Tíminn - 09.05.1987, Side 4

Tíminn - 09.05.1987, Side 4
4 Tíminn Laugardagur 9. maí 1987 SÁXBLÁSARAR EBERL Original saxblásarar Með öflugu stálhnífahjóll og aðfærslubandl fyrir 6 -14 - 40 og 80 mm söxun. Þessir nýju saxblásarar eru með mjög ná- kvæma söxun. BÆNDUR! Síðustu forvöð að panta til afgreiðslu í sumar. SKYLDUSPARMAÐUR ORÐSENDING TIL LAUNÞEGA Á ALDRINUM 16 TIL 25 ÁRA Launþegar á skyldusparnaðaraldri eru hér með hvattir til að fylg'ast gaumgæfilega með því, að launagreiðendur dragi lögboðinn skyldusparnað af launum og geri skil til Veðdeildar Landsbanka íslands. Hafi það brugðist, er þeim bent á að snúa sér til lögfræðings, sem fer með málefni skyldusparnaðar hjá Húsnæðisstofnun ríkisins, Laugavegi 77, Reykjavík. Sírhi: 28500. c§0Húsnæðisstofnun ríkisins ER VATNSKASSINN BILAÐUR? Gerum við. Seljum nýja. Skiptum um element. biÆmiðjan {Mm*f. Ármúla 19, 128 Reykjavik. Símar: 681877 blikksmíðaverkstæðið. 681949 vatnskassaverkstæðið. 681996 skrifstofan. lönlánasjóður með 161 millj. hagnað: Vaxtakjör ráðist af lánstrausti skuldara - fremur en af því hvar lánið er fengið Iðnlánasjóður hefur fengið nýtt hlutverk með starfsemi Trygginga- deildar útflutningslána við sjóð- inn, sem hóf starfsemi í byrjun þessa árs með veitingu almennra ábyrgða. í ársskýrslu Iðnlánasjóðs segir að þetta sé hlutverk sem aðrir. hafi ekki áður haft hér á landi. Tilgangur deildarinnar er að ábyrgj- ast greiðslur á kröfum íslenskra útflytjenda á hendur erlendum kaupendum, enda hafi þær orðið til vegna útflutnings á íslenskum vör- um eða þjónustu. Heimilt sé að framselja banka eða annarri lána- stofnun slíkt ábyrgðarskjal, sem geti þessvegna greitt götu útflytjenda við fjármögnun útflutnings. Árið 1986 var Iðnlánasjóði hag- stætt að því er segir í skýrslunni. Tekjuafgangur var 161 millj. kr. og eigið fé sjóðsins 1.016 milljónir. f skýrslunni segir að hin óeðliiegu skil milli bankamarkaðar og verð- bréfantarkaðar séu tekin að verða óljósari og vaxtamunurinn sé tekinn að minnka. Með auknu frjálsræði í viðskiptum á fjármagnsmarkaði á næstu árum sé líklegt að meira samræmi náist í vaxtakjörum á milli mismunandi aðila markaðarins en áður. Líklegt sé að lánakjörin fari í vaxandi mæli að ráðast af lánstrausti skuldarans fremur en því hvort fjárins sé aflað hjá viðskiptabanka, opinberum fjárfestingalánasjóði, með útboði skuldabréfa á verðbréfamarkaði eða með samningum við fjármögnunar- leigufyrirtæki. Hlutverk opinberra fjárfestingarlánasjóða, sem hafi breyst á síðustu árum, muni því taka enn meiri breytingum á næstu árum ef að líkum lætur. HEI Nýjar menntunarleiðir: Fagnám í tréiðnaði Ófaglærðum boðið upp á kennslu Nú er að hefjast fyrsti áfangi í fagnámi fyrir ófaglært starfsfólk í húsgagna- og innréttingaiðnaði og er þetta fyrsta námsbraut fyrir ófag- lærða sem kennd er í öldungadeild- arformi og viðurkennt sem nám á framhaldsskólastigi. Níu nemendur taka þátt í fyrsta námskeiðinu sem skiptist í fjögur þrep og endar með fagprófi. Efnt er til námsbrautarinnar í framhaldi af kjarasamningum milli félaga aðstoðarfólks og atvinnurek- enda í greininni. Undirbúning önnuð- ust Iðja, Félag aðstoðarfólks í hús- gagnaiðnaði og Félags ísl. iðnrek- enda ásamt Iðnfræðsluráði, Lands- sambandi iðnaðarmanna og Trétækni- deild Iðntæknistofnunar. Kennslu- fræðilega skipulagningu önnuðust iðnskólakennararnir Hallgrímur Guðmundsson og Þröstur Helgason. Gert er ráð fyrir því að allir þeir sem náð hafa 18 ára aldri og starfað hafa í greininni í minnst eitt ár eigi kost á að stunda námið. Fagprófið að lokinni námsbraut samsvarar 56 einingum til sveinsprófs. Síðan er gert ráð fyrir að fólk geti bætt við sig bóklegum áföngum og verklegu námi. Hver áfangi um sig felur einnig í sér ákveðna viðurkenn- ingu sem metin er til launa og réttinda. Eins og fram hefur komið er námið hugsað sem þrepanám. í fyrsta lagi að hvert þrep sé skilgreint og viðurkennt starf í tréiðnaðarfyrir- tæki, í öðru lagi söfnun ákveðinna þrepa í húsgagna- og innréttingaiðn- aði. I þriðja lagi að fólk geti bætt við sig áföngum þeim sem sveinspróí í húsgagnasmíði krefst og að því loknu tekið sveinspróf í iðninni. Þrepin fjögur eru: Vinnsla, vélgæsla, frágangur og lökkun. AÞ/ÓJ/KHystarfskynning. Frjáls greiðsla: Stærstakeppni á íslandi? Frístælkeppni verður haldin í Broadway, þann 17. maí. Utlit er fyrir að þetta verði stærsta keppni sem haldin hefur verið hér á landi. Þar sýna förðunarlistamenn hinar ýrrisujiliðar á förðun m.a.: Eltíförð- un, slysatöröun og persónutoroun auk óvæntrar uppákomu. Tískusýn- ing verður frá Herra horninu, Don Cano, Leðurval, Skæði, Campos, Tískuval og Lee. Keppnin er á vegum Tímaritsins Hár & fegurð og S.H.H.M. Húsið opnar kl. 16. - starfskynning/aþ/öaj Sigurvegari í flokki nema, Bima Hermannsdóttir ásamt módeli sínu Guðrúnu, þann 1. apríl í Viku hársins. Vonandi verða greiðsiurnar ekkert síðri í frístælkeppninni. Óli á Gunnarsstöðum jarðsunginn Óli Halldórsson, bóndi á Gunn- arsstöðum í Þistilfirði, verður jarð- settur í dag, laugardag. Hann lést á sjúkrahúsinu á Akureyri 2. maí s.l., 63ja ára að aldri. Auk bústarfa stundaði Óli barna- kennslu og af sjálfu leiddi jafn félagslyndur maður og hann var, að honum voru falin mörg trúnaðar- störf. Tíminn naut lengi góðs af einlæg- um og opinskáum áhuga Óla á mönnum og málefnum, en hann var fréttaritari blaðsins um árabil. Um leið og Óla Halldórssyni er þakkað ánægjulegt samstarf sendir Tíminn ástvinum hans samúðar- kveðjur.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.