Tíminn - 09.05.1987, Side 20

Tíminn - 09.05.1987, Side 20
„Svo uppsker hver sem sáir“ Gullbók og Metbók rísa báðar undir nafni BÚNAÐARBANKÍNN TRAUSTUR BANKI 17. MARS Iiiiiimi i US A KOMHJ OG REYNSLUAKID ÞEIM NÝJU AMERÍSKU MERCURY TOPAZ GS FRAMHJÓLADRIFINN LUXUSBÍLL MEÐ SJÁLFSKIPTINGU, VÖKVASTÝRI, RAFMAGNSRÚÐUM OG LÆSINGUM, LUXUSINNRÉTTINGU, ÚTVARPIOG ÝMSUM AUKABÚNAÐIÁ AÐEINS kr. 719.000.- FORD BRONCOII ÓSKABÍLL ALLRA JEPPAÁHUGAMANNA, 140HÖVÉL, VÖKVASTÝRI, MIKILL AUKABÚNAÐUR OG VERÐIÐ AÐEINS kr. 998.000.- SS."'" Eyjafjörður: Netabátar ógna síma Hafa þegar slitið einn sæ- streng og aðrir eru í hættu Sæsímastrengur, sem liggur þvert yfir Eyjafjörð frá Sandgerðisbót að Litla-Hvammi, slitnaði á miðviku- dag. Rannsóknarlögreglan segir að grunur leiki á um að netabátar hafi verið við veiðar ólöglega nærri sæ- strengjunum, sem alls eru fimm talsins, en þeim er óheimilt að draga net í innan við 200 metra fjarlægð. Líklegt er að þungalóðin neðan í netunum hafi slitið strenginn. Daníel Snorrason, lögreglufull- trúi, segist ekki vita hver hinn raun- verulegi sökudólgur sé, -að allmarg- ar trillur komi til greina. Menn frá Pósti og síma á Akureyri ásamt rannsóknarlögreglumönnum sigldu út til netabátanna og báðu skipstjórnarmenn fara varlega og taka net sín eitthvert annað, svo meiri skaði hlytist ekki af. En þrátt fyrir þau tilmæli voru bátar enn við veiðar hættulega nærri strengjunum í gær. Nú má ekkert út af bera, svo verði ekki sambandslaust, því að tvöfalt álag er nú á nærliggjandi símastreng samsíða þeim slitna. Fullt álag er á öllum sæsímastrengj- unum fimm. Viðgerð er sögð kosta u.þ.b. 1 milljón króna. Það borgar sig þó ekki að ráðast í slíkar framkvæmdir að þessu sinni, því að áætlað er að leggja símastreng eftir nýjum Leiru- vegi síðar í sumar. Með því verður hætt að notast við símalínurnar á hafsbotni. Að sögn Alexanders Páls- sonar, tæknifræðings hjá Póst og símamálastofnun, verður óhappið til þess, að framkvæmdum við land- strenginnverður flýtt ,em kostur er. Vonast er til að þeim framkvæmdum verði lokið í endaðan júnímánuð. Ef hinsvegar annar sæstrengur slitnar, áður en af þessu verður, verður líklega um margra milljóna króna tjón að ræða, að mati lögreglufull- trúa. þj Þjóðgarðurinn á Þingvöllum: Opið um helgar Yfirstjórn þjóðgarðsins á Þing- völlum hefur ákveðið að hafa opna þjónustumiðstöðina á laugardögum og sunnudögum frá klukkan 11 til 19, í maí mánuði. Þctta er nýmæli, þvf þjónustumiðstöðin hefur hingað til ekki opnaðfyrr en í júní mánuði. Heimir Steinsson þjóðgarðsvörð- ur sagði í samtali við Tímann í gær að með þessu væri verið að mæta þörf sem er til staðar. „Það er sífelldur straumur um þjóðgarðinn allt árið. Þessvegna er það mér ánægja að tilkynna alþjóð þessa ákvörðun. Sami háttur verður hafð- ur á í september. Þá er áfram hægt að hringja þegar hópar leggja leið sína á Þingvelli og biðja um að miðstöðin verði opnuð. Nægir að gera það daginn áður en komið er,“ sagði Heimir

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.