Tíminn - 08.05.1987, Síða 15
Föstudagur 8. maí 1987
Tíminn 15
lllllllllllllllíllllllllll MINNING
Guðni
Kristjánsson
Stóra-Sandfelli Skriðdal
Fæddur 13. nóvember 1957
Dáinn 18. mars 1987
Dáinn, horfinn - Harmafregn
Hvílík orð mig dynur yfir.
En ég veit að látinn lifir,
það er huggun harmi gegn.
(J. Hallgrímsson)
Þessi orð skáldsins hafa leitað á
hug minn eftir að mér barst sú j
harmafregn að sveitungi minn og
vinur Guðni Kristjánsson hafi látist
í bílslysi á Egilsstöðum 18. mars.
Slík þáttaskil er erfitt að sætta sig
við, þær staðreyndir snerta okkur
djúpt en sárastur er söknuður móður
og systkina.
Guðni Kristjánsson var fæddur í
Stóra-Sandfelli 13/11 1957. Foreldr-
ar hans voru hjónin Sigurborg
Guðnadóttir frá Eskifirði og
Kristján Guðnason Stóra-Sandfelli.
Guðni var fjórði í röð fimm barna
þeirra hjóna. Talin í aldursröð: Alda
húsfr. Svíþjóð, María húsfr. Flögu,
iBirna húsfr. ísafirði, Guðni sem hér
er minnst og Jóhanna yngst. Bjarni
Flagen sonur Sigurborgar og
Jóhanna búa í Stóra-Sandfelli ásamt
móður sinni. Öll eru systkinin vel
gefin og hafa aflað sér margháttaðrar
starfsmenntunar. Systurnar þrjár
sem farnar eru að heiman hafa
stofnað sín heimili.
Guðni lauk námi í barna- og
unglingadeild Hallormsstaðaskóla.
Síðan fór hann í Alþýðuskólann á
Eiðum og þaðan í Reykholtsskóla.
Eftir að Guðni fór út á vinnu-
markaðinn vann hann mikið á
þungavinnuvélum hjá ýmsum aðil-
um og má þar m.a. nefna Guðjón
Sveinsson og Magnús Sigurðsson.
Hann aflaði sér réttinda til að fara
með sprengiefni. Kom það sér vel
fyrir hann að kunna með það að
fara, þegar hann og Kári Svavarsson
mágur hans tóku að sér fyrir nokkr-
um árum staurareisingu fyrir raflínu
milli Mjólkárvirkjunar og Tálkna-
fjarðar. Guðni var þar verkstjóri og
vel látinn af sínum meðstarfs-
mönnum.
Undanfarin ár stundaði Guðni
aðallega sjómennsku og nú síðast
var hann sem vélstjóri á Sandafelli
SU 210 Breiðdalsvík.
Guðna þótti vænt um sitt heimili.
Var sístarfandi þegar hann var
heima. Einnig hirti hann stundum
sauðféð á meðan það var í Sandfelli,
hafði gaman af því og gerði það vel.
Hann mun hafa hugsað sér að eiga
ítök í sínu æskuheimili og koma sér
upp aðstöðu til að geta dvalið heima.
Fyrir nokkrum árum rejsti hann
vandaða vélaskemmu í Stóra-Sand-
felljog vann við að gera upp bíla og
fleira þegar hann var heima. A
síðast liðnum vetri hafði hann dregið
að sér efni í innréttingar til að koma
sér betur fyrir. En enginn veit sína
ævina fyrr en öll er.
Útför Guðna fór fram frá heimili
hans Stóra-Sandfelli 28. mars að
viðstöddu fjölmenni. Jarðsett var í
heimagrafreit.
Ég þakka Guðna fyrir margháttuð
og góð kynni og bið honum blessun-
ar Guðs.
Við hjónin sendum móður hans,
systkinum og öðrum vandamönnum
innilegar samúðarkveðjur.
Far þú í friði, friður Guðs þig
blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt.
Stefán Bjarnason
Flögu
llllllllllllllllllllllllllil MYNDLIST
Sýning Einars Ingimundarsonar
í samkomuhúsinu Borgamesi
Kunnur umdeildur fslenskur list-
málari sem gerði sér ávallt far um að
líta inn á sýningar hjá „litla mannin-
um“ svo er hann víst nefndur nú á
dögum sem minna kann og getur en
aðrir, sagði við mig eitt sinn er ég var
honum samferða um sýningu hjá
slíkum, að hann græddi jafnvel
meira á svona mönnum en hinum
sprenglærðu að ekki sé minnst á
blessuð börnin sem bókstaflega
heilluðu sig með innilegum verkum
sínum.
Besti dómur sem ég hef heyrt um
frumsýningu „litla mannsins“ hraut
af vörum hans við þetta tækifæri;
Það væri ánægjulegt að skoða þessi
verk „hans“ og hann óskaði honum
til hamingju. Dáðist að honum fyrir
kjark: „hans“ og þor að stíga þessi
skref inná kreddufulla, kaldrifjaða
og harðsvíruðu baráttubraut lista-
gyðjunnar, þar sem óargadýr í líki
öfundsjúkra listamanna og fræðinga
lægju í leyni og umsvifalaust rifu
sálarlíkamann á hol.
Einhverntíma hefði verið sagt við
sig í niðrandi tón að ónefndur vildi
heldur eiga mynd eftir Picasso en
sig. Það gæti „hann“ haft hugfast að
Picasso hefði átt sér fyrirmynd, tak-
ntark og ekki var hans dans alltaf á
rósum.
Að gefnu tilefni kemur mér þetta
í hug núna, því leið mín lá í
Borgarnes um daginn. Einar Ingi-
mundarson málarameistari var að
opna þar sýningu á verkum sínum.
Sjón er sögu ríkari, og þar sem ég
stend þarna í miðju samkomuhús-
gólfinu og virði fyrir mér myndirnar
hans Einars kemur mér í hug það
sem nú er tímabært að athuga (þróun
„málara“ undanfarin 150 ár.)
Áður fyrr var bara um einn mál-
ara-(titil) að ræða sem var allt í senn;
húsamálari, skrautmálari og ekki
síst listmálari, einu nafni: Málari.
Nú er lag, að sameina þessar
23. apríl til 3. maí 1987
greinar aftur því Rúllarinn er kom- ari þegar hámarkinu er náð.
inn til sögunnar. Til hamingju Einar og lifðu heill.
„Málari“ skal það heita og meist- Kveðjur Hassi
Samvinnuskólinn Bifröst
Umsóknarfrestur til 10. júní nk. Inntökuskilyrði:
Verslunarpróf eða 2 námsár framhaldsskóla með
viðskiptagreinum. Upplýsingar í skólanum sími
93-5000 og 93-5001.
Umsóknir sendist til skólastjóra Samvinnuskólans
á Bifröst, 311 Borgarnesi.
Skólastjóri.
Útlitsteiknari óskast
á tæknideild blaðsins
Um framtíðarstarf gæti verið að ræða.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri.
Tíminn
Síðumúla 15. Sími 686300
t
Brynjólfur Oddsson,
fyrrverandi bóndi,
Þykkvabæjarklaustri
verður jarðsunginn frá Þykkvabæjarklausturskirkju laugardaginn 9.
maí kl. 14.00.
Fyrir hönd aðstandenda.
Hilmar Jón Brynjólfsson.
VOR ’87
Eigum til afgreiðslu strax
3KVERNELAND
DISKAHERFIN, þau hafa verið ein
vinsælustu herfin á íslandi mörg
undanfarin ár,24 og 28 diska.
UMBOÐSMENN OKKAR -
YKKAR MENN UM LAND ALLT
Vélabær hf. Andakílshr. s. 93-5252
Ólafur Guðmundsson, Hrossholti
Engjahr. Hnapp. s. 93-5622
Dalverk hf. Búðardal s. 93-4191
Guðbjartur Björgvinsson, Sveinsstöð-
um, Klofningshr. Dal. s. 93-4475
Vélsm. Húnv. Blönduósi s. 95-8145
J.R.J. Varmahlíð s. 93-6119
Bílav. Pardus, Hofsósi s. 95-6380
Bílav. Dalvíkur, Dalvík s. 96-61122
Dragi Akureyri s. 96-22466
Vélsm. Hornafjarðar hf. Höfn s. 97-8340
Víkurvagnar, Vík s. 99-7134
Ágúst Ólafsson, Stóra Moshvoli s. 99-
8313
Vélav. Sigurðar, Flúðum s. 99-6769
Vélav. Guðm. og Lofts Iðu s. 99-6840
G/obusp
LÁGMÚLA 5 - PÓSTHÓLF 8160 128 REYKJAVÍK - © 91 -681555
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar kennarastöður við
framhaldsskóla:
Við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki kennarastöður í íslensku og
stærðfræði.
Við Fjölbrautaskólann við Ármúla kennarastöður í efnafræði og
hagfræðigreinum, fullar stöður í báðum greinum.
Við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi kennarastöður í eðlis-
fræði, efnafræði, stærðfræði og frönsku, ennfremur kennara í
rafeindavirkjun.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík fyrir 26. maí
næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið
UMBOÐSMAÐUR
Umboösmaður óskast fyrir
Tímann á Ólafsvík sem
fyrst
A mölinni mætumst
með brosávör — v
ef bensíngjöfín
er tempruð/
J