Tíminn - 08.05.1987, Side 7
Föstudagur8. maí 1987
Tíminn 7
II
FOTLUN - hiálnai flðttlfidcúninA ^07^
))ivikuii njdipdi rwiijdaymng 01
Finnska skáldkonan Márta Tikkanen segir frá Soffíu dóttur sinni, sem haldin
er MBD, („Minimal Brain Dysfunction" eða vægri truflun á heilastarfsemi).
Márta kom hingað til lands 1981 og las upp úr verkum sínum og var þá þessi
mynd tekin.
Dagana 8.-10. maí verður haldin
sýning á hjálpartækjum og hjálpar-
gögnum fyrir fatlaða á öllum aldri
undir yfírskriftinni „FÖTLIJN-
hjálpartækjasýning 87“. Sýningin
verður haldin í anddyri Borgarleik-
hússins í Reykjavík og verður opin á
í dag, kl. 17-20, laugardag og sunnu-
dag kl. 11-20.
Allir eru velkomnir á sýninguna,
fyrirlestrana sem þar verða haldnir
og annað sem þar er um að vera og
er aðgangur að sýningarsvæðinu og
ölium dagskráratriðum ókeypis.
Hvaða hjálpartæki eru á boðstólum
- hvernig geta þau létt fötluðum og
öðrum tilveruna?
Tilgangur sýningarinnar er fyrst
og fremst sá að kynna almenningi
þau hjálpartæki sem á boðstólum
eru. Þar eru bæði hafðir í huga þeir
sem á þessum hjálpartækjum þurfa
að halda sjálfir og aðrir, því að oft
er það svo að hjálpartækin létta ekki
bara undir með þeim sem fatlaðir
eru, þau létta líka undir með að-
standendum þeirra. Sýningin á því
síst minna erindi til þeirra sem ekki
þurfa sjálfir á þessum tækjum að
halda. Hún veitir upplýsingar og
vekur til umhugsunar um málefni
fatlaðra og annarra sem þurfa á
hjálpartækjum að halda.
Fjölbreytt dagskrá, erindi (túlkuð á
táknmál og þýdd), skemmtiatriði
o.fl.
- barnagæsla á staðnum
Sýningardagana verður margt um
að vera í Borgarleikhúsinu, sér-
fræðingar koma og halda erindi um
ýms málefni sem varða fatlaða og
skal það tekið fram að þau verða
túlkuð á táknmáli fyrir heyrnarlausa.
Eins verða þau erindi sem útlending-
ar halda túlkuð á íslensku. Þá verður
barnagæsla á staðnum á laugardag
og sunnudag kl. 13-20. Skemmtidag-
skrá verður á laugardag kl. 16 og
sunnudag kl. 15, þar sem boðið er
upp á tónlist, dans og tískusýningu
en þar verður sýndur fatnaður fyrir
fatlaða. Leikhópur Sólheima sýnir
Ævintýri á föstudag kl. 19 og sunnu-
dag kl. 15.
Erindi flytja góðir gestir, sumir
langt að komnir. Við opnunina ræðir
Kent Ericsson frá Stockholms
landsting um viðhorf samfélagsins til
fötlunar og þátttöku fatlaðra í sam-
félaginu. Á laugardag kl. 15 flytur
Einar Hjörleifsson sálfræðingur er-
indi um álag á fjölskyldur fatlaðra.
Kl. 18 sama dag ræðir Keith Hump-
hreys gestakennari við Kennarahá-
skóla Hlands um val foreldra á skóla
fyrir fatlað barn sitt. Kl. 13 á sunnu-
dag flytur George Wilson, forstöðu-
maður Royal Association for Disabi-
lity and Rehabilitation, London er-
indi um tölvur sem hjálpartæki á
sviði atvinnu, menntunar. ferlimála,
frístunda og tjáskipta, en einmitt á
tölvusviðinu eru hvað örastar fram-
farir í hjálpartækjamálum fatlaðra.
Márta Tikkanen, rithöfundur og for-
eldri MBD-barns segir frá og les upp
Enn einn góður gestur langt að er
óupptalinn. MártaTikkanen, finnski
rithöfundurinn sem er íslendingum
að góðu kunn, kemur og segir frá
dóttur sinni Soffíu, MBD-sjúklingi
sem hún hefur skrifað bók um.
Upplestur hennar og frásögn kemur
beint í kjölfarið á erindi Sveins Más
Gunnarssonar, barnalæknis um
MBD-börn og hefst hann kl. 13 á
laugardag.
MBD sem ástæða fötlunar barna
er tiltölulega lítið þekkt og er lítið
sinnt, ekki bara á Islandi heldur og
annars staðar en helstu einkenni eru
hreyfiórói, eirðarleysi, skorturá ein-
beitingu, erfiðleikar við samhæfingu
hreyfinga, námserfiðleikar. Þetta
ástand greinist oft mjög seint og er
það miður, því oft er hægt með
sérstökum aðferðum í uppeldi,
kennslu og þjálfun að bæta úr að
einhverju leyti.
Vöðvagigt og ný viðhorf í verkja-
meðferð
Trúlega hafa margir áhuga á að
fylgjast með erindi Magnúsar Óla-
sonar, orku- og endurhæfingarlækn-
is um vöðvagigt og ný viðhorf í
verkjameðferð en það er á dagskrá
á laugardag kl. 11. Magnús ræðir þar
m.a. um nýjungar í verkjameðferð
t.d. úttaugaörvun, raförvun og nála-
stungumeðferð en alþjóð fylgist nú
m.a. með því hvernig hann aðstoðar
Ólínu Þorvarðardóttur fréttamann
með nálastungum við að losna við
tóbakslöngun!
Skipulag með tilliti til fötlunar -
umhverfi fyrir alla er svo yfirskrift
erinda og pallborðsumræðna sem
hefjast kl. 17 á sunnudag. Þar flytja
fulltrúar Arkitektafélags íslands og
félags íslenskra landslagsarkitekta
erindi, auk pallborðsumræðna.
33 fyrirtæki, félagasamtök og stofn-
anir
Hjálpartækjasýningin á sér langan
aðdraganda og hefur verið kynnt
víða um landið, enda er þess vænst
að gestir komi víða að. Arnarflug og
Flugleiðir veita 20% afslátt af ferð-
um á sýninguna.
Að undirbúningi vann samstarfs-
nefnd skipuð fulltrúm eftirtalinna
aðila: Hjálpartækjabanka RKÍ og
Sjálfsbjargar, Landssamtakanna
Þroskahjálpar, Sjálfsbjargar, lsf. og
Reykjavíkurfélags, Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra, Öryrkjabanda-
lags íslands og Svæðisstjórna um
málefni fatlaðra í Reykjavík og á
Reykjanesi. 33 fyrirtæki, félaga-
samtök og stofnanir sýna og kynna
það sem þau hafa upp á að bjóða.
Sérdeild
barna í
Hlíðaskóla
15 hreyfihamlaðir nemendur á
grunnskólaaldri eru nú á sérdeildinni
í Hlíðaskóla. Greind þeirra er innan
eðlilegra marka og er markmiðið að
gera þeim smám saman kleift að
vera í almennum bekkjum eftir því
sem getan leyfir. Á sérdeildinni hafa
nemendur mikil not af alls kyns
hjálpartækjum eins og gefur að
skilja. Og þörfin fyrir góð hjálpar-
tæki fer síst minnkandi því að að
sögn Snæfríðar Egilson iðjuþjálfa
eru börnin sem koma inn á deildina
æ meira fötluð þar sem því markmiði
sérdeildarinnar hefur verið náð að
þau sem minna eru fötluð eru
komin á aðrar deildir.
Tölvan hélt innreið sína í deildina '
í árslok 1984 en í slíkri deild hefur
tölvan þríþætt notagildi. Hún er
hjálpartæki sem með sérútbúnaði
við hæfi.opnar mikið fötluðum nem-
endum nýja tjáskipta- og þroska-
möguleika. Hún er kennslutæki er
auðveldar nemendum tileinkun
náms og gerir þeim betur kleift að
standast námskröfur hins almenna
bekkjar. Og hún er afþreyingartæki
sem býður upp á ýmsa möguleika
s.s. tölvuleiki og teikningu.
Tölvutæknin er sem sagt fyrir
hendi en sérútbúnaður er að sjálf-
sögðu mismunandi eftir því hvaða
líkamshluti hentar best til að vinna
við tölvuna. En möguleikarnir eru
óþrjótandi og eiga eftir að gefa
fötluðum auðugra og auðveldara líf.
Okkur bar að garði í sérdeildinni í
hádeginu. Þá höfðu þær Þórunn
Halldórsdóttir (t.v.) og Margrét
Edda Stefánsdóttir fengið Brynju í
heimsókn og glatt var á hjalla.
(Tímamyndir Pjetur)
Hér áður fyrr var lítið sinnt um að
hanna hjálpartæki fyrir börn sérstak-
lega, þau voru aðeins smækkuð
mynd af hjálpartækjum fullorðinna.
Á síðari árum hefur hins vegar orðið
þar mikil breyting á, nú er hugsað
meira um stíl og lit og hvað komi
smávöxnu fólki best.
Snæfríður Egilson iðjuþjálfí liðkar
og styrkir handleggina á Kristni
Sigurði Ásgeirssyni, Dedda, áður en
hann hefst handa við að vinna við
tölvuna.
Við tölvuna er tengd Ijósatafla
með bókstöfunum og getur Deddi
kveikt á réttu Ijósi þar með því að
stjórna rofunum 8 fyrir framan
tölvuborðið. Deddi notar líka tákn-
málið Bliss en það er mikið notað af
talhömluðum.
Krökkunum í deild hreyfíhaml-
aðra í Hlíðaskóla þykir ákaflega
gaman að vinna með tölvunum.