Tíminn - 08.05.1987, Page 3
Föstudagur 8. maí 1987
Tíminn 3
Loftlaust og þröngt
í flugstöð Leifs
Það lá svo mikið á að koma
flugstöð Leifs Eiríkssonar í gagnið
fyrir kosningar, að þar er allt meira
og minna hálfklárað. Ekki er alls
staður j afn vítt til veggja í Leifsstöð
og þar sem loftræstikerfið er ekki
enn að fullu tengt, er starfsfólk í
þjónustustörfum þeírri stundu
fegnast þegar það kemst út úr
byggingunni. Víkurfréttir skýra
frá, að vegna þessa hafiþað jafnvel
hótað að ganga út ef lagfæringar
verði ekki gerðar snarlega.
Á verslunarhæðinni er starfsfólk
óánægt með aðstöðuna. Hún er of
langt frá inngöngudyrum að þeirra
mati og fjarri aifaraleið innan flug-
stöðvarinnar. Einnig eru þar engir
gluggar og loftið þungt.
Pá farþega, scm komið hafa um
þetta stórkostlega anddyri til lands-
ins hefur rekið í rogastans þegar
þeir hafa viljað versla í svokallaðri
„komufríhöfn". Vegna asans við
að opna Leifsstöð varð að grípa til
bráðabirgðalausna hvað varðar
fríhöfnina og hún sett upp þar sem
síðar á að verða afdrep fyrir far-
þega á Saga Class, - eins konar
fyrsta farrýmisþega. Húsrými er
þar mun minna en í gömlu flug-
stöðinni og langan tíma tekur að
afgreiða smáa hópa. Á þennan
stað þarf starfsfóik verslunarinnar
að aka vörunum um langan veg
eftir göngum Leifsstöðvar til að
koma þeim fyrir.
Starfsstúlka Arnarflugs, sem
starfar í Leifsstöð, sagði að þrátt
fyrir þetta væri allt sem sneri að
farþegum til sóma. Aðstaða starfs-
fólks yrði lagfærð síðar og hefði
því þegar verið lofað bótum. En
það breytir ekki því, að flugstöð
Leifs Eiríkssonar var alls ekki á því
stigi,aðhanahefðiáttaðopna. þj
Hálfur millj-
arður í um-
fram útgjöld
f greinargerð fjármálaráðuneytis-
ins um horfur í ríkisfjármálunum,
sem kom út í gær segir að gera megi
ráð fyrir að útgjöld nokkurra stofn-
ana verði rúmlega hálfum milljarði
meiri en fjárlög gerðu ráð fyrir. Er
gert ráð fyrir að útgjöld Alþingis fari
um 35 m.kr. umfram fjárlög, skrif-
stofubyggingar stjórnarráðsins 10
m.kr., grunnskólar 195 m.kr., lög-
reglustjóraembættið á Keflavíkurf-
lugvelli 15 m.kr., bæjarfótgetar og
sýsiumenn 100 m.kr., ríkisábyrgð á
launum 20 m.kr. lífeyrissjóður
bænda20m.kr. og að ýmsar stofnan-
ir aðrar fari samtals 150 m.kr. fram
yfir fjárlögin. Samtals eru þetta um
550 milljónir króna. -phh
Um9.
Góðærið kemur glöggt í ljós hjá
flugfélögunum og ferðaskrifstofun-
um ekki síður en hjá bílasölunum og
ÁTVR eins og nýlega hefur verið frá
skýrt. Um 8.500 íslendingar komu
heim frá útlöndum í aprílmánuði,
sem var 48% fjölgun frá árinu á
undan. Utanferðir landsmanna
fyrstu 4 mánuði ársins urðu 26.250,
sem er fjölgun um rúmlega fimm
þúsund manns frá sama tíma 1986.
Þetta samsvarar því að um 9. hver
landsmaður hafi brugðið sér út fyrir
pollinn þessa fjóra vetrarmánuði.
Áhugi útlendinga á heimsóknum
til okkar eykst líka jafnt og þétt. Af
Loðnuvertíðin:
Heildarkvót-
innveru-
lega minni
- 500 þúsund tonn í
stað 800 þúsund í fyrra
Sameiginlegar tillögur grænlenskra,
íslenskra og norskra vísindamanna
um veiði úr loðnustofninum fyrir
sumar og haustvertíð í ár liggja nú
fyrir. Tillögurnar eru slæmar fréttir
fyrir loðnusjómenn því einungis er
mælt með að veitt verði 500 þúsund
tonn á tímabilinu júlí-nóvember, en
í fyrra var mælt með að veidd yrðu
800 þúsund tonn á sama tíma. Þessar
tillögur fara síðan fyrir fund í ráð-
gjafanefnd Alþjóða hafrannsóknar-
ráðsins sem mun væntanlega form-
lega staðfesta þennan heildarkvóta.
Tillögur vísindamannanna um heild-
arkvóta hafa nokkra sérstöðu í ár
þar sem haffs hamlaði nokkuð mæl-
ingum á ókynþroska loðnu er mikil
óvissa um stofnstærð. Ákvörðun um .
heildarkvóta fyrir seinni hluta ver-
tíðarinnar, frá desember í ár þar til
mars 1988, verður tekin í október
nk. að undangengnum frekari rann-
sóknum.
Samkvæmt samningi sem í gildi er
milli Norðmanna og íslendinga eiga
íslendingar að fá 85% af heildar-
kvótanum en Norðmenn 15%. Þetta
merkir að í hlut íslendinga ætti að
koma 425 þúsund lestir, en þar sem
Norðmenn eiga inni 8 þúsund tonn
hjá íslendingum frá því í fyrra
verður okkar kvóti 417 þúsund lestir.
Að sögn Árna Kolbeinssonar
ráðuneytisstjóra í sjávarútvegsráðu-
neytinu hafa engar formlegar við-
ræður farið fram um hversu mikill
hlutur Grænlendinga á að vera í
þessum heildarkvóta, en Grænlend-
ingar hafa gert kröfu um að fá
hlutdeild í honum. Ámi sagði þó að
af íslands hálfu væri fullur vilji fyrir
því að ná einhverju samkomulagi
áður en vertíðin hefst formlega í lok
júlí, en þríhliða viðræðna er þörf til
að slíkt geti gerst. -BG
hver Islendingur til útlanda
þeim komu hingað um 7.500 í apríl áramótum samanborið við um árið 1985. Fjölgun erlendra ferða- um helmingi fleiri hér nú í apríl en í
sem var um 2.000 fleiri en í sama 16.100 á sama tíma í fyrra og 14.700 manna er því um 44% á tveim árum. fyrra. Danir voru nú um 80% fleiri.
mánuði í fyrra. Samtals eru erlendir ferðamenn orðnir um 21.200 frá Frakkar, Bretar og Þjóðverjar voru -HEI
NISSAN BLUEBIRD
SAMEINAR TÆKNI OG FEGURÐ
Þú fellur flatur fyrir stóra bílnum á litla verðinu
Kr. 596.000,-
Gerið verðsamanburð ~ Það gerum við.
Örfáir bílar fyrirliggjandi.
1957-1987^1/
% 30 Sj
%ára^//
Munið bílasýningar okkar laugardaga
og sunnudaga kl. 14-17
Verið velkomin - Alltaf heitt á könnunni
INGVAR HÉLGASOIM HF.
Sýningarsalurinn /Rauðageröi, simi 33560.