Tíminn - 13.08.1987, Síða 7
Fimmtudagur 13. ágúst 1987
Tíminn 7
Aukinn byggingarkostnaður við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli:
„Hefur ekki áhrif á
halla ríkissjóðs11
- segir Steingrímur Hermannsson, utanríkisráðherra
„Aukinn byggingarkostnaður við
flugstöðina á Keflavíkurflugvelli
kemur ekki beint við ríkissjóð og
hefur ekki áhrif á halla ríkissjóðs,
því það koma engir peningar beint
úr ríkissjóði til framkvæmdanna,
heldur hefur ríkissjóður tekið erlend
lán til framkvæmdanna Hins vegar
kemur þetta fram í hærri húsaleigu í
flugstöðinni sem sumir telja allt of
háa“ sagði Steingrímur Hermanns-
son utanríkisráðherra þegar hann
var inntur eftir því hver áhrif aukins
byggingarkostnaðar við nýju flug-
stöðvarbygginguna á Kefla-
víkurflugvelli hefði á ríkissjóð.
Kostnaður við flugstöðvarbygg-
inguna hefur farið nokkuð fram úr
áætlun, meðal annars vegna víðtæk-
ari framkvæmda en gert var ráð fyrir
í fyrstu. Að sögn Steingríms hefur
kostnaðurinn í krónum talið farið
hátt í 300 milljónir fram úr áætlun
miðað við byggingarvísitölu, en
vegna lækkunar dollarans gagnvart
krónunni og stórhækkunar bygg-
ingavísitölu hafi byggingarkostnað-
ur farið 28 milljónir dollara fram úr
áætlun. Sú hækkun fellur öll á ís-
lendinga þar sem Bandaríkjamenn
lögðu fram fasta upphæð, 20 millj-
ónir dollara til flugstöðvarinnar.
Þegar kostnaðaráætlun var gerð
árið 1983 var gert ráð fyrir að hlutur
íslendinga yrði 22 milljónir dollara.
En á byggingartímanum hefur bygg-
ingarvísitalan hækkað um 160%
gagnvart dollar. Sú staðreynd að
viðbættum þeim 300 milljónum sem
byggingarkostnaður fór fram úr
áætlun í íslenskum krónum talið,
hefur leitt til þess að kostnaður við
flugstöðina hækkaði úr 42 milljónum
dollara í 70 milljónir dollara. Það
þýðir að aukinn kostnaður fslend-
inga mun vera um það bil 1 milljarð-
ur íslenskra króna umfram upphaf-
lega áætlun -HM
Nýja flotbryggjan í Reykjavíkurhöfn.
Tímamynd: Pjetur
Reykjavíkurhöfn:
Skútueigendur fá nýja flotbryggju
Fjörtíu metra löng flotbryggja fyrir skútur hefur verið sett niður í Aust-
urbugt, á milli Faxagarðs og Ingólfsgarðs. Skútueigendur keyptu sjálfir
fjóra bryggjuhluta sem hver um sig er 10 metrar að lengd en Reykjavík-
urhöfn lagði þeim síðan lið við að koma bryggjunni saman.
Jón Þorvaldsson tæknifræðingur hjá Reykjavíkurhöfn sagði að forsaga
málsins væri sú að fyrir nokkrum árum hefði Reykjavíkurborg byggt
smábátahöfn fyrir vélbáta í Elliðavogi þar sem Snarfari er til húsa. Skútu-
menn komu hins vegar ekki sínum skútum þangað inn eftir og hafa verið
í Nauthólsvíkinni, þar sem félag þeirra, Brokey er til staðar. Þar, hafa
skútueigendur hins vegar verið í vandræðum með stórar skútur og hafi
því sótt ákaft eftir að komast í skjól í Reykjavíkurhöfn. Jón sagði jafn-
framt að flotbryggjan hafi aðeins verið sett niður til reynslu. “Það er hins
vegar ekki á neinn hátt búið að staðfesta skipulag á þessu,“sagði Jón að
lokum. IDS
Kiwanis-hreyfingin:
Gefur 6,5 millj. króna
til unglingageðdeildar
Kiwanishreyfingin hefur formlega
afhent Ríkisspítölunum rúmlega 6,5
millj. kr. til stofnunar unglingageð-
deildar sem ætlað er að mæti brýnni
þörf unglinga til greiningar og með-
ferðar á geðkvillum hvers konar, þar
með talin misnotkun áfengis og ann-
arra vímuefna. Gjafaféð safnaðist
með sölu lykilsins á K-daginn, sem
var 18. október s.l. Þann dag seldu
Kiwanismenn og fjölskyldur þeirra
lykilinn enn einu sinni undir kjörorð-
inu „Gleymum ekki geðsjúkum.“
Kiwanishreyfingin hélt sinn fyrsta
K-dag 1974 og safnaði þá fé til að
koma á fót þjálfunarvinnustað fyrir
geðsjúþa sem væru í endurhæfingu.
Fyrir það fé sem þá safnaðist var
Bergiðjan sett á stofn. Síðar voru K-
dagarnir notaðir oftar en einu sinni
til þess að afla fjár til að koma á fót
Endurhæfingarstöð Geðverndarfé-
lags íslands í Álfalandi 15 í Reykja-
vík. Kiwanis- hreyfingin hefur lagt
áherslu á að söfnunarfé það sem
fengist veð sölu lykilsins, nýttist fyrir
alla landsmenn og er öll starfsemi
sem söfnunarfénu er varið í, ætluð
fólki hvaðanæva að af landinu.
Lestunar-
áætlun
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
Aarhus:
Alla þriðjudaga
Svendborg:
Alla þriðjudaga
Kaupmannahöfn:
Alla fimmtudaga
Gautaborg:
Alla föstudaga
Moss:
Alla laugardaga
Larvik:
Alla laugardaga
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Leningrad:
Santa Maria .......... 16/8
Helsinki:
Santa Maria .......... 18/8
Halifax:
Jökulfell............. 17/8
Jökulfell.............. 7/9
Jökulfell..............28/9
Gioucester:
Jökulfell............. 19/8
Jökulfell.............. 9/9
Jökulfell..............30/9
New York:
Jökulfell..............20/8
Jökulfell............. 10/9
Jökulfell............. 1/10
Portsmouth:
Jökulfell..............20/8
Jökulfell............. 10/9
Jökulfell............. 1/10
Lubeck:
Arnarfell .............28/8
Oslo:
Hvassafell.............26/8
SK/PADE/LD
^&kSAMBANDS/NS
LINDARGATA 9A
PÓSTH. 1480 • 121 REYKJAVlK
SlMI 28200 TELEX 2101
tAkn TRAUSTRA flutninga