Tíminn - 08.05.1987, Qupperneq 10
10 Tíminn
Föstudagur 8. maí 1987
Framleiðsla á
minkaskinnum
nær tvöfaldast
í sumar og haust verða reystir 33
skálar til minkaræktunar á Norður-
landi og á Ströndum. Samtals munu
skálarnir hýsa um tíu þúsund læður.
Er um að ræða eitt stærsta stökk í
greininni frá upphafi, hér á landi.
Samkvæmt tölum Byggðastofnun-
ar, í skýrslu útgefinni í janúar, segir
að læðufjöldi í skálum hér á landi
hafi verið um sextán þúsund í fyrra.
Þegar öll loðdýrabúin verða kom-
in í fulla starfsemi verður þessi tala
orðin tæplega þrjátíu þúsund læður,
sé gert ráð fyrir aukningu í þeim
búum sem fyrir eru. Þar með hefur
framieiðslan u.þ.b. tvöfaldast á einu
ári. Hvolpar í minkabúum á íslandi
voru í fyrra um 52 þúsund. Greiðlega
gekk fyrir bændur að verða sér úti
um læður.
Þeir aðilar sem standa að þessum
miklu framkvæmdum buðu út efmö
í skálana. Nú er allt útlit fyrir að
sameiginlegu tilboði Byggingadeild-
ar Sambandsins og kaupfélaganna á
Sauðárkróki og Blönduósi verði
tekið. Tilboð þessara aðila hljóðar
upp á 25%-30% lægra verð en
kaupverð. í tilboðinu er tekið fram
að verðið miðast við að efnið sé
komið á bílum á staðinn. Verður
efnið flutt á bílum annaðhvort frá
Sauðárkóki eða Blönduósi. Sam-
kvæmt útboðsgögnum verður efnið
afhent fyrir 1. júlí. Ólafur Eggerts-
son frá Byggingavöruverslun Sam-
bandsins fer norður á Blönduós á
laugardag til samningagerðar vegna
málsins.
Flestir skálarnir verða 61 metri á
lengd og 12 á breidd. Nokkrir eru þó
heldur styttri og aðrir lengri. Áætl-
aður kostnaður á hvern skála er um
600 þúsund krónur. Samtals er efn-
iskostnaður því um tuttugu milljónir
samkvæmt því tilboði sem greint er
frá hér að ofan. Fleiri tilboð bárust
og voru mörg þeirra hagstæð að sögn
Gísla Pálssonar bónda á Hofi í
Vatnsdal, en hann hefur staðið fram-
arlega í undirbúningnum.
Skálarnir verða reistir sem hér
segir: einn á Ströndum, níu í Vestur
Húnavatnssýslu, níu í Austur Húna-
vatnssýslu, ellefu í Skagafirði og þrír
í Suður Þingeyjarsýslu. Búist er við
því að allir skálarnir verði fullbyggð-
ir í ár og að margir fari þegar í fulla
starfsemi sem er um þrjú hundruð
læður.
Magnús Sigsteinsson hjá Búnað-
arfélagi íslands teiknaði skálana og
undirbjó útboðslýsinguna. -ES
AUKASÝNING Á
AIDA í KVÖLD
Vegna mikillar eftirspurnar verð-
ur aukasýning á óperunni Aida hjá
íslensku óperunni í kvöld klukkan
20.00. Það er í þrítugasta sinn sem
hún er sýnd og j afnframt allra síðasta
sýning.
Aida hefur notið mikilla vinsælda
og er, eins og Tíminn hefur sagt frá,
snilldarlega upp sett. Það er á fárra
færi að setja upp svo stórbrotna
óperu í jafn litlu húsi og Gamla bíó
svo vel fari.
Fyrir tilstuðlan Sverris Hermanns-
sonar, menntamálaráðherra, hefur
verið veitt fé til að taka sýninguna
upp á myndband til ævarandi varð-
veislu.
f aðalhlutverkum eru Ólöf K.
Harðardóttir, Anna J. Sveinsdóttir,
Garðar Cortez og Kristinn Sig-
mundsson. þj
Klesstir bílar fluttir til landsins:
„Draslið" aflur
sett á gðturnar
- Bifreiðaeftirlitinu líst ekki á fyrirtækið
Tugir klesstra bíia hafa verið flutt-
ir til íslands frá Lúxemborg, þar sem
Guðni Björnsson, bílasali í Hafnar-
firði, kaupir þá af tryggingafélögum
Þessir klcsstu bflar frá Lúxemborg
bíða þess að verða leystir úr tolli af
bflasalanum, sem hyggst gera þá upp
og selja. Tjónabflarnir koma beint
úr slysum á hraðbrautum crlendis og
Bifreiðaeftirlitið óttast að þeir séu
hættulcgir umferðinni.
(Tímamyndir: BREIN)
til þess að gera þá upp hér á landi og
selja við vægu verði. Með þessu
segist Guðni vera að gefa fólki kost
á ódýrari farartækjum.
En grind þeirra er snúin og skökk,
blikkið að miklu leyti ónýtt og sumar
vélar ekki gangfærar. Bílarnir eru
meira skemmdir en 15% sem er
viðmiðunartala tollgæslunnar. Þess
vegna þarf ekki að greiða fullan toll
af þeim, heldur þarf að kalla til
matsmenn. En klessubílar Guðna
eru fluttir inn sem hráefni og því er
ekki greiddur söluskattur af þeim.
Varahlutir eru hátt tollaðir á fs-
landi og þess vegna dýrt að gera bíla
upp. Tollgæslan sagðist því sjálf
halda, að bílarnir væru frekar til
niðurrifs og hlutar þeirra seldir.
Þannig fáist ódýrir varahlutir. En
traustar heimildir Tímans herma að
svo sé ekki.
Bifreiðaeftirlitið hefur varað við
þessum bílum, segir þá drasl og
hættulega umferðinni. Það verði því
að fara varlega, þegar slíkir bílar eru
keyptir og þeir skráðir á íslensk
númer. þj
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKlRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1983-2. fl.A 01.05.87-01.11.87 kr. 233,49
‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs ferfram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þarjafnframtframmi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, maí 1987
SEÐLAB ANKIÍSLANDS
örn Arnar Jónsson, Atli Þorbjörnsson, Kormákur Doðri Bollason í
starfskynningu hjá Tímanum.
Starfskynning
Um þessar mundir eru starfs- var þessi starfskynning afar fróðleg
kynningar í mörgum gagnfræða- °g skemmtileg tilbreyting frá
skólum landsins. Við hérna hjá venjuleguskólahaldi. Einnigsögðu
Tímanum fengum þessa þrjá stráka þeir að álit þeirra á blaðamennsku
í heimsókn. Að þeirra eigin sögn hefði stóraukist.