Tíminn - 11.05.1986, Qupperneq 3
Sunnudagur 11. maí 1986
Tíminn 3
Manuela Wiesler, flautuleikari, með 4 plötur sínar.
Manuela Wiesler í Iðnó
Trúarleg framúrstefnutónlist á vegum Musica Nova
Mánudagskvöldið 12. maí kl.
20.30 mun Manuela Wiesler,
flautuleikari halda einleikstón-
leika í Iðnó á vegum Musica
Nova. Þar mun hún spila 5 verk,
3 skandinavísk sem hafa verið
samin fyrir hana á undanförnum
árum og tvö japönsk eftir Kazuo
Fukushima og Toru Takemitsu,
frægustu nútímaskáld þar
eystra. Þetta er allt saman trúar-
leg tónlist - í víðum skilningi
þess hugtaks - tónlist sem fjallar
um ljós og myrkur, líf og dauða.
Norrænu verkin eru eftir
sænsku tónskáldin Anders
Eliasson og Áke Hermannsson
og Norðmanninn Yngve Slett-
holm.
Verk Slettholms sem heitir
LUX (lat: ljós) var samið 1983
og á sér bakgrunn í upphafi
Jóhannesar guðspjalls: „... og
ljósið skín í myrkrinu og myrkr-
ið hefur ekki tekið á móti því.“
Verk Eliasson er frá 1984 og
heitir DISEGNO eða munstur.
Þetta er tónverk í svart/hvítu
þar sem mjög er spilað á and-
stæður flautunnar í björtum tón-
um og myrkum. Verkið eftir
Áke Hermannsson er FLAUTO
DEL SOLE frá 1978 en það er
eina verkið á efnisskránni sem
hefur heyrst hér á opinberum
tónleikum áður.
Manuela var hér síðast í sept-
ember og hélt þá öllum ógleym-
anlega tónleika í Kristskirkju.
Síðan hefur hún haldið ótal
tónleika í Evrópu, auk þess að
leika inn á plötur, m.a. verkin
eftir Slettholm og Eliasson en
einnig klassíska tónlist eins og
flautukvartetta Mozarts og h-
moll svítu J.S. Bachs fyrir flautu
og hljómsveit. Manuela Wiesler
er einn fremsti flautuleikari ver-
aldar og einn almagnaðasti túlk-
andi nútímatónlistar sem um
getur. Mönnum gefst því fágætt
tækifæri til að hiusta á spennandi
efnisskrá í einstæðum flutningi í
gamla Iðnó á mánudagskvöldið.
- Fréttatilkynning -
HOLLUSTUHORNID
Svanfríður Hagwaag
skrifar
Morgunmaturmn
er þýðingarmikill
Góður morgunmatur er nauðsynlegur til að mæta erli nýs dags.
Matur úr heilgrjónum gefur alla þá orku sem með þarf, þannig
að ekki er þörf á kaffi og meðlæti á miðjum morgni.
Diskur af heituin hafra- eða grjónagraut er góð byrjun á
morgninum. Ef þér líkar betur grautur úr öðrum hcilgrjónum eins
og til dæmis byggi, sjóðið þau þá í 4-5 hlutum af vökva á móti 1
hluta af grjónum. Það er líka hægt að búa til graut úr völsuðu
hveiti eða rúgi. Stráið ristuðum hnetum eða fræjum yfir til
tilbreytingar.
Gott heilhveitibrauð, smábrauð, skonsur eða flatbrauð er líka
gott og gefur tækifæri til að nýta sér mjólkurvörur eins og
undanrennuduft út í brauðin. Það má líka bæta brauðin með
hveitiklíði, hveitikími og sojamjöli. Allt er þetta auðvelt að útbúa
og gefur orku til að byrja daginn. Ef morgunmaturinn ferst fyrir,
næst orkan aldrei vel upp, hvað sem hádegismaturinn er góður.
Fyrir þá sem ekki vilja eða mega vera að því að búa til graut,
er hægt að reyna granóla. Það er hægt að nota það eitt sér með
mjólk eða hafa það út á súrmjólk eða jógúrt. Áð minnsta kosti
er gaman að búa til granóla, það er hægt að hafa í því
mismunandi völsuð grjón, margs konar fræ, hnetur og þurrkaða
ávexti. Það er um að gera að prófa sem flest þangað til búið er
að finna hvað fjölskyldunni líkar best. Hér á eftir kemur uppskrift
af granóla, sem ágætt er að þreifa sig síðan áfram með.
GRANÓLA
4 bollar haframjöl
1 bolli möndlur
!4t bolli hunang
lA bolli matarolía
'A tsk. sjávarsalt
x/i tsk. vanilla
Blandið öllu saman og látið
í ofnskúffu. Bakið í 20-25 mín-
útur við 160-170° eða þangað
til granólað er byrjað _ að
brúnast. Bætið við öðrum
hnetum og fræum eftir smekk.
Það er líka mjög gott að setja
kókósmjöl í granóla. Þegar
granólað er orðið mátulega
brúnað er þurrkuðum ávöxtum
eftir smekk blandað saman við.
Kælið vel og geymið í þéttu
íláti.
AFASÚPA
1 Vi bolli haframjöl
Vi bolli undanrennuduft
Vi bolli rúsínur
6 bollar vatn
sjávarsalt eftir smekk
Blandið undanrennuduftinu
saman við 1 bolla af vatninu og
blandið síðan öllu saman. Lát-
ið suðuna koma upp og látið
malla við lágan hita í 10-15
mínútur eða þangað til hafra-
mjölið er farið að verða
límkennt. Berið fram með
mjólk og kanelsykri fyrir þá
sem það vilja.
HRÆRÐ EGG
MEÐ SPÍRUM
4-6 egg
x/i bolli mjólk
4 saxaðir vorlaukar
Vi tsk. sjávarsalt
1 bolli bauna
eða alfa-alfaspírur
1 msk. matarolía
Þeytið eggin með mjólkinni,,
lauknum og saltinu. Hrærið
spírunum saman við. Hitið
stóra pönnu við meðalhita.
Látið olíuna út á og hellið
síðan eggjablöndunni þar á.
Steikið eggin og hrærið oft í á
meðan. Eggin eru mátuleg
þegar þau eru rétt hlaupin
saman.
.Super
tilboð
Ef þú skiptir yfir í ESS0 SUPER olíuna um
leið og þú lætur smyrja bílinn, færðu einn
lítra af ESS0 SUPER með þér án endur-
gjalds. Petta kynningartilboð gildir út
allan maímánuð á eftirtöldum smur-
stöðvum ESS0:
Smurstöð ESS0
Hafnarstræti 23
Reykjavlk
Vörubfla- og tækjaverkst.
Höföabakka 9
Reykjavík
Daihatsu umboðiö
þjónustuverkstæöiö
Ármúla 23
Reykjavfk
Smurstöö ESS0
Stórahjaíla 2
Kópavogi
Smurstöö ESS0
Reykjavtkurvegi 54
Hafnarfiröi
Aðalstöðin hf.
Smurstöö
Keflavík
Smurstöðin
Smiðjuvöllum 2
Akranesi
Bifreiðaþj. Borgarness
Borgarnesi
Smurstöö ESS0
Fjaröarstræti 20A
Isafiröi
Bifreiöaverkst. Nonni
Þuríöarbraut 11
Bolungarvlk
Vélsmiöja Húnvetninga
Smurstöð
Blönduósi
Smurstöö K.S.
Sauöárkróki
Bifreiöa- og vélaverkst.
Naust hf.
Varmahllö
Smurstöö ESS0
Pórshamar hf.
Akureyri
Bllaverkstæöi KEA
Dalvlk
Bifreiöaverkst. Foss hf.
Húsavlk
Bifreiöaverkstæöi B.K.
Húsavlk
Bllaverkstæöi
Kf. Langnesinga
Pórshöfn
Vélaverkst. Hraöfrystihúss
Fáskrúösfirðinga
Fáskrúðsfiröi
Bflaverkstæöi Bjama Björnssonar
Fáskrúösfiröi
Vélsmiðja Hornafjaröar, smurstöö >
Höfn *
2
Bllaverkstæði 2
Kf. V-Skaftfellinga Vlk í
Smurstöð I
Kf. Rangæinga *
Hvolsvelli
Vélaverkstæði G.G.
Flötum 21
Vestmannaeyjum
Smurstöö
Kf. Árnesinga
Selfossi
Björgvin Garðarsson
Austurmörk 11
Hverageröi
Skiptu yfir í rekstraröryggi og sparnað
með nýju SUPER olíunni. Skiptu yfir í
ESS0 SUPER!
Olíufélagið hf