Tíminn - 20.10.1987, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 20. október 1987
Trúnaðarráð Dagsbrúnar vegna 10% söluskatts á landbúnaðarvörur:
Horfum ekki á
aðgerðalaust
Trúnaðarráð Dagsbrúnar hefur
sent frá sér yfirlýsingu til ríkisstjórn-
arinnar þar sem hún er vöruð við því
að leggja 10% söluskatt á landbún-
aðarvörur.
„Skattur þessi kemur þyngst niður
á tekjulitlum barnafjölskyldum.
Verkalýðshreyfingin mun ekki horfa
aðgerðarlaus á að þeim tekjulægstu
verði íþyngt enn frekar en orðið er,“
stendur í yfirlýsingunni.
Tíminn hafði samband við Þröst
Ólafsson og spurði hann í hverju
þær aðgerðir scm boðaðar væru
yrðu fólgnar, kæmi til skattur á
landbúnaðarvörur.
„Pað er nú kannski ckki hægt að
scgja til um það núna. Aðgerðir geta
t.d. verið tilraunir til þess að gera
samninga og það er hægt að hugsa
sér svo margar leiðir en ég held að
það sé engin ástæða til að gera því
skóna núna. Við vonumst til þess að
fá leiðréttingu fyrir þá sem fengu
lítið út úr góðærinu og lentu illa á
milli misgengis launa og verðlags.
Við leggjum höfuðáherslu á að fá
leiðréttingu fyrir þetta fólk sem
hefur lent á milli stafs og hurðar en
við vonum að hún fáist mcð samn-
ingum. Við höfum látið þá ósk í ljós
að fallið verði frá þessari hækkun
eða eins og stendur í samþykkt
Dagsbrúnar, að eitthvað annað komi
í staðinn fyrir það fólk sem verst
hefur kjörin.
En ef við fáum ekki lausn fyrir
þetta fólk, hljótum við náttúrlega að
grípa til ráðstafana og þeirra að-
gerða sem verkalýðshreyfingin hefur
þó ennþá. Verkfall er alltaf síðasta
aðgerðin.
Við væntum þess að fá um þetta
mál viðræður og það verður þá að
sýna sig hver niðurstaðan úr þeim
verður. Jón Baldvin Hannibalsson
fjármálaráðherra boðaði viðræður
við okkur um þessi mál á Alþingi í
fyrrakvöld. Ég efast um að þessar
viðræður hafi verið boðaðar til okkar
enn sem komið er, a.m.k. hef ég
ekki orðið var við það, en við ræðum
við manninn, það er alveg Ijóst."
ABS
Ferskfisksölur erlendis:
Gott verð í
Þýskalandi
Vigri RE landaði 203.538 kíló-
um í síðustu viku í Bremerhaven
og fékk fyrir aflann 12.141.906
krónur. Meðalverð var 59,65
krónur. Meginhluti aflans var karfi
og var meðalverð hans 59,31 króna
og hefur hækkað um rúmar 10
krónur á einni viku. Meðalverð
ufsans var 56,01 króna, sem er tæp-
um 16 krónum hærra en í vikunni á
undan, meðalverð ýsunnar var
79,26, 44 krónum hærra en í vik-
unni á undan og þorskverðið var
73,85, eða rúmum 10 krónum
hærra en í síðustu viku.
Ástæðurnar fyrir þessum miklu
hækkunum eru a.m.k. þrjár. í
fyrsta lagi er hægt að útskýra gott
ýsu- og þorskverð með því að
benda á að samtals sala á fiskteg-
undunum tveimur rétt náði tonni,
eða lítið framboð og mikil eftir-
spurn leiða alltaf af sér hátt verð.
Áuk þess eru fleiri og fleiri farnir
að kaupa fisk aftur og í þriðja lagi
hefur lítið en stöðugt framboð af ís-
lenskum fiski haft þau áhrif að
verði er haldið stöðugu og á upp-
leið.
Ekkert skip seldi afla sinn í
Bretlandi í síðustu viku, sem er
óvenjulegt. Hins vegar voru seld
777.621 kíló af fiski í gámum í
Bretlandi. Meginuppistaðan var
þorskur, ýsa og koli og var heildar-
söluverð fisksins 61.547.794
krónur. Meðalverð þorsksins var
82,77 krónur, ýsunnar 77 krónur og
ufsa 40 krónur. -SÓL
I afmælis-
veislu hjá
Kaupþingi
Kaupþing hf. varð 5 ára sl. fimmtu-
dag, en það var stofnað 18. október
1982. Til þess að samfagna sér á þess-
um tímamótum ákváðu Kaupþings-
menn að bjóða til sín öllum jafnöldr-
um sínum, en sex börn á landinu áttu
þennan fimm ára afmælisdag sam-
eiginlegan með Kaupþingi. Myndin
sýnir þá gesti sem héldu upp á afmæl-
ið með Kaupþingi. F.v. Fannar f>ór
Guðmundsson úr Reykjavík, Ásta
Kristín Benediktsdóttir úr Reykja-
hlíð, Styrmir Gunnarsson úr Hafnar-
firði, Ásgeir Jóhannsson frá Blöndu-
ósi, Hlynur Freyr Sigurhansson úr
Hafnarfirði, Páll Pórannn Björns-
son frá Borgarnesi. Tímamynd Brein
Öryrkjar þurfa sjálfir aö sjá um niðurfellingu
gjaldsins:
ÞUNGASKATTUR
FÓLKSBÍLA
A LEIÐINNI
lnnheimtuseðlar vegna bifreiða-
gjalds á fólksbíla hafa nú verið
sendir skráðum eigendum bifreiða
og skulu þeir greiða gjaldið fyrir 30.
nóvember því þá er eindagi. Ekki er
tekið tillit til þess, þótt skráningar-
númer bifreiða hafi verið lögð inn í
Bifreiðaeftirlitið en þeir bílar sem
afskráðir verða ónýtir fyrir 1. nóv-
ember sleppa við gjaldið.
Gjaldið er 2 krónur á hvert kg af
eigin þyngd bifreiða vegna hvers
gjaldtímabils en þau cru tvö á ári.
Gjaldið getur ekki orðið hærra en
5000 krónur á bíl en ekki heldur
lægra en 1000 krónur.
Gjald þetta er lagt á samkvæmt
ákvæðum bráðabirgðalaga um ráð-
stafanir í ríkisfjármálum sem sett
voru í júlí sl. Ekki verður innheimt
gjald af bifreiðum í eigu öryrkja. Þar
sem Bifreiðaeftirlitið gat ekki greint
bifreiðir öryrkja frá öðrum bifreið-
um fá allir öryrkjar innheimtuseðil.
Hins vegar ntunu allir innheimtu-
menn ríkissjóðs fá á næstunni ská
yfir örorkulífeyris- og örorkubóta-
þega í viðkomandi umdæmi ásamt
fyrirmælum um að falla frá inn-
heimtu bifreiðagjalds. Öryrkjum og
ellilífeyrisþegum er því bent á að
snúa sér til næsta innheimtumanns
og fá kröfuna fellda niður eða fá
endurgreiðslu hafi þeir þegar greitt
gjaldið án þess að vita um rétt sinn.
Jafnframt er fjármálaráðuneytið í
samræmi við heilbrigðis-og trygg-
ingamálaráðuneytið að kanna mögu-
leika á hækkun bifreiðakaupastyrks
til öryrkja skv. reglugerð nr. 170/
1987 í tilefni af nýlegri hækkun
aðflutningsgj alda af bifreiðum.
ABS
__ S.R. kaupir ekki loðnumjöl frá Færeyjum:
Fyrirframsalan
stórt vandamál
„Pað er alltaf verið að spyrja mig
um þessi kaup frá Færeyjum, en ég
hef ekki talað við neinn af þessum
Færeyingum í marga mánuði. Eg
heyrði á götunni að þetta gæti verið
fyrirtæki í laxfóðursframleiðslu, sem
væri að ná sér í mjöl í það,“ sagði
Jón Reynir Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Síldarverksmiðja
ríkisins í samtali viðTímann, en þær
sögur hafa gengið manna á milli, að
verksmiðjurnar væru í samningavið-
ræðum við færeyska aðila um kaup
á þarlendu loðnumjöli.
„Annars verðum við að standa við
samningana, því það getur orðið
dýrt ef við stöndum ekki við þá. Það
er búið að selja frá landinu um
30.000 tonn af mjöli fyrir áramót, en
þetta er afhendingartími sem er
vandamálið, en okkur hefur tekist
að þoka honum fram á við. Við
erum með óvenjulítið af samningum
í ár miðað við það sem áður hefur
verið og það auðveldar málið“ sagði
Jón Reynir.
Útlitið er allt annað en gott. Það
sem af er hafa aðeins 16.040 tonn af
loðnu komið á land. Bræla hefur
verið á miðunum undanfarna daga
og nær allir bátarnir eru komnir til
lands. Hrafn og Örn sneru við á leið
á miðin, Guðrún Þorkelsdóttir er í
Nú stendur yfir Amnestyvika
1987 og ber hún yfirskriftina
„Langvarandi fangavist". Þessa
viku munu samtökin beina athygli
heimsins að föngum sem dvelja
árum saman innilokaðir, föngum
sem haldið er án dóms og laga og
án þess að þeir hafi hugmynd um
hvort þeir muni nokkurn tímann
öðlast frelsi á ný.
Amnesty International var
stofnað árið 1961 til þess að hjálpa
slíkum föngum. Tuttugu og fimm
árum síðar er vandinn enn til
höfn á ísafirði og á við vélarbilun að
stríða, Víkurbergið og Rauðsey
liggja í höfn á Bolungarvík og þannig
mætti telja áfram. -SÓL
staðar, ranglát lög og fyrirmæli
stjórnvalda, leynd, einangrun og
sýndarréttarhöld leiða til þess að
menn sitja árum saman í haldi, í
mörgum tilfellum án þess að hafa
nokkuð til saka unnið.
Amnesty vikan var formlega
opnuð á sunnudaginn með dagskrá
í Norræna húsinu. Þar var m.a.
frumflutt á íslandi, tónverk eftir
Atla Heimi Sveinsson, Novelette.
Sérstakur gestur var fyrrverandi
samviskufangi Amnesty Internat-
ional, Rússinn Boris Weil.
Amnestv vika 1987:
LANGVARANDI
FANGAVIST