Tíminn - 08.05.1987, Blaðsíða 1

Tíminn - 08.05.1987, Blaðsíða 1
FÖSTUDAGUR 8. MAl 1987- 101. TBL. 71. ÁRG. Helgar blað Fermingar hafa staðið sem hæst að undanförnu og í Helgarblaðinu að þessu sinni ræðir Bergljót Davíðsdóttir um þessa töku ungs fólks í krist- inna manna tölu og ræðir við nokkra unglinga um viðhorf þeirra til hennar. í síðasta Helgarblaði var rætt um einn mesta menningarsjúk- dóminn, „stressið" ogvið höld- um áfram á sömu braut og ræðum um „hormónana" eða vakana, en aðeins einn milljón- asti úr grammi ræður því hvort við erum glöð og bjartsýn eða full vanlíðunar og kvíða. Poppsíðan er á sínum stað og þar segir gítarleikarinn Ted Nugent skoðun sína á ýmsum helstu gítaristunum í rokkinu - og dregur ekkert undan. Skáldkonan Simone de Be- auvoir lést í apríl í fyrra og um hana er fróðleg grein, en kenn- ingar hennar um kvenfrelsis- baráttu hafa fyrir löngu unnið sér sess, og margar konur geng- ið í fótspor hennar. Þá er fátt eitt upp talið og hver mun finna eitthvað til að lesa yfir helgina í blaðinu að vanda. mm mmi. ■ Lééí.:--.. Andköf Þeir voru að flýta sér við að koma Leifsstöð í gagnið og þess vegna virðist ýmsu ábótavant, sem nú er að koma í Ijós. Bitnar ófullkominn frá- gangur fyrst og fremst á starfsfólkinu, sem farið er að kvarta. Nú vita þeir sem í Leifsstöð hafa komið að það er vítt til veggja, en þár sem loftræsti- kerfið hefur enn ekki verið tengt að fullu verður starfsfólk því fegnast þegar það kemst út undir bert loft. Þetta er leiður galli á nýrri og fallegri byggingu. Starfsfólk er óánægt með margt fleira, sem þarf lagfæringar við, en stafar fyrst og fremst af því, að stöðin var opnuð áður en hún var fullbúin. Engu að síður er allt sem snýr að farþegum til sóma. Við leggj- um til að nú verði lögð áhersla á að gera starfsfólkinu vistina sem þægi- legasta. Það gengur ekki í gegnum þessa stöð. Hún er þess vinnustaður. Sjá bls. 3 Götur spændar upp fyrir 85 milljónir Eftir 1. maí er óheimilt að aka um götur höfuðborgarinnar á nagladekkjum. Nagladekkin eru hinn mesti skaðvaldur þar sem gatnakerfi borgarinnar er ann- ars vegar og tjónið sem þau valda hefur sjaldan verið meira en í vetur, þegar tíðin hefur verið góð og götur meira og minna auðar. Gert er ráð fyrir að veita 85 milljónum króna til þess að laga skemmdir á malbiki, en helstu umferð- aræðar í og úr Reykjavík hafa orðið fyrir miklum skemmdum. Þá er hreint ekki Ijóst hvort nagladekkin hafi sannað gildi sitt sem öryggisbúnaður, en menn hafa haft tilhneigingu til að fá falska öryggiskennd við að keyra á slíkum dekkjum í hálku. Sjá bls. 2

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.