Tíminn - 29.01.1987, Side 16
S SAMBANDSFÓÐUR
£ 0
STRÁKARNIR hans Kenny
Dalglish fengu slæma útreið í
3. leik Luton og Liverpool í 3.
umferð ensku bikarkeppninnar
í knattspyrnu, fengu á sig 3
mörk en skoruðu ekkert sjálfir
á gervigrasinu hjá Luton.
Sjá íþróttir bls. 8-9.
Tjmirm
Fimmtudagur 29. janúar 1987
__ Hvað gerðu Reykjavíkurunglingarnir 12. apríl 1986?
Tíunda hver 15-16 ára
stelpa á vínveitingahúsi
- og þriðjungurinn að heiman fram yfir kl. 3 um nóttina
Um tíunda hver stelpa í 9. bekkj-
um grunnskólanna í Reykjavík var á
vínveitingahúsi eða krá laugardags-
kvöldið 12. apríl 1986 og sömuleiðis
nokkrar úr7. og8. bekkjunum einn-
ig, samkvæmt könnun sem fþrótta-
og tómstundaráð Reykjavíkur
gekkst fyrir s.l. vor. Um þriðjungur
9. bekkjar stelpnanna kom ekki
heim fyrr en einhverntímann eftir
klukkan 3 þessa nótt og sömuleiðis 5-
10% af 7. og 8. bekkjar stúlkunum.
Jafnframt kom fram að þeir krakkar
sem lengi voru úti þetta laugardags-
kvöld voru það flest einnig nóttina
áður. Nær enginn af strákunum var
hins vegar á vínveitingahúsunum og
um helmingi færri þeirra komu svo
seint heim á nóttunni.
Frá 36% 9. bekkinga og upp í 46%
7. bekkinga voru á hinn bóginn
heima hjá sér allt umrætt laugardags-
kvöld og samtals tæplega helmingur
9. bekkinga upp í 72% 7. bekkinga
voru heima eða komin heim fyrir
miðnætti. Hlutfall strákanna er
nokkru hærra en steipnanna í þess-
um efnum. Klukkan 3 um nóttina
voru hins vegar um 9% af strákunum
og rúmlega 16% af stelpunum í öll-
um bekkjunum samtals enn ókomin
heim.
Um fjórðungur alls hópsins var
heima hjá vinum/vinkonum þetta
laugardagskvöld. Um 14% allra
stelpnanna voru að passa en aðeins
4% strákanna. Um 13% þeirra fóru í
bíó en 11% stelpnanna, flestir úr 8.
og 8. bekkjunum. Um 9% krakk-
anna fóru í partí, þar af heldur fleiri
stelpur en strákar og hlutfallslega
flestar úr 8. bekk. Af 7. bekkingum
voru rúmlega 5% í ferðalagi þessa
helgi og nokkrir úr eldri bekkjunum
einnig.
Um 30% þeirra unglinga sem hér
um ræðir stunda félagsmiðstöðvar
borgarinnar vikulega eða oftar. At-
hyglisvert þótti hve mun stærri hluti
þeirra var aldrei eða aðeins 1-2 kvöld
vikunnar heima hjá sér og sömuleið-
is að mun stærra hlutfall næturhrafn-
anna (heim eftir kl. 3) kom úr þeirra
hópi heldur en af þeim krökkum sem
sjaldan eða aldrei fara í félagsmið-
stöðvarnar. -HEI
Réðust á mann
og rændu
um 70.000
- eftir aö hafa fengið aö
hringja í verslun hans
Tveir menn réðust á eiganda
forngripaverslunar á Grettisgötu
skömmu eftir hádegið í gær.
Ræningjarnir báðu eigandann um
að fá að hringja og réðust síðan
á hann og rændu af honum rúm-
lega 70 þúsund krónum.
Maðurinn slapp að mestu við
meiðsl og gat hringt strax á lög-
regluna. Ræningjarnir komust í
leigubíl skammt frá versluninni
og fóru upp í Breiðholt, þar sem
lögreglan handsamaði þá og gerði
ránsfenginn upptækan. Að sögn
lögregluer þetta ekki í fyrsta sinn
sem menn þessir komast í kast
viðlögin. _
Nýtt barnaleikrit
frumsýnt:
Rympaá
rusla-
haugunum
Þjóðleikhúsið er nú að æfa nýtt
barnaleikrit eftir Herdísi Egilsdótt-
ur, Rympa á ruslahaugunum.
Leikritið verður frumsýnt laugar-
daginn7. febrúar. Sigríður Þorvalds-
dóttir leikkona er í aðalhlutverki og
leikur Rympu. Hún kom við á
ritstjórn Tímans í gær, að sjálfsögðu
varð hún að kanna ruslakompuna
þar sem myndin var tekin.
Leikritið fjallar um konu eina,
heldur skrýtna, sem býr á ruslahaug-
unum og er í slagtogi með tusku-
karli. Það eina sem Rympu vanhagar
um eru börn sem geta gert skítverkin
fyrir hana. Það vill svo heppilega til
í leikritinu að tvö börn hitta Rympu
og kennir hún þeim ýmislegt sem
börn ættu ekki að læra. Framhaldið
geta menn fengið að vita í Þjóð-
leikhúsinu þegar farið verður að
sýna leikritið. -ES
Rympa búin að koma sér þægilega fyrir í ruslageymslu Tímans. Hún sagði þetta ekki vera jafngott og hjá sér, en engu að síður nokkur tilbreyting.
Tímamynd Syerrir
Bifreiðaeftirlit ríkisins ræður framkvæmdastjóra:
Endurskipulagning
gerð á afgreiðslu
Haukur Ingibergsson tekur viö starfinu um mánaðamót
Haukur Ingibergsson tekur við
starfi framkvæmdastjóra Bifreiða-
eftirlits ríkisins 1. febrúar. Verður
hlutverk Hauks að endurskipu-
leggja afgreiðsluna og gera það ,
kerfi fljótvirkara. Afgreiðslan hjá
Bifreiðaeftirlitinu hefur legið undir
gagnrýni almennings um nokkurt
skeið fyrir seinagang og mun
Haukur takast á við það.
Þorsteinn Geirsson ráðuneytis-
stjóri í dómsmálakerfinu, en Bif-
reiðaeftirlitið heyrir undir það,
vildi ekki tjá sig um málið í gær.
Sagði Þorsteinn að það hefði verið
ætlun ráðuneytisins að kynna
starfsfólki þessa tilhögun fyrst áður
en þetta yrði gert opinbert.
Það var að fenginni tillögu Fjár-
laga- og Hagsýslustofnunar að
Haukur Ingibergsson var ráðinn í
starfið en hann hefur upp á síðkast-
ið tekið þátt í endurskipulagningu
á Ríkismati sjávarafurða.
Framkvæmdástjóri Bifreiðaeft-
irlitsins er ný staða og hefur ekki
áður verið fyrir hendi.
-ES
BHMR sleit viðræðum
við fjármálaráðherra
Samningagerð fer til einstakra stéttarfélaga háskólamanna
Stjórn Bandalags háskólamennt-
aðra ríkisstarfsmanna (BHMR) hef-
ur nú slitið viðræðum við fjármála-
ráðherra um rammasamning fyrir
aðildarfélög innan BHMR.
Ástæða þess að upp úr viðræðum
slitnaði er að fjármálaráðherra hafn-
aði kröfunt BHMR um 45.500 króna
lágmarkslaun og endurskoðun á
starfsaldurskerfi og form fastlauna-
samninga. Fjármálaráðherra bauð í
staðinn almennar áfangahækkanir
skv. rammasamningi ASÍ/VSÍ, allt
að 3,5% hækkun launa.
Stjórn BHMR telur að lágmarks-
laun yrðu samkvæmt tilboði ráðherr-
ans um 34.500 krónur, því einungis
að samningar næðu til hækkunar á
lágmarkslaunum.
BHMR hefur því ákveðið að
samningsgerð verði héðan af í hönd-
um einstakra stéttarfélaga há-
skólamanna sem hafa samkvæmt
nýjum lögum fullt samningsumboð
og fullan verkfallsrétt.
„Ég tel að við höfum sýnt ansi
mikla þrautseigju í þessum viðræð-
um, einkum þegar það er tekið með
í reikninginn að með nýjum samn-
ingsrétti BHMR er samningsréttur
okkar orðinn allt annar. Við höfum
ekki Kjaradóm lengur og það er því
ekki til nema ein leið, þ.e. samnings-
leiðin. Svo virðist hiris vegar sem
fulltrúar fjármálaráðherra hafi ekki
uppgötvað þetta, því þeir haga sér
nákvæmlega eins og þegar Kjara-
dómur var fyrir hendi. Þeir segja nei
við öllum okkar kröfum og með-
höndla þær ekki efnislega, þannig að
viðræður sigldu óhjákvæmilega í
strand af þeim sökum. Við höfum
því skilað umboði aðildarfélaganna
af okkur,“ sagði Júlíus Björnsson
formaður BHMR um ástæður þess
að BHMR hefur slitið viðræðunum.
-ABS