Tíminn - 18.11.1986, Side 13
Þriðjudagur 18. nóvember 1986
iTíminn 13
MINNING
lílií'lillil
llllllllllll
Feðgaminning
Sigmar Jónsson
Fæddur 18. janúar 1943
Dáinn 18. september 1986
Jón Sumarliðason
Fæddur 21. september 1915
Dáinn 27. október 1986
„Á snöggu augabragði af skorið
verður fljótt, lit og blöð niður lagði,
líf mannlegt endar skjótt“ (H.P.)
Pað hefur orðið skjótt högga á
milli hjá Sigurlaugu systur minni.
Réttum mánuði eftir að sonur henn-
ar Sigmar var borinn til grafar, varð
maður hennar Jón Sumarliðason
bráðkvaddur á heimili þeirra. Einn
dagur hafði liðið á milli frá því þau
héldu upp á 45 ára hjúskaparafmæli
sitt. En þá brá ský fyrir sólu. Sigmar
hafði barist stuttri en harðri baráttu
við hinn ógnvænlega sjúkdóm uns
yfir lauk. Fram til síðustu stundar
var hin ástkæra eiginkona hans Sigr-
ún Kristófersdóttir hjá honum og
veitti af kærleika sínum og ástúð,
svo sem í hennar valdi stóð, þó hann
væri á sjúkrahúsi í Reykjavík, en
heimili þeirra var á Blönduósi. Það
sagði mér maður er heimsótti Sigmar
og hafði bæn við sjúkrabeð hans, að
mikill friður og ró hefði hvílt yfir
honum, svo auðséð var að hann átti -
frið Guðs í sálu sinni, og var hann
þakklátur fyrir þessa heimsókn. Það
eru aðrir búnir að skrifa um báða
þessa menn, svo ég mun skrifa meir
til þeirra, sem sárast sakna horfinna
vina.
Biblían orð Guðs (2 Tím 3:16)
kemur inn á öll svið mannlegs lífs
m.a. sorg og gleði, og veitir huggun
og frið. Jesús sagði: „Komið til mín,
allir þér, sem erfiði og þunga eruð
hlaðnir, og ég mun veita yður hvíld“
(Matt 11:28). Þegar Job var lengst
niðri í sorg og neyð sagði hann:
„Drottinn gaf, og Drottinn tók,
lofað verði nafn Drottins" (Job
1:21). Davíð konungur sagði:
„Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta... Jafnvel þótt ég fari
um dimman dal, óttast égekkert illt,
því að þú ert hjá mér, sproti þinn og
stafur hugga mig“ (Sálm 23). „Guð
er oss hæli og styrkur, örugg hjálp í
nauðum" (Sálm 46:2). Þannig mætti
lengi halda áfram með huggunarorð
frá Guði til þeirra sem vilja tileinka
sér fyrirheiti hans, sem aldrei munu
urjdir lok líða (Matt 24:35).
I hvert skipti, sem ég horfi á eftir
kærum vini í hinsta sinni, kemur sú
hugsun til mín, hver verður næst.
Kannski ég. Þá minnist ég hinna
sígildu orða Hallgríms Péturssonar.
Ég lifi í Jesú nafni, í Jesú nafni ég
dey.
Pó heilsa og lífmér hafni, hræðist ég
daudann ei.
Dauði, ég óttast eigi, afl þitt né
valdið gilt.
í Kristi krafti ég segi: Kom þú sæll
þegar þú vilt.
Það er þessi trú, sem veitir kraft
og huggun út yfir gröf og dauða.
Jesús sagði líka við lærisveina sína,
þá sem trúðu á hann. „Ég lifi og þér
munuð lifa“ og í skilnaðarræðu sinni
talar hann mikið um þetta (Jóh. 17
kap).
Élskuðu vinir, Sigurlaug og
Sigrún, börn og systkini. Við hjónin
vottum ykkur innilcgustu samúð
okkar, og biðjum Guð að blessa
ykkur og styrkja.
Ó. þá náð að eiga Jesú,
einkavin í hverrí þraut.
Ó, þá heill að halla mega,
höfði sínu í Drottins skaut.
(M.J.)
Sigfús B. Valdimarsson.
Sigmar Jónsson
Jón Sumarliðason
llllllllllllllllllllllllllll PLÖTUR
SöngvarSelmu Kaldalóns
Selma Kaldalóns, dóttir Sigvalda,
fæddist 1919 vestur við ísafjarðar-
djúp og ólst upp á heimili þar sem
tómstundir, og raunar lífið sjálft,
snerust um söng og tónlist. Ekki
ætluðu forlögin henni samt að helga
sig tónlistinni, því árið 1944 giftist
hún Jóni Gunnlaugssyni læknanema
er varð héraðslæknir á Reykhólum
og síðar læknir á Selfossi og í
Reykjavík; þau eignuðust 9 börn og
ólu upp 10. Þrátt fyrir annasama ævi
var tónlistin ævinlega fylginautur
Selmu og náðargjöf. Hún spilaði á
píanó og samdi sjálf lög þótt ekki
færi hátt utan fjölskyldu- og vina-
hóps, þar til árið 1980 er Fálkinn gaf
út hljómplötu með tólf sönglögum
Selmu á annarri hlið og tíu eftir
Sigvalda á hinni. Þremur árum síðar
gaf hún út nótnahefti með 27 söng-
lögum.
Nýlega kom svo út hljómplata
með 24 sönglögum hennar, sem
fimm þjóðkunnir einsöngvarar flytja
við undirleik Jónasar Ingimundar-
sonar og Ólafs Vignis Albertssonar.
Útgefendur eru Jón Gunnlaugsson
og afkomendur þeirra hjóna. Platan
er helguð minningu Selmu, en hún
lést af slysförum fyrir tveimur árum.
Bókaútgáfan Örn og Örlygur annast
dreifingu plötunnar.
Sönglög Sigvalda Kaldalóns og
annarra tónskálda hans kynslóðar
voru hluti af þeirri þjóðfélagsbylt-
ingu sem þá var að eiga sér stað -
hluti af nýju íslandi. Síðan breyttist
allt: glymskrattinn og útvarpið komu
til sögunnar, og seinna kom liernám-
ið og ennþá nýtt ísland, sem engan
hafði getað órað fyrir. Selma Kalda-
löns er af eins konar millibils-
kynslóð: sönglög hennar liggja að
vissu leyti milli Sigvalda Kaldalóns
og Sigfúsar Halldórssonar, ofurlítið
dægurlagakennd með köflum en allt-
af falleg og náttúrleg. Flest kvæðin á
hinni nýju plötu eru eftir mann
hennar, Jón Gunnlaugsson, þrjú eru
eftir Stefán frá Hvítadal, tvö eftir
Ingólf frá Prestbakka, tvö eftir Jón
frá Ljárskógum og eitt eftir ýmsa -
Jóhannes úr Kötlum, Sigurð
Norland, Oddnýju Kristjánsdóttur,
Hannes Pétursson, Guðmund
Guðmundsson, Krístin Reyr, Kristj-
án frá Djúpalæk - tónskáldin, allt
frá Schubert til samtímamanna, hafa
lagt mikið til að gera misgóðar
afurðir skáldanna ódauðlegar.
Hringhenda Sr. Sigurðar Norland er
skemmtileg, en hann gerði talsvert
af því að yrkja á ensku undir íslensk-
um bragarháttum:
She is fine as morn in May,
mild, divine and clever.
As a sliining summerday,
she is mine forever.
Eins og áður sagði syngja 5 þjóð-
kunnir listamenn á plötunni, þau
Kristinn Sigmundsson, Elísabet F.
Eiríksdóttir, Elín Sigurvinsdóttir,
Júlíus Vffill Ingvarsson og Guðrún
Tómasdóttir. Vel er til plötunnar
vandað tæknilega, hún er að öllu
unnin hér heima með „stafrænni
tækni“ (digital). Aðstandendur
plötunnar hefðu ekki getað minnst
Selmu Kaldalóns með betra hætti
jafnframt því sem söngvinum bætast
24 lög til að hlusta á.
Sig.St.
OÍUls
llllllllllllllllllllllllllll VIÐSKIPTALÍFIÐ
Um form lána á
evródollara-markaði
A lánum á evrodollara-markaði
cru margs konar forrn. Frá helstu
formum þeirra er sagt í grein í
Econoniist 23. ágúst 1986. og verður
þeirra hér lauslega getið.
Eurobonds. Útboö skuldabréfa
ríkja. ríkisstofnana. auðhringa og
stórra fyrirtækja, hefur frá 1963
a.m.k. vcrið einn stærsti liður við-
skipta á markaðnum. Það ár var í
Bandaríkjunum settur svonefndur
vaxtajöfnunarskattur á útboð
verðbréfa útlendinga. Til rúnis ruddi
sér form, sem fyrst var liaft á útboði
skuldabréfa fyrir Autostrade, (scm
rekur þjóðvegina í Ítalíu). Verð-
bréfin voru til fimm ára og voru
(greidd mcð fimm jöfnum afborgun-
um?), en báru öll árin jafn háa vexti.
5'/5% af nafnverði. Fyrsta kastið
seldust evró-verðbréf hvað bcst á
Niðurlöndum og í Sviss. en þeim
urðu fljótlega flestir vegir færir.
EuroCD. í stað þess að færa
stórar innstæður til tiltckins tíma inn
á tékka- eða sparireikning fóru
bankar, við móttöku þeirra, að gefa
út kvittanir, öllu heldur skírteini.
scm viðtakandi gat geymt til gjald-
daga eða selt öðrum. Á þessum
innstæðuskírteinum er nllmikil um-
setning.
FRN, i.e. floating rate note. Með
þessum verðbréfum og venjulegum
evró-verðbréfum skilur, að FRN-
bréf bcra brcytilega vexti, oft mið-
aða við vexti á lánum banka á milli
í London að viðbættu W'/u, (þ.c.
LIBOR. London Interbank Offered
Rate að viðlögðu '/:%). Bankar hafa
ýmist keypt þessi bréf eða gefið þau
út sjálfir.
Syndicated loans. Um útboð lána,
(þ.e. sölu á nýútgefnum skuldabréf-
um lántakenda), liafa bankaroft haft
með sér samlag (eða félag), einkum
frá árum Víetnam-stríðsins. Lántak-
endur eru þá oftast ríki, ríkisstofn-
anir. auðhringar eða önnur stór
fyrirtæki. Þessi samlög banka kaupa
i fyrstu öll hin útgefnu verðbréf og
baktryggja. Fé til kaupanna taka
þeir oftast að láni á peningamörkuð-
um og þá til skamms, jafnvel ör-
skamms tíma. Síðar kunna samlags-
bankarnir að selja þau öðrum.
Bouglit deals. Frá myndun þcss-
ara lauslegu samlaga cða félaga
banka (syndicates) um útboð
verðbréfa hvarf Credit Suisse First
Boston (CSFB) 1980. í stað þess
baktryggði hann cinn og keypti ný
verðbréf upp á $ 150 milljónir af
Export Development Corporation of
Canada. Þótt CSBF tapaöi á þeim
kaupum, fetuðu aðrir bankar fljót-
lega í þessi fótspor hans. Fastir
vextir eru á vcrðbréfum keyptum
þannig í einu lagi. Hefur þcssi háttur
útboðs skuldabréfa notið vinsælda á
meðal stærstu banka og einnig á
meðal stórra lántakcnda. Hafa lán-
takendur stofnað til uppboöa, com-
petitive bids, á nýjum vcrðbréfum
sínum. Um helmingur útboða vcrð-
bréfa á cvródollara-markaði mun nú
vera að þessum hætti.
Subparticipation. Stórir bankar
selja stundum smærri bönkum að
hluta lán sín til miðiungi langs tíma,
oft aðeins eitt eða tvör ár. Hinir
síðarefndu veita yfirlcitt ckki lán til
langs tíma, en gcta með þessu rnóti
tckið þau til sín um skamman tíma.
Hins vegar fá hinir fyrrnefndu þann-
ig tækifæri til að hagræða „jánaeign"
sinni.
Note Issuance Facility (NIF). Fyr-
ir milligöngu banka og baktryggingu
gcfa lántakcndur stundum út
skuldaviðurkcnningar cða skírtcini,
að jafnaði til 3 eða 6 mánaöa.
Skírteinin eru seld á peningamark-
aði, cn þau þeirra, sem ekki scljast,
kaupir bankinn. sem baktryggði
þau. Sakir þess að skulda-skírtcini
þessi eru til skamms tíma, bera þau
lága vexti. Ef sala þeirra gcngur vel,
eru þau mcðöðrum orðum ódýr lán.
Eurocoinmercial papcr. Sakir
þess hvc ofannetndum skulda-skír-
teinum var vcl tekiö. sáu mjög stór
fyrirtæki sér þann leik á boröi að
sneiða framhjá baktryggingu banka
og milligöngu og setja skírteinin
sjálf á markaö. Og spöruðu þau sér
þannig banka-kostnaö. Meðal stórra
fyrirtækja, sem á eigin spýtur hafa
gefið út og gefa slík óbaktryggð
skulda-skírteini eru Volvo, General
Motors og BP. Fyrirmynd að skír-
teinum þcssum var sótt til Banda-
ríkjanna. Þarlcndis ijema slík úti-
standandi skírtcini nú um $ 30(1 mill-
jörðum.
Swaps market. Bankar fóru 1982
að „býtta" á útistandandi lánum
sínum. Þau höfðu þeir ol'l veitt til
annarra landa. Viö verðmat þeirra
þurfti bannig að taka tillit til verð-
andi gcngisskráningar og væntan-
legra breytinga á henni á næstu
árum. Með þessu móti hagræða
bankar „lánaeign" sinni. Hala þessi
lánaskipti færst mjög í vöxt. Þá
skipta bankar við fyrirtæki á verð-
bréfum mcð föstum vöxtum, (jafn-
vel út gcfnum bcinlínis í því skyni),
og öðrunt nteö brcytilegum vöxtum.
Skipti þessi nema nú á cvródollara-
markaði um $ 100 milljörðum á ári.
Euro-cquity market. í ár. 1986.
hófust ciginlcg viðskipti með hluta-
bréf á evródollara-markaði. Risastór
fyrirtæki, svo sem KLM og Elcctro-
lux, voru hvað fyrst til að bjóða
hlutabréf sín á honum. Allmikið
hefur þó verið um útboð hlutabréfa.
að jafnaði á vegum samlága banka.
Enn cr þó um að ræða „primary
market", að miklu lcyti, því að
hlutabréf ganga yfirleitt kaupum og
sölum í cigin landi. þótt hlutabréf
hinna alstærstu eigi þegar alþjóðleg-
an markað.
Öll þessi forn lán lúta að „globalis-
ation" kauphallar-viðskipta cða
með öðrurn orðum að útfærslu þeirra
til allra hclstu viðskiptaborga heims
í senn. Skráning verðbréfa er þannig
orðin samþætt skráningu gcngis
gjaldmiðla.
Fáfnir.