Tíminn - 23.08.1986, Síða 4
4 Tíminn !
Laugardagur 23. ágúst 1986
Dweezi Zappa og Molly
Ringwald sjást alltaf saman
nú og taka sig vel út. Hér eru
þau að fara í samkvæmi í
Beverly Hills Hilton hótelinu,
sem haldið er til heiðurs
kvikmyndahöfundi og
stjórnandanum Billy Wilder
Þegar Molly
(Sæt í bleiku)
fór til New York kom
ruglingur á rómantíkina
Molly keypti sér ýmislegt
nýtt í New York, en komst
svo að því að „heima er
best“.
svo hún flýtti sér heim til Hollywood
Molly Ringwald, sem fræg
varð þegar hún lék í Sæt í
bleiku (Pretty In Pink) hefur nú
fengið hvert hlutverkið af öðru
og slær alls staðar í gegn. Hún
er ein af vinsælustu ungu leik-
urunum í Hollywood.
Auðvitað er fylgst með
einkalífi dömunnar, hvort hún
sé trúlofuö o.s.frv. Hún segist
reyndar ætla að hefja aftur
skólagöngu áður en hún held-
ur lengra á framabrautinni, svo
hún hafði ekki gert neina fasta
áætlun um áframhaldið í leik-
dreif Molly sig bara heim til
Beverly Hills og allt komst í
Ijúfa löð á milli hennar og
Zappa og nú er aftur farið að
tala um trúlofun þeirra.
Þó finnst víst flestum í fjöl-
skyldum þeirra og sömuleiðis
vinunum, að ekkert liggi á þar
sem Molly er aðeins 18 ára -
og hann enn yngri!
GraceJonesá
frumsýningu
listinni.
Svo var það með trúlofunar-
standið. Molly varð hrifin af
Dweesil Zappa (sonur XX
Franks Zappa) þegar hún var
að verða 17 (hún er 18 ára
núna). Dweesil var svofeiminn
og rólegur í tíðinni, að Molly
varð að hafa mest fyrir því að
komagangi í sambandið, enda
er herrann svolítið yngri en
hún. Þetta gekk þó og allir
kunningjar þeirra voru orðnir
vanir því að tala um þau, Molly
og Dweesil, í sama orðinu.
En svo fór ungfrúin til New
York og varð fyrir einhverjum
freistingum. Það birtust myndir
af henni með Matt Dillon
leikara og jafnvel fleirum og
sögur um að hún væri hætt við
vininn hann Dweezil, en þá
Með svört gleraugu, gorma
í eyrum og „leðurblöku-
hatt“ var Grace Jones til-
komumikil á að horfa fyrir
frumsýningargesti
Er hún nú alveg orðin tjúlluð hún Grace, heyrðist
pískrað í kringum leik- og söngkonuna Grace
Jones þar sem hún gekk með sveiflu inn á
frumsýningu á nýjustu kvikmynd hennar,
„Vamp“, sem er mikil hryllingsmynd. Leikkonan
hafði sem sé klætt sig í stíl við myndina og var
hálfskuggaleg að sjá.
Grace er gefin fyrir áhrifamikla framkomu og
allir skulu horfa á hana, annars er hún ekki
ánægð, - en hvort þeir hafa verið ánægðir, eða
séð mikið, sem sátu fyrir aftan leikkonuna með
þennan ógnvekjandi höfuðbúnað - það er
önnur saga.
11 ÚTLÖND 111
FRETTAYFIRLIT
KARACHI — Tveir menn
létust og fjórir særðust þegar
hermenn skutu á verkamenn
sem tilheyra stjórnarandstöð-
unni í Pakistan þegar verka-
mennirnir voru að reyna að
setja upp vegartálma í Sind-
héraði í suðurhluta landsins í
gær.
RÓM — Fyrrum sendiherra
Filippseyja í Vatíkaninu var
handtekinn í gær fyrir að hafa
vopn í húsi sínu í Róm. Hann
er stuðningsmaður Marcosar
fyrrum forseta Filippseyja.
SANTIAGO — Vinstrisinn-
aðir skæruliðar hafa nú sleppt
lausum herforingja og þar með
bundið enda á fjögurra daga
vandræðalegt ástand fyrir her-
foringjastjórn Pinochets, en
hann heldur nú upp á 13 ára
valdaferil sinn.
HÖFÐABORG - Hvítir
stjórnarandstæðingar ásök-
uðu í gær ríkisstjórn Suður-
Afríku um að hafa haldið leynd-
um upplýsingum um raunveru-
legan fjölda þeirra sem hand-
teknir hafa verið með tilvísun
til neyðarlaaanna og sögðu
jafnframt að þúsunda and-
stæðinga stjórnarinnar væri nú
saknað.
MOSKVA — Háttsettur sov-
éskur embættismaður sagði í
gær að Sovétríkin hefðu áhuaa
á að taka þátt í GATT-vío-
ræðunum svokölluðu, þar sem
92 þjóðir reyna að koma sér
saman um tolla og viðskipti.
BEIRUT - Að minnsta kosti
þrír menn særðust í gær, þar
af einn alvarlega í stuttri
skothríð milli skriðdreka yfir
„grænu línuna", sem skilur á
milli hins kristna og múslímska
hluta borgarinnar.
LONDON — Verð á kaffi
hækkaði verulega á markaði í
London eftir að opinberar upp-
skeruáætlanir frá Brasilíu stað-
festu ótta kaupmanna um
slæm áhrif þurrkanna í Brasilíu
í fyrra.
TEL AVIV — Hópur skæru-
liða sem grunaður er um að
hafa staðio á bak við fjölda
árása á hernumdu svæðunum
á Vestur bakkanum síðan
1984 hefur nú verið handtekinn
að því er ísraelsk hernaðaryfir-
völd segja.
ADDIS ABABA - utan
ríkisráðherra Eþíópíu mun
fara í dag áleiðis til Sómalíu til
framhaldsfriðarviðræðna, en
þessar viðræður hófust fyrst í
janúar sl.
TEHERAN — Forseti íran,
Ali Khamenei, sagði í gær að
íran gæti neyðst ti! að svara
árásum íraka á olíuvinnslu-
stöðvar þeirra á þann hátt að
öll olíuviðskipti við Persaflóa
myndu stöðvast, þrátt fyrir að
íran vildi eiga vinsamleg sam-
skipti við önnur arabaríki við
| flóann.
STOKKHÓLMUR - full-
trúar á Afvopnunarráðstefnu
Evrópu töluðu saman í lokuð-
um fundarherbergjum í gær
þegar þeir skoðuðu óformlega
nýjar tillögur frá löndum Var-
sjárbandalagsins.
MOSKVA — Sovésk stjórn-
völd hafa sagst ætla að minnka
olíuútflutning sinn til vest-
rænna rikja og er það táknræn
yfirlýsing til stuðnings OPEC-
ríkjunum, en ekki er búist við
aö þessi ákvörðun Sovét-
manna hafi nein áhrif á
olíuverð.