Tíminn - 20.10.1987, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 20. október 1987
Tíminn 5
Brasilíuhjón handtekin í umfangsmesta fíkniefnamisferli frá upphafi:
Tuttugu milljóna króna
virði af kókaíni upptækt
Tuttugu milljóna króna virði af kókaíni, sem lögreglan gerði upp-
tækt í herbergi brasilískra hjóna í Hveragerði á laugardag.
(Tíminn: Pjetur)
„Þótt það sé ef til vill ekki mitt að
dæma um það sýnist mér hér vera á
ferðinni allra alvarlegasta fíkni-
efnamisferli sem upp hefur komið
frá upphafi hér á landi," sagði
Guðjón Steinar Magnússon, deild-
arlögfræðingur lögregluembættis-
ins, í gær um handtöku brasílískra
hjóna á laugardag sem höfðu undir
höndum tæpt hálft kílógram af að
því er virðist mjög hreinu kókaíni.
Fíkniefnalögreglan hafði ásamt
yfirvöldum á hverjum stað fylgst
náið með hjónunum um nokkurt
skeið, en þau komu til landsins
með flugvél frá Lúxemborg hinn 1.
októbersl. og höfðu kókaíniðmeð-
ferðis í farangrinum, að eigin sögn.
Þau eiga lögheimili í Rio de Jan-
eiro, konan er 40 ára gömul og
karlmaðurinn 25 ára. Hjónin voru í
gær úrskurðuð í gæsluvarðhald til
1. desember nk. en máli þeirra
verður hraðað svo sem venja er
þegar útlendingar eiga í hlut. Þessi
langi gæsluvarðhaldsúrskurður
bendir til að málið sé afar umfangs-
mikið og teygi anga sína víða. Eng-
inn íslendingur hefur verið hand-
tekinn vegna málsins enn þá.
Tekin í Hveragerði
{ fyrstu héldu hjónin sig á Stór-
Reykjavíkursvæðinu og starfaði
ávana- og fíkniefnadeild lögregl-
unnar með lögreglunni í Hafnar-
firði, meðan á dvöl þeirra stóð í því
lögsagnarumdæmi. Síðar færðu
þau sig um set til Hveragerðis þar
sem þau tóku á leigu hcrbergi á
gistiheimili. Þar höfðu þau verið í
einn dag þegar fíkniefnadeildin lét
til skarar skríða í samráði við lög-
regluna á Selfossi og handtók
hjónin. í herberginu fundust um
450 grömm af kókaíni, sem lagt var
hald á. Fólkið hafði einnig um 780
þúsund krónur í seðlum í fórum
sínum, mest í dollurum, en nærri
300 þúsund krónur í íslenskum
gjaldmiðli. Lagt var hald á pening-
ana.
fslensku peningarnir renna stoð-
um undir þann grun að hjónunum
hafi tekist að koma einhverju af
kókaíni í verð á höfuð-
borgarsvæðinu, áður en það var
gert upptækt. Um hugsanlega
tengiliði hjónanna hér á landi vildi
lögreglan ekkert tjá sig, enda málið
ekki að fullu upplýst.
Mesta magn frá upphafi
Engar fréttir var að fá um hvort
hjónin hafa tengst misferli af þessu
tagi áður eða verið hér á landi til að
kynna sér aðstæður. Yfirheyrslur
stóðu yfir þeim í gærdag, en Arnar
Jensson hjá fíkniefnadeildinni
sagði það líklegt að þau hafi þekkt
eitthvað til hér landi.
Um er að ræða meira magn af
kókaíni en íslenska lögreglan hefur
lagt hald á alls frá upphafi. Á
hverju ári hefur mest verið gert
upptækt um 28 grömm af kókaíni
frá því það fannst fyrst upp úr 1980.
Áður hefur mest verið gert upp-
tækt 20 gr. af kókaíni í einu og var
það einnig par frá Brasilíu sem
smyglaði því inn í landið. Hjónin
tengjast því pari að öllum líkindum
ekki.
Arnar sagði að enn væri ekki
búið að greina efnið sem tekið var í
Hverageröi og þess vegna ekki
fullvíst um styrkleika þess. Hann
sagði þó margt benda til þess að um
afar hreint kókaín væri að ræöa og
lítið eða ekkert blandað drýginda-
efnum.
Má drýgja í tvö
kílógrömm
Kókaín sem komið er í dreifingu
er að venju drýgt með öðrum efn-
um og þess vegna ekki jafnt hreint
og það kókaín er talið sem gert var
upptækt að þessu sinni. Talið er að
þegar kókaíniö hefur veriö drýgt
fyrir markaðinn megi reikna með
að fáist um 2 kílógrömm af því til
sölu.
Gangverð á grammi af kókafni
er að sögn lögreglu á bilinu 8 til 10
þúsund krónur. í hverju grammi
eru um tíu skammtar, en þörfin
eykst með stöðugri neyslu. Til eru
dæmi um menn sem þurfa á heilu
grammi að halda dag hvcrn. Sölu-
vcrð þcss sem lögrcglan hefur nú
gert upptækt má ætla að sé um 20
milljónir íslcnskra króna.
Á öðrum Norðurlöndum cr
strangt tckið á þeim mönnum scm
fara mcö kókaín. Guðjón Mar-
teinsson sagði að ekki væri til nein
þumalfingursregla livað refsingar
varðar hér, en að tekið væri tillit til
styrklcika og hættu af efninu. Það
væri cnn óalgengt að rckast á kóka-
ín á þessu landi. Enginn vafi væri á
að þctta væri umfangsmesta mál
sinnar tegundar sem á fjörur ís-
lcnsku lögreglunnar hefur rekið og
að rcfsingin verði í samræmi við
það. þj
Hugmyndabanki Ásgeirs Leifssonar:
Vegg- og gólfflísar
frá Bárðardalsbónda
„Þessi vísir minn að hugmynda-
banka er hugsaður á þann veg að
hver sem er getur lagt inn hugmynd-
ir. Þá væri hugmyndin auðkennd
honum, þannig að ef einhver myndi
leita eftir slíkri hugmynd, gæti hann
snúið sér til þess er lagði inn í
bankann í upphafi," sagði Ásgeir
Leifsson, hagverkfræðingur, sem
stundar ráðgjöf fyrir þá sem hefja
vilja iðnað eða framkvæmdir við
smærri og stærri verkefni.
Eitt þeirra verkefna er sements-
flísaframleiðsla Egils Gústafssonar
á Rauðafelli í Bárðardal. Egill er nú
að hyggja að húsnæði fyrir fram-
leiðslu sína og eru vélarnar væntan-
legar til landsins. Þær koma frá
belgíska fyrirtækinu Eurobrevets,
ásamt áætlunum. Dreifingaraðili
þessa nýja fyrirtækis verður Bygg-
ingarvöruverslun Kópavogs,
BYKÓ. Flísarnar verða áþekkar
keramikflísum á veggi og gólf, en til
muna ódýrari og einfaldari í fram-
leiðslu. Áferð og hráefni verður
breytilegt. Framleiðslutæki þau sem
til þarf eru aðeins sérstök hrærivél
og titringsborð þar sem lagt verður í
mótin. Ekki þarf Egill að gera annað
en að fá sér ný mót frá móðurfyrir-
tækinu til að auka við fjölbreytni f
framleiðslu sinni í framtíðinni.
Fjöldi hugmynda í banka
Nú þegar er Ásgeir Leifsson
kominn með á annað hundrað
hugmyndir með grófri útfærslu á
framkvæmda- og dreifingaráætlun.
Lýsti hann þessu á þá leið að hann
hafi í raun hafið söfnun á pökkum
Ásgeir Leifsson hagverkfræðingur.
og getur hann um leið boðið mönn-
um upp á að leita til sín eftir
verkefnum og pökkum er til greina
koma miðað við aðstæður hvers og
eins. Pakkanum lýsir hann á þá
leið að í raun séu í boði upplýsingar
um arðbærar atvinnugreinar eða
framleiðsluverkefni, ásamt allri
þeirri reynslu og framleiðsluþróun
sem væntanlegt móðurfyrirtæki
hefur aflað sér á löngum tíma.
Með því að festa kaup á slíkum
pakka er margt unnið. Byrjunar-
örðugleikar verða í lágmarki og
líkurnar á að útlagður kostnaður
skili sér, eru miklar. Öll vinnu-
brögð verða markvissari og fyrir-
tækið er því líklegra til að gefa af
sér meiri arð en önnur.
Upplýsingar keyptar inn
Einnig er opinn sá möguleiki í
sambandi við bankann að aðilargeta
keypt eitthvað það út úr pakkanum
sem komið getur þeim að gagni.
Sem dæmi um innlendan pakka tók
Ásgeir vel rekið loðdýrabú. Að-
standendur slíkra búa gætu sett á
blöð upplýsingar um rekstrarform
og hagræðingu einstakra framleið-
sluþátta. Þessar upplýsingar gætu
síðan önnur bú, ný eða eldri, notfært
sér eftir þörfum með því að kaupa
út hluta pakkans eða ákveðnar ein-
ingar. Einnig er hægt að hugsa sér
að bændur geti keypt sér ýtarlegar
upplýsingar um stofnun framleiðslu
og dreifingarkerfi slíkra fyrirtækja.
í stærra samhengi getur verið um
að ræða að einstaklingar, bændur
eða aðrir sem áhuga hafa, fari út í
að stofna fyrirtæki af þeirri stærð og
gerð er hæfir aðstæðum þeirra. Slík
fyrirtæki væri auðvelt að velja sér í
banka þessum. Formið á því gæti
verið með þeim hætti að einstakling-
ur eða hlutafélag stofnaði dótturfyr-
irtæki og fengi vélar, upplýsingar og
framleiðsluáætlun í einum pakka frá
móðurfyrirtækinu. Slíkar pakkasöl-
ur eru mikið í gangi um þessar
mundir og eru þær í flestum tilvikum
alþjóðlegar. Dótturfyrirtækin verða
algerlega sjálfstæð í rekstri og eign-
arlegu tilliti. _ KB
Misnotkun í fimm ár?:
Grunur á misnotkun
bónda á dóttur sinni
Fertugur bóndi úr Rangárvalla-
sýslu var nýlega úrskurðaður í
gæsluvarðhald til 28. október
vegna gruns um að hafa misnotað
dóttur sína kynferðislega í fimm
ár. Manninum var einnig gert að
sæta geðrannsókn, en dóttirin er
14 ára gömul og er ein fjögurra
systkina.
Maðurinn, sent grunaður er um
að hafa misnotað stúlkuna nokkuð
rcglulega síðan hún var 9 ára, er
nýorðinn ekkjumaður. -SÓL
Ný bók f rá
Jörgen Pind
Bókin um Macintosh, eftir Jörgen
Pind, er komin á markaðinn. Er
þetta leiðsögubók sem ætlað er að
opna fyrir mönnum möguleika Mac-
intoshtölvanna í máli og myndum.
Segir í formála að vegna útbreið-
slu þessarar gerðar af tölvum, sé
löngu orðið tímabært að út komi
aðgengilegt rit um vélina á íslensku.
Tölvan sjálf sé talin ein sú aðgengil-
egasta á markaðinum um þessar
mundir og ekki taki nema fáeina
klukkutíma að læra nauðsynlegustu
atriði til að geta hafið notkun. Bók-
inni sé hins vegar ætlað að kynna
fyrir notendum hvað sé meira í boði
og hvers vélin sé í raun megnug.
Tekur hún fyrst og fremst mið af
nýjustu útgáfunni, „Macintosh +“
þó að eigendur eldri véla geti einnig
notað hana.
Sérstakir kaflar eru um hvern
þátt, ritvinnslu, reikning og teikn-
ingar, svo eitthvað sé nefnt. Þá er
einnig kafli fyrir þá sem eru lengra
komnir. Ætti þessi bók að geta orðið
til þess að menn hafi mun meiri not
af tölvu sinni og aukið þeim skilning,
líkt og fyrri bók Jörgens Pind, Bókin
um MS-DOS, hefur margfaldað
skilning PC-tölvunotenda. Útgef-
andi beggja bókanna er Mál og
menning. KB
Keflavík:
Tveir kærðir
fyrirnauðgun
Nítján ára gömul stúlka úr
Kcflavík hefur kært tvo starfsmenn
herliðsins á Keflavíkurvelli fyrir
nauðgun. Meint nauðgun á að hafa
átt sér stað í heimahúsi í Keflavík.
Mennirnir tveir voru á föstudag
úrskurðaðir í fjórtán daga gæslu-
varðhald. Báðir neita þeir sökum
sem bornar eru á þá. þj