Tíminn - 11.05.1986, Qupperneq 20
Tíminn
Sunnudagur 11. maí1986
I
Bílasíminn er nýjasta
æðið í Bandaríkjunum
N,_
ríkjunum er bílasímaæði. Fram-
leiðendur og sölumenn bílasím-
tækja upplifa um þessar mundir
gósentíð. Og spádómar gera ráð
fyrir að innan 15 ára verði fjórði
hver bíll í Bandaríkjunum búinn
símtæki. En meðan bílasíminn
er ekki orðinn almenningseign
er hann eftirsótt stöðutákn.
„Það er algjört æði að hringja
í vini sína og spjalla við þá áður
en lagt er út á hraðbrautina,“
segir 18 ára stúdent frá Virgina
fylki, sem fékk bílasíma í af-
mælisgjöf frá foreldrum sínum.
Hann segir einnig að stúlkurnar
verði uppnumdar af hrifningu,
þegar hann hringir í þær og segir
þeim að hann sé að tala við þær
úr bílnum sínum.
í byrjun ársins 1985 voru „ein-
ungis“ 100 þúsund bílasímar í
notkun í Bandaríkjunum, í árs-
lok voru þeir orðnir 340.213
þúsund. Aukningin var 271%.
„Þetta er allt í einu orðið milljarða
dollara iðnaður,“ segir einn
framleiðandi. Fjárfesting í þess-
um iðnaði er nú þegar farin að
nálgast einn milljarð dollara.
Sérfræðingar í Wall Street segja
að bílasímtækjaframleiðslan
hafi vaxið svo hratt, að slíkt sé
dæmalaust í sögunni.
Bílasímar eru til í ýmsum
gerðum og framleiðendur gera
sitt til að fullnægja kröfum glys-
gjarnra viðskiptavina. Skraut-
legustu símtækin kosta um 4
þúsund dollara, eða liðlega 160
þúsund íslenskra króna. En verð
á venjulegum tækjum hefur á
hinn bóginn farið hríðlækkandi
undanfarna mánuði.
En hverjir nota bílasíma? All-
ur sá fjöldi. manna sem hefur
atvinnu af viðskiptum af ýmsu
tagi og eyðir löngum og ein-
manalegum stundum á hrað-
brautum hefur af honum augljós
not. Þeir geta rætt við vini sína
og fjölskyldur á leiðinni og verið
í sambandi við viðskiptafund á
leiðinni frá einum stað til
annars. En þarfir þessara manna
skýra ekki sölusprengjuna á
bílasímunum. Hún verður ekki
skýrð á annan hátt, en að bíla-
síminn sé orðinn stöðutákn, sá
sem hefur bílasíma nýtur meiri
virðingar en sá sem hefur hann
ekki. En bílasíminn er dýrt
sport. Fyrir utan kostnaðinn við
að afla sér slíks tækis, kostar
mínútan í hverju samtali frá
þrem dollurum.
Margir óttast að almenn notk-
un bílasíma eigi eftir að minnka
öryggi á þjóðvegunum og valda
mörgum slysum. Ökumaður,
sem er upptekinn í símtali við
félaga eða fjölskyldumeðlim
með aðra höndina á símtólinu
er ekki líklegur til að bregðast
við óvæntum atvikum með jafn-
skjótum hætti og ef hann væri
laus og liðugur. En bílasímaæð-
ið er svo nýlega hafið að engar
rannsóknir sem mark er takandi
á hafa verið gerðar á þessu
atriði. Hins vegar hafa fram-
leiðendur velt fyrir sér lausnum
á vandamálinu og þær vanga-
veltur eiga mögulega eftir að
fæða af sér nýtt tækniundur,
síma sem stjórnast aðeins af
rödd ökumannsins. Þannig sími
gerði ökumanninum kleift að
tala í símann sinn en hafa eigi að
síður báðar hendur á stýrishjól-
inu.
Ef að líkum lætur mun þessi
nýja della ekki staðnæmast við
landamæri Bandaríkjanna. Ekki
:kæmi t.d. á óvart að landinn
kunni að reynast veikur fyrir
þessu tískufyrirbæri eins og sum-
um öðrum. Nú tekur listinn yfir
bílasímaeigendur aðeins eina
síðu í símaskránni og þar eru
aðeins fáir einstaklingar. Megn-
ið af bílasímum á Islandi er
skráð á fyrirtæki og stofnanir.
L