gerir sögu Preissnitz ólíka öðrum er það að honum gafst tækifæri til að rannsaka mátt vatns-

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.