Tíminn - 18.11.1986, Page 20

Tíminn - 18.11.1986, Page 20
GUÐMUNDUR guö mundsson fór á kostum og skoraöi 10 mörk þegar Vikíng- ur vann fimm marka sigur á svissneska liðinu St. Ottmar í Evrópukeppninni í handknatt- leik á sunnudagskvöldiö. Þetta var fyrri leikur liöanna en sá síðari fer fram í Sviss. Sjá íþróttir bls. 10-11. T Timinn Þriðjudagur 18. nóvember 1986 Örfáir flugvellir á ís\andi uppfylla lágmarks öryggiskröfur Alþjóöa flugmálastofnunarinnar: “Flugvélar eru ekki torfærutæki á jörðu“ - segir Kristján Egilsson flugstjóri. “Naustið“ til sölu - margir áhugasamir, enda selt án leigu- samnings. „Ég er ekki að selja Naust hf.. það er í gjaldþrotaskiptum. Ég er að selja húseignirnar, scm eru eign fjölskyldunnar," sagði Geir Zoéga, einn eigenda húsanna að Vcsturgötu 6, 8. 10 og lOa, sem áður hýstu veitingahúsið Naustið. “Flugvélar cru ekki torfærutæki á jörðunni, en maður gæti haldið það þegar maður sér sumar brautir sem ætlast er til að flogið sé inn á,“ sagði Kristján Egilsson flugstjöri í samtali við Tímann. Seinni áætlunarferð Flugleiða til Egilsstaða var felld niður á föstudag í kjölfar mjög lélcgra brautarskil- yrða fyrr um daginn. Frost var í jörðu cn efsta lag brautarinnar hafði þiðnað og skrikaði því Fokker vélin sem fór í fyrri áætlunarfcröina til á brautinni. Kristján Egilsson varflug- stjóri í þeirri ferö. Hann sagði að svo virtist vera sem bróðurparturinn af íslenskum flugvöllum væri að verða meira og minna ónothæfur vegna þess að það hefur vcrið slegið slöku við að veita því fjármagni til þeirra sem þarf. „Þessir vellir vcrða alltaf að drullusvaöi ef frost og þíöa skipt- ist á.“ sagði Kristján. „Það er nánast hægt að telja á fingrum annarrar handar þá flugvelli á íslandi scm uppfylla lágmarks öryggiskröfur hvað varðar staðla Alþjóða flugmálastofnunarinnar um flugbrautir og öryggissvæði og ég held að það væri hægt að skrifa ansi svarta skýrslu um flugöryggismál á íslandi alveg frá A til Z. Það má kannski líka kcnna nugmöimum um að þeir hafa sýnt of mikla þolinmæði að fljúga inn á flugvellina í von um endurbætur á næsta ári. Kristján benti hins vegar á að framkvæmdafé til flugmála á íslandi utan Keflavík- urHugvallar væri búið að vera það sama síðustu þrjú ár og næmi þaö alls um 60 milljónum króna hvcrt ár. Öryggisnefnd lélags íslcnskra at- vinnuflugmanna hefur verulegar áhyggjur af ástandi flugvalla al- mennt og hversu litlum fjármunum er veitt til flugmála. Má þar ncfna að hluti flugvallarins á ísafirði hefur vcrið vandamál af sömu ástæðu og Egilsstaðaflugvöllur og fellt hcfur verið niður flug til ísafjarðar vegna Halldór Asgrímsson.sjávarútvegsráðherra: Djúprækjuaflinn 1987 verði sá sami og í ár - hugsanlegt að rækjuveiði sóknarmarks- skipa verði talin til sóknardaga „Síðastliðinn föstudag gerði Haf- rannsóknarstofnun í fyrsta sinn til- Suðurey VE: Eldsupptök í vélarrúmi - sjópróf fara fram í Vestmannaeyjum Eldur kom upp um borð í Suðurey VE þar sem hún var stödd utan við Vattarnestanga, um það bil eina mílu frá landi. Á skipinu var tólf manna áhöfn, en engan af henni sakaði. Talið er að olíurör hafi farið í sundur með þeim afleiðingum að olía skvettist á heita pústgreinina og þannig hafi kviknað í vélar- rúmi skipsins. Vélstjóri var ný- lega kominn upp úr vélarrúmi skipsins þegar eldsins varð vart. Þegar í stað var kallað á hjálp til nærliggjandi báta og kom Hafn- arvík ÁR 113 Suðureynni til hjálpar og tók hana í tog til Eskifjarðar. Er þangað kom hafði áhöfn ráðið niðurlögum eldsins en skemmdir eru mjög miklar á vél. Aðrar skemmdir eru ekki teljandi. Meiningin er skipið sigli á eigin vélarafli til Vestmannaeyja þar sem sjópróf munu fara fram. ABS lögu um hámarksafla af djúprækju. Leggur stofnunin til að afli á árinu 1987 verði ekki meiri en í ár á úthafsveiðisvæðum. Rök stofnunar- innar fyrir þessari tillögu eru að afli á sóknareiningu gefi til kynna að hefðbundin rækjuveiðisvæði norðanlands séu nánast fullnýtt sem og Kolluáll og jafnvel Héraðsdjúp." Þetta sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra í ræðu sinni á Fiskiþingi í gær. Halldór hafði gert að umtalsefni þá auknu sókn í rækju sem hlotist hefur af kvótakerfinu en úthafsrækja hefur hingaö til verið'. utan kvóta, og benti hann m.a. á að rækjuaflinn hefur aukist úr rúmlega 9.000 tonnum árið 1982 í rúm 30.000 tonn í ár og að verðmæti aflans hafí þrefaldast frá 1982 og muni nema um 3 miljörðum í ár. í ræðu sinni sagði Halldór ennfremur: „Stofnun- in telur því að ástand rækjustofn- anna kunni að vera lakara en tölur um afla á sóknareiningu benda einar sér til. Með hliðsjón af þessu virðist óhjákvæmilegt að takmarka sókn í rækjustofninn við setningu reglu- gerðar um stjórn fiskveiða 1987. Ekki er tímabært að koma upp kvótakerfi í djúprækjuveiðum. Hins vegar styðja þessar niðurstöður það sem ég hef áður sagt um að til greina kæmi að telja rækjuveiðidaga sókn- armarksskipa til sóknardaga. Fleiri leiðir koma einnig til greina og verður að ákveða stjórn rækjuveið- anna á grundvelli þessara upplýsinga á næstunni.“ lélegra lcndingarskilyrða í síðustu viku svo dæmi sé tekið. Þá nefndi Kristján flugvöllinn á Höfn. Þar voru gcrðar endurbætur á brautinni sem tókust ckki betur til en svo að bindicfnið í brautinni hefur sigið niöur og eftir væri perlumöl sent líkja mætti við Iausamöl á vcgum. Varðandi ástand flugvallarins á Egilsstöðum, þá hefur endurbótum verið slegið á frcst vcgna þess að á dölinni hefur verið að gera þar framtíðarflugvöll. Aðsögn Kristjáns er Egilsstaðaflugvöllur „þess eðlis að jafn kostnaðarsamt cr að endur- nýja gömlu brautina og að leggja nýja." - ABS „Við seljum þetta án leigu- samnings svo hér er hægt að ganga beint inn í rekstur. Það eru þó nokkuð margir sem hafa sýnt málinu áhuga, enda er þetta fýsi- legra án leigusamnings. Við rift- um leigusamningnum áður en Naustið var tekið til gjaldþrota- skipta," sagði Geir. - phh Skemmdir á bryggjunni eru miklar eins og þessi mynd ber með sér. Myndin sýnir greinilega hvernig stálþilið lét undan skipinu þegar það sigldi á bryggjuna. Tímamynd inga Vestmannaeyjar: Laxfoss stórskemmdi Naustshamarsbryggju Miklar skemmdir urðu á Nausts- hamarsbryggju í Vestmannaeyjum þegar Laxfoss sigldi á hana um fimmlcytið í gærmorgun. Einnig urðu skemmdir á Ijósamasturshúsi og skúr á bryggjunni. Ekki urðu skemmdir á skipinu sjálfu og fór það frá Vestmannaeyjum að lok- inni uppskipun um kl. átta í gær- morgun. Laxfoss var að koma með tóma fiskigáma til Eyja. Um borð í Laxfossi var hafn- sögumaður er óhappið varð og ekki var talið að lendingarskilyrðl væru óvenju slæm. Þó var töluvert brim fyrir utan hafnargarðinn og sog inn höfnina. Ekki er vitað hvað olli óhappinu en sjópróf munu að öllum líkindum fara frarn í dag. ABS -BG

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.