Tíminn - 06.08.1987, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 6. ágúst 1987
Tíminn 11
Svíinn Patrik Sjöberg, heimsmethafinn í hástökki,
er í sviðsljósinu:
Skemmtikraftur
með peningavit
Patrik Sjöberg reykir tuttugu síga-
rettur á dag, er tíður gestur á
skemmtistöðum og ekur um á
Porsche bifreið. Hann lítur ekki
aðeins á sig sem íþróttamann, heims-
methafa í hástökki, heldur einnig
sem skemmtikraft.
Svíinn stökk 2,42 metra á Grand
Prix móti í Stokkhólmi þann 30. júní
og setti heimsmet. Þetta afrek hefur
gert hann að sigurstranglegasta há-
stökkvaranum á heimsmeistaramót-
inu er hefst í Róm síðar í þessum
mánuði.
Sjöberg sjálfur er ekki einn af
þeim sem fara leynt með árangur
sinn og keppnisstíl: „Áhorfendur
vilja sjá eitthvað meira en leiðinlega
íþróttamenn. Þeir fagna íþrótta-
mönnum sem einnig eru skemmti-
kraftar og það eiga þeir að fá“, segir
hinn 22 ára gamli ljóshærði Svíi sem
að mörgu leyti svipar til knattspym-
Sjöberg tekur starf sitt alvarlega
og æfir sig eina fjóra tíma á dag.
Hann lætur það þó ekki aftra sér frá
því að lifa lífinu á dulítið villtan hátt
á köflum. Heimsmetinu nýja fagnaði
hann t.d. í næturklúbbi langt fram á
morgun og hann sér enga ástæðu að
sýna gott fordæmi sem íþróttamað-
ur: „Ég er eins og hver önnur
venjuleg manneskja og mér er alveg
sama hvað fólk segir um líf mitt“.
Æska Sjöbergs var vandræðasöm
að mörgu leyti og varpar kannski
ljósi á hugsunargang hans nú.
Heimsmethafinn ólst upp í Gauta-
borg en foreldrar hans skildu þegar
hann var þriggja ára gamall. Upp-
vaxtarárin voru erfið, reykingar og
smáglæpir þar til Finninn Viljo No-
usiainen sannfærðist um einstaka
hæfileika piltsins í hástökkinu. Viljo
varð þjálfari hans og síðar einnig
stjúpfaðir.
Patrik Sjöberg: Heimsins besti hástökkvari sem vill verða enn betri.
ukappans Péturs Péturssonar, með
sítt ljóst hár. Sjöberg er þó öllu
hærri en KR-ingurinn snjalli, 1,99
metrar á hæð.
Landar Sjöbergs fylltu áhorfenda-
stæðin á Grand Prix mótinu í Stokk-
hólmi og þeir urðu ekki fyrir von-
brigðum. Sjöberg tókst að setja
heimsmet í sinni þriðju og síðustu
tilraun þrátt fyrir að aðhlaupsbrautin
hefði verið blaut og hál.
Svíinn ungi er nú einn af hæst
launuðu íþróttamönnum heims og
tilheyrir nýrri kynslóð íþróttamanna
sem líta á íþrótt sína sem starf og
skammast sín ekki að fá peninga
fyrir.
„Hástökk er líkamlega alveg eins
erfitt og hvert annað starf. Sumt fólk
virðist hins vegar áli'ta að það sé
eitthvað ljótt við það að fá peninga
á þennan hátt“, segir Sjöberg sem
tekur sem samsvarar 600 þúsund
íslenskar krónur fyrir hvert mót og
hefur unnið sér inn á þessu ári
upphæð sem samsvarar um tólf mill-
jónum íslenskra króna, þarmeðtald-
ar eru tekjur fyrir auglýsingar.
„Ég öðlaðist sjálfsvirðingu að
nýju“, segir Sjöberg um þessi þátta-
skil í lífi sínu.
Patrik var alltaf undrabarn í há-
stökkinu, fór yfir 2,21 metra sextán
ára að aldri, 2,33 er hann var átján
ára og tvítugur stökk hann 2,38
metra.
Hann vann til silfurverðlauna á
Ólympíuleikunum í Los Angeles
árið 1984, var þá á eftir Vestur-Þjóð-
verjanum Dietmar Múgenburg, og á
þessu ári tókst honum að stökkva
hæst manna innanhúss er hann fór
yfir 2,41 metra í Aþenu.
„Hann er einfaldlega sá besti...
segir keppinautur hans og reyndar
vinur líka, Vestur-Pjóðverjinn Carlo
Thraenhardt. Hann segir Sjöberg
hafa allt til að bera um þessar
mundir til að fara yfir 2,45 metra.
Það mun kom í Ijós á heimsmeistara-
mótinu í Róm hvort Sjöberg stenst
þær kröfur sem hann sjálfur og aðrir
gera til.hans nú.
Þriðjudagur 11. ágúst:
Höfn
Klaustur
Vík
kl. 09.00 - 13.30
kl. 15.30-18.00
kl. 19.00-22.00
Miðvikudagur 26. ágúst:
IBIönduós kl. 09.00 - 13.00
Varmahlíð kl. 14.00 - 16.00
Sauðárkrókur kl. 17.00 - 22.00
Laugardagur 08. ágúst:
Kópasker kl. 10.00 - 14.00
Raufarhöfn kl. 15.00 - 17.00
Þórshöfn kl. 18.00 - 23.00
Fimmtudagur 13. ágúst:
Selfoss kl. 09.00 - 16.00
iT! Hveraqerði kl. 17.00 - 20.00
Austurland
Sunnudagur 09. ágúst:
Vopnafjörður kl. 10.00 - 13.00
Egilsstaðir kl. 15.00 - 23.00
Vesturland
Mánudagur 24. ágúst:
Akranes
3 Borgarnes
kl. 10.00 - 14.00
kl. 15.00-22.00
Mánudagur 10. ágúst:
Reyðarfjörður
Eskifjörður
Djúpivogur
Suðurland
kl. 10.00 - 13.00
kl. 14.00-17.00
kl. 19.00-21.00
Norðurland vestra
Þriðjudagur 25. ágúst:
I Borðeyri kl. 10.00 - 12.0
jHvammstangi kl. 13.00 - 16.0
5 Víðihlíð kl. 17.00-20.0
14. ágúst - 23. ágúst:
Sýning í Reykjavík á BÚ ’87
Bændur og aðrir athafnamenn:
- Komið og heilsið
upp á gamian
kunningja!
Símar 96-23515 og
Möldursf.
Tryggvabraut 12
Norðurland eystra
Föstudagur 07. ágúst:
Húsavík kl. 10.00-16.C
Mývatn kl. 17.00 - 21.C
,<^D !
Land Rovor'
LAND-R0VER
á leið um landið!
Söluferð með Land-Rover um landið
Sýningarstaðir hjá ESSO-söluskálum
á landsbyggðinni!
Sölumenn okkar kynna nýju Land-Rover bílana næstu vlkur víða um
landið og á sýningu bændasamtakanna BÚ ’87. Nú er Land-Roverinn
gjörbreyttur: Nýtt útlit, sami undirvagn og er í Range-Rover, nýtt mæla-
borð og klæðningar. „Langi Land-Roverinn er besti akstursbíll sem ég
hef prófað“, segir Ómar Ragnarsson.
- Komið og kynnist nýju
Land-Röver 90 og 110 gerðunum.
- Þér gerið ekki betri jeppakaup.
- Eigum bíla á kynningarverði.
Miðvikudagur 12. ágúst:
Hvolsvöllu kl. 09.00 -
Hella kl. 16.00-
15.00
22.00