Tíminn - 08.05.1987, Blaðsíða 5

Tíminn - 08.05.1987, Blaðsíða 5
Föstudagur 8. maí 1987 Tíminn 5 Þorskstofninn fullnýttur: Aðhald í þorskveiðum er pólitísk ákvörðun - máliö þarf að leysa í stjórnarmyndunarviöræðum, segir Halldór Ásgrímsson sem vill þrengja aflaaukningar svigrúm sóknarmarks “Þorskveiðar í fyrra urðu um 366 þúsund tonn og það má gera ráð fyrir að veiðin fari jafnvel framúr því í ár. Mikill hluti af þessum afla er 1983 árgangurinn. Sóknarmarkið sem sett var fyrir árið í fyrra og árið í ár er rúmt og gefur möguleika á að auka afla. Ég er þeirrár skoðunar að það þurfi að draga úr möguleikunum á að auka þorskaflann og að það verði frekar dregið úr veiðum 1988 en hitt.“ Þetta sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra þegar hann var spurður um möguleika á aukn- um þorskveiðum á næsta ári og framhald kvótakerfi en núgildandi lög um fiskveiðistjórnun renna út um næstu áramót. Halldór benti á að þorskstofninn væri í dag full nýttur og því nauðsynlegt framtíð- arhagsmunum sjávarútvegsins og þar með þjóðabúsins að ganga ekki of nærri honum. “Hins vegar ættum við að geta haldið uppi þeirri sjávarafurða- framleiðslu sem við erum komnir í, sem er meiri en nokkru sinni fyrr og við megum þakka fyrir ef við getum haldið henni. Ég minni á að við erum að framleiða sjávarafurð- ir á síðasta ári fyrir um 800 milljón- ir dollara en framleiddum 1983 fyrir um 500 milljónir dollara. Það er ekki síður mikilvægt að geta haldið þessari framleiðslu uppi en að auka hana mikið vitandi að með því yrði gengið svo nærri stofnun- um að hún myndi, kannski ekki hrynja, en faíla mjög verulega niður," sagði Halldór. Hann bætti því við að mjög vtða væru mögu- leikar á að auka verðmæti sjávar- afurða með betri nýtingu og fjöl- breytni í veiðum. Nefndi hann í því sambandi bæði vannýtta stofna ss. kolmunna scm Færeyingar hafa vcitt með góðum árangri, kúfisk, langlúru og gulllax, og úrgang úr þeim afla sem komið cr með að landi en er ekki nýttur nú, s.s. lifur og slóg. „Ég er aðcins að benda á það að við þurfum að gæta að okkur," sagði sjávarútvegsráð- herra. “Freistingin er mikil að ná meiri afla á iand, en það er freisting sem menn verða að standast. Hins veg- ar renna lögin út um áramót og það er verkefni nýrrar ríkisstjórnar að ákveða framhaldið og því er það eitt af því sem verður að semja um í sjórnarmyndunarviðræðum með hvaða hætti að fiskveiðistjórnun verður staðið. Þetta er pólitísk ákvörðun sem verður að gang'a frá með einhverjum hætti í stjórnar- myndun," sagði Halldór ennfrem- ur. Saga um dverghund sem var rotta: ii Engin óhrekjandi rök fyrir sannleiksgildi Dverghundur, eða Chihuahua, sem sagt er að hjón hafi talið sig vera að kaupa og smygla til landsins, en hafi svo reynst rotta, sem drepur ketti. LEIDSOGU- MENN SEMJA Vegna sögusagna sem ganga fjöll- um hærra í Reykjavík um að smygl- aður hundur hafi reynst rotta þegar upp var staðið og hafi meira að segja drepið kött reið Tíminn á vaðið með spurningu til landsmanna, hvort ein- hver vissi hvort satt væri. Utvarpsstöð- in Bylgjan fetaði í fótsporin og upphófst mikil leit að hjónum sem höfðu smyglað rottu inn í landið. Ljóst varð að sagan var til í fjölda útgáfa, svo sem vant er með skot- spónasögur, sem tengjast Miðjarð- arhafslöndum. Á hverju sumri fara slík ævintýr á kreik. Flestum sögumönnum í þetta sinn ber þó saman um, að hjónin hafi talið sig vera að kaupa sjaldséðan, smávaxinn hund af mexíkönsku kyni, svonefndan Chihuahua. Hér birtist mynd af hundafbrigðinu og er hann sagður minnstur hunda í heimi. Hann vegur aðeins 0,45 kg fullvax- inn og kemst hæglega fyrir í frakka- vasa eða í kampavínsglasi. Ókostir við hann, skv. Hundabók Fjölva, er að hann glefsar í stríðin börn, þykir einþykkur, fífldjarfur og hikaði ekki við að ráðast á ljón. (Hvað þá kött, - en það átti víst að vera rotta!?) Það skal tekið fram, að engin óhrekjandi rök hafa komið fram um að sagan sé sönn og því ástæða til að taka henni með fyrirvara. Dýralækn- ar segjast ekki kannast við, að atvikið hafi átt sér stað. En bæta við, að stórhættulegt sé að smygla hund- um til íslands. Að ekki sé nú talað um rottur. þj f gærkvöldi náðist samkomulag í deilu leiðsögumanna og viðsemj- enda þeirra, en síðasti ásteytingar- steinninn var uppsagnar og endur- skoðunarákvæði í samningnum. Var samningur undirritaður með fyrirvara um samþykki félags- Fiskiðjusamlag Húsavíkur greiðir nú tæp 30% ofan á fiskverð fyrir vænan þorsk sem fer í skreið. Frá áramótum hafa þeir greitt 10% ofan á allan fisk, en hækkunin stafar ekki einungis af aukinni samkeppni hcld- ur og af hagstæðum aðstæðum sem gera þetta kleift. manna hjá ríkissáttasemjara í gær- kvöldi. Jafnframt var verkfalli aflýst og samþykki félagsmenn samninginn er ljóst að endanlcga er lokið tæplega sex vikna verkfalli þcssa hóps. Verð á ýmsum afurðum hefur hækkað töluvert frá því að fiskverð var ákveðið og ítalskur skreiðar- markaður er gróðavænlegur. Og fyr- ir þann fisk eru 30% greidd. Ástand- ið er að öllum líkindum tímabundið. -SÓL Framleiðendur franskra kartaflna: Fá fimmtán milljónir - viðbót við fjárlög Fiskiðjusamlag Húsavíkur: Greiðir tæp 30% ofan á fiskverðið Iðnþróunarsjóður stofnar fjárfestingarfélag: Til að ýta undir þróun hlutabréfamarkaðar Stjórn Iðnþróunarsjóðs hefur ákveðið að hann beiti sér fyrir stofn- un öflugs fjárfestingarfélags er m.a. hafi það að markmiði að ýta undir löngu tímabæra þróun hlutabréfa- markaðar að mati stjórnarinnar, að því er fram kom á ársfundi Iðnþró- unarsjóðs í gær. Þar kom fram að 105 millj. kr. hagnaður varð af starfsemi sjóðsins í fyrra. Á fundinum var samþykkt að veita allt að 10 millj. kr. styrk á næstu tveim árum til að stuðla að aukinni sjálfvirknivæðingu hér á landi. Alls voru 78 lánsumsóknir til afgreiðslu 1986 en útborguð lán á árinu námu um 360 millj. Heildarút- lán í árslok námu 1.682 millj. kr. Þar af var nær fimmtungur lán til vefjar- °g prjónaiðnaðar og um 17% til matv.- og drykkjarvöruiðnaðar. Fjölhæf sjálfvirkni er sögð gegna lykilhlutverki í nýrri tækni í fram- leiðsluiðnaði. Nýbylgja sjálfvirkni muni smám saman snerta öll svið framleiðsluiðnaðar. Forsenda þess að íslenskt atvinnu- líf geti nýtt sér þessa tækni sé þekking fjármagn og þor. Iðnþróunarsjóður hefur að undanförnu tekið þátt í verkefni með Iðntæknistofnun sem lýtur að því að auka sjálfvirkni í innlendum iðnaði. Markmiðið er aukin fram- leiðni í hefðbundnum iðnaði með notkun nýrrar tækni og að aðstoða fjögur fyrirtæki við að auka sjálfvir- kni í framleiðsluferlinu. Góð reynsla og mikill áhugi meðal fyrirtækja olli því að sjóðurinn ákvað að verja framangreindum 10 millj. kr. til áframhaldandi aðgerða á þessu sviði. -HEI í greinargerð um horfur í ríkisfjár- málum á árinu 1987 frá fjármála- ráðuneytinu, sem birt var í gær kemur m.a. fram að framleiðendur franskra kartaflna á íslandi fá í sinn hlut um 15 milljónir króna, vegna innflutnings franskra kartaflna er- lendis frá. Er þetta viðbót við fjárlög 1987. Er þetta samkvæmt reglugerð frá 24. júní á síðasta ári, en þar er gert ráð fyrir að innheimt verði jöfnunar- gjald af innfluttum frönskum kart- öflum og fá innlendir framleiðendur frönsku kartaflnanna um 15 milljón- ir af jöfnunargjaldinu í sinn hlut, eins og fyrr segir. -phh Nýir bátar í Reykjavíkurhöfn: DRÁTTARBÁTUR FRÁ HOLLANDI Hafnaryfirvöld eru nú að leita fyrir sér með að kaupa nýjan, eða jafnvel nýja dráttarbáta á Reykja- víkurhöfn. Á leiðinni til landsins með einu skipi Sambandsins er nú hollenskur dráttarbátur sem leigður verður uns komin er reynsla á hann og reynist hann vel rennur leigan til kaups á skipinu. Báturinn er vænt- anlegur til landsins snemma í næstu viku. Báturinn er minni en núvprandi dráttarbátur, en með sama afl. -SÓL

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.