Tíminn - 24.10.1986, Page 1
P* ■■ ^ ^ STOFNAÐUR1917
11 imnn
SPJALDHAGI
allar upplýsingar
á einum staó \
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
í STUTTU MÁU...
GUÐMUNDUR J. guö
mundsson hefur lýst því yfir aö hann
hyggist ekki gefa kost á sér í Alþingis-
kosningum. Guömundur J.‘ hefur verið
þingmaöur Alþýöubandalags í Fteykja-
vík síöan 1979.
ÞRJAR einkaflugvélar lentu í erf- ?
iðleikum í gær í grennd við Akranes.
Tvær vélanna lentu viö Ferstiklu í
Hvalfirði og biöu þar til éljagangur var
hættur. Þriöja vélin haföi verið í sela-
talningu á Vesturlandi og var orðin
eldsneytislítil og tók flugmaðurinn
þann kostinn aö lenda á túni viö
Akranesbæ. Enginn var hætt kominn
þegar vélarnar lentu.
STEINUNN Siguröardóttir í
bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins á
Akranesi hefur tekið þá endanlegu
ákvöröun aö gefa ekki kost á sér í
prófkjör Framsóknarflokksins á Vest- I
urlandi. Sterkur orðrómúr hefur verið
uppi um að Steinunn yröi kandidat
Akurnesinga í efstu sætin í prófkjörinu,
sem á að fara fram helgina 29.-30.
nóvember.
VÍMULAUS ÆSKA heldur '•
námskeið í Hagaskóla í Reykjavík um
helgina. Námsstefnan hefst kl. hálf tíu
bæði laugardag og sunnudag. Meðal I
efnis á laugardag veröur erindi for-
stööumanns neyðarathvarfsins í §
Tjarnargötu, landlæknis, rannsóknar-
lögreglumanns, geölækna og fleiri. |
Um kl. þrjú hefjast pallborösumræöur.
Meöal efnis á sunnudag eru erindi
deildarfulltr. unglingadeildar, þjóðfé-
lagsfræðings, fjölskylduráðgjafa, .
læknis og fleiri og um hálf þrjú byrja
almennar umræöur.
LEIÐTOGI kommúnistaflokksins
í Moldavíu, einu lýövelda Sovétríkj-
anna, var gagnrýndur í Prövdu i gær
fyrir aö hafa ekki tekist að koma í veg
rir svindl á framleiðslutölum. Semyon
rossu hefur leitt flokkinn í Moldavíu
síöan í desember árið 1980 en sú |
leiötogastaða gæti nú verið í tvísýnu
eftir ályktun miðnefndar flokksins sem
birt var í Prövdu. Síðan Mikhail Gor-
batsjov komst til valda hafa opinberir ;
fjölmiölar verið duglegir við að gagn- 1
rýna svindl í framleiðslutölum (oft i
kennt við svokallaða prósentumaníu) |
og bent á svæði þar sem slíkt er iðkað
af krafti.
MARKAÐSMÁL verða á j
dagskrá ársfundar Norrænu Markaðs- f
samtakanna á Hótel Sögu kl. 9.00.
Fund þennan sækja fulltrúar frá mark- I
aðssamtökum á Norðurlöndunum
ásamt félögum nýstofnaðra íslenskra
markaðssamtaka sem ber nafnið
ÍMARK. Það er raunar fyrsta stóra
verkefni ÍMARK að halda ársfund
Norrænu Markaðssamtakanna hér á
landi. Auk aðalfundarstarfa verða flutt
erindi, m.a. um söguleg, menningar-
leg og efnahagsleg tengsl milli Norður-
landanna og íslands. Erindið flytur
sendiherra Finnlands á íslandi. Guð-
jón Guðmundsson rekstrarhag-
fræðingur mun flytja erindi um auglýs-
ingar í útvarpi og sjónvarpi á íslandi.
KRUMMI
„Næsta skrefið er
flytja inn síld
Rússlandi."
Ólögmætt athæfi:
Silungur fluttur
inn frá Færeyjum
rokseldist í verslunum
„Við seldum þennan silung núna
á föstudag og laugardag og þetta
flaug út, enda er hann betri og
ódýrari en annar sambærilegur
eldisfiskur sem hér fæst,“ sagði
Júlíus Þór Jónsson verslunarstjóri
í Nóatúni, en hann er einn þeirra
aðila sem fékk silung innfluttan frá
Færeyjum nú fyrir skömmu.
„Við fengum þennan silung frá
Pólarlax, ég held þeir hafi verið að
gera þetta til að prófa eitthvað
nýtt. Þetta er fullkomlega löglegt,
þar sem fiskurinn er ræktaður í sjó
og ég gæti vel hugsað mér að flytja
þetta inn sjálfur. Annars vildi ég
helst kaupa þetta innanlands en sá
silungur sem hér fæst er bara af
öðrum stærðarflokki. Færeyski sil-
ungurinn var fimm til sex pund en
hér hafa aðallega verið á boðstól-
um eins punds fiskar,“ sagði Jú-
líus.
Finnbogi Kjeld, sem er einn
aðaleigandi að Pólarlaxi, sagði í
viðtali við Tímann að hann hefði
persónulega flutt þennan silung
inn, ekki Pólarlax og hefði verið
flutt inn rúmt tonn frá Færeyjum.
Sagði Finnbogi að viðtökurnar
hefðu verið góðar en það þyrfti að
sjá til með hvort framhald yrði á
innflutningi. Silungurinn er ein-
göngu sjóalinn, hefur verið í sjó í
tvö ár og ég veit ekki betur en það
sé löglegt að flytja hann inn,“ sagði
Finnbogi.
Árni Mathiesen dýralæknir fiski-
sjúkdóma sagði í samtali við Tím-
ann í gær að innflutningur á vatna-
fiski væri ólöglegur. Silungur væri
vatnafiskur. „Það er náttúrlcga
ekki rétt að fiskurinn sé alla tíð í
sjó. Hann er upprunninn í fersku
vatni og alinn upp í því sem seiði."
Árni sem jafnframt er ráðgjafi
fisksjúkdómanefndarsagði að aug-
lýsing frá fisksjúkdómanefnd hefði
birst í Stjórnartíðindum 3. nóv-
émber 1977 þar sem fisksjúkdóma-
nefnd notfærði sér heimild í lax og
silungsveiðilögunum frá 1970 til að
banna innflutning á vatnafiski.
Árni sagði að málið væri á misskiln-
ingi byggt og myndi fisksjúkdóma-
nefnd birta auglýsinguna aftur í
Stjórnartíðindum fljótlega.
Þess má geta að Laxalón er nú
að undirbúa slátrun á fiski svipuð-
um þeim er fluttur var inn frá
Færeyjum. Sá fiskur er þó heldur
minni.
Verðlagsráö
sjávarútvegsins:
Rækja
hækkuð
„Færeyski silungurinn flaug út og er uppseldur.“ Júlíus Þór Jónsson, verslunarstjóri stendur hér fyrir frantan
tómt fat sem áður var barmafullt af silungi frá frændum vorum. Vafl leikur hins vegar á um lögmæti þessa
innflutnings svo nú er málið í biðstöðu. Timamynd fjciur
Endurskoðun hf. kannar
bakreikninga Byggung
„Endurskoðun er eina endur-
skoðunarskrifstofan sem leitað var
til um þetta mál,“ segir orðrétt í
frétt frá Byggung þar sem greint er
frá því að samkomulag hafi verið
gert milli fulltrúa 5. byggingará-
fanga hjá fyrirtækinu annars vegar
og Endurskoðunar hf. hins vegar
um að „athugun fari fram á tiltekn-
um atriðum er varða uppgjör við
félagsmenn í 5. byggingarflokki
hjá félaginu."
Að sögn Árna Þ. Árnasonar
stjórnarformanns Byggung er tekið
svona til orða í fréttinni vegna þess
að á undanförnum dögum hafa
birst fréttir um að ekkert endur-
skoðunarfyrirtæki hafi viljað taka
að sér athugun af þessu tagi og
fyrirtækið hafi viljað leiðrétta
þennan misskilning. Spurningin
hafi einfaldlega staðið um það að
Endurskoðun hafi viljað að beiðn-
in um athugun kæmi með formleg-
um hætti og því hafi tekið nokkra
daga að ganga frá þessum málum.
Aðspurður sagðist Árni eiga von
á að tvennt kæmi út úr þessari
athugun. í fyrsta lagi að ekki væri
verið að láta félagsmenn 5. bygg-
ingarflok'ks borga bakreikninga
sem aðrir ættu að borga og í öðru
lagi að kostnaðarskiptingin milli
hinna 129 aðila þessa áfanga væri
réttmæt.
Hann sagði jafnframt að 40 millj-
ónir vantaði upp á að hægt væri að
gera upp þennan áfanga, en það
stangast á við aðrar tölur sem
sumir félagsmenn hafa nefnt og
eru mun hærri. -BG
um 22%
Yfirnefnd verðlagsráðs sjávarút-
vegsins hefur ákveðið nýtt lág-
marksverð á rækju, sem gildir frá
1. október sl. til 31. janúar 1987.
Uni er að ræða 22% meðalhækk-
um, en jafnframt var verðlags-
flokkum fækkað úr sjö niður í þrjá,
en auk þeirra er fjórði flokkurinn,
sem er undirmálsrækja. Heildar-
verð og skiptaverð er nú svona:
200 stk. og færri í kg kosta 62 kr.
þar af fara 44,02 til skipta. 201- 350
stk.í hverju kg kosta 45 kr. og þar
af koma 31,95 kr. til skipta. 291-
350 stk. í kg kosta 35 kr. en
skiptaverð er 24,85 kr. Loks er
heildarverðið á undirmálsrækju,
þ.e. 351 eða fleiri stk í kg, 15 kr.
og skiptaverð undirmálsrækju
10,65 kr.
Þetta verð var samþykkt með
atkvæði oddamanns, Bolla Þórs
Bollasonar, og atkvæðum fulltrúa
kaupenda, Árna Benediktssonar
og Jóns Guðlaugs Magnússonar,
en gegn atkvæðum fulltrúa selj-
enda þeirra Helga Laxdal og Sveins
Hjartar Hjartarsonar. -BG