Tíminn - 20.04.1986, Qupperneq 22

Tíminn - 20.04.1986, Qupperneq 22
22 Tíminn Sunnudagur 20. apríl 1986 í hlutverki Conans. Sá náungi hefur malaö Schwarzenegger gull. bólgan var mest á áttunda áratugn- um var léttast að afla fjár í Banda- ríkjunum. Blm.: Þú ert því gamalvanur mikl- um peningum? Schwarzenegger: Alvanur. En það er ekki nóg að afla peninga, maður þarf líka að kunna að fjár- festa. f fyrsta lagi sparar það skatta- útgjöld og svo er það skemmtilegt. Blm.: Hvað eru peningar þér? Schwarzenegger: Ekki mjög mikið. Ég eyði mjög litlu. Ég á jeppa, gamlan Cadillac 1956 og eitt Harley Davidson mótorhjól. Blm.: Hvað þénarðu á hverri mynd? Schwarzenegger: Það vil ég ekki segja þér. En því meira sem maður krefst, þvf meira er maður virtur. Það er hlægilegt en satt. Því verður maður sífellt að hækka kröfur sínar. Ég skammast mín ekki fyrir það því ég skapa peningana fyrir fram- leiðandann. Blm.: Þú hefur sagst hafa áhuga á að framleiða sjálfur þínar myndir. Nokkuð að frétta af því? Schwarzenegger: Nú hef ég nóg að gera við að hugsa um fjölskyldu- stofnun. Það er ekki eins létt og áður var. í Los Angeles eru 60% manna fráskildir. Menn fara í þrjá mánuði í kvikmyndatökuferð og þar með er allt búið. Blm.: Telur þú að þitt hjónaband muni verða varanlegt? Schwarzenegger: Ég hef aldrei verið í vandræðum með að standast freistingar. Ég held að mér takist þetta. Blra.: Nýlega laukstu við síðustu mynd þína, „Raw Deal.“ Um hvað er hún? Schwarzenegger: Þetta er glæpa- mynd og ég leik þarna útsendara FBI, sem smyglar sér inn í innsta hring hjá Mafíunni. Blm.: Er myndin jafn gróf og „The Commander,“ sem sýnd hefur verið nýlega. Schwarzenegger: Ég verð að bíða með að fullyrða um það þar til klippingum er lokið og ég sé hve margir eru drepnir. Þá get ég fyrst gert samanburð. Blm.: Hefurðu þá talið hve margir voru drepnir í „The Commander?" Schwarzenegger: Ekki nákvæm- lega, - en milli 60 og 100 voru það. Blm.: Hvernig finnst þér sjálfum myndin? Schwarzenegger: Ágæt, því þarna var hröð atburðarás og glens. Ég vil auka á húmorinn, því þótt fólk vilji spennu vill það líka geta hlegið. Blm.: Þú tekur efnið þá ekki dauðalvarlega? Schwarzenegger: Nei, alls ekki. Þetta er skemmtiiðnaður og grín. Þarna er enginn pólitískur boðskap- ur eins og í Rambó. Blm.: Finnst þér Sylvester Stall- one vera keppinautur þinn? Schwarzenegger: Alls ekki. Við erum bestu kunningjar og vinnum í sama stúdíóinu í Santa Monica. Blm.: Hvað finnst þér um myndir Woody Allen? Schwarzenegger: Ég hef þrívegis séð „The Purple Rose of Cairo." Hún er stórkostleg. Afbragðs hugmynd. Blm.: Myndir þfnar eru kallaðar „kassastykki." Hvað finnst þér um það? Schwarzenegger: Spennumyndir hafa alltaf verið vinsælar, svo sem myndir John Wayne, Clint East- wood, vestrar og stríðsmyndir. Nú á dögum verða hetjurnar að vera vöðvabúnt. Fyrr trúa menn ekki að þær geti gert það sem þær fram- kvæma. Blm.: Hvað segir þú um vaxandi áhuga á líkamsrækt. Ér hún afleiðing kvikmyndanna? Schwarzenegger: Ég var upphaf- ið. Ég var sá sem viðurkenndi líkamsræktina og sagði að þetta væri íþrótt. Á áttunda áratugnum fór áhuginn sívaxandi og nú er það svo í Bandaríkjunum að nær hver maður |Með unnustunni, Maria Shriver. alltaf með hrósyrði á vörunum. Það er ekki til annar eins tengdafaðir. Blm.: Hvenær ætlið þið að giftast? Schwarzenegger: Þann 26. apríl í Hyannis Port. Menn giftast ætíð þar sem brúðurin býr. Blm.: Verður þetta mikið brúð- kaup? Schwarzenegger: Já, fremur, því vinahópurinn er stór. Það verður haldið heima hjá ömmu Maríu, Rose Kennedy. Blm.: Hvernig er að vera sonur lögregluþjóns frá Graz og komast í hóp fína fólksins? Schwarzenegger: Þetta var mesta tilviljun. Því þekktari sem menn verða, því fleiri verða samkvæmin. Samt er ég alls ekki sú manngerð sem sækist eftir samkvæmum. Við María erum þarna sama sinnis. Við bjóðum heldur fólki til okkar, ekki fleirum en sex, því þá skemmta menn sér best. Þannig eignast maður líka vini. Blm.: Hvort heldur þú að unnust- an elski meira af Schwarzenegger, - líkamann eða sálina? Schwarzenegger: Þetta er samtengt. Þegar við vorum að kynn- ast spurði hún sjálfa sig hví hún hefði orðið ástfangin af mér. Hún taldi það vegna þess að ég hefði kímnigáfu. Hún hreifst líka af því að ég var framagjarn, sjálfstæður og sjálfsöruggur. Henni féll vel að ég hef jákvæða útgeislun og hef ekki sífellt áhyggjur af einhverju. Blm.: Þú varst eftirsóttur af kven- fólki áður en þið kynntust. Er ekki eftir þér haft: „ég get ekki gagnast fleirum en fimm á nóttu.“ Schwarzenegger: Það má nú ekki taka bókstaflega. Þegar maður er spurður í sjónvarpsþætti hvort kynlíf sé ekki skaðlegt fyrir vaxtarræktina, þá svarar maður bara út í bláinn, hlær sjálfur að svarinu og allir aðrir líka. Blm.: í stjórnmálum stendur þú nærri stefnu republikana. Er það ekki óheppilegt þegar menn eru að kvænast inn í svo mikla demokrata- fjölskyldu? Schwarzenegger: Nei, það veldur aldrei vandræðum. Þvert á móti. Samtöl okkar verða áhugaverðari fyrir vikið. Mestu skiptir að öll viljum við bæta lífið í þessu landi. Ég ber jafn mikla virðingu fyrir sjónarmiðum demokrata og frjáls- lyndra. Blm.: Kennedyfjölskyldan lætur sér þetta þá vel líka? Schwarzenegger: Ágætlega. Þegar haldin eru samkvæmi í fjölskyldunni eru republikanar þar ekkert síður en ■ aðrir. Reagan kemur í boð til Teddy Kennedy. Það er ekki deilt á yfir- borðinu, heldur á bak við. Blm.: Hvað hefur þú helst að sækja með því að gerast Bandaríkja- maður? Schwarzenegger: Fyrst og fremst Iíkamsræktina og svo er Ameríka land framtíðarinnar þar sem hægt er að koma undir sig fótunum. Hér vil ég vera. Blm.: Hvenær eignaðistu fyrstu milljónina? Schwarzenegger: Þá var ég enn í líkamsræktinni eingöngu. Þá þénaði ég mest á fasteignasölu. Þegar verð- á æfingatæki í stofunni eða æfir í einhverjum hinna 30 þúsund klúbba. Loks þegar þetta var orðið þjóðar- fþrótt komu kvikmyndirnar. Þá sögðu kvikmyndaframleiðendur að það yrði að senda stjörnurnar í þjálfun, því annars yrðu áhorfendur miklu betur á sig komnir en stjörn- urnar. Blm.: Þú hefur þénað vel á þessari bylgju. Ertu ekki kominn með heilsuræktarstúdíó og farinn að gefa út kennslurit? Schwarzenegger: Stúdíó hef ég aldrei átt, en ég hef skrifað kennslu- bækur, sem voru á öllum metsölulist- um. En ég hef barist fyrir að þetta verði viðurkennd íþróttagrein og nú eru það 139 lönd sem taka þátt í heimsmeistarakeppninni. Blm.: Lifirðu á sérstöku matar- æði? Schwarzenegger: Nei, það hef ég aldrei gert. En ef ég et eitthvað fitandi geri ég 200 knébeygjur auka- lega. Ég reyki pípu og vindla og fær mér stöku sinnum í staupinu. Blm.: Hverjir eru áhorfendur þínir. Eru konur færri en karlar? Schwarzenegger: Hópurinn er blandaður, en fyrst og fremst er þetta ungt fólk, upp að þrítugu. Blm.: Hvernig líst unnustu þinni, Maríu Shriver, á myndir þínar? Schwarzenegger: Ágætlega, - fyr- ir utan þau atriði sem eru full ruddafengin. Blm.: En hvað segir tengdapabbi? Schwarzenegger: Hann lætur vel yfir. Þótt honum líkaði eitthvað ekki, myndi hann ekki segja það. Hann er slíkur diplomat. Hann er HELAGA \/nnu a _ v vi/ vn BÚNTIÐ ÞAÐ Arnold Schwarz- enegger talar um vaxtarrækt, Rambó, og vænt- anlegt hjónaband

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.