Tíminn - 18.11.1986, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 18. nóvember 1986
Tíminn 3
Miðbærinn í Reykjavík:
Stuðningsmenn
Skipulagsnefnd samþykkir nýtt
Reykvíkingar
Svona lítur Kvosin út í dag.
Svona lítur Kvosin út samkvæmt nýja deili-
skipulaginu sem samþykkt var í skipulagsncfnd
í gær.
Stuðningsmenn Haralds
Ólafssonar minna á prófkjör
Framsóknarflokksins semfram
fer 29. og 30. nóv.
Rétt til þátttöku hafa fé-
lagar í Framsóknarfélögunum
í Reykjavík og þeir sem rita
undir yfirlýsingu um að þeir
vilji taka þátt í prófkjöri
flokksins.
Menn geta
gengið í flokksfé-
lögin eða óskað eft-
ir að taka þátt í
prófkjörinu á skrif-
stofu Framsóknar-
flokksins Rauðar-
árstíg 18. fram á
miðvikudagskvöld
19. þ.m.
Opið alla daga.
skipulag
Kvosarinnar
Nýtt deiliskipulag fyrir Kvosina í
Reykjavík var samþykkt á fundi
skipulagsnefndar borgarinnar í gær.
Mál þetta hefur verið mikið hitamál,
en var samþykkt með þremur at-
kvæðum sjállstæðismanna og at-
kvæði Alfreðs Þorsteinssonar full-
trúa Framsóknarflokksins gegn at-
kvæði Alýðubandalagsins.
í samtali við Tímann í gær sagði
Alfreð að deiliskipulag Kvosarinnar
væri mjög viðkvæmt mál og að taka
hefði þurft tillit til margra þátta,
einkum gamalla húsa sem hefðu
sögulegt gildi. Nefndi hann í því
sambandi Austurstræti 22 og Lækj-
argötu 2‘, en þau hús hefðu átt að
víkja ef farið hefði verið að upphaf-
legum tillögum. Alfreð gerði sér-
staka bókun með atkvæði sínu í gær
þar sem hann styður þessa tillögu
með áorðnum brcytingum og nteð
fyrirvara um hugsanlcgar breytingar
á útfærslu einstakra efnisþátta.
Eins og sjá má af meðfylgjandi
myndum er gert ráð fyrir miklu
bakhúsi úr gleri og öll húsalengjan
hækkar/
Höfundar að þessu skipulagi eru
arkitektarnir Dagný Helgadóttir og
Guðni Pálsson. - BG
Jón Aðalsteinn
sextugur
Jón Aðalstcinn Jónasson er sext-
ugur í dag, 18. nóvember. Hann
hefur lagt gjörva hönd á margt um
æfina en samt haft tíma til að sinna
umsvifamiklum félagsmálum.
Jón Aðalsteinn hóf sncmma af-
skipti af stjórnmálum og hefur gegnt
mörgum trúnaðarstörfum fyrir
Framsóknarflokkinn. Hann var í
stjórn FUF, síðar formaöur Frant-
sóknarfélags Reykjavíkur og for-
ntaður Fulltrúaráðs framsóknarfé-
laganna í Reykjavík og hefur setið í
miðstjórn Framsóknarflokksins. Þá
hefur liann setið í mörgum ráðum og
nefndum sem fulltrúi Framsóknar-
flokksins.
íþróttamál hefur Jón Aðalsteinn
einnig látið til sín taka og var um
árabil formaður Knattspyrnufélags-
ins Víkings og sat um skeið í Iþrótta-
ráði Reykjavíkur.
Eiginkona Jóns Aðalsteins er
Jónína Sveinsdóttir. Þau hjónin eru
að heiman í dag.
Tíminn sendir Jóni Aðalsteini
Árnaðaróskir á afmælinu og óskar
honum ntargra og starfsamra ára.
Jón Aðalsteinn Jónasson.
skemmdir
vegna brims
Miklar skemmdir urðu á Ós-
hlíðarvcgi milli ísafjaröarog Bol-
ungarvíkur aðfaranótt laugar-
dagsins vcgna brints scm braut
upp undir vegkantinn sem lét
undan að lokum. Töluvert brim
er búið að vera á þessum slóðum
í marga daga. Vcgurinn sjálfur
fór ekki sundur og er því bílfær.
Skemmdirnar urðu einkum á
þremur stöðum, við Hvanngjá,
utan við Krossinn og á Skriðun-
um. Viðgcrðir eru að hefjast en
það fer cftir veðri hve langan
tíma þær taka. Núna verður ekið
grjóti í vegkantinn en endanleg
grjótvörn getur ekki farið fram
fyrr en í vor þar scm snjór hamlar
fullnaðarviðgerð nú. Ekki er
kontin kostnaðaráætlun á við-
gerðina, en að sögn vegagerð-
armanna á ísafirði eru þetta
kostnaðarsamar framkvæmdir.
ABS
Hótel KEA á Akureyri:
Fertugur maður
fannst látinn
Féll niður þrjár hæðir
Liðlega fertugur karlmaður fannst
látinn fyrir utan Hótel KEA á Akur- f
eyri í gærmorgun um klukkan 9:30.
Talið er að maðurinn hafi fallið út
um vængjahurð á fimmtu hæð og
niður á steinsteypt plan þremur
hæðum neðar. Taiið er að maðurinn
hafi látist samstundis. Ekki var búið
að ná í alla aðstandendur í gær og er
því ekki hægt að gefa upp nafn
mannsins að svo komnu máli.
-ES