Tíminn - 11.05.1986, Blaðsíða 7
-» Ir
I
Sunnudagur 11. maí 1986
Tíminn 7
Eyjólfur Árnason tekur nokkur af fyrstu fluguköstum sumarsins, þau eiga sennilega eftir að vera fleiri ef að
líkum lætur.
V eiðitímabilið
loksins byrjað!
Fjöldi veiðimanna mætti við Elliðavatn þann fyrsta
FJÖLDI manns fór til
veiða í Elliðavatni
fyrsta maí, þegar veiði
er leyfð að nýju eftir
veturinn. Kalt var í veðri ogrok.
Menn létu það ekki á sig fá og
Dæmigerð mynd fyrir Elliðavatn
fyrsta maí. Greina má sjö veiði-
stangir og sex veiðimenn. Lýs-
andi dæmi um þann mikla áhuga
sem er ríkjandi hjá stangaveiði-
mönnum.
þeir voru þó nokkrir sem höfðu
að slíta upp fiska.
Ungur veiðimaður sem mætti
í morgunsárið tók sjö fallega
urriða á smáan „dropper" aðrir
fengu heldur minna.
Kristinn Tryggvason, sem hef-
ur veitt í vatninu hérumbil á
hverju sumri í fjörutíu ár, lét sig
ekki vanta. Hann var einmitt að
draga urriða númer tvö þegar
ljósmyndara Tímans bar að.
Ekki stór, en fiskur samt. Pað
var ekki laust við að Kristinn
væri litinn öfundaraugum af
veiðimönnum sem ekki höfðu
heppnina með sér.
Það er árviss viðburður að
fjölmenni komi til veiða þann
fyrsta maí í Elliðavatni. Stutt er
að fara fyrir borgarbúa og marg-
ir hafa beðið með óþreyju
skammdegismánuðina. Nú er
biðin á enda og hægt að veiða
um hverja helgi í allt sumar.
Veiðimenn sem mættu við
Elliðavatn voru af öllum stærð-
um og gerðum. Stórir, ungir,
feitir, erlendir, fluguveiðimenn,
dorgarar, menn með góðan út-
búnað, aðrir á blankskóm og í
jakkafötunum. Allir áttu það
hinsvegar sameiginlegt að vera
komnir til þess að geta loksins
tekið fyrstu köst sumarsins og
Það skiptir öllu máli að velja þá réttu fyrir hungraðan urriða eða jafnvel
bleikjuna.
Tíma-myndir: Eggert
dregið fyrsta fiskinn ef vel gengi.
Eyjólfur Árnason hafði tekið
fram flugustöngina og tilheyr-
andi útbúnað. „Ég kem hérna
oft í byrjun sumars, og þá aðal-
lega til þess að hressa upp á
köstin, maður þarf að halda sér
í sífelldri æfingu. Ég kom hér
núna eingöngu til þess að æfa
mig að kasta. Auðvitað væri
gaman að taka eins og einn áður
en dagurinn er liðinn,“ sagði
Eyjólfur. Pegar hann hóf að
sveifla flugunni með tilþrifum
ákvað blaðamaður að færa sig
um set.
Mikið var um útlendinga að
veiðum við vatnið og einn slíkur
sem Tíminn ræddi við sagðist
vera sannfærður um að þetta
væri, „helvíta plat“, eins og hann
orðaði það. Hann tók þó vcl í
vinsamlegar ábendingar nær-
staddra veiðimanna um að færa
sig um set, því hann væri staddur
á stað sem aldrei hefði gefið af
sér fisk. Útlendingurinn færði
sig um set, en líklega hafa tungu-
málaerfiðleikar orðið til þess að
hann sást næst upp á túni á tali
við lóuna. Ekki hefur frést
hvernig honum gekk síðar um
daginn.
- ES
Kristinn Tryggvason með urriða sem hann dró úr Elliðavatni þann fyrsta
maí. Fiskurinn tók rétt við brúna, og má greina brúarhandriðið í baksýn.
I