Tíminn - 11.05.1986, Blaðsíða 18

Tíminn - 11.05.1986, Blaðsíða 18
Tíminn Sunnudagur 11. maí 1986 Þrátt fyrir tungumál sem er einstætt á Norðurlöndum hafa rannsóknir leitt í ljós að Finnar eru náskyldir germönskum og norrænum þjóðum að þarf varla að fara mörgum orðum um það hve ger- samlega óskyld finnsk tunga er öðrum tungum Norðurlandaþjóða. Málvísindarannsóknir hafa gef- ið mönnum tiiefni til að ætla að Finnar séu upprunnir austan frá Úralfjöllum og stundum hefur verið talið að þeir væru af ásísk- um uppruna. Saga Finna áður en þeir settust að í því landi sem nú kallast Finnland en Finnar kalla Suomi er mistri hulin, og það hefur sömuleiðis jafnan ver- ið óljóst hvenær þeir settust þar að. Nýjar rannsóknir gefa til kynna að það hafi verið mun fyrr en áður hefur verið talið eða um 1500 fyrir Krists burð. En nýjar blóðflokkarannsóknir hafa leitt ýmislegt í ljós um uppruna Finna. Erfðafræðilega eru þeir skyldari Norðurlanda- búum og grönnum sínum í balt- nesku löndunum, jafnvel þeim sem ekki tala finnsk-úgrísk mál, þ.e. Lettum og Litháum. Finnar eru semsagt frændur okkar. Finnsk-úgrísk mál eru fjölmörg, en þeir sem þau tala eru dreifðir víða um Austur- Evrópu og einkum Sovétríkin allt austur í Asíu og mörg þeirra eiga nú mjög í vök að verjast gagnvart rússneskunni. Þetta eru mál eins og austjakiska, voguliska, syrjanska og mord- vinska ef það segir lesandanum eitthvað. Þess utan tilheyra eist- neska og ungverska þessum flokki tungumála. Tungumálið varpar Ijósi á samfélagið Rannsóknir á tungu Finna gefa ýmislegt til kynna unt það hvers konar samfélag Finnar mynduöu upprunalega. En ekki hvaðan þeir koma. A finnsku eru orð yfir fyrir- bæri eins og skóg, fljót, vatn, tré, Boga og ör „leifar“ frá ævagömlu máli, sem öll finnsk- úgrísku tungumálin hafa þróast frá. En finnska orðið yfir haf er á hinn bóginn „meri“ sem er tökuorð af indóevrópskum stofni. Með þetta í huga getum við dregið þá ályktun að Finnarnir bjuggu í fjarlægri fortíð í landi með skógum, vötnum og fljótum, og að þetta land lá langt frá sjó, þar sem tungumálið á ekkert upprunalegt orð yfir fyrirbærið haf. Þetta land gæti hafa legið hvar sem vera skal í Austur-Evrópu eða vestarlega í Asíu. Tungumálið segir okkur einn- ig að fjölskyldan var afar mikil- væg eining í þessu samfélagi, þar sem í þessu „frummáli" voru til orð yfir tengdaföður og tengdamóður og margs konar orð yfi.r fjölskyldutengsl. Það fólk sem talaði þetta „frummál“ hefur verið flökku- þjóð, safnarar og veiðimenn. Landið hefur verið strjálbýlt, til að fólk gæti lifað af veiðum og söfnun. Hafa menn áætlað að ekki megi búa fleiri en einn maður á hvern fermetra. Fjöl- skyldurnar hafa verið mjög hreyfanlegar, alltaf á flakki í leit að nýjum og nýjum veiðisvæð- urn. Þess vegna varðveitist tungumálið á gífurlega stóru landsvæði, t.d. frá Úralfjöllum til Finnska flóa. Þetta er ekki lengra en leiðin frá Hvíta hafi til Jenisej í Asíu, en frumbyggjar túndrunnar tala eitt og sama tungumál í öllu því feiknastóra svæði. Á þriðja árþúsundi fyrir Krist urðu tímamót í sögu Finna. Þeir kynntust landbúnaði og fóru að taka sér fasta búsetu. Á þessum tíma tóku Finnar við Eystrasalt- ið upp fjölda tökuorða, sem öll tengdust landbúnaði. Föst bú- seta þýddi að Finnarnir urðu að laga sig að nágrönnum sínum, siðum þeirra og háttum, sem gekk misjafnlega. Nýr forði tökuorða, sem kom til sögunnar á þessum tíma, bendir til átaka og styrjalda, en jafnframt frið- samlegra samskipta inn á milli. Þetta eru orð yfir stríð, þræla- hald, eiðsvarning, en einnig orð yfir samvinnu, siði, þjóðflokka og þar fram eftir götunum. Fjöldamörg germönsk töku- orð komu til sögunnar, eftir að Finnar settust að við Finnska flóann. Rannsóknir málvísinda- manna sýna að það hefur gerst minnst 1000 árum fyrir Krists burð. Þessar rannsóknir sýna að þegar þá höfðu þeir mikil sam- skipti við baltneskar þjóðir og ulþ.b. 500 árum síðar fer að gæta slavneskra áhrifa. Mállýsk- ur í Austur-Finnlandi urðu fyrir áhrifum af slavneskum málum, svo sem sjá má af mörgurn tökuoröum. Að auki hófust nú samskipti við Svía og sama. Frumnorræn mál höfðu áhrif á finnskuna, en hvað varðar sam- ana varð þróunin öfug, enginn þekkir upprunalegt mál þeirra, en með tímanum tóku samar í Finnlandi að tala finnsku. Dæmigerð mynd frá Finnlandi, vötn og skógar svo langt sem augað eygir. Nú er talið að Finnar hafi átt heimkynni þar í 3000-3500 ár. á. Jafnvel eftir að landið komst undir yfirráð Rússa árið 1809 hélt sænska áfram að vera hið opinbera tungumál og sam- kvæmt tilskipun Alexanders 1. hins fyrsta drottnara Finna af rússnesku þjóðerni giltu sænsk lög áfram í landinu. Endurreisn finnskunnar Vegir stjómmálanna eru órannsakanlegir. Þegar barátta fyrir endurreisn finnskunnar hófst um miðja síðustu öld átti hún ekki rætur að rekja til sjálfstæðistilburða Finna gagn- vart Rússum, heldur fremur hollustu við þá. Hún átti að sýna Rússum og umheiminum fram á að Finnar væru ekki ginnkeyptir fyrirsænskumfagurgala. Meðan á Krímstríðinu stóð höfðu Svíar, Bretar og Frakkar nefnilega fengið þá flugu í höfuðið, að Finnarnir væru búnir að fá nóg af rússneskri kúgun og vildu „frelsast“ undan henni með sænskri hjálp. Johan Wilhelm Snellman, heimspekingur og blaðamaður, var upphafsmaður og helsti hug- myndafræðingur í baráttunni fyrir finnsku sem ríkismáli, en eins og nafnið gefur til kynna var hann síður en svo finnskur og hafði enda sænsku að móður- máli. En Snellman gekk fleira til en að sýna andúð á yfirráða- stefnu grannans í vestri. Hann gerði sér grein fyrir því að viðskipti Finna við Rússa voru afar mikilvæg og máttu ekki líða undir lok. Finnar keyptu nefni- lega hráefni af Rússum, unnu úr þeim fullgerðar vörur og seldu þær til baka, öfugt við það sem venjulega gildir í viðskiptum herraþjóðarognýlendu. Raunar gildir þetta enn þann dag í dag í viðskiptum Finna og Sovét- manna og má Snellman með réttu kallast upphafsmaður þeirrar stefnu, gagnvart grann- anum í austri, sem þeir Paasikivi og Kekkonen áttu mestan þátt í að festa í sessi á árunum eftir seinni heimsstyrjöld. Sænska, tunga yfirstéttarinnar Tungur herraþjóða sigra gjarna tungur hinna undirok- uðu. Sænskan sigraði ekki finnskuna, en hafði mjög sterk áhrif á hana um aldaraðir af pólitískum ástæðum. Frá því á 14. öld lutu Finnar sænskum yfirráðum og Svíar hertu tök sín eftir því sem á leið. Á 17. öld var sænska orðin „aðgöngumiði“ að viðurkenningu í þjóðfélag- inu. Allt fram á síðustu öld var finnskan mál bænda og lágstétta. Enginn gat stundað nám við háskólann í Ábo, eða Turku nema læra fyrst sænsku, þar sem hún var það mál sem kennt var Styttur af gömlum Rússakeisurum eru sjaldséöar i heiminum, innan Sovétríkjanna sem utan. En í miðborg Helgsinki trónir þessi af Alexander II., sem árið 1863 löggilti finnsku sem jafnrétthátt mál í Finnlandi og sænsku. Finnar eru frændur okkar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.