Tíminn - 18.11.1986, Qupperneq 5

Tíminn - 18.11.1986, Qupperneq 5
Þriðjudagur 18. nóvember 1986 Tíminn 5 Frumvarp um tekju- og eignaskatt: Markmiðið er að lækka tekjuskatt um 300 millj. Fjármálaráðherra hefur lagt fram fumvarp um tekju- og eignaskatt á Alþingi, sem hefur þann tilgang að lækka tekjuskatt urn 300 milljónir. Til að ná þessu markmiði eru lagðar til eftirfarandi aðgerðir í frumvarp- inu. í fyrsta lagi er lagt til að allir frádráttarliðir laga um tekju- og eignaskatts vcrði hækkaðir til sam- ræmis við hækkun á álagningarstofn- inum eða um 31%. í öðru lagi verði skatthlutföll í skattstiga lækkuö á þanh veg að 19,5% í fyrsta þrepi verði 18%, 30,5% í öðru þrepi verði 28,5% og 43,5% í cfsta þrcpi verði 38,5%. Þá er gert ráð íyrir að skattþrepin hækki milli ára um rúm 47% í stað 31%. Þessar prósentur segja í raun að í fyrsta þrepi skuli rcikna 18% tckju- skatt af tekjuskattsstofni allt að 400.000 krónum. í öðru þrepi skal reikna 28,5% tekjuskatt af tekju- skattsstofni á bilinu 400-800.000 krónur. Og af tekjuskattsstofni unt- fram 800.000 skal rcikna 38.5%. Þá boðar frumvarpið að persónuaf- sláttur, barnabætur og barnabóta- auki verði hækkaður um 20% í stað þcirra 15‘M. sent veriö hefði mcð óbreyttri skattbyrði tekjuskatts á næsta ári. Fram kemur í greinargerð að breyt- ingarnar, scm frumvarpiö boðar, mundu t.d. itafa í för með sér eftirfarandi skattleysismörk: fyrir einstakling 400.000 kr.; fyrir hjón yrðu þessi ntörk 720 þúsund krónur og fyrir hjón með 3 börn cða fleiri yrðu þau 1.080.000 krónur. Athuga ber þó að hér er miðað við meðaltal af framreiknuðum framtölum tekju- ársins 1985, og frávik því möguleg. ÞÆO Tryggvi Ólafsson myndlistarmað- ur við eitt verka sinna. Tryggvisýnir í Gallerí Borg Tryggvi Ólafsson myndlistar- maður opnaði ntálverkasýningu í Gallerí Borg við Austurvöll, sl. fimmtudag. Á sýningunni eru 35 akrílmyndir sem allar eru til sölu. Flest vcrkanna eru unnin á þessu ári. en nokkur í fyrra. Sýningin stendur til þriðju- dagsins 25. nóyember og er opin frá kl. 10.00 til 18.00 alla virka daga. en milli klukkan 14.00 og 18.00 laugardag og sunnudag. Þingmannafrumvarp: SÉRSTAKUR SKATTADÓMUR - er efni frumvarps tveggja alþýðubandalagsmanna SvavarGestsson (Abl.Rvk.) hefur mælt fyrir frumvarpi sem hann flytur ásarnt Geir Gunnarssyni (Abl.Rn.) um að setja á fót sérstakan skatta- dómstól fyrir landið allt. í ntáli framsögumanns kom fram að hlutverk skattadóms væri að rannsaka og dæma í málum scm höfðuð eru af ríkissaksóknara til rcfsingar vegna brota á skattalögum og brota sem tengjast skattsvikum, auk brota gegn bókhaldslögum og gjaldeyrislögum. Til að sinna þessum niálum yrði 45. Fiski- þing var sett í gær Fiskiþing, þaö 45. í rööinni var sett í gær. í setningarræðu sinni minntist Þorstcin Gtslason fiski- málastjóri tveggja félaga í Fiski- félaginu sem létust á árinu. þeirra Hjalta Gunnarssonar skipstjóra og útgcrðarmanns frá Reyöar- firði og Magnúsar Amlín útgerð- armanns frá Þingcyri. Þorsteinn sagði að undirbúningur fyrir þing- ið hafi staðiö yfir sl. 10 vikur og því fjöldi vel undirbúinna rnála á dagskrá þingsins. Meðal þeirra má nefna stjórnun fiskveiða. af- komumál í sjávarútvegi, öryggis- og hafnamál. Á Fiskiþingi sitja 37 fulltrúar frá deildum Fiskifélagsins og er áætlað að þingið standi í 5 daga. - BG skipaður sérstakur sakadómari í skattamálum, skattadómari. Jafn- framt starfaði innan Rannsóknarlög- reglu ríkisins sérhæfð deild. sem annaðist brot á sviði skattamála. Meginhvatann aö þcssu frumvarpi sagði Svavar vera skýrslu fjármála- ráðherra unt skattsvik, sem birt var á s.l. sutnri, en þar kcmur m.a. frani að umfang dulinnar stárfsemi hér- lendis er talin vera á bilinu 5-7% af vergri landsframleiðslu. Þá segir í skýrslunni að ef miðað sé við 6% sem meðaltal þá ncmi umfangið um 6.5 milljörðum kröna árið 1985. Tap ríkisins vegna vangoldinna beinna skatta og söluskatts má því áætla um 2.5 - 3,0 milljarða króna fyrir það ár. Þá sagði frummælandi að með samþykkt þessa frumvarps fengi Rannsóknarlögreglan lagalegan grundvöll ti að starfa eftir. Þess væri þörf því í þeirri dcild hennar sem nú rannsakaði svokölluö „hvítflibba- brot" væri enginn sérmenntaður starfsmaður til slíkra rannsókna. Jón Helgason dómsmálaráðherra sagði að niðurstaða könnunar í ráðu- ncyti hans eftir að skýrslan kom fram hefði verið sú, að ekki væri æskilegt að setja á stofn sérstakan dómstól. Álagút afskattsvikamálum væri misjafnt og fjöldi slíkra mála sveiflukenndur. Því hefði það ráð verið tekið að mynda sérstaka deild innan Rannsóknarlögreglu ríkisins, sem þegar hefði sýnt árangur í starfi. Þá sagði dómsmálaráðherra að sakadónturum hefði verið fjölgað um einn, sem sæi þá um þennan tiltekna málaflokk þannig að skatt- svikamál fengju skjótari afgreiðslu en verið hefði. Aðrir þingmenn scm til máls tóku í umræðunni lýstu ánægju sinni yfir að farið væri að ræða þessi mikilv.egu mál í þingsölum. ÞÆO. Síldarsöltun hefur gengiö vel það sem af er í Neskaupstað. Þó setti skortur á tunnum strik í reikninginn. Tímamynd Svanfríóur. Neskaupstaöur: Síldarsöltun stopp vegna tunnuleysis Þrekvirki sjómanns frá Hrísey: Hafðist við í sex klukkutíma á kili - Flríseyjarferjan kom fyrst á Um klukkan 17:30 á laugardag- inn hvolfdi sex tonna bát frá Hrísey norðvestur af eynni. Baldur Hjör- leifsson eigandi bátsins var á lín- uveiðum er tvö brot riðu yfir bátinn með þeim afleiðingum að hann fylltist og sökk. Einungis stefnið stóð upp úr haffletinum og tókst Baldri að krafla sig upp á það. Þar hafðist Baldur við í rúmar sex klukkustundir blautur og kaldur, þar til leitarmenn björguðu honum. Að sögn Alfrcðs Konráðssonar skipstjóra á Hríseyjarferjunni, sem fyrst kom á slysstað, hafði Baldur hringt í land um klukkan 17 og sagðist verða kominn í land um klukkan 18. Þegar ekkert hafði heyrst frá honum klukkan 22 var leit hafin. Hríseyjarferjan kom síð- an á slysstað um hálfum klukku- slysstað tíma síðarognáði Baldri um borð. Læknir frá Dalvík kom fljótlega á staðinn og veitti Baldri aðhlynn- ingu og er líðan hans nú eftir atvikum, en hann kól verulega á báðunt fótum. Hríseyjarferjan dró bátinn til lands. Ferjan tók land í Hrísey klukkan 2:30 aöfaranótt sunnu- dags. -HIÁ Akureyri - von er á fleiri tunnum um helgina Síldarsöltun þetta haust hefur gengið nokkuð vel, eftir upplýsing- um sem fengust hjá Gylfa Gunnars- syni í Söltunarstöðinni Mána, Nes- kaupstað. Þó eru þeir stopp núna, þar sem þeir eru tunnulausir. Það er von á fleiri tunnum um helgina og sagði Gylfi að sér þætti það góð frammistaða hjá Síldarútvegsnefnd, að vera búnir að útvega tunnur aðeins viku eftir að samningarnir við Rússa voru undirritaðir. En að sögn Gylfa var það samþykkt á fundi hjá síldarsaltendum að kaupa ekki tunn- ur fyrr en samningar tækjust. Hjá Söltunarstöðinni Mána er nú búið að salta 5400 tunnur og telur Gylfi að eftir sé um það bil hálfur mánuður af vertíðinni. Það var líka talað við Síldarvinnsl- una í Neskaupstað, en þeir hafa lítið saltað, eða aðeins um 600 tunnur af flökum til Svíþjóðar. Sú söltun hefur verið unnin jafnhliða síldarfrysting- unni. Að sögn Finnboga Jónssonar framkvæmdastjóra Síldarvinnslunn- ar í Neskaupstað er það út af aðstöðuleysi að þeir salta ekki meira en þetta, en þó alveg eins vegna þess að verðið á síldinni er ekki nógu hagstætt. Þeir ætla að salta eitthvað af Rússasíld og verður það unnið sem aukageta með saltfiskvinnslunni og aðallega af fólki sem þegar starfar þar. Hjálmar Kristinsson verkstjóri við síldarfrystingu hjá Síldarvinnslunni sagði að nú væru þeir búnir að frysta 250 tonn af stórsíld á Japansmarkað. Sagði hann að búið væri að gera 1200 tonna samning við Japan og væri hlutur Síldarvinnslunnar af þeim samningi um það bil 400-500 tonn. Er síldin mjög ný og góð, þar sent hún er veidd rétt við bæjardyrnar. Fara bátarnir aðeins rétt út á fjörð- inn og dæla þar upp síldinni. Við síldarfrystinguna vinna um 70 manns á tveim vöktum og hélt Hjálntar að frystingin myndi endast þeim út þessa viku eða eitthvað fram í þá næstu. S.H.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.