Tíminn - 13.08.1987, Page 15
Fimmtudagur 13. ágúst 1987
Tíminn 15
MINNING
lllllllllllllll
Guðmundur P. Guðmundsson
Fæddur 22. janúar 1899.
Dáinn 6. ágúst 1987.
Þann 6. ágúst sofnaði Guðmundur
svefninum langa eftir athafnasama,
giftusama og oft erfiða starfsæfi.
Hann var aðeins 24 ára gamall,
elstur 12 systkina, þegar faðir hans,
Guðmundur Guðmundsson bóndi á
Melum í Strandasýslu, lést. Ábyrgð-
in féll því á hans herðar að taka við
búi og hjálpa móður sinni, Elísabetu
Guðmundsdóttur, að ala upp syst-
kinin og koma þeim til mennta.
Þetta var fagur hópur gjörvilegra
einstaklinga, sem yfirgáfu Mela,
hver á eftir öðrum, þegar þeir höfðu
fengið aldur og menntun, til þess að
sjá fyrir sér og stofna hemili.
Systkini Guðmundar hafa oft
minnst þess sem Guðmundur gerði
fyrir þau í æsku og sýnt þakklæti sitt
í verki, því iðulega komu þau
norður, eins og við sögðum, í sumar-
leyfi sínu, og sum komu árlega til að
hjálpa til við heyskapinn, sem var í
þá daga framkvæmdur með orfí og
ljá.
Á heimili Guðmundar og Elísa-
betar, móður hans, var oft fjölmennt
því barnabörn Elísabetar dvöldu
þar langtímum saman og mörg
þeirra voru alltaf full eftirvæntingar
að komast norður. Ég naut þeirra
sérréttinda að vera hjá þeim
mæðginum fleiri sumur og auk þess
nokkra vetur. Ég kynntist því Guð-
mundi frænda mínum vel og vissi
hvílíkur mannkostamaður hann var.
Hann var kærleiksríkur og hugsaði
ekki ætíð um sinn hag og lét sér
frekar umhugað um aðra, lagði
mikla áherslu á að við, börnin,
lærðum og hlýddi okkur yfir náms-
efni, sem okkur var sett fyrir í
skólanum, enda var hann víðlesinn,
fróður og mikill stærðfræðingur.
Þessi áhugi hans á mönnum kom
rneðal annars fram í því að hann
hafði óslökkvandi áhuga á ættfræði,
sem ágerðist með árunum.
Guðmundur var einn af stofnend-
um búnaðarfélagsins í sveitinni og
vann hann af áhuga í mörg ár fyrir
það og sá um að bændur fengju fræ
og annað slíkt sem þurfti til jarð-
ræktar. Þessir vísir búnaðarfélagsins
stuðlaði örugglega að blómlegri
jarðrækt í' Víkursveit. Enda var
Guðmundur heiðraður fyrir störf sín
af búnaðarfélaginu fyrir nokkrum
árum.
Guðmundur kvæntist eftirlifandi
konu sinni, Ragnheiði Jónsdóttur
frá Broddadalsá 1942. Þeim varð
ekki barna auðið. En þrátt fyrir að
ætíð voru börn á heimili þeirra tóku
þau sér kjörbarn, Elísabetu. Elísa-
bet hefur líka reynst þeim góð dóttir
og sýnt þeim artarsemi, sem væri
hún þeirra eigið barn. Ragnheiður
var samhent manni sínum, en það
gerði að verkum að ætíð var ánægju-
legt að heimsækja þau.
Fyrir mig og marga sem minnast
Guðmundar eru orð ritningarinnar,
mikil huggun, sem segir: „Undrist
þetta ekki. Sú stund kemur, þegar
allir þeir sem í gröfunum eru, munu
heyra raust hans (Jesú) og ganga
fram, þeir, sem gjört hafa hið góða,
munu rísa upp til lífsins..." (Jóhann-
es 5:28, 29 ). Já, þetta líf sem hér er
talað um er jarðnesk Paradís, sem
kristnir menn hafa beðið um í „Faðir
vorinu“, er þeir biðja um að „Guðs-
ríki komi og að hans (Guðs vilji
verði gerður svo á jörðu sem á
himni.“ (Matteus 6:9-11). „Pá mun
síðasti óvinurinn, dauðinn að engu
gjörður“ (1. Korintubréf 15:26).
Guðmundur mun þá hafa tækifæri til
að láta mannkosti sína þroskast og
mun sjálfur njóta ávaxta handa
sinna. Já, samkvæmt spádómum
Biblíunnar getum við vænst þess að
ekki verði langt að bíða þessa dags,
þegar Guð himnanna, fyrir milli-
göngu sonar síns Jesú Krists, taki í
taumana og stofni ríkið. í kjölfar
þess mun þúsund ára Ríkið vera
stofnað og réttlætið mun blómstra. í
þessum heimi, paradís á jörð, trúi ég
að Guðmundur muni vakna til lífsins
aftur.
Megi Guð varðveita minningu
hans.
Guðmundur H. Guðmundsson.
Það kom mér á óvart þegar ég
heyrði að afi væri látinn. Þrátt fyrir
háan aldur hans datt mér ekki annað
í hug, síðast þegar ég sá hann en að
hann ætti eftir að lifa með okkur
nokkur ár til viðbótar. Hann hafði
svo lengi talað um að nú færi hann
sennilega að fara að maður var
hættur að taka mark á honum.
Hann var iðulega léttur á fæti og
hress og sá ég hann oft fyrir mér eins
og ég fyrst man eftir honum. En þær
minningar eru frá Melum þar sem
hann bjó til girðingarstaura úr reka-
viðnum og var í heyskapnum. Einnig
ntan ég eftir gömlu grænu dráttarvél-
inni hans sem svo gaman var að sitja
á.
Hann var ættfróður, víðlesinn og
fróðleiksfús maður. Síðan ég man
hafa bækur verið eitt aðal áhugamál
hans og hafði hann mikla ánægju af
lestri góðra bóka. Einnig hafði hann
mikinn áhuga á öllu sem var að
gerast í þjóðfélaginu og hafði sínar
skoðanir á málunum.
Hann giftist Ragnheiði Jónsdóttur
1942 og hafa þau nú búið saman í 45
ár. Alltaf hefur verið gott að koma
til þeirra, fá eitthvað gott að borða
og hlusta á skemmtilegar sögur.
Hafði hann ávallt frá mörgu að
segja, sagði skemmtilega frá og var
fyndinn um leið.
I íslendingasögunum var hann vel
að sér og leitaði ég oft til hans ef ég
þurfti á hjálp að halda með þær
sögur sem ég hef lesið á minni
skólagöngu. Kunni hann allar
sögurnar vel þó langt væri síðan
hann hafði lesið þær og hefði hann
ábyggilega leyst vel af hendi starf
sem kennari í þessum sögum.
Alltaf hefur hann reynst okkur
systkinunum og fjölskyldunni vel í
alla staði, hjálpað okkur í erfiðleik-
um og létt lund okkar með sínu góða
skapi. Þökkum við honum fyrir allar
þær góðu gjafir sem hann hefur gefið
okkur og fyrir ánægjulegar samver-
ustundir.
Guðmundur Heiðar Erlendsson.
„Voðalegt er að sjá til þín strákur;
situr hérna hokinn fram á borðið,
veldur varla skeiðinni og skilur svo
rúsínurnar eftir í grautarskálinni."
Þessi orð Munda frænda verða
mér alltaf minnisstæð frá því ég
dvaldi hjá honum og Ragnheiði eitt
síðasta sumarið sem þau bjuggu á
Melum, unaðsreit þessara hjóna sem
svo skiljanlegt var að þau áttu erfitt
með að flytjast frá í ellinni.
Þessi ummæli Munda voru að
mörgu leyti einkennandi fyrir hann,
þennan hlýja, en blátt áfram húmor-
ista sem gat slegið öll vopn úr hendi
manna með hárfínum athugasemd-
um um tímana tvenna.
Mundi dó snemma í síðustu viku,
næstum kominn á tíræðisaldur.
Hann var samur við sig frá því ég
kynntist honum, fyrst sem barn fyrir
tuttugu árum, allt fram á síðustu ár;
elskur að lífinu og fólkinu sínu sem
hann hreif svo gjarnan með sér í
skemmtilegarsamræður. Ogþargilti
einu hvort viðmælendur voru börn
eða fullorðnir; hann gerði þar engan
greinarmun á, enda hef ég oft dáðst
að því eftir á hvað hann bar mikla
virðingu fyrir þeim yngstu og
smæstu, engu síður en öðrum.
Það er langur vegur milli Mela í
Trékyllisvík, þar sem þeir bræður
Mundi og Sigmundur afi minn höfðu
lengi tvíbýli, og svo Locarno í Sviss
þar sem ég skrifa þessi orð á evr-
ópskri kvikmyndahátíð. Samt leitar
hugurinn heim til Stranda og sam-
verustunda með Munda, nú þegar
ég veit að þær verða ekki fleiri.
Vertu blessaður Mundi minn - ég
veit að systkini mín og foreldrar taka
undir með mér þegar ég þakka þér
þá hlýju og gleði sem þú gafst.
Sigmundur Ernir Rúnarsson
Kristinn Þorsteinsson
fyrrverandi deildarstjóri
Fæddur 6. október 1904.
Dáinn 10. júní 1987.
Kveðja við andlátsfregn.
Dýru er lokið
dagsverki þínu.
Skýlir þér móðir
í skauti sínu.
Minning þín vermir
og mildar klökkvann
Brosir við morgunn
á bak við dökkvann.
Svifin er önd þín
til sviða hærrí,
við söngsins hljóma,
í sóldýrð skærri.
Og tónaflóðið
mun til þín streyma,
er dyrnar opnast
til draumaheima.
Jórunn Olafsdóttir
frá Sörlastöðum.
The University
of Manitoba
Manitóbaháskóli
Prófessorsstaða í íslensku
er laus til umsóknar
Tekið verður á móti umsóknum eða tilnefningum til starfs við
íslenskudeild Manitóbaháskóla og boðið upp á fastráðningu
(tenure) eftir tiltekið reynslutímabil í starfi ef öllum skilyrðum er
þá fullnægt. Staðan verður annaðhvort veitt á stiginu „Associate
Professor" eða „Full Professor“ og hæfur umsækjandi setturfrá
og með 1. júlí 1988. Laun verða í samræmi við námsferil,
vísindastörf og starfsreynslu. Hæfur umsækjandi þarf að hafa
lokið doktorsprófi eða skilað sambærilegum árangri á sviði
íslenskra bókmennta bæði fornra og nýrra.
Góð kunnátta í enskri tungu er nauðsynleg sem og fullkomið
vald á íslensku rit- og talmáli. Kennarareynsla í bæði málfræði
og bókmenntum er mikllvæg og æskilegt að umsækjandi hafi til
að bera nokkra kunnáttu í nútimamálvísindum. Þar sem ís-
lenskudeild er að nokkru leyti fjármögnuð af sérstökum sjóði og
fjárframlögum Vestur-íslendinga, er ráð fyrir því gert að ís-
lenskudeild eigi jafnan drjúga aðild að menningarstarfi þeirra.
Þess er vænst að karlar jafnt sem konur sæki um þetta embætti.
Samkvæmt kanadískum lögum sitja kanadískir þegnar eða þeir
sem hafa atvinnuleyfi í Kanada í fyrirrúmi.
Umsóknir eöa tilnefningar með ítarlegum greinargerö-
um um námsferil, rannsóknir og starfsreynslu, sem og
nöfnum þriggja er veitt geti nánari upplýsingar, berist
fyrir 30. október 1987.
Karen Ogden
Associate Dean of Arts
University of Manitoba
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
byggingardeildar óskar eftir tilboðum í niðurrif
húsa á fyrrverandi lóð Bæjarútgerðar Reykjavíkur,
á horni Meistaravalla og Grandavegar í Reykjavík.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5000 skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn
26. ágúst n.k. kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNllN REYKJAVlKURBORGAR
Frlkirkjuvagi 3 — Simi 2S800
Allt í stofuna
Rodos sófasett 3+1+1, sófaborð + lítið borð og
bókahilla, hár skenkur, borðstofuborð og sex háir
stólar allt sami viður, askur. Er rúmlega 1 árs frá
TM húsgögnum. Vandað og fæst á góðu verði.
Upplýsingar í síma 91-53521, eftir kl. 19.00.
Hey til sölu
Til sölu úrvalshey. Upplýsingar í síma 93-51283.
Heybindivél til sölu
Deutz Fahr heybindivél til sölu.
Upplýsingar í síma 99-4361
Dráttarvél til sölu
Zetor 7011 árg. ’84 til sölu. Notuð tæpar 600
vinnustundir. Vel með farin. Upplýsingar í síma
99-4178
Njóttu ferðarinnarijf
Aktu eins og þú vitt að aðrir aki.
Góðaferð! |ÍXERÐAR