Tíminn - 06.08.1987, Qupperneq 7
Tíminn 7
Fimmtudagur 6. ágúst 1987'
Húsnæðismál í brennidepli:
Lélegri nýting lána vegna
spennu á fasteignamaifcaði
Þýðing húsnæðislána fyrir um-
sækjendur í húsnæðislánakerfinu
minnkar stöðugt vegna þenslu á
fasteignamarkaði og sem dæmi má
nefna að í ágúst 1986 dugði fullt lán
til kaupa á 100 fermetra fjögurra
herbergja íbúð með 84% útborg-
un. Til samanburðar má geta að í
staðinn fyrir að snara út 313 þúsund
krónum í ágúst ’86, þurfti sami
aðili að snara út 897 þúsundum í
mars ’87. Mismunurinn er 584
þúsund krónur, sem jafngildir
187% hækkun.
Þetta kemur fram í upplýsingum
sem félagsmálaráðuneytið hefur
sent frá sér, en á vegum ráðuneyt-
isins fara nú fram athuganir á
hinum ýmsu þáttum húsnæðis-
mála. Athuganirnar beinast fyrst
og fremst að fimm þáttum. í fyrsta
lagi að upplýsa núverandi stöðu
nýja húsnæðislánakerfisins. f öðru
lagi að meta framtíðarhorfur þess
miðað við óbreyttar forsendur, þ.á
m. áhrif vaxta og sjálfvirkni í
kerfinu. í þriðja lagi að leita úrbóta
á þeim vanköntum sem komið hafa
fram á nýja húsnæðiskerfinu. f
fjórða lagi að undirbúa löggjöf um
kaupleiguíbúðir. Auk þess verður
uppbygging og fjármögnun íbúð-
akerfisins endurskoðuð. Og í
fimmta lagi að athuga málefni
þeirra sem lent hafa í greiðsluerfið-
leikum á undanförnum árum.
f yfirliti félagsmálaráðuneytisins
kemur fram að mörg vandamál
hafi skapast á fyrstu 11 mánuðum
kerfisins. Fjárþörfin sé mun meiri
en gert var ráð fyrir og ekki sé
sjáanlegt að kerfið megni að
minnka ásókn í félagslega húsnæði-
skerfið. Lánsfé húsnæðislánakerf-
isins kláraðist 12. mars s.l. og er
allt að tveggja ára biðtími eftir
lánum og sá tími lengist stöðugt.
Umsóknirnar voru orðnar 8.375
1. júlí s.l. og var fjárþörf kerfisins
fyrstu 10 mánuðina 11,3 milljarðar.
15% umsækjendanna áttu fyrir
skuldlausar eignir að verðmæti
rúmlega 3,0 milljónir króna. Þess
eru jafnvel dæmi að umsækjandi
sem átti fyrir 5 íbúðir hafi sótt um
lán til kaupa á þeirri sjöttu og
fengið lánið. Það er því ljóst að
það þarf að sníða ýmsa vankanta
af þessu kerfi. -SÓL
Veitingastaðir:
Skipt á
Operu og
American
Style
Eigendaskipti hafa orðið á veiting-
astaðnum Operu, Lækjargötu 2 og
skyndibitastaðnum American Style,
Skipholti 70. Bjarni Óskarsson sem
verið hefur eigandi American Style
frá opnun staðarins þann 15. júní
1985 keypti veitingahúsið Operu af
Vali Magnússyni og setti skyndibit-
astaðinn upp í kaupverðið, „svona
eins og að skipta á bíl og borga í
milli“ sagði Bjarni í samtali við
Tímann.
Ástæðuna fyrir eigendaskiptunum
sagði Bjarni einfaldlega vera löngun
til að prófa eitthvað nýtt. Veit-
ingahúsið Opera var opnað í febrúar
síðastliðnum. „Reksturinn gengur
vel og staðurinn er glæsilegur," sagði
Bjarni að lokum. IDS
Stefán Jónsson, ríthöfundur.
Stefán Jónsson, rithöfundur
og Anna Aradóttir:
Hvítársíðu-
hreppur fær
minningargjöf
Nýlega hefur Hvítársíðuhreppi
borist vegleg gjöf frá erfingjum
Stefáns Jónssonar, rithöfundar
sem er hálft bókasafn Stefáns
ásamt peningagjöf að upphæð kr.
325.000.00 sem ætluð er til frekari
bókakaupa og kaupa á bókahill-
um.
Enginn skal leggja frítt í þessi stæði í framtíðinni. Ekki einu sinni ibúar nærliggjandi húsa.
Tímamynd: BREIN
Bílastæðin bak við Stjörnubíó:
Ibúar réttlausir í stöðumælamálum
„Þetta er lóð sem alfarið er komin
undir yfirráð borgarinnar. Ef fólk
getur ekki séð sér sjálft fyrir stæðum
þá sér borgin ekki um stæði fyrir
það,“ sagði Ingi Ú. Magnússon
gatnamálastjóri, þegar hann var
inntur eftir því af hverju komin væri
gjaldskylda á öll bílastæði á lóðinni
bak við Stjörnubíó, en íbúar húsa
þar í kring hafa hingað til getað lagt
bílum sínum í nokkur ógjaldskyld
stæði þar. „Ég skil það vel að fólk
sem hefur helgað sér þetta sé
óhresst, en það er þarna inni á lóð
sem það hefur engin tök á.“
Megn óánægja ríkir meðal íbúa
nærliggjandi húsa við Barónsstíg og
Grettisgötu sem hingað til hafa átt
griðastað með bíla sína á fyrrnefnd-
um bílastæðum. Nú þurfa íbúarnir
að greiða í stöðumæla með vissu
millibili ef þeir ætla að komast hjá
stöðumælasektum eða leggja bílum
sínum í mikilli fjarlægð frá hýbýlum
sínum annars.
í stað gömlu stöðumælanna sem mælir eins og settur hefur verið upp
voru á hluta bílastæðisins hefur nú 1 á stæðunum bak við Landsbankann
verið settur upp svokallaður fjöl- á Laugavegi 77. Um leið voru gömlu
gjaldfríu stæðin sett undir gjald-
skyldu frá því klukkan 9 á morgnana
til klukkan 18 síðdegis. -HM
Hafnarfjörður:
Gistiheimilið Berg
með 13 herbergi
Gistiheimilið Berg opnar form-
lega á morgun 7. ágúst í Hafnar-
firði en skortur á gistirými hefur
lengi staðið í vegi fyrir uppgangi
ferðamannaiðnaðar í bænum.
Gistiheimilið er ætlað bæði inn-
lendum sem erlendum ferðamönn-
um. Herbergin eru 13talsinsogþar
af eru 8 á stærðarbilinu 27-33 m , en
lögð hefur verið sérstök áhersla á
að herbergi yrðu sérstaklega rúm-
góð og vistlega innréttuð, segir í
fréttatilkynningu frá gistiheimil-
inu. Þarsegir jafnframtað herberg-
in séu ríkulega búin nýtískulegum
húsgögnum, ásamt síma, útvarpi
og handlaug. Morgunverður er
innifalinn í gistingu, enda hefur
gistiheimilið 40 manna matsal. í
Hafnarfirði má finna sér ýmislegt
til dægrastyttingar, m.a. byggða-
safn og sjóminjasafn, golfvöll,
sundlaug og íþróttasvæði, tjald-
stæði, útsýnisstaði, lystigarð og
smábátahöfn ásamt úrvali af versl-
unum og veitingastöðum.