Tíminn - 08.05.1987, Side 20
„Svo uppsker
hver sem sáir“
Gullbok
og
Metbók
rísa báðar undir nafni
BÚNADARBANKINN
TRAUSTUR BANKI
> ■
BBRH
1917 /\J 1987
X D A
IlllLLIlIl
Skytta leitar blárefa
„Ég fer væntanlega að kanna
málið í kvöld. Það er mögulegt að
þeir haldi sig einhversstaðar nálægt
varpi þegar komið er fram á þenn-
an tíma,“ sagði Sigurður Ásgeirs-
son, refaskytta í Gunnarsholti á
Rangárvöllum.
Menn hafa leitað til hans vegna
blárefa sem sloppið hafa einhvers-
staðar úr búrum og sést á stjái
a.m.k. í þrem hreppum í Rangár-
þingi, Holtum, Rangárvöllum og
Landeyjum. Síðast sá bóndi í
Landeyjum slíkan gest heima í
túni hjá sér rétt fyrir myrkur í
fyrrakvöld. Hvað dýrin væru mörg
kvaðst Sigurður ekki vita, en menn
hafi séð tvö litaafbrigði.
Hingað til hefur Sigurður ekki
haft erindi sem erfiði við að hafa
upp á dýrunum og hefur þar auð
jörð t.d. gert ókleift að rekja spor.
Sigurður taldi bændur uggandi að
vita af þessum óboðnu gestum
heima í túnum hjá sér nú í upphafi
sauðburðar. Hins vegar sé ómögu-
legt að vita hvort lömbum sé hætt
og hvernig þessi alidýr bregðist við
úti í náttúrunni. Ljóst sé þó að þau
virðist lifa alveg ágætlega á eigin
vegum.
Sigurður kvaðst að vanda halda
á stað til grenjaleitar um næstu
mánaðamót. En við það hefur
hann verið um hálfan annan mánuð
á hverju sumri að undanförnu.
Afraksturinn hefur verið frá 17 og
upp í 30 dýr, en bara gamli fjaila-
refurinn til þessa. í sumar mun
hann ekki síður leita að gljáandi
silfurrefum á heiðum uppi þar sem
talið er að einhverjir slíkir muni
komnir í tilhugarlíf með öðrum af
gömlu tegundinni. -HEI
Formenn flokk-
anna á fund
forsetans
- Steingrímur, Þorsteinn
og Svavar í gær.
Jón Baldvin, Guðrún,
Albert og Stefán í dag
í dag lýkur viðræðum forseta
Islands við formenn flokkanna.
Formennirnir hafa lítið viljað láta
hafa eftir sér um hvað fram fór
millum þeirra og forseta. Svavar
Gestsson, sagðist þó hafa „skilað
auðu“, þ.e. að hann hefði ekki
stungið upp á neinum flokksfor-
mannanna til að leiða komandi
stjórnarmyndunarviðræður.
Hann teldi eðlilegt að flokkar
hinna stóru sigra spreyttu sig
fyrst. -phh
Salmonellasýkingin í Dölum:
Sýkingin komin úr
kjúklingum frá ísfugli
„Erum til viöræöu um samning út 1988,“ segir Gunnar J. Friðriksson.
„Samningur hliðstæður samningi opinberra starfsmanna til 1988 kemur ekki til
greina,“ segir Ásmundur Stefánsson
Miðstjórn ASÍ sendi í gær Vinnu-
veitendasambandinu og Vinnumála-
sambandi samvinnufélaganna bréf
þar sem kemur fram að miðstjórn
ASf telur óhjákvæmilegt að allsherj-
arendurskoðun samninga fari fram
og þar verði tekið á málum allra
hópa.
Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ
sagði í samtali við Tímann í gær að
þó talað væri um allsherjarendur-
skoðun samningsins, væri Ijóst að
hér væri eingöngu um að ræða
upptöku launaliða samningsins frá í
desember . „Ég lít á endurskoðun
samninga nú og samning fyrir 1988
sem tvö óskyld mál. Samningur út
1988 hliðstætt því sem opinberir
starfsmenn gerðu, kemur ekki til
greina af okkar hálfu.
Áherslurnar í þessu hljóta að
hvíla á herðum sambandanna og;
félaganna og ekki verður allt leyst
með einhverri einfaldri reglu á borði
ASÍ. En við berum ábyrgð á þessu
og munum fylgja því eftir,“ sagði
Ásmundur Stefánsson.
Gunnar J. Friðriksson formaður
VSÍ sagði að aðalfundur vinnuveit-
andasambandsins yrði haldinn nk.
þriðjudag og yrði þá rætt um þessa
málaleitan ASÍ. „En við sjáum nú
ekki að það sé grundvöllur til al-
mennra viðræðna fyrr en séð verður
hvernig ríkisstjórn við fáum, vegna
samhengis kaups og kjara og svo
stefnunnar í efnahagsmálum," sagði
Gunnar.
„Við verðum þá til viðræðu um
það hvernig staðið skuli að skoðun
mála með hliðsjón af samningum út
árið 1988, eins og gert var við
opinbera starfsmenn. Það er til
lengri tíma, ekki bara út þetta samn-
ingstímabil. En við ljáum ekki máls
á að taka upp samninginn sem
slíkan, en við erum tilbúnir að ræða
möguleika á samningi út árið 1988 í
Ijósi væntanlegrar stefnu næstu ríkis-
stjórnar," sagði Gunnar J.Friðriks-
son. -phh
„Það hafa fundist bakteríur sömu
gerðar og sýkt hafa fjölda manns, í
kjúklingum af ákveðnu framleiðslu-
númeri - 1 112-86. Bakteríurnar
hafa ekki fundist í öðrum matvælum,
sem bendir til að þetta sé ákveðinn
partur af sendingu,“ sagði Sigur-,
björn Sveinsson, heilsugæslulæknir í
Búðardal í gær þegar í ljós kom
hvaðan salmonellasýkingin sem
herjað hefur aðallega á Dalamenn
undanfarnar vikur er komin.
- En eru kjúklingarnir upprunnir-
úr ykkar héraði eða af höfuðborgar-
svæðinu?
„Þetta er frá ísfugli. Þetta eru
kjúklingar merktir ísfugli."
„Við könnum náttúrlega hvort.
eitthvað sé af þessu í umferð hér og'
Hollustuvernd hlýtur að gera ráð-
stafanir í þessu sambandi" sagði
Sigurbjörn ennfremur.
Líklegt má telja að enn sé í
umferð eitthvert magn af sýkta
kjúklingnum og ber að vara fólk við
kjúklingi sem ber áðurnefnt númer.
Fjórir Dalamenn hafa þurft að
leggjast inn á sjúkrahús eftir heiftar-
lega sýkingu og hátt í sjötíu manns
hafa sýkst, þar af um fjörutíu innan1'
héraðs.
KRUMMI
“ Menn dala sem
talsvert eftir einn
nr. 1,112-86 frá ís-
fugli! “
Veitingastaðurinn sem seldi kjúkl-
ingana hefur fullnægt öllum heil-
brigðiskröfum og hefur nú opnað á
ný.
„Þetta hefur orðið til þess að
menn hafa verið með ýmsar glósur
um Dalamenn að tilefnislausu. En
þetta er bara slæm sending af höfuð-
borgarsvæðinu, eins og margar eru1
sem við fáum þaðan kárínurnar. Hjá
okkur er næsta skref að fylgja þeim
eftir sem eru okkar skjólstæðingar
og sjá um að menn hverfi til vinnu
þegar þeir eru búnir að ná heilsu,
það er það sem að okkur læknunum
snýr. Ég skal ekki segja hvað aðrir
sem hlut eiga að máli gera í þessu,“
sagði Sigurbjörn að lokum.
„Það er ekki vitað hve mikið at1
kjúklingi er í umferð, en hugsanlegt
er að eitthvert magn sé í búðum. Við
göngum í það strax að innkalla það
allt saman, gera það upptækt og
farga því. Það er til í frystigeymslum
hjá ísfugli og það var stöðvað um
leið og við vissum að það var einhver
salmonella og síðan verður farið í að
innkalla það úr búðum," sagði Hall-
dór Runólfsson, deildarstjóri hjá;
Hollustuvernd ríkisins aðspurður
um þetta mál.
„Hvað þetta er dreift um landið er
ekki hægt að svara fyrr en á morgun,
en þeir eru að fara í gegnum sínar.
söluskýrslur hjá ísfugli og þá liggur
það betur fyrir hvert þetta hefur
farið. En það fór eitthvað beint af
því í sölu, beint til kjúklingastaða"
sagði Halldór ennfremur.
- En er hætta af smitun úr kjúkl-
ingabitum?
„Það er mjög ólíklegt. Og það má
koma fram að þetta er einn ákveðinn
framleiðandi. Þetta er bara frá ein-
um framleiðanda af mörgum, þannig
að það er auðvelt að þekkja þá úr.
Það er engin ástæða til að ætla annað
en að allt annað sé í lagi. Séu
kjúklingabitarnir vel steiktir á
skyndibitastöðunum, eins og lög
gera ráð fyrir, þá á að vera allt í lagi
með þá,“ sagði Halldór að lokum.
-SÓL
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra mætti fyrstur flokksformann-
anna á fund Vigdísar Finnbogadóttur, forseta í gær. Hvort hún mun veita
honum fyrstum umboð til stjórnarmyndunarviðræðna mun að öllum
líkindum liggja fyrir á mánudaginn. Tímamynd Pjetur
Nýir kjarasamningar í uppsiglingu:
VSÍ vill samning út
1988 en ASÍ út 1987