Tíminn - 08.05.1987, Page 12
12 Tíminn
Föstudagur 8. maí 1987
FRÉTTAYFIRLIT
MOSKVA - Stjórnvöld í
Sovétríkjunum vísuöu stjórn-
arerindreka frá Nýja Sjálandi
úr landi fyrir athæfi sem ekki
samræmdist störfum hans,
sem er annað orðalag yfir
njósnir. Þessi ákvörðun Sov-
étstjórnarinnar fylgir í kjölfarið
á brottvísun sovésks stjórnar-
erindreka frá Nýja Sjálandi f
síðasta mánuði. Hann var
ákærður um njósnir.
rískir rannsóknaraðilar hafa
komist yfir um 50 milljónir doll-
ara í peningum og öðrum verð-
mætum sem kókaínsalar áttu.
Edwin Meese yfirmaður dóms-
málaráðuneytisins í Bandaríkj-
unum lýsti þessari rannsókn
sem þeirri vioamestu og árang-
ursríkustu í sögu baráttunar
gegn eiturlyfjum í landinu.
LUNDÚNIR — Ernest
Saunders, sem var rekinn úr
formanmnsstarfi ensk-írska
bjórrisafyrirtækisins Guinness,
hefur verið handtekinn og sak-
aður um ólöglega fjármagns-
starfsemi.
WASHINGTON - Öld-
ungadeild Bandaríkjaþings
sem demókratar ráða sam-
þykkti sína útgáfu á fjárlaga-
frumvarpinu sem hljóðar upp á
þúsund milljarða dollara. Þar
er gert ráð fyrir hærri sköttum
til að draga úr halla á ríkissjóði
og einnig er beiðni Reagans
forseta um fjárveitingar til her-
mála skorin niður.
BEIRÚT - Óþ ekktur maður
fannst látinn norour af líbönsku
borginni Tripólí. Lögreglan
neitaði þó fréttum frá borginni
að hér hefði verið um erlendan
gísl að ræða.
TOKYO — Verð á hlutabréf-
um á Tokyomarkaði rauk upp í
fyrsta skipti á tveimur vikum og
virtist sem fjárfestingaraðilar
væru að fá trú á markaðinum
að nýju eftir mikla sölu undan-.
farna daga.
BUDAPEST — Alþjóða-
samband gyðinga, sem nú
þingar í Búdapest, afhjúpaði
nýtt minnismerki í borginni um
Raoul Wallenberg, sænska
stjórnarerindrekanum sem
bjargaði lífi þúsunda ung-
verska gyðinga á dögum síðari
heimsstyrjaldarinnar með því
að útvega þeim sænsk vega-
bréf.
LUNDÚNIR — Breska ríkis-
stjórnin lokaði fyrir sölu á
hlutabréfum í Rolls Roycefyrir-
tækinu sem hefur nú verið sett
í hendureinkaaðila. Embættis-
menn sögðu að áhugi á hluta-
bréfakaupum í fyrirtækinu
hefði verið geysilega mikill.
Úrslit kosninganna í Suður-Afríku:
Hvítir kjósa
aðskilnað
- Hófsöm öfl biðu lægri hlut
- Andstæður milli kynþáttanna skerpast
Fylgismenn algjörs aðskilnaðar kynþáttanna í Suður-Afríku unnu
sigur í kosningum hvítra: Botha forseti (innfellda myndin) mun
þurfa að taka tillit til kosningaúrslitanna.
Frakkland:
Barbie bíður réttarhalda
- Ströng öryggisgæsla við dómshúsið í Lyon — Neitar Barbie að bera vitni?
Jóhannesarbor(>-Keuter
Hinn ráðandi Þjóðarflokkur í
Suður-Afríku vann stóran sigur í
kosningunum í fyrradag og úrslitin
voru í heild sigur fyrir harðlínumenn
í hópi hvítra, menn sem krefjast
algers aðskilnaðar milli kynþátta
landsins.
íhaldsflokkurinn, sem er flokkur
hægra mcgin við Þjóðarflokk P.W.
Botha forseta, var hinn eiginlegi
sigurvegari kosninganna sem aðeins
hinir hvítu íbúar landsins fengu að
taka þátt í. Hann fékk 26% allra
atkvæða og hefur nú tekið við af
hinum hófsama Framfaraflokki sem
helsta stjórnarandstöðuaflið á þingi.
Blökkumaðurinn Desmond Tutu,
erkibiskup og baráttumaður fyrir
réttindum svartra, sagði á blaða-
mannafundi er úrslitin voru ljós að
hann óttaðist að landið hefði færst
aftur í hinar myrku miðaldir.
íhaldsflokkurinn fékk tuttugu
menn kjörna en hafði áður átján.
Þrátt fyrir aðeins litla fjölgun í
þingmannatölu jókst heildarat-
kvæðamagn flokksins verulega, sér-
staklega í sveitar- og nánruhéruðun-
um í Transvalínu og Frjálsa appels-
ínuríkinu (Free Orange State).
íhaldsflokkurinn var stofnaður árið
1982 af sextán meðlimum Þjóðar-
flokksins sem voru óánægðir með
þreifingar í þá átt að draga úr
aðskilnaði kynþáttanna. Flokkurinn
aðhyllist algjöran aðskilnað og vill
halda hinum 25 milljón blökku-
mönnum sem í landinu búa á sér-
stökum svæðum.
Þjóðarflokkur Botha forseta er
enn langstærsti stjórnmálaflokkur-
inn, hafði fengið 123 menn kjörna á
hið 166 manna þing í gærdag er
aðeins átti eftir að útkljá tvö sæti.
„Úrslitin eru algjör andstaða við
réttindi blökkumanna," sagði Ro-
bcrt Schrire stjórnmálasérfræðingur
í gær. Aðrir fræðingar á þessu sviði
tóku undir þessi orð og bentu á að
úrslitin myndu líklegast skaða veru-
lega þær fáu endurbætur á aðskilnað-
arstefnunni sem Botha og flokkur
hans hafa staðið fyrir.
„Þótt Botha hafi í rauninni enga
afsökun fyrir því að hætta við endur-
bótaáform sín mun hann þurfa að
líta aftur yfir hægri öxlina," sagði
einn stjórnarerindreki í gær er hann
lýsti hægri sveiflunni í landinu.
Mangosuthu Buthelezi leiðtogi
Zulúmanna kvaðst vera gáttaður á
úrslitunum og sagði þau þýða að
engar samningaviðræður milli
svartra og hvítra yrðu teknar upp.
I.undúnir-Reuter
Milljónir Breta kusu í bæjar- og
sveitarstjórnarkosningum í gær,
kosningum sem stjórnmálaflokkar
landsins líta á sem lokaæfingu fyrir
þingkosningarnar sem flestir gera
ráð fyrir að haldnar verði í næsta
mánuði.
Stjórnmálasérfræðingar gera ráð
fyrir að Margrét Thatcher forsæt-
isráðherra og flokkur hennar,
íhaldsflokkurinn, muni fara í kosn-
ingaslag svo lengi sem ekkert veru-
lega óvænt gerist í bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningunum. Tapi flokkur-
inn hins vegar miklu meira en búist
er við nú mun forsætisráðherrann
líklegast fresta þingkosningunum,
Blökkumaður úr hópi háskólanema
gekk lengra í skoðun sinni á úrslitun-
um og sagði hina hvítu íbúa landsins
hafa kosið yfir sig byltingu.
Lyon-Reuter
Mjög ströng öryggisgæsla var í
kringum dómshúsið í Lyonborg í
Frakklandi í gær en þar mun Klaus
Barbie fyrrum yfirmaður í SS sveit-
um Hitlers verða leiddur fyrir rétt á
mánudag, sakaður um glæpi gagn-
vart mannkyninu.
Barbie er nú 73 ára gamall. Hann
var gerður útlægur frá Bólivíu fyrir
fjórum árum og fluttur þaðan til
Frakklands. Á árum síðari heims-
styrjaldarinnar var Barbie háttsettur
Gestapoforingi í Lyon sem þá var
höfuðsetur frönsku andspyrnuhreyf-
ingarinnar og athvarf fyrir marga
flóttamenn úr hópi gyðinga.
Verkamenn voru í gær að ljúka
nauðsynlegum endurbótum á réttar-
salnum, þar sem níu manna kvið-
dómur mun dæma Barbie, og úti við
komu lögreglumenn sér fyrir á hús-
þökum og öðrum stöðum í grennd-
inni.
Barbie var oft kallaður „Slátrarinn
frá Lyon“ vegna grimmdarverka
Bretland:
jafnvel fram á haustið.
í gær virtust þó fá teikn vera á lofti
um að íhaldsflokkurinn myndi fara
illa út úr svæðakosningunum, að
vísu birtist skoðanakönnun í blaðinu
The Independent þar sem íhalds-
flokknum var einungis gefin fimm
prósentustig fram yfir Verka-
mannaflokkinn en hann hefur hing-
að til leitt kannanir með 10 til 14%
meira fylgi en höfuðandstæðingur-
inn.
Leiðtogar Ihaldsflokksins tóku
skoðanakönnunina hins vegar ekki
alvarlega, sögðu að hún sýndi aðeins
að atkvæðasmalar flokksins mættu
ekki slaka á. í gær var kosið um alls
tólf þúsund sæti í 369 bæjar- og
sinna er hann var lögreglustjóri í
borginni frá árinu 1942 til 1944.
Margar hótanir hafa borist til lög-
regluyfirvalda frá þeim sem eiga um
sárt að binda vegna gjörða Barbies
og því eru öryggisráðstafanir víðtæk-
ar, einnig verður að gæta öryggis
dómara þar sem hótanir hafa einnig
borist frá hópum nýnasista.
Alls munu um 700 fréttamenn, ein
100 vitni og stefnendur og fjörutíu
lögfræðingar verða viðstaddir réttar-
höldin og mun Barbie sitja á bak við
skothelt gler á meðan á þeim
stendur. Sjónvarpað verður frá
fyrstu mínútum réttarhaldanna og
er það einsdæmi í réttarsögu
Frakklands.
Lögfræðingar stefnenda telja þó
alls ekki víst að Barbie vilji bera
vitni í réttarhöldunum. Sumir telja
að hann muni hreinlega neita að
taka þátt í þeim og bera fyrir sig
yfirlýsingar lögmanns Barbie, hins
umdeilda Jacques Verges.
Verges hefur sagt að mál Barbies
sveitarstjórnum og sögðu sér-
fræðingar að íhaldsmenn mættu vera
ánægðir ef þeir töpuðu ekki mikið
meira en hundrað sætum. Mæting á
kjörstaði er annars vanalega lítil í
bæjar- og sveitarstjórnarkosningum,
um 40% kjörsókn eða minni. Urslit
voru ekki komin þegar Tíminn fór í
prentun í gærkvöldi.
Thatcher og samstarfsmenn henn-
ar munu hafa í hyggju að skoða
úrslit kosninganna vel yfir helgina
og ef allt fer sem horfir mun hún
tilkynna á mánudag að þingkosning-
ar verði þann 11. júní. Þarmunþessi
reyndasti stjórnmálaforingi Vestur-
Evrópu reyna að ná kjöri sem for-
sætisráðherra í þriðja skiptið í röð.
muni ekki fá réttláta dómsmeðferð
og réttarhöldin séu í raun ekki
annað en „aftaka“.
Franskur herdómstóll hefur tví-
vegis dæmt Barbie til dauða í fjar-
veru hans og nú er hann sakaður um
glæpi gagnvart mannkyninu í sam-
bandi við flutninga og dauða um 400
gyðinga og 300 manna í andspyrnu-
hrevfingunni.
Áðurnefndur Verges er yfirlýstur
róttæklingur og hefur hótað að
franska þjóðin verði táknrænt sett í
vitnastúkuna fyrir hegðun sína á
hernámsárunum og að skjólstæðing-
ur hans muni gefa upp nöfn svikara
innan andspyrnuhreyfingarinnar og
skýra frá hversu víðtæk samvinnan
við nasista var í Frakklandi.
Ítalía:
Klámstjarna í
kosningaslag
Róm-Rcutcr
Ein frægasta nektarsýninga-
stjarna þeirra ftala, Ilona Stallar,
verður í framboði fyrir Róttæka
flokkinn í kosningunum í næsta
mánuði.
Stallar var samþykkt sem frarn-
bjóðandi í þingkosningunum,
sem fram fara þann 14. og 15.
júní, eftir mikla fundi meðal
forystumanna flokksins þar sem
ekki voru aliir á eitt sáttir. '
Lögreglan hefur oft lcyst upp
sýningar Stallar og sagt þær hafa
farið fram úr öllum vclsæmis-
mörkum. Róttæki flokkurinn
hefur einnig annan frægan frarn-
bjdðanda á sínum lista, 92 ára
gamla leikkonu Nerinu nokkra
;Montagnani sem þekkt er í sjón-
varpi suður á Ítaiíu fyrir að
auglýsa kaffi.
Kosningar segja til um kosningar