Tíminn - 08.05.1987, Blaðsíða 4

Tíminn - 08.05.1987, Blaðsíða 4
4 Tíminn Föstudagur 8. maí 1987 Hafnarframkvæmdir á Vesturlandi: Stærstu verkefnin við Ólafsvíkurhöfn Fjárveitingar til hafnarmannvir- kja og lendingarbóta á Vesturlandi nema 24 milljónum króna eða 11% af heildarfjármagninu fyrir árið 1987. Er þar um 6 liði að ræða. Stærstu framkvæmdirnar eru á Ólafsvík (9 m.kr.),en þar verður sprengt fyrir stálþili við Norðurtanga í ár. Til hafnarmannvirkja á Akra- nesi er úthlutað alls 7 m.kr. í ár. Það ber þó að athuga varðandi Akranes að 5,4 milljónir kr. af fjárveitingunni er greiðsla ríkissjóðs vegna fram- kvæmda á árinu 1986. Til Stykkis- hólms fara 5,6 m.kr. og verður fjármagninu varið til að endurbyggja trébryggju í Stykkinu. Aðrar hafnir á Vesturlandi fá litlar fjárveitingar, Borgarnes fær 1,4 m.kr., Arnarstapi fær 600 þús- und og Grundarfjörður 400 þúsund kr. Ósamþykkta þingsályktunartillag- an að hafnaráætlun til fjögurra ára gerir ráð fyrir að 174,5 m.kr. renni til hafnarframkvæmda á Vesturlandi fram til ársins 1990. Á tímabilinu er gert ráð fyrir að varið verði 45 milljónum kr. til framkvæmda í Ólafsvík, þ.e. við Norðurtanga, en þá er ekki meðtalin fjárveitingin í ár upp á 9 m.kr. Þetta mun vera stærsta verkefnið á Vesturlandi. Annað stórt verkefni er á dag- skránni í Stykkishólmi á tímabilinu. Þar eru fyrirhugaðar framkvæmdir í Súgandisey fyrir um 36 m.kr. og eru þær tengdar tilkomu nýrrar Breiða- fjarðarferju, en bygging ferjunnar var boðin út nýlega. Þá er fyrirhugað að leggja 28 m.kr. til að styrkja brimvarnargarðinn á Akranesi 1989 Hafnarframkvæmdir á Suðurlandi: Nær allt fjármagnið til Vestmannaeyja Minnst af því fjármagni, sem rennur til hafnarmannvirkja og lendingarbóta, kemur í hlut Suður- landskjördæmis eða 10,1 milljónir króna (4,6%). Nær allt fram- kvæmdaféð rennur til Vestmanna- eyja eða alls 9,5 m.kr. Aðeins er um þrjár fjárveitingar að ræða, en fyrir utan Vestmannaeyjar eru lagðar 400 þúsund krónur til að ganga frá sjósetningarrennu við Dyrhólaey og Stokkseyri fær 200 þús. kr. Enda er ekki um margar hafnir að ræða í Suðurlandskjör- dæmi. Önnur stórhöfnin í kjör- dæminu er í Þorlákshöfn, en hún er landshöfn. Ráðgert er að veita 75,9 m.kr. til . hafnarmannvirkja á Suðurlandi samkvæmt tillögu að hafnaráætlun. Allt það fjármagn mun renna til verkefna við Vestmannaeyjahöfn. ÞÆÓ Hafnarframkvæmdir á Reykjanesi: Stórverkefni framundan í Sandgerði og Grinda- vík Samkvæmt fj árlögum verður varið alls20m.kr. eða9,2% afkökunni til hafnarmannvirkja á Reykjanesi. Þar er um að ræða framkvæmdir við hafnir í fjórum sveitarfélögum. Stærsta fjárveitingin kemur í hlut Hafnarfjarðar eða 9,7 m.kr. Hins vegar eru ekki áætlaðar neinar fram- kvæmdir við Hafnarfjarðarhöfn í ár, heldur er hér um að ræða uppgjör á hlut ríkissjóðs í eldri framkvæmdum við höfnina. Þá verður varið 5,3 m.kr. til verkefna við höfnina í Sandgerði, 3,2 m.kr. í nýju höfnina í Garðabæ og að síðustu fara 1,8 m.kr. til hafnarframkvæmda í Grindavík. í tillögu að hafnaráætlun er gert ráð fyrir að á næstu fjórum árum verði 167,5 m.kr. lagðar til fram- kvæmda við hafnarmannvirki á Reykjanesi. Stærsta verkefnið eru endurbætur á höfninni í Sandgerði og er lagt til að þangað renni alls tæplega 70 m.kr. Þar er um að ræða dýpkun innsiglingarrennu, breikkun Norðurgarðs og grjótvörn við hann. Þá eru á dagskránni stór verkefni við höfnina í Grindavík. Áætlunin leggur til að þar verði framkvæmt fyrir rúmlega 60 m.kr. á fjögurra ára tímabilinu. Þar er fyrst og fremst um að ræða stálþil við Miðgarð og dýpkun fram af garðinum. ÞÆÓ Áætlaðar eru framkvæmdir við Vestmannaeyjahöfn fyrir 9,5 milljónir króna. Hafnarframkvæmdir á Vestfjörðum: Miklar hafnarframkvæmdir fyrirhugaðar á næstu árum Vestfirðingar fá á fjárlögum fyrir árið 1987 45,7 milljónir króna til að sinna hafnarmannvirkjum sínum. Þetta er20,9% af þvífjármagni, sem Fjárveitingar til hafnarframkvæmda á Austurlandi: Dráttarbraut á Seyðisfirði Framkvæmdafé til hafnarmála á Austurlandi nemur á árinu 41,7 milljónum króna eða 19,1% af heildarsummunni til þess mála- flokks. Þessu fjármagni er deilt niður á 12 staði í kjördæminu. Mestu verður varið til fram- kvæmda á Vopnafirði eða 13,5 m. kr., en þar verður stálþilsbakki við Ásgarð lengdur. Næst hæsta fjár- veitingin rennur til Bakkafjarðar eða alls 7,5 m.kr. Þarna er að mestu um að ræða óuppgerðan hlut ríkissjóðs í eldri framkvæmd- um. Til hafnar í Homafirði fara 6,4 m.kr. og fara þær milljónir flestar í vinnu við hið klassíska vandamál Hafnarbúa, að dýpka höfnina. Önnur sveitarfélög á Austur- landi fá síðan minni upphæðir til framkvæmda, en það eru Neskaup- staður (2,7 m.kr.), Fáskrúðsfjörð- ur (2,6 m.kr.), Stöðvarfjörður (2,5 m.kr.), Seyðisfjörður (2,2 m.kr.), Eskifjörður (1,6 m.kr.), Djúpivog- ur (1,4 m.kr.), Borgarfjörður eystri ( 500 þús. kr.), Breiðdalsvík (500 þús.kr.) og loks Reyðarfjörð- ur (300 þús.kr.). Ljóst er að skipt- ing hins takmarkaða fjármagns hefur verið erfið á Austurlandi. Hafnaráætlun sú, sem tillaga var gerð að í vor á Alþingi, leggur til að á árunum 1987 - 1990 verði tæplega 391 milljón króna veitt til hafnarframkvæmda á Austurlandi. Stærsta verkefnið sem framundan er virðist vera á Seyðisfirði, en gert er ráð fyrir að framkvæmdir þar á tímabilinu kosti 96,5 m.kr. Þar mun mest fara til byggingar tveggja áfanga dráttarbrautarinnar eða alls 74 m.kr. Þá er hugmyndin að komið verði upp brimvarnargarði og viðlegu- kanti fyrir 50 milljónir á Borgar- firði eystra á árunum 1989 - 1990 og verður það verkefni líklegast fjármagnað með lánsfé. Eskfirð- ingar hyggja einnig á stórfram- kvæmdir, sem er bygging nýrrar bryggju við fiskimjölsverksmiðj- una og er ætlað í hana 39 m.kr. Fleiri stór verkefni eru tilgreind í hafnaráætlun, s.s. stálþil á Reyð- arfirði og Fáskrúðsfirði, viðlegu- kantur á Breiðdalsvík og loks má geta að fyrirhugað er að leggja 20 m.kr. til að dýpka höfnina í Horna- firði á þessu fjögurra ára tímabili. ÞÆÓ ætlað er til hafnarmannvirkja og lendingarbóta. Samkvæmt fjárlögum verður unn- ið að framkvæmdum á 14 stöðumu. Helstu verkefnin eru á ísafirði en þangað renna 10,9 m.kr til byggingar stálþils í Sundahöfn. Á Tálknafirði verður unnið fyrir 7,3 m.kr. við endurbyggingu trébryggju. Til Bol- ungarvíkur verður veitt alls 5,3 m.kr., sem er greiðsla ríkissjóðs vegna fyrri framkvæmda. Þá fær Norðurfjörður á Ströndum 5,1 m. kr. á sömu forsendum og Bolungarvík, þó hluti fjárins fari til framkvæmda. , Þá er veitt fjármagni að upphæð 5 m.kr. til að hefja framkvæmdir við 170 metra langan brimvarnargarð að Brjánslæk. Aðrir staðir fá minni fjárhæðir til sinna hafna. Hólmavík fær 2,5 m.kr., Flateyri 2,3 m.kr., Patreksfjörður 2,0 m.kr., Hólmavík 2,5 m.kr., Drangsnes 1,4 m.kr. Síð- an fá Suðureyri, Súðavík, Bíldudal- ur, Þingeyri og Karlsey fjárframlög sem öll eru innan við eina milljón kr. Þingsályktunartillaga til fjögurra ára hafnaráætlunar gerir hins vegar ráð fyrir að umtalverðu fjármagni verði varið til hafnarmannvirkja á Vestfjörðum fram til ársins 1990 eða alls 367 milljónum kr. Stærsta einstaka hafnarfram- kvæmdin, sem fyrirhuguð er, er fyrsti áfangi (90 m) brimvarnargarðs við Brjót í Bolungarvík. Til þess áfanga er talið að þurfi 93 milljónir kr. og er gert ráð fyrir að fjár- mögnunin verði með lánsfé. Þessi stórframkvæmd er þó ekki á dagskrá fyrr en á árunum 1989-1990. Þá er gert ráð fyrir í áætluninni að talsverðu fé verði varið til fram- kvæmda við ísafjarðarhöfn, eða alls 82,9 m.kr., ef talin er með fjárveit- ingin í ár. Þar er stálþilið (140 m) í Sundahöfn stærsti pósturinn. Höfnin á Brjánslæk á Barðaströnd mun einnig fá talsvert fjármagn ef að líkum lætur. Tillaga er gerð um að þangað renni 56,2 m. kr. á næstu fjórum árum. Mikið af þessum fram- kvæmdum tengjast Breiðafjarðar- ferjunni, sem fyrirhugað er að byggja, en smíði hennar var boðin út nýverið. Loks má geta að Súgfirðingar eiga von á úrbót sinna mála, þó nokkur bið verði. Ætlunin er að leggja 46,5 m.kr. ti hafnarmannvirkja á Suður- eyri, en þó ekki fyrr en á árunum 1989-1990. ÞÆÓ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.