Tíminn - 08.05.1987, Blaðsíða 16

Tíminn - 08.05.1987, Blaðsíða 16
16 Tíminn Föstudagur 8. maí 1987 llililllllllllllllllllllilll DAGBÓK Vortónleikar Tónmenntaskólans Tónmenntaskóli Reykjavíkur er nú að Ijúka 34. starfsári sínu. I skólanum voru um 500 nemendur. Kennarar voru 40 talsins. Meðal annars störfuðu við skólann tvær hljómsveitir með rúmlega 50 strengjaleikurum og tvær lúðrasveitir með 50 blásurum. Auk þess var léttsveit starfrækt í skólanum. Mikið hefur verið um tónleikahald á vegum skólans í vetur og vor. Síðustu vortónlcikar skólans verða haldnir í Gamla bíói á morgun, laugardag 9. maí kl. 14.00. (Kl. 2 e.h.) Á þessum tónleikum koma einkum fram eldri nemendur skólans. Á efnis- skránni verður einleikur og samleikur á ýmiss konar hljóðfæri. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Flautu- og píanóleikar í Norræna húsinu Laugardaginn 9. maf kl. 16.30 halda Jonathan Bager flautuleikari og Cather- ine Williams píanóleikari tónleika í Norr- æna húsinu. Á efnisskránni eru verk eftir Bach, Hindemith, Fauré, Copland og Francois Borne. Jonathan Bager stundaði flautunám við Royal College of Music í London, þar sem Sebastian Bell var kennari hans. Þar lauk hann einleikarapróft 1979. Sama ár fluttist hann til íslands og kenndi í fjögur ár við Tónlistarskólann á Akureyri. Árið 1983 fluttist hann til Reykjavíkur og hefur þar leikið með Sinfóníuhljómsveit Jonathan Bager flautuleikari og Cather- ine Williams píanóleikari. íslands og við Islensku óperuna. Einnig hefur hann kennt við Tónskóla Sigur- sveins undanfarin 3 ár. Catherine Williams nam píanóleik við Royal Academy of Music á árunum 1974-1980, þar sem aðalkennari hennar var Gordon Green. Að námi loknu fluttist hún til Hong Kong og fékkst við tónlistariðkun af fjölbreyttu tagi. Haustið 1985 fluttist Catherine til Reykjavíkur ásamt manni stnum, sem er fiðlulcikari f Sinfóníuhljómsveit íslands. Hún starfar við Söngskólann og íslensku óperuna sem óperuþjálfari. Útivistarferðir Útivistarferðir 9.-10. maí: Laugardagur 9. maí kl. 10.30: - Náttúru- skoðunarferð fjölskyldunnar um Suður- nes. Ferðin er í samvinnu við Náttúru- verndarfélag Suðvesturlands. Skoðaðir staðir svo sem Snorrastaðatjarnir, Eldvörp. Einisdalur, Valbjarnargjá, Blásíðubás (á Reykjanesi) og Ósabotnar. Hugað að bergtegundum, eldstöðvum, vaknandi gróðri, smádýralífi, fuglum og selum. Fararstjóri er Einar Egilsson, en leiðbeinendur: Freysteinn Sigurðsson jarðfræðingur og Þorvaldur Örn Árnason líffræðingur. Örstuttar gönguferðir og rútan með allan tímann. Brottför frá BSl, bensínsölu. Farmiðar við bíl (700 kr.) frítt f. börn með fullorðnum. (Hcimkoma um kl. 17.00). Sunnudagur 10. maí kl. 13.00: Keykja- víkurganga. Mætið í þriðju Reykjavík- urgöngu Útivistar. Brottför kl. 13.00 á Grófartorgi. Hægt er að koma t' gönguna kl. 13.30 við BSI, bensínsölu, kl. 14.00 við Nauthólsvík og kl. 15.00 í Skógrækt- arstöðinni Fossvogi. Gengið frá Grófinni um Hljómskálagarðinn, Oskjuhlíð, Foss- vog og Fossvogsdal í Elliðaárdal. Rútu- ferðir til baka frá Elliðaárstöð. Gestir koma í gönguna og fræða um fugla, skógrækt, jarðfræði, sögu o.fl. Ekkert þátttökugjald. Fjölmennið. Útivist, feröafélag. Fundur Kvenfélags Óháða safnaðarins Kvenfélag Óháða safnaðarins heldur fund á morgun, laugardaginn 9. maí í Kirkjubæ kl. 15.00. Rætt verður um kvöldferðalagið. Matvöruverslun í gamla bænum Til sölu matvöruverslun í eigin húsnæöi í gamla bænum. Góð velta. Einnig eru til sölu tvær 3ja herbergja 70 fm. íbúðir í sama húsnæði. Sérstakt tækifæri fyrir samhenta/r fjölskyldu/r. Upplýsingar hjá: Hagskipti hf. sími 688123. Sýning í anddyri Norræna hússins: „í smáu formi“ Á laugardag verður opnuð sýning í anddyri Norræna hússins á skúlptúrum eftir 5 norræna listamenn, á Claes Hake frá Svíþjóð, Finn Hjortskov Jensen, Dan- mörku, Veikko Myller frá Finnlandi, Michael O’Donnell, Noregi og Rögnu Róbertsdóttur frá fslandi. Hér er um farandsýningu að ræða, sem kemur frá Norrænu listamiðstöðinni í Sveaborg. Á sýningunni eru 27 verk, öll í litlu formi og unnin í mismunandi efni; tré, brons, polyester, reipi o.fl. Sýningin stendur tl 25. maí og er opin daglega 9-19, nema sunnudaga kl. 12-19. Norrænir einleikarar í Norræna húsinu Þriðju tónleikarnir í tónleikaröð Norr- æna hússins Ungir norrænir einleikarar verða á sunnudag 10. maí kl. 16.00. Þá kemur fram fulltrúi Noregs, Hávard Gimse, og leikur á píanó vcrk eftir Scarlatti, Debussy, Holbergsvítu eftir Grieg og sónötu í h-moll eftir Liszt. HSvard Gimse er 21 árs gamall en hefur þegar unnið sér sess meðal efnileg- ustu píanóleikara Noregs. Hann hóf pí- anónám sjö ára gamall og lýkur námi frá Tónlistarskólanum í Osló nú í vor. Hávard Gimse hefur leikið með stærstu hljómsveitum Noregs allt frá 1981 og margoft komið fram í sjónvarpi og út- varpi. Fyrstu einleikstónleikana hélt hann árið 1984. Hann hefur tekið þátt í mörgum píanó- keppnum og unnið til verðlauna, t.d. tónlistarverðlaun sem kennd eru við Ástríði prinsessu og hátíðarverðlaun Ro- berts Levin. f febrúar sl. vann hann fyrstu verðlaun í keppni, sem haldin var í Frankfurt, en í henni tóku þátt 33 píanóleikarar á aldrin- um 18-21 árs frá 17 Evrópulöndum. Aðgöngumiðar verða seldir við inn- ganginn. Vorsýning Myndlistarskólans í Reykavík Vorsýning Myndlistarskólans í Reykja- vík stendur yfir um helgina í húsnæði skólans. Tryggvagötu 15, 6. hæð. Sýndar verða myndir úr barna- og unglingadeildum, teikni- og málaradeild- um, einnig mótun, vatnslitir og grafík. Myndlistarskólilnn hefur nú starfað óslit- ið í 40 ár. Sýningin er opin laugardag, sunnudag og mánudag kl. 14.00-22.00 alla sýningar- dagana. Laugardagsganga Hana nú Vikuleg laugardagsganga Frístunda- hópsins Hana nú í Kópavogi verður á morgun, laugard. 9. maí. Lagt verður af stað frá Digranesvegi 12 kl. 10.00. Rölt verður um bæinn. Markmið göng- unnar er: Samvera, súrefni, hreyfing. Góður félagsskapur. Nýlagað molakaffi á boðstólum. Hlutavelta í Hljómskálanum Hlutaveltu og flóamarkað heldur Kvenfélag Lúðrasveitar Reykjavíkur laugardaginn 9. maí kl. 14:00 í Hljóm- skálanum. Engin núll, en margt góðra muna. Kvenfélagskonur. 30 áraafmæli Tónlistarskólans í Keflavík á laugardginn Á þessu ári verður Tónlistarskólinn í Keflavík 30 ára og er ætlunin að minnast þeirra tímamóta á laugardaginn. Afmælishátíðin hefst með nemendatón- leikum í Félagsbtói í Keflavík kl. 15.00 og að tónleikunum loknum verður gestum boðið í afmæliskaffi íTónlistarskólanum. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Skólinn var stofnaður af Tónlistarfélagi Keflavíkur í október 1957 og voru frú Vigdís Jakobsdóttir og Guðmundur Nor- dahl aðalhvatamenn að stofnun hans. Fyrsti skólastjóri var Ragnar Björnsson. í tónlistarskólanum í Keflavík eru nú 232 nemendur og er þar kennt á öll helstu hljóðfæri auk söngs. Skólinn tók í notkun glæsilega viðbygg- ingu s.l. haust og er aðstaðan nú cin sú besta á landinu. Núverandi skólastjóri Tónlistarskólans í Keflavík er Kjartan Már Kjartansson. Friðarfundur í Skagafirði Friðarhópur í Skagafirði efnir til al- menns fundar um friðarmál að Löngu- mýri í Sakgafirði næsta laugardag 9. maí kl. 15.00 (kl. 3 Á dagskrá er m.a.: Dr. Snorri Ingi- marsson læknir flytur erindi um friðar- mál, Anna María Guðmundsdóttir syng- ur friðarsöngva, Guðmundur Ingi Leifs- son fræðslustjóri ræðir um friðaruppeldi og í framhaldi af hans erindi munu tveir nemendur frá grunnsköla Sauðárkróks ræða friðarmálin frá sjónarhóli barnsins. Þá verða einnig almennar umræður og kaffisala á staðnum. Sjö prestakóll laus Biskup Islands hefur auglýst sjö presta- köll laus til umsóknar og er umsóknar- frestur til 3. júní 1987. Prestaköllin sjö eru: Sauðlauksdalur í Barðastrandarprófastsdæmi, Bíldudalur í Barðastrandarprófastsdæmi, Prestbakki í Húnavatnsprófastsdæmi, Bólstaðarhlíð í Húnavatnsprófastsdæmi, Hrísey í Eyja fjarðarprófastsdæmi, Raufarhöfn í Þing- eyjarprófastsdæmi. Hin auglýstu prestembætti verða þau fyrstu, sem veitt verða skv. nýjum lögum um veitingu prestakalla, sem samþykkt voru á Alþingi nú í vetur. Munu sóknar- nefndarmenn og varamenn þeirra mynda þann hóp, sem velur hinn nýja prest safnaðarins úr hópi umsækjenda. Almennar prestskosningar verða því aðeins, að 25% safnaðarmanna óski þess. Gylffi Gíslason sýnir í Gallerí Borg Gylfi Gíslason opnaði fimmtudaginn 7. maí sýningu á teikningum sínum í Gallerí Borg við Austurvöll. Gylfi er fæddur í Reykjavík árið 1940. Hann nam teikningu við Myndlistarskól- ann í Reykjavík 1965-70 og graftk við Myndlista- og handtðaskóla íslands. Gylfi varð félagi í SÚM-hópnum 1971 - hann hefur haldið fjölda einkasýninga og auk þess tekið þátt í mörgum samsýningum hér heima og erlendis. Gylfi hefur fengist við margskonar myndlistarstörf, skipu- lagt og séð um sýningar, kennt við myndlistarskólana í Reykjavík, mynd- skreytt bækur og samið eina bók „Grjóta- þorpið - litabók". Einnig hefur hann unnið tugi leikmynda og búninga fyrir hin ýmsu leikhús. Á sýningunni í Gallerí Borg sýnir Gylfi teikningar unnar á árinu. Myndefnið sækir hann í umhverfi nútímans og þjóðsögurnar. Sýningin er opin daglega frá kl. 10.00- 18.00, nema mánudaga frá kl. 12.00- 18.00. Laugardaga og sunnudaga frá kl. 14.00-18.00. Henni lýkur 10. maí. Árleg fuglaskoðunarferð F.í. á sunnudaginn Næsta sunnudag, 10. maí, verður farin árleg fuglaskoðunarferð Ferðafélags ís- lands um Miðnes, Hafnarborg og víðar, en slíkar ferðir hafa verið farnar allt frá árinu 1967. Þátttakendur fá ljósritaða skrá með nöfnum þeirra fugla sem sést hafa f þessum ferðum frá ári til árs, merkja við þá á skránni og bæta nýjum við. Farið verður frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin, kl. 10.00 árdegis. Fyrst verður ekið út á Álftanes og skyggnst eftir margæs, en hún á að vera hér á leið sinni til varpstöðvanna, sem eru á Grænlandi. Ekið verður um Hafnarfjörð og síðan sem leið liggur út á Garðaskaga og til Sandgerðis, en á þessum slóðum sjást allflestir vaðfuglar. Þá verður haldið á Hafnarberg, sem er aðgengilegasta fugla- bjarg fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins. Þátttakendum er ráðlagt að hafa með sér sjónauka og fuglabók AB. Fararstjór- ar eru sérfræðingar í fuglalífi. Listasafn ASÍ: Fréttaljósmyndir World Press Photo ’87 Nú stendur yftr í Listasafni ASÍ frétta- ljósmyndasýningin World Press Photo ’87. Á sýningunni eru liðlega 200 Ijósmynd- ir sem hlutu verðlaun í 9 efnisflokkum í alþjóðlegri samkeppni blaðaljósmynd- ara. Sýningin er nú haldin í þrítugasta sinn. Auk þess er á sýningunni mynd eftir Ragnar Axelsson, ljósmyndara Morgun- blaðsins. Sú mynd er meðal þeirra sem valdar voru til birtingar í árbók World Press Photo og á stærri gerð sýningarinn- ar, sem var frumsýnd í Amsterdam 16. apríl s.l. Ragnar mun vera eini Ijósmynd- arinn frá Norðurlöndum, sem á mynd á þessari sýningu. Sýningin er opin virka daga kl. 16-20 og um helgar kl. 14-22. Mðrta Tikkanen á hádegisverðarfundi hjá Kvenréttindafélagi íslands 1 dag föstudag kl. 12.00, efnir Kvenrétt- indafélag íslands til hádegisverðarfundar að Litlu-Brekku. Gesturfundarinsverður finnska skáldkonan Marta Tikkanen, en hún hefur m.a. skrifað skáldsöguna „Karlmönnum verður ekki nauðgað”, sem kom út árið 1976 og Ijóðabókina „Ástarsaga aldarinnar”, en fyrir hana hlaut höfundurinn norræn bókmennta- verðlaun kvenna árið 1979. Marta Tikkanen hefur verið virk í kvennahreyfingunni í Finnlandi og mun segja frá stöðu mála þar í landi. Fundurinn er öllum opinn. Helstu vextir við banka og sparisjóði (% á ári) 1. maí 1987 (Ein * merkir breytingu vaxta frá síðustu skrá og þrjár *** vísa á banka og/eða sparisjóði sem breyta vöxtum) I. Vextir ákveönir af bönkum og sparisjóðum Lands- bankl Útvega- banki Bunabar- banki I6na6ar- banki Vtrtlunar- banki Samvinnu- banki Alþýáu- banki Sparl- •jóðir Vagln Dagsetning siðustu breytingar 1/5 21/4 11/4 1/5 1/5 1/5 11/4 1/5 Innlánsvextir: Hlaupareikningar 6.00 4.00 4.00 4.00 4.00 4.00 5.00 7.00 5.20 Ávisanareikningar 6.00 4.00 4.00 4.00 4.00 7.00 10.00 7.00 5.50 Alm.sparisj.bækur 12.00’ 10.00 10.00 10.00 10.00 10.00 10.00 10.00 10.70’ Annað óbundiðsparifé" 7-22.00 10.-21.72 7-20.00 10.0-19.00 11-20.00 10-16.00 3.50 7-19.50 Uppsagnarr.,3mán. 13.00’ 14.00 10.00 13.50 15.00 14.00 12.00 12.50’ Uppsagnarr.,6mán. 15.50 11.00 20.00’ 19.00 17.00 17.00 13.00 14.70* Uppsagnarr.,12mán. 14.00’ 17.00 19.00 25.50 '">• 15.00’ Uppsagnarr., 18mán. 24.50" 22.00’ 24.0011 *• 23.80’ Verðtr.reikn.3mán. 2.00 2.00 2.00 2.00 2.00 2.00 1.50 1.90 Verðtr.reikn.6mán. 3.50 4.00 3.00 2.50 3.50 3.00 4.00 3.50 3.40 Ýmsirreikn.,) 7.5-8.00 8-9.00 5-6.50'»• Sérstakarverðb.ámán. 1.083’ 1.00 1.00 0.75 1.00 0.83 1.00 0.83 0.90 Innl.gjaldeyrisreikn.: Bandarikjadollar 5.50 5.50 5.50 6.25’ 5.50 5.50 5.75 5.25 550 Sterlingspund 8.50 8.75 8.50 8.75 10.00 9.00 10.25 9.00 8.80 V-þýskmörk 2.50 3.00 3.00 3.00 3.50 3.50 4.00 3.50 3.00 Danskarkrónur 9.50 9.50 10.00 9.25’ 9.00 9.50 10.25 9.50’ 9.60’ Útlánsvextir: Vixlar (forvextir) 20.50’ 20.0 20.00" 21.00’ 20.50 20.00 21.00 24.00"' 20.90’ Hlaupareikningar 21.50’ 21.50 21.00 22.50’ 22.00 21.00 22.00 24.50’ 22.00’ þ.a. grunnvextir 9.00 9.00 10.00 10.00 10.00 10.00 10.00 12.00’ 9.90’ Alm. skuldabréf*1 22.00’ 20/21 25’> 21.50 22.50’ 22.00 22.00’ 22.00 26Í70"1 22.60’ þ.a. grunnvextir 9.00 11.50 9.00 10.00 10.00 10.00’ 9.50 12.00’ 9.90’ Verötr. skbr. að 2.5 ár51 6.00 6.5/7.0’1 6.50 7.50’ 7.00 6.50 7.00 675/7.0"" 6.50 Verðtr. skbr>2.5ár5’ 6.50 6.5/7.0'1 6.50 7.50’ 7.00 6.50 7.00 675/7.0"* 6.60 Afurðalán í krónum 20.00 19.00 19.00 16.25 20.00’ 20.00 18.50 26.00’ 20.30’ Afurðalán i SDR 7.75 7.75 7.75 8.25 8.00’ 8.00 8.00 7.80 Afurðalán i USD 8.75 8.25 8.00 7.75 8.75’ 8.00 7.50 8.20 Afurðalán i GBD 11.50 11.50 11.25 13.00 11.25 11.50 12.75 11.80 Afurðalán í DEM 5.50 5.50 5.50 6.50 5.50 5.75 6.25 5.70 II. Vanskilavextir (ákveðnir af Seðlabanka) frá 1. desember 1986:2.25% (2.01%) fyrir hvem byrjaöan mánuð. Frá 1. mars 1987 2.50% (2.21%) fyrir hvern byrjaðan mánuð. III. Meðalvextir 21.03.1987 (sem geta giit í apr 1987): Alm skuldabréf 21.0% (9.5-M1.5), verðtr. lán að 2.5 árum 6.4% og minnst 2.5 ár 6.6%. Meðalvextir 21.03.1987 (semgetagilt í mai 1987): Alm skbr. 21.3% (9.5+11.8), verðtr. lán að 2.5 árum 6.5% og minnst2.5ár6.6%. 1) Sjá meðfylgjandi lýsingu. 2) Aðeins hjá Sp. Vélstj. 3) Aöeins hjá SPRON, Sp. Kópav., Hafnarfj, Mýras., Akureyrar, Ötafsfj.. Svarfd., Siglufj., Norðfj., í Kefl., Árskógsstr & Eyrar. 4) Viðsk. vixlar keyptir m.v. 22.5% vexti hjá Bún.banka, 23.0% hjá Samv. banka og 26.0% sparisj. 5) Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilalána er 2% á ári, Verzlunar- og Alþýðubanki beita’ pessu ekki. 6) Aðeins hjá Sp. Bolungarvíkur. 7) Lægri vextimir gilda ef um fasteignaveð er að ræða.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.