Tíminn - 09.05.1987, Side 6
6 Tíminn
Laugardagur 9. maí 1987
Útboð Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir sem skemmst
hafa í umferðaróhöppum.
Lada station árgerð 1986
Daihatsu Charade árgerð 1986
Citroen BX árgerð 1985
Skoda 120 L árgerð 1985
Opel Rekord árgerð 1984
Datsun 280C árgerð 1983
Skoda 120 árgerð 1982
Isuzu Trooper Diesel árgerð 1982
Daihatsu Charmant árgerð 1979
Volvo 144 árgerð 1974
Daf vörubifreið árgerð 1982
Bifreiðirnar verða sýndar að Höfðabakka 9,
Reykjavík, mánudaginn 11. maí 1987, kl. 12-16.
Á sama tíma:
í Borgarnesi:
Lada Sport árgerð 1987
Á Hvolsvelli:
Daihatsu Charmant árgerð 1982
Lada árgerð 1981
Ford Bronco árgerð 1974
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga g.t.
Ármúla 3, Reykjavík eða umboðsmanna fyrir kl.
12, þriðjudaginn 12. maí 1987.
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ARMTJLA 3 108 REYKJAVIK SIMI (91)681411
i
LAUSAR STÖÐUR HJÁ
REYKJAVIKURBORG
Staða forstöðumanns við leikskólann Fellaborg
Völvufelli 9. Fóstrumenntun áskilin.
Fóstrustöður við leikskólana, Barónsborg Njáls-
götu 70, Brákarborg v/Brákarsund, Árborg Hlaðbæ
17, Hlíðaborg v/Eskihlíð, Holtaborg Sólheimum
21, Fellaborg Völvufelli.
Fóstrustöður á leiksk./dagheimili, Grandaborg v/
Boðagranda, Hálsaborg Hálsaseli 27, Hraunborg
Hraunbergi 10, Ægisborg Ægisíðu 104.
Fóstrustöður á dagheimilin, Dyngjuborg Dyngju-
veg 18, Hamraborg v/Grænuhlíð, Laufásborg
Laufásveg 53-55, Suðurborg, v/Suðurhóla, Bakka-
borg v/Tungubakka, Völvuborg v/Völvufell.
Upplýsingar veita forstöðumenn viðkomandi heim-
ila og umsjónarfóstrur í síma 27277.
Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 5. hæð á
sérstökum eyðublöðum sem þar fást.
Tilkynning til íbúa
Háaleitis- og
Laugarneshverfis
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur hefur falið Heimil-
islæknastöðinni hf., Álftamýri 5, að annast alla
heimahjúkrun, mæðra- og barnavernd í Háaleitis-
og Laugarneshverfi.
Heimilislæknastöðin mun ennfremur veita þeim
hverfisbúum, sem þess óska almenna læknisþjón-
ustu.
Nánari upplýsingar, ásamt uppdrætti af mörkum
hverfisins, verða sendar í dreifibréfi á næstu
dögum.
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
Heimilislæknastöðin hf.
Álftamýri 5
lceland Seafood í Bretlandi:
SALAN TÍFALDAST Á
SÍÐUSTU SEX ÁRUM
Á aðalfundi Iceland Seafood
Limited, sem haldinn var á Hótel
Sögu í vikunni, kom fram að heildar-
sala fyrirtækisins fyrstu fjóra mánuði
ársins nam tæpum 10 milljónum
sterlingspunda, sem er svipuð upp-
hæð og á sama tímabili í fyrra. í
magni talið var salan um 6.100 lestir.
Á árinu 1986 seldi fyrirtækið fryst-
ar afurðir fyrir 31 milljón sterlings-
punda og var það 62,8% meira en
árið áður. í magni var salan 16.800
lestir, eða 30,8% meiri en árið 1985.
Þess má geta, að á árinu 1981, sem
var fyrsta starfsár Iceland Seafood
var heildarsala fyrirtækisins rúmar 3
milljónir sterlingspunda og lætur því
nærri að sala hafi tífaldast á sex
árum.
Á fyrstu fjórum mánuðum þessa
árs var 5% söluaukning á sölu afurða
á Bretlandsmarkaði en á móti nokk-
ur samdráttur á sölu til Frakklands.
Umsetning á söluskrifstofu lce-
land Seafood í Hamborg jókst um
tæp 13% í verðmæti og 17% talið í
magni.
Markaðssvæði fyrirtækisins nær
yfir Bretland og meginland Evrópu.
Segja má að ástand fiskmarkaða í
Evrópu sé mjög gott, eftirspurn eftir
helstu fisktegundum er stöðugt og
verð hátt. Söluhorfur verða því að
teljast góðar. Ennfremur hefur þró-
un flestra evrópskra gj aldmiðla verið
hagstæð að undanförnu og hefur það
hvatt til aukinnar framleiðslu á þessa
markaði.
Á aðalfundinum tók við ný stjórn
og tók Guðjón B. Ólafsson forstjóri
Sambandsins við stjórnarmennsku
af Erlendi Einarssyni sem gegnt hef-
ur því embætti í 6 ár, eða frá stofnun
fyrirtækisins.
Nýlega urðu framkvæmdastjóra-
skipti hjá fyrirtækinu. Benedikt
Sveinsson, sem verið hefur fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins s.l. sex
ár, lét af því starfi um s.l. áramót og
tók við starfi aðstoðarframkvæmda-
stjóra Sjávarafurðadeildar Sam-
bandsins. Við framkvæmdastjóra-
starfinu tók Sigurður Á. Sigurðsson,
sem verið hefur framkvæmdastjóri
skrifstofu Sambandsins í London.
í Bandaríkjunum var mesta sala
fyrirtækisins í 35 ár. Heildarsalan
1986 var rúmir 157.000.000 dollarar
og hafði aukist um 15% frá árinu
áður. Sala fiskrétta frá verksmiðju
fyrirtækisins í Camp Hill gekk mjög
vel og voru seldar 68 milljónir punda
og hélt fyrirtækið fyrri stöðu sinni,
sem stærsti söluaðili verksmiðju-
framleiddra fiskrétta á stofnana-
markaði í Bandaríkjunum.
Sala flaka jókst ekki á síðasta ári
og þegar líða tók á árið fór að gæta
mikils skorts á fiski og varð að taka
upp skömmtun allra tegunda flaka.
Framkvæmdastjóri í Bandaríkj-
unum er Eysteinn Helgason. -SÓL
Nú verður líka sýnt
á f immtudagskvöldum
Frá og með 1. október mun Ríkis-
sjónvarpið hefja útsendingar á
fimmtudagskvöldum. Sagði útvarps-
stjóri að með þessu hefði verið stigið
stórt skref til að auka þjónustu við
fólkið í landinu.
Afnotagjöld RUV hækka einnig
frá 1. júlí og verða þá 26 krónur á
dag, fyrir Sjónvarpið, Rás 1 og Rás
2. Hækkunin er rúnt 40% og halar
inn rúmar 300 milljónir í ríkissjóð.
Á móti kemur að áskriftargjald af
Stöð 2 er t.d. 34 kr. -SÓL
Tímamaður tekinn
á negldum börðum
Undirritaður blaðamaður, sem
skrifaði margt um þann ógurlega
skemmdarvarg á malbikuðum
götum, nagladekkið, í Tímanum í
gær hefði mátt líta í eigin barm og
fara á undan með góðu fordæmi. í
fréttinni segir að fjöldinn allur hafi
trassað að skipta á nagladekkjum
sínum og sumardekkjum 1. maí,
þegar lög gera ráð fyrir að allir
naglar séu komnir af malbikinu. Það
slapp ekki undan vökulu auga rétt-
vísinnar að sá hinn sami blaðamaður
Um daginn var sagt frá hóp ungl-
inga á aldrinum 14 til 15 ára, sem
hefur verið viðriðinn fjöldamarga
glæpi í Keflavík að undanförnu.
„Þetta hefur verið nánast plága,'-
sagði Óskar Þórmundsson hjá rann-
sóknarlögreglunni. Og daginn sem
fréttin birtist um unglingana í
Tímanum létu þeir aftur til skarar
skríða. Tveir piltar úr hópnum stálu
veski með gjaldeyri og íslenskum
peningum af erlendum ferðamanni,
sem var staddur við Bláa lónið. Þeir
tóku íslensku peningana, en grófu
gjaldeyrinn með veskinu í sandinn.
Þeim hefur væntanlega snúist hugur
varðandi erlendu peningana, því
þeir leituðu aftur til veskisins og
voru þá gripnir.
Ekki er hægt að koma lögum yfir
þennan aldurshóp, hann cr ekki
sakhæfur og þessir unglingar hafa
gengið á lagið. Þeir vaxa úr grasi
með margs konar misgjörninga á
samviskunni, þar eð framkvæmda-
fyllti hóp ofannefndra trassa og
ógæfumanna. Lögreglan sneri hon-
um því heim aftur af leið hans til
vinnu í gærmorgun til að sækja
sumardekkin og drífa sig á hjól-
barðaverkstæði til skipta.
Dramb er falli næst og hefndi sín
svo sannarlega. Daginn áður hafði
undirritaður skrifað um þá, sem
ekki færu að þessum reglum: „Ógur-
legur fjöldi ökumanna trassar þá
sjálfsögðu kröfu“. þj
valdið stendur nær ráðþrota frammi
fyrir vandanum. þj
Nýr útibússtjóri
hjáSPRON:
Þorvaldur
Jónsson
Nýlega tók Þorvaldur F. Jónsson
við starfi hjá Sparisjóði Reykjavíkur
og nágrennis sem útibússtjóri á Sel-
tjarnarnesi.
Þorvaldur hefur unnið hjá Spari-
sjóðnum í átta ár en vann áður hjá
Landsbankanum og við sölu og
markaðsstörf hjá Guðmundi Jóns-
syni hf.
Þorvaldur er 42ja ára, kvæntur
Guðrúnu Aðalsteinsdóttur og eiga
þau tvö börn.
Reykjavíkurganga
Utivistar
Ferðafélagið Útivist efnir til Grófartorgi og gengið er upp að
Reykjavíkurgöngu sinnar þriðja Elliðaám þar sem rútur keyra fólk-
árið í röð sunnudaginn 10. maí. ið til baka. Áætlaður heildartími
gönguferðin er hugsuð sem hvatn- göngunnar með hvíldum eru þrjár
ing til almennings um að stunda og hálf klukkustund. Auk farar-
gönguferðir og útivist og til að stjóra verða sérfróðir menn með í
kynna náttúrulega gönguleið í göngunni og fræða menn um ýmis-
gegnum höfuðborgina sem margir legt t.d. um jarðfræði, fugla, skóg-
hafa eflaust ekki gert sér grein fyrir rækt o.fl.
að væri til. Gangan hefst kl. 15 á' Þátttaka er ókeypis.
„PlágarT í Keflavík:
Unglingagengi
á villigötum
Ósakhæf ungmenni ganga á lagið. Hafa verið
viðriðin fjöldamörg afbrot að undanförnu