Tíminn - 20.04.1986, Síða 19
Sunnudagur 20. apríl 1986
Tíminn 19
FLÓÐ-
HESTAR
FÓRUST
Austur í Rússlandi varö það slys í
marsmánuði að þrír flóðhestar fór-
ust í eldsvoða, vegna óaðgæslu um-
sjónarmanns þeirra, sem fengið
hafði sér neðan í því, að sögn
blaðsins Sovietskaya Kultura.
Slysið varð þegar verið var að
flytja dýrin, sem tilheyrðu sirkus, frá
byelorússnesku borginni Gomel til
Leningrad.
í þröngum og illa loftræstum járn-
brautarklefa þeim sem dýrin voru í
var ofn til að halda á þeim hita. Valt
ofninn og kviknaði í vagninum og
urðu flóðhestarnir, Hugo, Sandy og
Casey, eldinum að bráð. Síðar bar
umsjónarmanninn að og hann var
ofurölvi.
Dýrin, sem kennt hafði verið að
dansa og hoppa, höfðu verið keypt
frá V-Þýskalandi fyrir þrem árum
fyrir verulega upphæð í erlendum
gjaldeyri, sagði blaðið. Þá sagði að
nýlega hefðu tveir birnir og fíll dáið
af svipuðu kæruleysi og krafðist
blaðið róttækra umbóta á flutningi
sirkusdýra.
SVOL-
URNAR
MEÐ
KAFFI-
SÖLU
Svölurnar. félag fyrrverandi og
núverandi flugfreyja, munu halda
sína árlegu kaffisölu, fimmtudaginn
l. maí n.k. í Súlnasal Hótel Sögu.
Húsiðverðuropnaðgestumkl. 14.00
og mun þar verða, auk kaffisölu,
tískusýningar kl. 14.30 og 15.30, þar
sem Svölurnar sýna sjálfar fatnað,
og skyndihappdrætti þar sem margir
glæsilegir vinningar eru í boði. þar á
meðal ferðavinnngar.
Merkasti þátturinn í félagsstarfi
Svalanna er fjársöfnun til styrktar
þeim er minna mega sín í þjóðfélag-
inu og til að stuðla að menntun
þeirra sem sinna fjölfötluðum
börnum. Kaffisalan 1. maf og jóla-
kortasala eru drýgstu tekjulindirnar.
Á síðasta starfsári hafa Svölurnar
m. a. gefið Safamýrarskóla tölvu- og
rafeindabúnað til kennslu fatlaðra,
að upphæð kr. 420.000.00. Einnig
hafa þsr gefið Styrktarfélagi lam-
aðra og fatlaðra rafknúin leikföng
og stýrirofa til þjálfunar fjölfatlaðra
barna og útileiktæki fyrir börn sem
dvelja með mæðrum sínum ' í
Kvennaathvarfinu.
Ennfremur veittu Svölurnar á
þessu ári námsstyrki til fimni ein-
staklinga í framhaldsnámi erlendis í
kennslu og þjálfun fjölfatlaðra.
Starf sitt vinna Svölurnar að sjálf-
sögðu í sjálfboðavinnu.
Þær vilja þakka vinum og velunn-
urum" fyrir veittan stuðning, enn-
fremur þeim fyrirtækjum og ein-
staklingum sem auk þeirra sjálfra,
hafa gefið vinning fyrir skyndihapp-
drættið 1. maí.
FRAMSÓKNARVIST
Framsóknarvist verður haldin
sunnudaginn 20. apríl kl. 14 að Hótel Hofi.
Veitt verða þrenn verðlaun karla og kvenna.
Stutt ávarp flytur Alfreð Þorsteinsson formaður F.R.
Framsóknarfélag Reykjavíkur
1986
1987
Nýtt happdrættisár
1440 UTA PiLA IVDSFERÐIR
eða 120 í hverjum mánuði á
40 þúsund krónur hver
Vinningar til íbúðakaupa:
1 á 1 milljón kr. 8 á 600 þúsund kr.
Vinningar til bílakaupa:
48 á 200 þiisund kr. og valdir bílar:
FORD Sierra GL 2000 sjálfskiptur í júní
TOYOTA Land Cruiser STWstation LIR
í desember
SAAB 900i model 1987 ífebrúar 1987
AÐALVimmGUR ÁRSIHS:
HÚSEIGn eftir vaíi á 3.500.000 kr.
í apríl 1987
1440 húsbúnaðaminningar á
10 þúsund krónurhver
Lægstu vinningar á 5 þúsund krónur
Mánaðarverð miða 200 kr.#
ársmiðar 2.400 kr._
___HAPPDRÆTTI _
Dvalarheimilis aldraðra sjómanna