Tíminn - 08.05.1987, Blaðsíða 19
Tíminn 19
J ■ • ;
Föstudagur 8. maí 1987
„Ég leik einu D ALLAS-konuna,
sem ekki er væluskjóða“,
- segir Deborah Shelton, sem leikur Mandy Winger í nýjum DALLAS-þáttum
xJ eborah Shelton varð fegurð-
ardrottning Bandaríkjanna -
Miss USA - árið 1970, þá 17 ára.
Nú er hún orðin helmingi eldri,
eða 34 ára og margt hefur gerst
í lífi hennar á seinni 17 árunum.
M.a. hefur hún leikið í hinum
frægu DALLAS-sjónvarpsþátt-
um og gengið vel. Hún leikur þar
Mandy Winger, glæsipíu, sem er
fyrirsæta og er aðallega mynduð
í sundfötum og æsilegum nær-
fötum, og JR verður auðvitað
stórhrifinn.
Deborah vonast til að verða
fastráðin eftir sumarfrí DALLAS-
þáttanna, því hún segist vonast
til að þessi Mandy sé það hressi-
leg persóna að hennar sé full
Hung einbeit
ir sér að tafl-
inu, og kenn-
arar hans sjá
framtíðar-
stór-
meistara í
þessum litla i
dreng. J
allar
þessar
Auglysinga-
myndirnar af
„Mandy"
þörf innan um
„væluskjóður".
„ Hún Mandy á eftir að sýna JR
í tvo heimana, eftir því hvernig
samskipti þeirra byrja. Ég
hlakka til að takast á við hlut-
verkið", sagði Deborah nýlega í
blaðaviðtali.
Hún sagði líka við sama tæki-
færi, að flestir byggjust við að
Victoria Principal (Pamela)
myndi láta verða af því að hætta
Deborah, nýkosin Miss USA
1970
í Dallas, og sömuleiðis Susan
Howard (Donna Krebbs). „Þess
vegna þurfa stjórnendur þátt-
anna að reyna að koma sér upp
spennandi kvenpersónum, svo
söguþráðurinn renni ekki út í
sandinn. Þær Mandy og Sue
Ellen eiga áreiðanlega eftir að
takast hressilega á í næstu
þáttum, “ sagði Deborah Shelton
við blaðamanninn.
Shuki Levy, hljómplötufram-
leiðandi, er eiginmaður
Deborah Shelton og hér
sjást þau hjónakornin á
, heimili sínu.
FÆDDUR SKÁKSNILLINGUR
9 ára flóttadrengur varð breskur skákmeistari (fyrir 10 ára og yngri),
einu ári eftir að hann lærði mannganginn!
Hann Hung A Sin er 9 ára
gamall víetnamskur flóttadreng-
ur, sem býr ásamt fjölskyldu
sinni í fátækrahverfi í London.
Hann gengur í barnaskóla þar í
hverfinu og verður að standa
sig, því að þarna er harka ríkj-
andi og jafnvel kynþáttafordóm-
ar. En í skólanum lærði hann
skák og það er hans líf og yndi
síðan að tefla. Þó ótrúlegt megi
virðast, þá varð Hung A Sin
Bretlandsmeistari í sínum
aldursflokki. „Ég hef trú á að
hann eigi eftir að verða atvinnu-
skákmaður," segir þjálfari hans,
og það getur orðið leið hans út
úr fátæktinni í heimkynnum flót-
tafólksins, sem er hið svokallaða
„bátafólk", - flýði út á sjóinn í
lélegum farkosti en var bjargað
af bresku skipi.
Malcolm Éein, atvinnuskák-
maður, hefur þjálfað Hung litla
og fleiri af flóttabörnunum, og
hann segir þau mörg hver vera
ótrúlega skörp að læra, - „en
Hung er skákstjarnanmín," seg-
ir hann stoltur.
Hung var aðeins fögurra ára
þegar fjölskylda hans flýði frá
Víetnam á hrörlegum báti. For-
eldrar hans eiga átta börn og
komust með þau ölltilEnglands.
Sjálfur man Hung lítið eftir þess-
ari ferð. „Við vorum í bát með
litlu skýli. Öldurnar voru svo
stórar og það var mikill stormur,
en svo kom skip sem tók okkur
umborð," segir HUng.
Föstudagur
8. maí
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin Jón Baldvin Halldórsson og
Jón Guðni Kristjánsson. Fréttir eru sagðar kl.
7.30 og 8.00 og veðurfregnir kl. 8.15. Tilkynning-
ar eru lesnar kl. 7.25, 7.55 og 8.25. Erlingur
Sigurðarson talar um daglegt mál kl. 7.20.
Fréttir á ensku sagðar kl. 8.30.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.05 Morgunstund barnanna: „Veröldin er allt
af ný“ eftir Jóhönnu Á Steingrímsdóttur.
Hildur Hermóðsdóttir les (5).
9.20 Morguntrimm. Lesið úr forustugreinum dag-
blaðanna. Tónleikar.
10.10 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Mér eru fornu minnin kær Umsjón: Einar
Kristjánsson frá Hermundarfelli og Steinunn S.
Sigurðardóttir. (Frá Akureyri).
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Umsjón: Sigurður Einarsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar.
14.00 Miðdegissagan: „Fallandi gengi“ eftir
Erich Maria Remarque Andrés Kristjánsson
þýddi. Hjörtur Pálsson les (12).
14.30 Nýtt undir nálinni Elín Kristinsdóttir kynnir
lög af nýjum hljómplötum.
15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
15.10 Landpósturinn Lesið úr forustugreinum
landsmálablaða.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.05 Dagbókin.
Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.05 Síðdegistónleikar: Tónlist eftir George
Gershwin a. Kúbanskur forleikur. Sinfóníu-
hljómsveit Lundúna leikur; André Previn
stjórnar. b. „Rhapsody in Blue" og Þrjár prelúdí-
ur. Andre Watts leikur á píanó.
17.40 Torgið - viðburðir helgarinnar. Umsjón:
Þorgeir Ólafsson.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.05 Torgið, framhald.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál. Endurtekinn þáttur frá morgni
sem Erlingur Sigurðarson flytur.
19.40 Náttúruskoðun. Áslaug Brynjólfsdóttir
fræðslustjóri flytur þáttinn.
20.00 Sónata í A-dúr op. 47 eftir Ludwig van
Beethoven „Kreutzer sónatan". Ulrike Mathé
og Scott Faigen leika saman á fiðlu og píanó.
(Hljóðritun frá útvarpinu í Stuttgart).
20.40 Kvöldvaka a. Úr Mímisbrunni Um Vatns-
dæla sögu. Umsjón: Magnús Hauksson. Lesari:
Guðrún Ingólfsdóttir. b. „Lifir hending hagyrð-
ings“ Gunnar Stefánsson fer með kvæði og
stökur eftir Harald Zóphoníasson frá Jaðri. c. Úr
minningaheimi Malínar Þorsteinn Matthías-
son flytur frumsaminn frásöguþátt.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Hljómplöturabb Þorsteins Hannessoanr.
23.00 Andvaka Þáttur í umsjá Pálma Matthíasson-
ar (Frá Akureyri)
24.00 Fréttir.
00.10 Næturstund í dúr og moll með Knúti R.
Magnússyni.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
00.10 Næturútvarp. Gunnlaugur Sigfússon stend-
ur vaktina til morguns
06.001 bítið. Erla B. Skúladóttir léttir mönnum
morgunverkin, segir m.a. frá veðri færð og
samgöngum og kynnir notalega tónlist í morg-
unsárið.
9.05 Morgunþáttur í umsjá Sigurðar Þórs Sal-
varssonar og Kristjáns Sigurjónssonar. Meðal
efnis: Óskalög hlustenda á landsbyggðinni og
getraun.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Á milli mála. Leifur Hauksson kynnir létt lög
við vinnuna og spjallar við hlustendur.
16.05 Hringiðan Umsjón: Broddi Broddason og
Margrét Blöndal.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Lög unga fólksins. Valtýr Björn Valtýsson
kynnir.
21.00 Merkisberar. Skúli Helgason kynnir tónlist-
armenn sem fara ekki troðnar slóðir.
22.05 Fjörkippir. Erna Arnardóttir kynnir dans og
skemmtitónlist frá ýmsum tímum.
23.00 Hin hliðin. Ellen Kristjánsdóttir sér um
þáttinn að þessu sinni.
00.10 Næturútvarp Georg Magnússon stendur
vaktina til morguns.
Fréttir eru sagðar kl. 7.00, 8.00, 9.00, 10.00,
11.00, 12.20, 15.00, 16.00, 17.00, 18.00, 19.00,
22.00 og 24.00.
Svæðisútvarp
18.03-19.00 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og
nágrenni - FM 96,5. Inga Eydal rabbar við
hlustendur og les kveðjur frá þeim, leikur létta
tónlist og greinirfrá helstu viðburðum helgarinn-
ar.
Föstudagur
8. maí
18.30 Nilli Hólmgeirsson. Fimmtándi þáttur.
Sögumaður Örn Árnason. Þýðandi Jóhanna
Þráinsdóttir.
18.55 Litlu Prúðuleikararnir. Annar þáttur.
Teiknimyndaflokkur í þrettán þáttum eftir Jim
Henson. Þýðandi Guðni Kolbeinsson.
19.15 Á döfinni. Umsjón: Anna Hinriksdóttir.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Poppkorn. Umsjónarmenn Guðmundur
Bjarni Harðarson, Ragnar Halldórsson og Guð-
rún Gunnarsdóttir. Samsetning: Jón Egill Berg-
þórsson.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Rokkarnir. Hljómsveitin Fullt hús gesta
kynnt. Umsjón: Hendrikka Waage og Stefán
Hilmarsson.
21.15 Mike Hammer Þrettándi þáttur í bandarísk-
um sakamálamyndaflokki. Þýðandi Stefán
Jökulsson.
22.05 Seinni fréttir.
22.15 Duldar hvatir. Bandarísk bíómynd frá árinu
1963. s/h. Leikstjóri John Huston. Aðalhlutverk
Montgomery Clift, Susannah York, Larry Parks
og Susan Kohner. Myndin lýsir þeim árum
þegar Sigmund Freud, sem nefndur hefur
verið faðir sálfræðinnar, var að þreifa fyrir sér
með dáleiðslu og sálkönnun. Hann finnur margt
skylt með sjálfum sér og ungri stúlku sem hann
stundar og sannfærist um að sefasýki hennar
eigi sér orsakir í barnæsku hennar. Þýðandi
Óskar Ingimarsson.
00.20 Dagskrárlok.
Föstudagur
8. maí
17.00 Kvöldfréttir (News at Eleven). Bandarísk
sjónvarpsmynd frá árinu 1983. Leikstjóri og
höfundur handrits er Mike Robe. I kvöldfréttum
segir fréttamaður frá ástarsambandi kennara
og nemanda við gagnfræðaskóla, og verða úr
þessu miklar fjölmiðladeilur. Aðalhlutverk: Mart-
in Sheen, Eric Ross og Barbara Babcock.
18.30 Myndrokk._____________________________
19.05 Myrkviða Mæja. Teiknimynd.
19.30 Fréttir.
20.00 Opin lína. Áhorfendur Stöðvar 2 á opinni
línu í síma 673888.
20.20 Klassapíur. (Golden Girls). Aldurinn er
Klassapíunum ekki fjötur um fót.________
20.45 Hasarleikur (Moonlighting). Nýr bandarísk-
ur framhaldsmyndaflokkur. Fyrirsætan Maddi
Hayes og leynilögreglumaðurinn David Addison
elta uppi hættulega glæpamenn og leysa óráðn-
ar gátur. Aðalhlutverk: Cybill Sheperd og Bruce
Willis. Leikstjóri: Robert Butler.
21.20 Æskuárin (Fast Times At Ridgemont High).
Grínmynd frá árinu 1982, byggð á samnefndri
bók sem náði miklum vinsældum. Sagt er frá
nokkrum unglingum í menntaskóla, vandamál-
um þeirra í samskiptum við hitt kynið og öðrum
vaxtarverkjum. Tónlist í myndinni er flutt af
Jackson Browne, The Go-Go’s, Graham Nash,
Cars o.fl.
23.45 3 konur (3 Women). Athyglisverð og
frumleg, bandarísk mynd frá árinu 1977. Leik-
stjóri er Robert Altman og með aðalhlutverkin
fara Sissy Spacek, Shelley Duvall og Janice
Rule. Sérkennileg, ung kona fær vinnu á heimili
fyrir aldraða.
01.45 Sweeney. Breskur sakamálaþáttur um lög-
reglumennina Regan og Carter sem gæta laga
og rcítar á sinn sérstæða hátt.
02.35 Myndrokk.
03.00 Dagskrárlok.
Föstudagur
8. maí
7.00-9.00 Á fætur me6 Sigurði G. Tómassyni.
Létt tónlist með morgunkaffinu. Sigurður lítur
yfir blöðin, og spjallar við hlustendur og gesti.
Fréttlr kl. 7.00, 8.00 og 9.00.
9.00-12.00 Páll Þorsteinsson á léttum nótumr.
Föstudagspoppið allsráðandi, bein línatil hlust-
enda, afmæliskveðjur, kveðjur til brúðhjóna og
mataruppskriftir.
Fréttir kl. 10.00 og 11.00.
12.00-12.10 Fréttir
12.10-14.00 Þorsteinn J. Vilhjálmsson á hádegi.
Fréttapakkinn, Þorsteinn og fréttamenn Bylgj-
unnar fylgjast með því sem helst er í fréttum,
segja frá og spjalla við fólk í bland við tónlist.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00-17.00 Pétur Steinn á réttri bylgjulengd.
Pétur spilar síðdegispoppið, og spjallar við
hlustendur og tónlistarmenn.
Fréttir kl. 15.00,16.00 og 17.00.
17.00-19.00 Ásta R. Jóhannesdóttir í Reykjavík
síðdegis. Þægileg tónlist hjá Ástu, hún líturyfir
fréttirnar og spjallar við fólkið sem kemur við
sögu.
Fréttir kl. 18.00.
19.00-22.00 Anna Björk Birgisdóttir á Flóamark-
aði Bylgjunnar. Flóamarkaður og tónlist.
Fréttir kl. 19.00.
22.00-03.00 Haraldur Gíslason, nátthrafn Bylgj-
unnar kemur okkur í helgarstuð með góðri
tónlist.
03.00-08.00 Næturdagskrá Bylgjunnar. Hörður b
Arnarson leikur tónlist fyrir þá sem fara seint í'
háttinn og hina sem fara snemma á fætur.