Tíminn - 13.08.1987, Side 10
10 Tíminn
Fimmtudagur 13. ágúst 1987
-Jlllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR
2. deild
Lánlausir
Eyjamenn
Skagamótið
Hið árlega Hi-C Skagamót í
knattspyrnu 6. flokks drengja fer
fram á Akranesi dagana 14-16
ágúst. Mótið verður með svipuðu
sniði og verið hefur og keppt
verður í bæði A og B liða keppni
innan og utanhúss.
1 ár verða 20 lið frá 10 félögum
og er áætlaður þátttakendafjöldi
um 250 manns. Liðunum sem
taka þátt í mótinu verður skipt í
riðla eins og hér segir.
A-riðill. FH, Fylkir, Þróttur
R, ÍBK og UBK
B-riðill. Víkingur, Bolungar-
vík, Þór Ve, í A og Haukar.
Auk knattspyrnu verður ýmis-
legt gert sér til gamans, á dagskrá
verður t.d. knattþrautarkeppni,
leikir, grillveisla, kvöldvaka og
skoðunarferðir.
Glæsileg verðlaun verða veitt,
bæði til liða og einstaklinga.
Dagskrá mótsins verður þannig
háttað að á föstudeginum 14.
ágúst verður setning kl. 13.30,
síðan verður keppt utanhúss fram
að kvöldmat en þá verður grill-
veisla, knattþrautarkeppni og
leikir.
Á laugardeginum verður byrj-
að að keppa utanhúss kl. 10 og til
12.40. Keppt verður innanhúss
frá kl.14-18. og kl. 20.30 er
kvöldvaka.
Úrslitaleikirnir verða á sunn-
udag, byrja kl.10 og standa yfir
til kl.14.20. Kl.15 verður síðan
verðlaunaafhending og mótsslit.
IBV-Leiftur 1-1
Frá Sigfúsi Guömundssyni fréttaritara Tímans í
Vestmannaeyjum.
Leiftursmenn getað þakkað mark-
manni sínum Þorvaldi Jónssyni þetta
eina stig sem þeir höfðu með sér úr
Eyjum í gærkvöldi er þeir spiluðu
við heimamenn. Hann varði mjög
vel allan leikinn og kórónaði síðan
stórleik sinn með því að verja vfta-
spyrnu frá Elíasi Friðrikssyni er
skammt var til leiksloka.
Það voru þó norðanmenn sem
byrjuðu leikinn betur. Strax á 3.
mín. skoraði Sigurbjörn Jakobsson
með góðum skalla eftir hornspyrnu
og á 22. mín átti Óskar þjálfari
Ingimundarsson gott færi en náði
ekki að skora. Á 25. mín. náðu
Vestmannaeyingar að jafna. Elías
Friðriksson gaf góða fyrirgjöf fyrir
Leiftursmarkið og Hlynur Stefáns-
son afgreiddi boltann í netið með
góðum skalla. Stuttu síðar fékk
Lúðvík Bergvinsson gott færi eftir
horn heimamanna en skot hans
missti marks.
Á 13. mín. síðari hálfleiks slapp
Óskar Ingimundarsson einn í gegn
um vörn Vestmannaeyinga, en Þor-
steinn Gunnarsson bjargaði vel með
góðu úthlaupi. Upp úr þessu fóru
Vestmannaeyingar að taka leikinn æ
meira í sínar hendur. Það var síðan
á 88. mín. sem Lúðvík Bergvinsson
var felldur inn í vítateig Leifturs og
réttilega var dæmt vfti. Eins og áður
sagði tók Elías Friðriksson spyrn-
una, en Þorvaldur Jónsson varði
frekar slaka spyrnu Elíasar. Strax
upp úr vítinu fengu heimamenn tvær
hornspyrnur og úr annarri þeirra
skallaði Tómas Ingi Tómasson í
stöng og fór þar með síðasta tækifæri
heimamanna til að gera út um leik-
inn.
Leikurinn var sæmilega leikinn,
þó sérstaklega fyrri hálfleikurinn, en
í seinni hálfleik var leikurinn aðal-
lega í höndum heimamanna. Bestur
Vestmannaeyinga var Elías Friðriks-
son, en þeir Óskar Ingimundarson
og Þorvaldur markmaður Jónsson í
liði Leifturs. -ps
4. deild úrslitakeppni:
Gróttusigur
Á Laugardalsvelli
mörðu Gróttumenn sigur á liði
Árvakurs, 1-2. Sverrir Sverrisson
kom Nesliðinu yfir í fyrri hálfleik,
en Björn Pétursson jafnaði seint
í síðari hálfleik eftir gífurlega
pressu Árvakursmanna. Þremur
mín. fyrir leikslok skoraði Sverrir
Sverrisson annað mark Gróttu
með góðu skoti af stuttu færi eftir
gífurlega langt innkast Jóns
Steingrímssonar. Úrslitin 2-1
Gróttu í hag sem heldur sér þar
með í baráttunni um 3. deildar-
sæti.
Á Bolungarvík gerðu heima-
menn jafntefli 0-0, við lið Vík-
verja í tíðindalitlum leik. Vík-
verjar sóttu öllu meira, en náðu
ekki að merja sigur á heima-
mönnum.
Hvöt frá Blönduósi lék gegn
H.S.Þ.c og sigruðu Hvatarmenn
2-0 með mörkum frá þeim Ingvari
Magnússyni og Axel Rúnari
Guðmundssyni.
Heimsmet
ítalinn Alessandro Andrei setti í
gærkvöldi nýtt heimsmet í kúluvarpi
á móti á Ítalíu. Kastaði ítalinn 22,91
metra en gamla metið 22,64 átti
gamla kempan Udo Bayersem hann
setti í Austur-Berlín í ágúst 1986.
reuter/-ps
Hundraöasta keppnistímabil ensku knattspyrnunnar hefst innan tíðar:
Tekst Lundúnaliðunum að
hnekkja Liverpoolveldinu?
Helstu knattspyrnuliðin í Lundún-
um munu vafalaust setja sér scm
markmið þegar hundraöasta keppn-
istímabil ensku knattspyrnunnar fcr
í hönd nú á næstunni að koma
meistarabikarnum eftirsótta til
Lundúna eftir sextán ára fjarveru.
Sú barátta ásamt þeim möguleika að
ensk lið fái að kcppa aftur í Evrópu-
inótunum á næsta ári mun vafalaust
setja svip sinn á keppnistímabil sem
hefur alla burði til að verða hið
skemmtilegasta.
Síðasta Lundúnaliðið til að vinna
meistarabikarinn var Arsenal og
gerðist það árið 1971. Síðan þá hafa
liðin frá bökkurn Merseyfljótsins í
norðvestur Englandi, Liverpool og
Everton, nánast verið einráð í deild-
inni. Þessi lið frá borginni Liverpool
gætu þó átt í vissum erfiðleikum,
allavegana til að byrja með. Liver-
pool saknar markaskorarans Ian
Rushs, sem leikur með ítalska liðinu
Juventus í vetur, og Everton hefur
rnisst framkvæmdastjórann Howard
Kendall er tekið hefur að sér stjórn
spánska liðsins Athletic Bilbao.
Liverpool og Evcrton hafa skipst
á að vinna meistarabikarinn síðan
árið 1981 er Aston Villa sigraði
nokkuð óvænt en hélt síðan áfram
og varð Evrópumeistari. Aston Villa
er nú fallið í aðra deild og leikur þar
á þessu tímabili. Lundúnaliðin stóru
þurfa varla að óttast sömu örlög og
Villa enda lið þeirra öflugri á allan
hátt.
Framkvæmdastjóra helstu Lund-
únaliðanna Arsenal og Tottenham,
þá George Graham og David Pleat,
dreymir örugglega um að vinna sigra
á borð við þá sem Aston Villa vann
í byrjun áratugsins.
Mennirnir tveir voru ráðnir í störf
sín íyrir síðasta keppnistímabil og
nú fer sjálfsagt að reyna á hvort
uppbygging þeirra og starfsstíll bera
raunverulegan árangur.
Það er nær öruggt að keppnin um
meistarabikarinn kemur til með að
standa á milli stóru liðanna, Liver-
pool, Everton, Arsenal, Tottenham
og Manchester United.
Liverpool stendur höllum fæti
hvað varðar ntarkaskorun, sjálfur
markakóngurinn Ian Rush er farinn
til Ítalíu og erfitt verður að fylla
skarð hans. Rush hafði þann sjald-
gæfa eiginleika að skora bæði mörg
mörk og mikilvæg og reyndar hafði
Liverpool aldrei tapað leik sem Rush
skoraði í þar til liðið lá fyrir Arsenal
í úrslitum deildarbikarsins á Wcm-
bley á sfðasta tímabili.
Að vísu koma engir aukvisar inn
fyrir Rush, Liverpool hefur fengið
landsliðsmennina John Barnes frá
Watford og Peter Beardsley frá
Newcastle til liðs við sig og virkar
því ekki árennilegl.
Howard Kendall hefur lcitt Evert-
on til sinna stærstu sigra á undan-
förnum árum og skarð hans er því
vandfyllt. Það verður aðstoðarmað-
ur Kendalls, Colin Harvey, sem fær
það erfiða verkefni að fylgja eftir
starfi Spánarfarans. Harvey eröllum
hnútum kunnugur hjá Everton,
hann var í meistaraliði þess árið
1970 rétt eins og Kendall.
George Graharn framkvæmda-
stjóri Arsenal er metnaðarfullur
maður og frammistaða Arsenal var
reyndar mjög góð á síðasta ári.
Graham hyggst gera betur á þessu
ári, meistaratitillinn er takmarkið og
hann hefur sett sér það markmið í
framtíðinni að ná betri árangri en
allir fyrirrennarar hans í starfi og
víst er að ef það tekst fær hann
brjóstmynd af sér í höfuðstöðvum
félagsins, rétt eins og sá frægi Her-
bert Chapman.
Pleat mátti þola að sjá Totten-
hamlið sitt tapa 2-3 fyrir Miðlanda-
liðinu litla Coventry í úrslitum bikar-
keppninnar í vor en hann hefur engu
að síður sett sér svipað markmið og
Graham þrátt fyrir að stjarna liðsins,
Glenn Hoddle, sé genginn til liðs við
franska félagið Mónakó. Pleat hefur
fengið tvo sterka leikmenn frá Nott-
ingham Forest til Lundúna, Holl-
endinginn Johnny Metgod og hinn
stórgóða varnarmann Chris Fairc-
lough.
Þá er það Manchester United.
Liðið olli vonbrigðum á síðasta tíma-
bili en undir stjórn Skotans Alex
Ferguson er það til alls líklegt í
vetur. Bryan Robson hefur að sögn
kunnugra aldrei verið í betra forrni,
það sýndi hann í leiknum gegn
heimsliðinu á dögununt, og tveir
sterkir leikmenn liafa bæst í hópinn,
Viv Anderson frá Arsenal og skoski
miðherjinn Brian McClair er lék
með Celtic. Man. Utd gæti því átt
eftir að blanda sér verulega í topp-
baráttuna og jafnvel vinna meistara-
titilinn í fyrsta skipti síðan árið 1967.
Chris Waddle Tottenham í leik gegn Liverpool. Bæði lið stefna að venju á meistaratitilinn
3. deild
Borgnesingar
kjöldregnir
Þær eru sjaldséðar tölurnar sem
sáust í knattspyrnuleik á Kópavogs-
velli í gærkvöldi.
ÍK vann þar stórsigur á slöku liði
Skallagríms 15-0. Steindór Elísson
skoraði sjö mörk í leiknum og hefur
þar með skorað 21 mark í 3. deild-
inni í sumar og stungið markaskorar-
ann Óskar Oskarsson af en hann
hefur skorað 14 mörk. Ef við teljum
upp hinn langa lista markaskorara í
leiknum, þá skoruðu þeir Skúli Þór-
isson 2, Jón Hersir Elíasson 2,
Reynir Björnsson 2, Björn Björns-
son 1 og Friðrik Friðriksson 1.
Ævintýralegar tölur. -ps
Molar
AHUGINN á knattspyrnu í litl-
um bæjarfélögum er oft geysileg-
ur enda knattspyrnan stundum
eina íþróttin sem stunduð er af
viti. Lið Hugins á Seyðisfirði nýtur
t.d. mikils fylgis á heimavelli
sínum, þar borga um tvö hundruð
og fimmtíu manns sig inn á
völlinn til að fylgjast með sínu liði
í fjórðudeildarslagnum...
RAUÐU spjöldin hafa verið
dregin á loft nokkuð oft í síðustu
leikjum, bæöi í 1. og 2. deild.
Völsungar frá Húsavík hafa til að
mynda leikið tíu allan síðari hálf-
leikinn og rúmlega það í síðustu
tveimur leikjum, slæmt fyrir lið
sem berst um tilverurétt sinn i 1.
deildinni...
MEIRA um rauðu spjöldin,
margir hafa haft það á orði að
þau hefðu mátt liggja í vasa
dómarans í sumum þessara til-
vika t.d. var brottrekstur þeirra
Jóns Gunnars Bergs Selfyssings
og Gunnars Gylfasonar Breiða-
bliksmanns í 2. deildarleik nú á
dögunum furðulegur í meira
lagi...
SKAGAMAÐUR hringdi í
Tímann nú í vikunni og kvartaði
sáran yfir hversu 1. deildarliði
þeirra væri gerð lítil skil í blaðinu.
Það væri sosum ekki frétt, enda
algengt að stuðningsmenn lið-
anna hringi, veifi dálksentimetr-
um og finnist sínu liði ekki vera
gert nógu hátt undir höfði, nema
hann nefndi að Akurnesingar
hefðu staðið sig geysilega vel í
deildinni. Það er mikið rétt, þrátt
fyrir miklar mannabreytingar eru
Skagamenn að berjast á toppn-
um enda virðast þeir ekki þekkja
annað...
OGENN um Skagamenn. Einn
knattspyrnufrömuður þar sagði
að þeir væru frekar óánægðir
með aðsóknina að heimaleikjum
liðsins í sumar, fólkið væri svo
vant frábærum árangri að það
hreinlega vildi að Skagaliðið væri
enn ofar í töflunni. Þetta er kallað
að gera kröfur og líklega ein
ástæða þess að Skagamenn eru
jafn sterkir á vellinum og raun ber
vitni...
IK menn úr Kópavogi eru ekki
sáttir við lífið og tilveruna um
þessar mundir enda liðið búið að
tapa ódýrt í síðustu tveimur leikj-
um í 3. deildinni. Fyrst var það
leikur gegn Reyni í Sandgerði
sem tapaðist 3-2 og var eitt
marka Reynismanna umdeilt,
vafaatriði hvort boltinn hefði farið
yfir línuna. Um síðustu helgi
keppti (K svo við Fylki og þar
hjálpaði hönd Guðs Fylkismönn-
um að sigra 2-1 eins og Tíminn
greindi frá á þriðjudaginn...