Tíminn - 08.05.1987, Blaðsíða 8

Tíminn - 08.05.1987, Blaðsíða 8
8 Tíminn Föstudagur8. maí 1987 Timinri MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinnog Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Kristinn Finnbogason Ritstjórar: Indriði G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason NíelsÁrni Lund Aðstoðarritstjóri: OddurÓlafsson Fréttastjórar: BirgirGuðmundsson EggertSkúlason Auglýsingastjóri: SteingrímurGíslason Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími:; 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686306, íþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umörot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 (tæknideild) og 686306 (ritstjórn). Verð í lausasölu 55.- kr. og 65.- kr. um helgar. Áskrift 550.- Hver eru skilaboð kjósenda? Nærri tvær vikur eru liðnar frá því alþingiskosn- ingar fóru fram, en formlegar stjórnarmyndunar- viðræður hafa ekki átt sér stað, þótt nú séu þær í sjónmáli. Hins vegar er allt óvíst um það hvernig slíkum viðræðum muni ljúka eða hvaða flokkar koma til með að fara með stjórn landsins á nýbyrjuðu kjörtímabili. Eins og til var stofnað í þessum alþingiskosning- um, þar sem framboðamergðin setti einkum svip sinn á kosningabaráttuna, urðu kosningaúrslitin eftir því óglögg og óafgerandi, svo að ýmsir þeir sem eru að hæla sér af kosningasigrum, s.s. Kvennalistinn, Alþýðuflokkurinn og Borgara- flokkur Alberts Guðmundssonar, geta í rauninni ekki sannfært neinn um að þeir séu í sporum sigurvegara sem sérstaklega séu útvaldir til þess virðingarheitis. Þessir flokkar eru hver um sig smáflokkur með fáa þingmenn á bak við sig. Þótt þeir legðu tveir eða þrír saman, t.d. Kvennalistinn, Borgaraflokkurinn og Alþýðuflokkurinn, halda þeir áfram að vera minnihlutaafl meðal þjóðarinnar og á Alþingi og kæmu engu áleiðis án samvinnu við aðra. Afrek þeirra eru þau ein að smáflokkum fjölgar án þess að þeir hafi nein málefni upp á að bjóða sem aðrir flokkar hafa ekki á stefnuskrá sinni og gera því stjórnkerfið ruglingslegra en í rauninni er hollt fyrir virkt þingræði. Sannleikurinn er sá að stjórnmálaflokkar á íslandi hafa verið yfrið nógu margir, og þetta smáflokkabrölt og prívatframboð er fremur merki um hnignun þingræðiskerfisins en endurnýjun þess. Það er síst til þrifa að vera að ala upp í smáflokkum á borð við Kvennalistann og Borg- araflokkinn að þeir séu einhverjir sigurvegarar, heldur væri nær að segja þeim sem satt er að þeir eru aðeins lítill minnihluti meðal kjósenda. Að kosningaárangur þeirra sé einhvers konar „skila- boð“ eða æðri vísbending um að þeim beri að hossa sem sigurvegurum er út í bláinn. Alþýðuflokkurinn kom að vísu betur út úr þessum kosningum en hann gerði 1983, en miklu lakar en formaður hans hafði gert sér vonir um. Ef eitthvað er, felast þau skilaboð í kosningaútkomu Alþýðuflokksins að hann eigi sér afmarkað rúm innan gamla flokkakerfisins sem getur rokkað á bilinu 10-15% af kjörfylginu, eftir því hvernig árar, en í úrslitunum nú er enga vísbendingu að finna um það að Alþýðuflokkurinn sé sú stærð eða verði það afl, sem hefur efni á því að tala digurbarkalega um sigra sína. Slíkt oflæti sæmir ekki Alþýðuflokknum í þeirri stöðu sem hann er. Hitt er annað mál að Alþýðuflokkurinn getur orðið að liði í myndun starfhæfrar ríkisstjórnar, eins og nú háttar, og á að vinna raunsætt að því verkefni eins og aðrir alvöruflokkar. Það eru skilaboðin sem kjósendur senda flokkunum. Illlllllllllllllllllll GARRI lllllllllllllllllllll Ný keppnisíþrótt Garri er auðvitað ekki einn um það að hafa komið auga á nýja kcppnisíþrótt, sem er að ryðja sér til rúms á íslandi, en hann langar samt til að gera hana að umtalsefni og ryðja með því brautina varðandi nýtt efni fyrir iþróttafrcttaritara, því að það verður þeirra hlutverk fyrst og fremst þegar fram líða stundir að fylgjast með „áróngr- um“ í umræddri iþróttagrein. En hver er þessi nýja keppnis- íþrótt? Það er sú íþrótt að stofna nýja stjórnmálaflokka og efna til fram- boða með sem mestum hraða og á sem skemmstum tíma. Eins og hver maður sér er þetta í alla staði virðingarverð íþróttagrein og eðli- leg viðbót við þær keppnisiþróttir og tómstundagaman, scm nauð- synleg er í fjölþættu nútímaþjóð- félagi, þar sem leitast er við að allir haH viðfangscfni við sitt hæfi og geti tekið þátt í félags- og íþrótta- starfsemi scm hentar þeim best. Fótbolti er góður meðan menn eru ungir, en hann hentar ekki gömlu fólki, svo dæmi sé tekið. Leiðindavafstur Alþingiskosningar hafa hingað til verið mesta leiðindavafstur, sem stjórnarskráin neyðir að vísu upp á fólk, en kerfiskarlar hafa alltaf verið að nota sér af og einoka með þvi að stofna einu sinni fyrir allt flokkseigendafélög og festa þau í sessi áratug eftir áratug undir fal- legum nöfnum eins og Framsókn- arflokkur, Sjálfstæðisflokkur, Al- þýðuflokkur og Alþýðubandalag, þótt ekkert liggi á bak við þessar nafngiftir nema bölvuð blekking, og það sem verst er, þessir flokkar eru svo leiðinlegir. Þeir eru alltaf cins, áratug eftir áratug. Þeir þykj- ast vcra að keppa í kosningum, en sannleikurinn er sá að þetta er engin keppni, þvi þeir semja nánast fyrirfram uin það hvað hverjum þeirra bcri af atkvæðamagni og þingsætum. Þess vegna styður Garri þá nýju hugsun sem ryður sér til rúms að alþingiskosningar skuli nota til þess að stofna í hvcrt sinn sem kosið er sem flesta flokka og hafa sem allra flest framboð svo fólk hafl úr einhverju að velja. En ekki aðeins það, heldur er mergurinn málsins sá að stofnun flokkanna út af fyrir sig, keppnin um að koma framboð- um á á sem skemmstum tíma, er upplögð keppnisíþrótt, sem hæflr gáfaðri þjóð og svo andlega sinn- aðri sem íslendingum. íþrótl sem á hljómgrunn Síðustu alþingiskosningar leiddu í Ijós að flokkastofnunaríþróttin á mikinn hljómgrunn og það sannað- ist að það er hægt að gera þessa íþrótt mjög spennandi. Vinninginn í íþróttinni hafði Borgaraflokkur- inn sem stofnaður var og kom á framboðum í öllum kjördæmum á 2 sólarhringum. Næstur að vinn- ingum í framboðshraða var Þjóð- arflokkurinn, sem þó tók miklu lengri tíma að stofna og tókst ekki að bjóða fram nema í fimm kjör- dæmum - þrátt fyrir nafnið - og Ijóst að hann vcrður að taka sig á fyrir næsta sprett með hvaða hætti sem það nú verður. Garri vill benda á það í mestu vinsemd að sú hætta fylgir öllum flokkum að þeir aðlagist kerfinu og verði jafnleiðinlegir og flokkum hættir til að verða, ef þeir lifa of lengi. Það ætti því ckki að vcrða keppikeflið í skyndiflokkaíþrótt- inni að viðhalda sjálfum sér til næstu kosninga, heldur koma sí- fellt fram með nýja flokka, sem allra flcst framboð og „síferskar hugmyndir" í hverjum kosningum. Það er mergurinn málsins « þessari nýju keppnisíþrótt. Garri. VÍTTOG BREITT Fjárlagahalli og skattsvik Tvær stórmerkar skýrslur um afkomu þjóðarbúsins og framtíðar- horfur litu dagsins ljós í vikunni. Á ársfundi Seðlabankans flutti Jó- hannes Nordal sína árlegu ræðu, sem ávallt vekur mikla athygli, og Þjóðhagsstofnun sendi frá sér greinargerð um ástand og horfur í efnahagsmálum fyrir stjórnmála- menn að skoða. í báðum skýrslugerðunum er vikið að fjárlagahallanum, en sá hefur verið mikið til umræðu. Allir segja að hann sé mikill en eru ekki á einu máli um hve hár. í fjárlögum á hallinn að vera 2,8 milljarðar króna, en nú segir Þjóð- hagsstofnun hann vera 3,4 millj- arða. Stjórnarandstaðan vill hafa hann 5 milljarða. Seðlabankastjóri, Þjóðhags- stofnun og yfirleitt allir þeir sem um fjárlagahallann fjalla, var mjög við að hann geti orðið verðbólgu- hvetjandi, nema helst að iánsfjár verði aflað innanlands til að jafna hann. Hægt að jafna hallann En í þessum ágætu yfirlitum um ríkisfjármálin og efnahagslífið er hvergi minnst einu orði á lítið atriði sem jafnað gæti fjárlagahall- ann og gott betur. Það er undan- dráttur frá skatti. Ábyrgir aðilar hafa látið í ljósi að stolið sé undan skatti upphæð- um sem nema 7-8 milljörðum á ári. Þar af eru söluskattsvikin á milli 2 og 3 milljarðar króna. Söluskattsþjófnaðurinn er þeim mun alvarlegri að skatturinn er innheimtur í umboði ríkisins en þýfinu ekki skilað. Ef fjárlagahallinn er eins alvar- legur og verið er að segja manni og að hann geti jafnvel orðið valdur að efnahagshruni, ef svo fer að verðbólguskriðan rífi sig lausa, er einsýnt að ríkissjóður hlýtur að innheimta þá fjármuni sem honum ber samkvæmt skattalögum. Ef hægt að stela milljörðum króna á milljarða ofan með skatt- svikum er einsýnt að skattakerfið og innheimtan er ekki annað en hátimbrað hröngl sem fær ekki staðist. Lögin sniðin fyrir svikara Það hlýtur að vera undansláttur að ekki sé hægt að ná þessu fé. Skatteftirlit er ónógt og á því er hægt að ráða bót. Ef fjármálaráðu- neytið getur ekki séð af fé til að ráða nægilega margt fólk til eftir- litsstarfa og greitt því þau laun sem duga til að þau störf verði eftir- sóknarverð, er það samsekt skatt- svikurunum. Þeir fjármunir sem varið er til að skattskil verði eðlileg borga sig margfaldlega fyrir ríkissjóð. Upplýst er að sjálfstæðir at- vinnurekendur eru ekki hálfdrætt- ingar á við launaþrælana í skatt- greiðslum. Efnamenn og fyrirtæki hagræða bókhaldi til að Iosna við að borga skatta og er það athæfi meira og minna löglegt og ekki talið til skattsvika. Samt stendur eftir að ríkissjóður er svikinn um mun hærri upphæð vegna skattþjófnaðar en sem nem- ur hæstu tölum sem nefndar eru varðandi fjárlagahallann voðalega. Margflókin söluskattslög eru sniðin fyrir þjófana en ekki ríkis- sjóð. Þrautalendingin erenn flókn- ari virðisaukaskattur. Ef einhver glóra hefði einhvern tíma verið í söluskattinum væri hann innheimt- ur sérstaklega en ekki falinn inni í vöruverðinu. Kassi með söluskatts- stimpli ætti að vera skilyrði fyrir verslunarleyfi, eins og gerist meðal allra þjóða, sem ekki sníða skatta- lög við þarfir svikara og þjófa. Mikið talað en lítið aðhafst Mjög er nú lagt að launamönn- um, og þar með hinum eiginlegu skattborgurum þessa lands, enn einn ganginn að stilla kaupkröfum sínum í hóf. Efnahagsmálin eru viðkvæm og hætta er á að fjárlaga- hallinn með meiru magni upp verð- bólgu og allt fari úr böndunum. Launamálin eru ávallt talin vera það sem skiptir sköpum um hvort efnahagslegt jafnvægi ríki eða ekki. Því er mikilvægt að launafólk sjái sóma sinn í að sporna við dýrtíð og óáran. í þeim álitsgerðum sem minnst var á hér í upphafi var bent á háska fjárlagahallans og ljóst er að grípa verður til einhvers konar efnahags- aðgerða. En á 7-8 milljarða tekju- taps ríkissjóðs vegna skattsvika er ekki minnst einu orði. Stjórnmálamenn tala opinskátt um skattsvikin og eru allir á einu máli um að þau verði að uppræta, en þegar til kastanna kemur virðast ávallt vera ótal ljón í veginum til að svo megi takast. Væri mönnum sæmra að tala minna um skattsvik en aðhafast meira. Fjárlagahallinn þyrfti ekki að vera til ef skattheimta væri í lagi og hann er hægt að jafna án þess að leggja á nýja skatta, aðeins með því að innheimta allt það fé sem landssjóðnum ber. OÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.