Tíminn - 24.10.1986, Qupperneq 15
Tíminn 15
Föstudagur 24. október 1986
Norðdekk-rall ræst í fyrramálið:
Lokaslagurinn um
meistaratitilinn
- aðeins þrjú stig skilja að efstu menn
Jón Ragnarsson og Rúnar Jónsson á fullu í rallí fyrr í sumar.
Þórhallur Kristjánsson og Gunnlaugur Rögnvaldsson. Ná þeir fyrsta sætinu?
Myndir: BÍKR
Síðasta rallið, í keppninni um
íslandsmeistaratitilinn hefst á
morgun. Keppnin verður mjög
spennandi því fyrir aksturinn eru
tveir keppendur svo að segja hníf-
jafnir. Þetta eru þeir Jón R. Ragnars-
son á Ford Escort, með 55 stig og
Þórhallur Kristjánsson á Peugot Tal-
bot með 52 stig og Þórhallur Kristj-
ánsson á Peugot Talbot með 52 stig.
Hjörleifur Hilmarsson á Toyotu
Corolla á einnig fræðilega möguleika
á að hreppa titilinn. Hann er með 45
stig.
I keppni aðstoðarökumanna hefur
Rúnar Jónsson sannfærandi forystu,
hefur 55 stig. Næstur kemur Sigurð-
ur Jensson með 44 stig.
Rallið sem verður ræst klukkan
sjö í fyrramálið ber yfirskriftina
Norðdekk-rall ’86. Keppnisbílarnir
22 verða ræstir frá Gúmmívinnu-
stofunni á Réttarhálsi. Alls er rallið
um 530 kílómetra langt og þar af eru
160 kílómetrar á sérleiðum. Fyrri
daginn verður endað við Gúmmí-
Sérleiðir
Laugard. 25. okt. Fyrsti keppnisbíll
Sérleið Ræsing 07:00
1 LH2 Stöng 08:53 15km
2LH4 Næfurholt 09:53 11 km
3LH6 Heklubraut 10:21 16km
4 LH 8 Geitasandur 10:48 4km
Matarhlé 11:07 -12:30
5LH12 Geitasandur 12:50 4km
6LH14 Heklubraut 13:07 16km
7LH16 Næfurholt 13:39 11 km
8LH18 Stöng 14:37 15km
9LH 20 Lyngdalsheiði 16:27 15km
10LH22 Esjuleið 17:35 4km
Endamark 18:00
Samtals 111 km
Sunnudagur 26. okt.
Ræsing 10:00
11 LH 26 Kapelluhraun 10:30 1,5 km
12 LH 28 Isólfsskáli 11:05 19km
13LH30 Stapafell 12:17 7km
14LH32 Isólfsskáli 12:55 19 km
15LH34 Kapelluhraun 13:45 1,5 km
Scmtals 48 km
Endamark við Gúmmivinnustofuna kl. 16
Tímatafla yllr sérleiðir þær sem
eknar verða í Norðdekk-rallinu á
morgun og sunnudag. Lokað verður
fyrir almenna umferð þegar keppnin
fer fram.
vinnustofuna að Réttarhálsi klukkan
18 og ræst verður aftur klukkan frá
sama stað klukkan 10 á sunnudags-
morgun. Lýkur keppni klukkan 16 á
sunnudag og fljótlega ættu að liggja
fyrir endanleg úrslit í keppninni um
Islandsmeistaratitilinn.
f frétt sem Bifreiðaíþróttaklúbbur
Reykjavíkur hefur sent frá sér, er
sagt að viðbúið sé að nokkur afföll
geti orðið í keppninni þar sem hún
verður mjög hörð og snjór og hálka
á sumum keppnisleiðum. Þá vekja
þeir BÍKR menn áthygli á því að
meðalaldur keppenda sé mjög hár,
eða 29 ár. -ES
Kjarnorkuvá:
Verjum ísland og
stöðvum Dounreay
Eitt af stefnumálum ungra framsóknarmanna
Ef slys verður í kjarnorkuhreinsi-
stöðinni á Dounreay, sem fyrirhugað
er að reisa á norðurströnd
Skotlands, þá mun geislavirkt úrfelli
ná til íslands á fáeinum klukkustund-
um.
Þetta kom m.a. fram á leiðtoga-
fundi NCF, samtaka norræna ung-
liðahreyfinga miðjuflokka, sem
Samband ungra framsóknarmanna á
aðild að. Á fundinum var að frum-
kvæði SUF-ara og annarra Norskra
ungliða samþykkt ályktun gegn
byggingu úrvinnslustöðvar kjarn-
orkuúrgangs á Dounreay. Ályktunin
hljóðar svo:
„NCF mótmælir byggingu úr-
vinnslustöðvar kjarnorkuúrgangs á
norðurströnd Skotiands.
Dounreay úrvinnslustöðin á að
endurvinna plútóníum, sem er eitt
hættulegasta efni heims, mjög geisla-
virkt og með u.þ.b. 24.000 ára
helmingunartíma.
Úrvinnslustöðin mun auka meng-
un í Norðursjónum og verða stöðug
ógnun við lífríki Norðurianda. Eftir
slys í stöðinni munu aðeins líða
örfáar klukkustundir þar til geisla-
virks úrfellis færi að gæta á Islandi
og í Noregi.
NCF gagnrýnir harðlega ríki Evr-
ópubandalagsins sem hyggjast nýta
sér úrvinnslustöðina, fyrir að stað-
setja hana á ysta útjaðri eigin landa,
og með því stofna lífríki landa utan
bandalagsins í hættu.
fbúar Orkneyja og Hjaltlandseyja
verða að fá stuðning Norðurlanda í
baráttunni gegn byggingu þessarar
úrvinnslustöðvar.
NCF skorar á ríkisstjórnir
Norðurlanda að mótmæla byggingu
úrvinnslustöðvar við bresk
stjórnvöld.
Hjá Sambandi ungra framsókn-
armanna er nú í undirbúningi herferð
gegn Dounreay og mun hún kynnt
síðar. Þá mun ofangreind ályktun
auk annarra gagna er snerta Dounr-
eay afhent Steingrími Hermannssyni
forsætisráðherra, er hann kemur til
landsins eftir heimsókn sína til Kína.
hm
Tíminn 15
Framsóknarvist
verður spiluð sunnudaginn 26. okt. kl. 14.00 að
verðlaun.
Haraldur Ólafsson alþingismaður flytur ávarp í kaffihléi.
Mætum vel og stundvíslega.
Framsóknarfélag Reykjavíkur.
Akranes
Fundur hjá Framsóknarfélagi Akraness mánudaginn 27. okt. kl. 8.30.
Dagskrá:
1. Kosning fulltrúa áflokksþing.
2. Bæjarfulltrúarnir ræða bæjarmálin
3. Önnur mál.
Mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin.
70 ára afmælisfagnaður
Framsoknarflokksins
verður haldinn í Háskólabíói fimmtudaginn 26. nóvemberog hefst kl.
20.30.
Dagskrá auglýst síðar.
Flokksþing Framsóknarflokksins
verður haldið að Hótel Sögu dagana 7.-9. nóv.
Dagskrá auglýst síðar.
Konur Suðurlandi
Skorum á allar framsóknarkonur í Suðurlandskjördæmi að taka þátt
í skoðanakönnun Framsóknarflokksins á laugardaginn.
Félag framsóknarkvenna í Árnessýslu
Suðurlandskjördæmi
Kynningarfundir frambjóðenda í skoðanakönnun Framsóknarflokks-
ins í Suðurlandskjördæmi 25. október n.k. verða sem hér segir.
10. október Flúðum, Árn. kl. 21.00.
12. október Leirskálum, Vík kl. 21.00.
14. október Kirkjubæjarklaustri kl. 21.00.
15. október Hvoli, Hvolsvelli kl. 21.00.
19. október Félagsheimili Þorlákshafnar kl. 13.00.
21. október Skansinum, Vestmannaeyjum kl. 21.00.
23. október Inghól, Selfossi kl. 21.00.
Framboðsnefndin.
Skoðanakönnun á Vestfjörðum
Skoðanakönnun um röðun á framboðslista framsóknarmanna í
Vestfjarðakjördæmi fyrir næstu þingkosningar, fer fram dagana
6.-7. desember 1986.
Hér með er auglýst eftir framboöum í skoöanakönnunina.
Skila skal framboðum til formanns kjördæmissambandsins Sigurðar
Viggóssonar Sigtúni 5, 450 Patreksfiröi, ásamt meðmælum stjórnar
framsóknarfélags eða 20 félagsbundinna framsóknarmanna á Vest-
fjörðum fyrir 9. nóvember 1986.
Skoðanakönnunin er opin öllum heimilisföstum Vestfirðingum, sem
lýsa yfir því að þeir séu fæddir fyrir 1. janúar 1972 (þ.e. verða 16 ára
á kosningaári), að þeir séu ekki félagar í öðrum stjórnmálaflokki og
þeir styðji stefnu Framsóknarflokksins.
Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður Viggósson í símum 1389
(heima) eða 1466 og 1477
Stjórn Kjördæmissambands framsóknarmanna á Vestfjörðum
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla
Vegna skoöanakönnunar framsóknarmanna í
Suðurlandskjördæmi fer fram dagana 11. til 24.
október hjá eftirtöldum:
Guðgeir Sumarliðason
ÓlafurHelgason
ReynirRagnarsson
RagnhildurSveinbjörnsd.,
Ágústlngi Ólafsson
Páll Lýðsson
Karl Gunnlaugsson
Kristján Einarsson
HjördísLeósdóttir
ÞórðurÓlafsson
Andrés Sigmundsson
Oddný Garðarsdóttir
Skrifstofa Framsóknarflokksins
Yfirkjörstjórn
AusturHlíð, V-Skaft.
Hraunkoti, V-Skaft.
Vík í Mýrdal
Lambey, Rang.
Hvolsvelli
LitluSandvík, Árn.
Varmalæk, Árn
Selfossi
Selfossi
Þorlákshöfn
Vestmannaeyjum
Vestmannaeyjum
Reykjavík