Tíminn - 25.04.1987, Qupperneq 5
Laugardagur 25. apríl 1987
Tíminn 5
Nautakjötsbirgðir fara minnkandi:
Utlit fyrir gott
kosningaveður
Kjósendur á kjörskrá fyrir þessar
Alþingiskosningar eru um 170 þús-
und og mun það vera um 13 til 14%
aukning kjósenda frá Alþingiskosn-
ingunum 23. apríl 1983. Mest er
fjölgunin í Reykjaneskjördæmi eða
um 18% en nrinnst í Vestfjarðakjör-
dæmi eða um 6%. Kjósendurerlend-
is eru rúm þrjú þúsund.
Útlit er fyrir sæmilegt kosninga-
veður um allt land í dag. Spáð er
suðvestan kalda og þurru veðri um
mestallt land.
framan bókstaf þess lista sem hann
vill kjósa af þeim sem í kjöri eru.
Kjósandi má ekki hagga neitt við
listurn sem hann kýs ekki, hvorki
strika yfir nöfn á þeim né breyta á
þeim nafnaröð.
Ef kjósandi vill hafna frambjóð-
anda á þeim lista sem hann kýs,
strikar hann yfir nafn hans. Vilji
kjósandi breyta nafnaröð á þeim
lista sent hann kýs, setur hann tölu-
stafinn I fyrir framan það nafn scm
hann vill hafa efst, töluna 2 fyrir
framan það nafn senr hann vill hafa
annað í röðinni og svo framvegis að
svo miklu leyti sem hann vill breyta
til. Engin merki eða krot umfram
það sem hér að framan ræðir má
setja á kjörseðilinn. Kveðskapur
eða háfleygar leiðbeiningar til fram-
bjóðenda eru afar hættulegar ef
menn vilja að atkvæði þeirra sé tekið
gilt.
Ef kjósanda verður á að krossa
óvart við annan lista en þann er hann
ætlaði að setja x við á hann rétt á að
fá nýjan kjörseðil gegn því að fram-
vísa hinum ónýta seðli. ABS
HÆTT VID SÓLUNA
TIL SOVÉTMANNA
- fyrirhugaö aö láta fóðurstöðvar fá hluta af
kýrkjötsbirgðum sem til eru
Nú er Ijóst að ekkert verður af
nautakjötssölu til Sovétríkjanna,
a.m.k. ekki að sinni. Meginið af
kjötinu sem ætlunin var að selja
var of gamalt til þess að Sovétmenn
vildu kaupa það.
Nautakjötsbirgðir hal'a hins veg-
ar verið að minnka í landinu frá
áramótum og eru birgðir frá 1.
apríl 1530 tonn. Salan frá 1. sept-
ember 1986 til 1. apríl ’87 hefur
aukist um 194 tonn miðað við
verðlagsárið á undan. Auk þess
hefur nautaslátrun ntinnkað um
142 tonn þannig að töluvert hefur
gengið á nautakjötsbirgðir í land-
inu.
Hluti af nautkjötsbirgðum þess-
um er kýrkjöt og 1. mars s.l. voru
um 600 tonn til af kýrkjöti en hafa
greinilega minnkað síðan að sögn
Gunnars Guðbjartssonar hjá
Framleiðsluráði.
Hluti af kýrkjötinu verður selt til
fóðurstöðva sem framleiða loð-
dýrafóður. Er þar aðallega um að
ræða elsta kjötið sem farið er að
þorna og ekki liægt að setja á
manneldismarkað.
í næstu viku verður gengið frá
samningum við fóðurstöðvarnar en
ljóst er að fóðurstöðvarnar borga
mjög lágt verð fyrir kjötið, eða
fáeinar krónurfyrir hvert kg. ABS
Gleðitíðindi fyrir fiskeldismenn:
Noregsmarkaði haldið opnum
„ Þungu fargi af okkur létt,“ segir framkvæmdastjóri LFH
Á Suðvestur-og Vesturlandi er
spáð rigningu og suðaustan strekk-
ingi. Hiti á landinu verður á bilinu
þrjú til 7 stig, hlýjast á Austurlandi
en kaldast suðvestanlands.
Fært er um allt land, en sumsstað-
ar er aurbleyta mikil, t.d. á Steing-
rímsfjarðarheiði á Vestfjörðum. í
gær var unnið að því að opna
Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði
og að sögn vegagerðarmanna á ísa-
firði voru allar líkur á að fært yrði
um allt Vestfjarðakjördæmi í dag.
Annarsstaðar á landinu á einnig að
vera sæmilegasta færð á vegum og
ekkert sem bendir til þess að ekki
verði sæmilegasta flugveður þannig
að kjörkassar ættu að komast á
talningarstaði án vandkvæða.
Hér eru svo að lokum nokkrar
hagnýtar upplýsingar um hvernig á
að kjósa. Kjósandi greiðir atkvæði á
þann hátt að hann markar með
ritblýi kross á kjörseðilinn fyrir
Norska landbúnaðarráðuneytið
hefur ákveðið að gera undantekn-
ingu frá lögum um bann við innflutn-
ingi á lifandi fiski til Noregs. Þar
með liggur fyrir formlegt leyfi á
innflutningi á seiðum til Noregs, í
ár. Norsk yfirvöld hafa eftir sem
áður fulla heimild til að neita öllum
umsóknum, uppfylli stöðvarnar ekki
þau skilyrði sem sett eru vegna
sjúkdómavarna. Það er því ekki
sjálfgefið að allar íslenskar stöðvar
sem sækja um innflutningsleyfi til
Noregs fái það.
„Þctta leyfi hygg ég að sé veitt
vegna þess að skortur er á sciðum í
nyrstu fylkjum Noregs. Einnig hafa
seiðaeldisstöðvar í Noregi orðið fyrir
alvarlegum áföllum af völdum sjúk-
dóma, þannig að framleiðsla þeirra
og sú offramleiðsla scm rætt var um
í vetur er ekki eins raunhæf og
margir vildu vera láta,“ sagði Friðrik
Sigurðsson framkvæmdastjóri
Landssambands fiskeldis og hafbeit-
arstöðva þcgar hann var spurður
hverjar hann teldi ástæðurnar fyrir
leyfisveitingu norska landbúnaðar-
ráðuneytisins. Friðrik sagði einnig
að þungu fargi væri nú létt af mörg-
um seiðaframlciðendum á íslandi og
sumum hverjum forðað frá kreppu
og erfiðleikum. Sagðist Friðrik von-
ast til þess að á komandi árunt
myndu menn muna þetta scm víti til
varnaðar og að menn höguðu því
áformum sínum í samræmi við það.
Menn verða að hafa snör handtök
næstu daga ef selja á til Noregs á
hæsta verði, þar sem verð er hæst
fyrri hluta sumars. Þcgar hefur verið
haft samband við flesta þá aðila sem
málið varðar og líkast til cru telcx-
skeytin farin að streyma til og frá
Noregi, vegna seiðasölusantninga.
-ES
Finnur Ingóifsson er í öðru sæti,
baráttusætinu. Skoðanakannanir
segja að hann þurfi nokkra tugi
atkvæða tii viðbótar til að komast á
hið háa Alþingi.
Níels Árni Lund er næsti maður inn
á Reykjanesi, eftir að skoðanakann-
anir mæla góðar undirtekir forsætis-
ráðherra.
Steinunn Sigurðardóttir er í baráttu-
sætinu í Vesturlandi.
Pétur Bjarnason er í baráttusætinu
á Vestfjörðum, samkvæmt skoðana-
könnunum.
Elín Líndal er í baráttusætinu í
Norðurlandi vestra.
Framsóknarflokkurinn:
Þrjár konur í baráttusætum
Þrjár konur sitja í baráttusætum
Framsóknarflokksins í kjördæmun-
um sjö. Niðurstöður skoðanakann-
ana spá þeim ekki þingsætum, en
formaður flokksins Steingrímur
Hermannsson hefur sagt að flokkur-
inn fái ávallt meira upp úr kjör-
kössunum en í skoðanakönnunum.
í Reykjavík vantar Finn Ingólfs-
son einungis nokkra tugi atkvæða til
að komast á þing. Hvert atkvæði
greitt Finni skilar honum áleiðis.
í Reykjanesi hefur Steingrímur
Hermannsson hlotið góðar undir-
tektir og skoðanakannanir upp á
síðkastið sýna tvo menn inni. Þá er
bara að sjá hvernig Níelsi Árna
Lund reiðir af.
Steinunn Sigurðardóttir er í bar-
áttusætinu í Vesturlandskjördæmi.
Hvað gerist þar er erfitt að segja til
um, en lítið fylgi Borgaraflokksins í
kjördæminu mun að öllum líkindum
ekki valda eins miklum sveiflum og
víða annarsstaðar.
Pétur Bjarnason er í baráttusæt-
inu í Vestfjarðakjördæmi, sé miðað
við þær skoðanakannanir sem birst
hafa. Þó er erfitt að átta sig á
stöðunni í Vestfjarðarkjördæmi
Jóhannes Geir Sigurgeirsson er í
baráttusætinu í Norðurlandi eystra.
vegna þess að skoðanakannanir hafa
ekki tekið kjördæmið sérstaklega
fyrir.
Elín Líndal er önnur konan sem
Jónas Hallgrímsson hefur möguleika
á að fara inn sem þriðji maður
Framsóknar í Austurlandi.
er íbaráttusæti á listum Framsóknar-
flokksins. Elín nýtur þó góðs af
liðsinni þeirra Páls Péturssonar og
Stefáns Guðmundssonar.
Gnnur Stefánsdóttir er í baráttusæt-
inu í Suðurlandskjördæmi.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson er í
þriðja sæti á lista Framsóknarflokks-
ins í Norðurlandi eystra. Hann er í
baráttusætinu. Níu framboð í kjör-
dæminu gera það að verkum að
erfitt er að átta sig á hver líkleg
niðurstaða gæti orðið.
Þriðji maðurinn á Austurlandi er
nálægt því að fara inn á Austurlandi.
Það er Jónas Hallgrímsson sent situr
í þriðja sæti listans og mun liann fara
langt.
Unnur Stefánsdóttir er þriðja kon-
an í baráttusæti. Hún skipar þriðja
sæti á lista Framsóknarflokksins í
Suðurlandskjördæmi. Þar nýtur
Borgaraflokkurinn mikils fylgis og
allar lfkur benda til að það komi
einna verst niður á Sjálfstæðis-
flokki.
Hver niðurstaðan verður, kemur
ekki í Ijós fyrr en undir morgun, þar
sem smávægileg breyting á hlutfalli í
einstökum kjördæmum getur haft
mjög miklar afleiðingar um allt land.
-ES