Tíminn - 24.10.1986, Page 5
Föstudagur 24. október 1986
Tíminn 5
Tæknimat:
Mat á áhrifum nútímatækni í
atvinnu- og þjóðlífi nauðsyn
- segir í þingsályktunartillögu Davíös Aöalsteinssonar o.fl.
Davíð Aðalstcinsson (F.Ve.) er
fyrsti flutningsmaður að þingsálykt-
unartiljögu um tæknimat. Meðflutn-
ingsmenn eru þeir Jón Kristjánsson
(F.Au.) og Guðmundur Einarsson
(A.Rn.).
Tillagan kveður á um „að ríkis-
stjórnin láti kanna með hvaða hætti
áhrif nútímatækni í atvinnu- og
þjóðlífi verði metin á skipulegan
hátt samkvæmt þeirri fyrirmynd sem
felst í því sem erlendis liefur veriö
nefnt tæknimat (Technology Assess-
ment). Hagnýta skal erlenda þekk-
ingu á þessu sviði eftir því sem
kostur er. Séríslenskar aðstæður
verði þar að auki kannaðar og metn-
ar á svipaðan hátt eftir því sem
efni standa til.“
í greinargerð er hlutverk tækni-
matsins nánar útskýrt og þörf þess
að það sé framkvæmt. Þar segir:
„Tæknin er forsenda framfara og
velmegunar að áliti flestra. Tæknin
getur hins vegar haft margvísleg
áhrif sem „hreyfilögmál“ hennar og
þeir, sem knýja fram þróun tækninn-
ar, taka ekki mið af“.
Og áfram: „Stundum hefur því
farið svo að miklu hcfur verið kostað
til stórátaka á tæknisviði, fé sem
síðar kom í ljós að nýttist ekki nógu
vel vegna yfirsjóna þeirra sem fjöll-
uðu um tæknina eða tilreiddu upp-
lýsingar um hana. Stundum er slík-
um aðstæðum lýst þannig að tæknin
hafi í sér fólgið „innra hreyfiafl" sem
knýi áfram stjórnlausan vöxt hennar
án tillits til gagnsemi og áhrifa.
Slíkar lýsingar eru að vísu nokkuð
loftkenndar".
„Hreyfiafl nýrrar tækni er
þekking, áhugi og hagsmunir ein-
staklinga, samtaka og fyrirtækja.
Þetta afl er jákvætt í eðli sínu en það
er iðulega slegið blindu og brenglað
vegna stundarhagsmuna. Framrás
tækninnar þarf því að veita aðhald
með tímanlegu og víðsýnu mati í
senn, ekki síst á því sem eyða á
Davíð Aðalsteinsson alþingismaður.
verulegu fé til að þróa og kann að
hafa víðtæk áhrif á hagsmuni þjóð-
félagsþegnanna.“
Vísað er til jákvæðrar reynslu
annarra þjóða af slíku tæknimati og
að hérlendis hafi gætt aukins skiln-
ings á nauðsyn ítarlegra undirbún-
ingsathugana vegna stórfram-
kvæmda og beitingar og þróunar
nýrrar tækni. Þörf er að gera þessi
vinnubrögð markvissari með því að
færa þekkingu og aðferðafræði á
þessu sviði inn í landið, þó vart sé
ástæða til að koma upp sérstakri
stofnun í því augnamiði, einfaldari
leiðir séu til. Þá sé mat á séríslensk-
unr aðstæðum og tækni seinunnara
og dýrara, en beri að framkvæma
þegar mikið er í húfi.
Kvennalistakonur tregar til að gefa Sigríði Dúnu frí.
Hallæri hjá
Kvennalista
Fimmti varamaður í Reykjavík á þing
Athygli vakti á þingi í gær að inn
kom sem varaþingmaður fyrir
Kvennalista sjöundi maður á fram-
boðslista stjórnmálasamtakanna í
Reykjavík.
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
(Kvl.Rvk.) hafði beðið um fjarvist-
arleyfi vegna anna og inn kemur sem
varamaður hennar María Jóhanna
Lárusdóttir kennari, sem skipaði
sjöunda sæti framboðslistans í síð-
ustu kosningum. Kvennalistinn hef-
ur tvo þingmenn í Reykjavík, Sigríði
Dúnu og Guðrúnu Agnarsdóttur,
sem er uppbótarþingmaður. Kristín
Ástgeirsdóttir, Þórhildur Þorleifs-
dóttir, Guðrún Halldórsdóttir og
Ingibjörg Hafstað, sem skipa 3-6
sæti listans, sáu sér ekki fært að taka
sæti þingmannsins vegna anna. Kom
því í hlut Maríu Jóhönnu að setjast
á þing. Þykja annir Kvennalista-
kvenna með ólíkindum.
Þá vakti athygli að þrjár atrennur
þurfti til að samþykkja kjörbréf
varaþingmannsins vegna „ónógrar"
þátttöku. -ÞÆÓ
Alþingi:
Hægindi þingmanna
aukin og endurbætt
Stólar og borð endurnýjuö í þingsal
Svissnesk húsgögn í Kringluna.
Nú stendur fyrir dyrum endurnýj-
un á öllum stólum og borðum í
þingsal Alþingis auk þess sem skipt
verður um öll húsgögn í hinni svo-
kölluðu Kringlu, en það er íhugunar-
athvarf þingmanna.
Skv. heimildum Tímans var leitað
tilboða í verkið, og er reiknað með
að heildarkostnaður verði á bilinu
5-6 milljónir króna, en bæði borð og
stóla fyrir þingsalinn þarf að sér-
smíða. Talið er að kostnaður vegna
endurnýjunarinnar í Kringlunni geti
stappað nærri einni milljón króna.
Enn á eftir að ganga formlega frá
tilboðunum með undirskrift, en
Gamla kompaníið mun sjá um smíði
og uppsetningu á borðunum meðan
fyrirtækið Kristján Siggeirsson tekur
0/1^ /T\ 00 <r> ,ix
i i . ni' S S £
AF ÞINGI
að sér stólana. Þá mun Kristján
Siggeirsson vera umboðsaðili fyrir
húsgögn þau sem setja á upp í
Kringlunni, sófa, stóla og borð, en
þau verða væntanlega keypt frá
Sviss. Ástæða þess að ekki verða
keypt fslensk húsgögn í Kringluna
mun vera sú , að rétt „týpa“ fannst
ekki á íslenskum markaði, en leitað
mun hafa verið eftir„klassískum„
stíl sem þó mátti ekki vera gamal-
dags.
I tilboðinu var reiknað með að
uppsetningu verði lokið þann 12.
janúar, en vegna tafa sem munu
hafa orðið hjá Húsameistara ríkisins
sem sér um hönnun húsgagnanna í
þingsalnum, kann að verða nokkur
dráttur á því. Fari svo, getur komið
til að uppsetningu verði frestað
þangað til þing hefur lokið störfum
í byrjun apríl næsta vor.
Ástæða þess að farið var út í endur-
nýjun á húsgögnum núna, mun ann-
ars vegar vera sú að þingmönnum
verður fjölgað um þrjá eftir næstu
kosningar og því þarf að bæta við
sætum í þingsal, og hins vegar er
talið að leðurlíkisstólar þeir í Kringl-
unni sem þingmenn tylla sér gjarnan
í þegar færi gefst, munu farnir að
láta mikið á sjá.
phh
:
Miklar stólabreytingar eru framundan á Alþingi og eftir áramót mun enginn þeirra þingmanna sem þar sitja verma
þau sömu sæti sem hér sjást á myndinni. Ekki verður það dómur þjóðarinnar sem mun valda þessarí róttæku
breytingu, heldur verða bæði borð og stólar endurnýjuð, þar sem von er á þremur nýjum þingmönnum í
hópinn. Tímamynd: Sverrir