Tíminn - 20.10.1987, Page 7

Tíminn - 20.10.1987, Page 7
Þriðjudagur 20. október 1987 Tíminn 7 Ólafur Ragnar nú með aðra höndina á formannsstólnum. styrkist mjög Eftir kosningu 100 fulltrúa á landsfund Alþýðubandalagsins hjá félaginu í Reykjavík, stefnir allt í að Ólafur Ragnar Grímsson verði næsti formaður Alþýðubandalagsins. Af þeim 91 manns iista sem stuðn- ingsmenn Ólafs Ragnars dreifðu meðal fundarmanna á föstudaginn náðu 90 kjöri, en 4 féllu þó á kynjakvóta. Ef að líkum lætur hefur þessi niðurstaða orðið til þess að Akureyringurinn Sigríður Stefáns- dóttir á nú enga möguleika í for- mannssætið. Yfirlýsingar um óheið- arlegar báráttuaðferðir ganga nú á milli forystumanna flokksins og allt bendir til að landsfundurinn verði með meira grjótkasti en Flóabardagi forðum. Ekki gekk þrautalaust að telja atkvæðin af þessum fjölmennesta fundi í Alþýðubandalagsfélaginu í Reykjavík, því hartnær sólarhring tók talningin eða öllu lengur en gerist í þingkosningum. Niðurstöð- urnar hristu heldur betur upp í félaginu. Núverandi formaður flokksins, Svavar Gestsson er flengdur í kosn- ingunni og fær aðeins 253 atkvæði, sem er 99 atkvæðum minna en leikkonan Bríet Héðinsdóttir fær í fyrsta sætið. Svavar er því fulltrúi Reykjavíkur númer 44 á landsþing- inu. Enn meiri hirtingu fær Ásmund- ur Stefánsson forseti ASÍ, sem í atkvæðagreiðslunni varð nítugasti og sjötti, en verður að bíta í það súra epli að detta í varafulltrúahópinn vegna ákvæða um kynjaskiptingu landsfundarfulltrúa. Þeir verkalýðs- frömuðir, sem fengu kosningu eru Grétar Þorsteinsson, Þröstur Ólafs- son, GuðmundurÞ. Jónsson, Erling- ur Viggósson, Ragna Ólafsdóttir, Haraldur Steinþórsson, Guðjón Jónsson og Einar Ögmundsson. Þannig að 8 stórnöfn verkalýðshreyf- ingarinnar er að finna í 100 manna hóp, sem Reykjavík sendir á lands- fund þess flokks, sem gjarnan telur sig hinn eina sanna "verkalýðsflokk" í landinu. Svo vel gekk dæmið upp að Svavar Gestsson og Þorbjörn Broddason eru þeir einu af útstrikuðu aðilunt á lista Ólafsarmsins, sem ná hreinni kosningu. Nokkrar konur úr flokks- eigendaarminum komust síðan upp á kynjakvótanum, þó þær slátruðu að vísu mönnunt eins og Ásntundi Stefánssyni, Sigurjóni Péturssyni og Árna Bergmann í leiðinni. Þá telja kunnugir að Ólafur hafi ástæðu til að fagna niðurstöðum fulltrúakjörs á Neskaupstað þar sem hann er sagður njóta stuðnings 6 af 14 fulltrúum. Eflaust er það súrt hlutskipti fyrir Hjörleif Guttorms- son og flokkseigendafélagið að þurfa að kyngja þessum árangri Ólafs í höfuðvígi Alþýðubandalagsins og sósíalismans á Islandi. ÞÆO Kjör fulltrúa á landsfund: Ólafsarmurinn í ÓLAFSVÍK Það var Jón L. Árnason sem stóð upp sigurvegari á alþjóðaskákmót- inu í Ólafsvík sem iauk á föstudags- kvöld. Hann vann síðustu skák sína gegn Peter Haugli á meðan Ingvar Ásmundsson gerði jafntefli við helsta andstæðing Jóns, Henrik Danielsen frá Danmörku. Lokastaðan í mótinu varð sú að Jón L. varð efstur með 7 1/2 vinning og Henrik Danielsen í Öðru sæti með 7 vinninga. í þriðja til fjórða sæti urðu þeir Björgvin Jónsson og Lars Schandorf með 6 1/2 vinning. Það var einmitt glæsilegur árangur Björgvins sem mesta athygli vakti á mótinu, en því miður náði hann ekki áfanga að alþjóðlegum meistaratitli þar sem hann náði ekki að halda dampi í síðustu skákunum. I fimmta til sjötta sæti urðu þeir Þröstur Þórhallsson og Karl Þorsteins með 6 vinninga, í sjöunda sæti Ingvar Ás- mundsson með 5 vinninga, áttunda til tíunda sæti skipuðu þeir Robert Bator, Sævar Bjarnason og Tómas- son nteð 4 1/2 vinning og lestina ráku þeir Dan Hansson og Peter Haugli með 4 vinninga. -HM Kvótakerfið: Skiptar skoðanir um kvótaskiptingu „Ég held nú að það sé erfitt að lýsa hversu alvarlegt þetta er, en það liggur fyrir að hingað til hafa komið fram nokkuð skiptar skoðanir um kvótaskiptinguna," sagði Árni Kol- beinsson, ráðuneytisstjóri hjá Sjáv- arútvegsráðuneytinu í samtali við Tímann, en nokkur ágreiningur hef- ur verið innan ráðgjafanefndar um fiskveiðistefnu um skiptingu kvótans og vill fulltrúi verkamannasam- bandsins láta athuga möguleikana á skiptingu kvótans til helminga milli fiskvinnslunnar og útgerðarinnar. Ennfremur hefur stjórn Sölumið- stöðvar hraðfrystihúsanna lagt fram tillögu þar sem bent er á að ójafn- vægi hafi skapast milli vciða og vinnslu og taka verði fullt tillit til hagsmuna fiskvinnslu og fiskvinnslu- fólks ekki síður en útgerðar og sjómanna. „Menn hafa nú ekki ncfnt neina sérstaka prósentu í þessu sambandi. en þeir eru ekki nteö mjög ítarlegar tillögur um hvernig framkvæma eigi þetta atriði. Ég hef alla vega ekki séð ncina tillögu í smáatriðum um þetta," sagði Árni. Á fundi nefndarinnar á morgun vcrður væntanlega rætt nánar um þctta mál, hvernig framkvæma eigi þessa skiptingu og hvenær. Nánari upplýsingar um málið ættu því að liggja fyrir í vikunni. -SÓL FERÐA- TRÓLL í HÁGÆDA- FL0KKI Margt var að skoða á góðri jeppasýningu Ferðaklúbbsins 4x4 í Reiðhöllinni um helgina. Fyrir utan jeppana sjálfa og fylgihluti, var einnig hægt að sjá ljósmyndir og myndbönd úr leiðangrum auk litskyggnumynda af góðu tagi. Eig- endur bílanna og starfsmenn sýn- ingarinnar voru hinir liprustu og létt var yfir mannskapnum. Töldu aðstandendur sýningarinnar um 9000 manns hafa komið. Ungir sem aldnir gátu fengið að taka f smærri gerðir af torfærutröllum á sérstökum akstursbrautum, en fæstir létu þá útrás nægja. Margt var um nýjungar og verður frekar greint frá því í bílablaði Tímans í vikunni. KB Ekki þurfti síður að huga að frá- gangi millikassans, en kitlandi upp- hækkunum og alþjóðlegum út- færslum í anda íslenskra heiða og jökla. Tímamynd Pjetur Iðnþing íslendinga á Akureyri: NÝ TÆKNI í IÐNAÐI - AUKIN FRAMLEIÐNI Landssamband iðnaðarmanna heldur 42. Iðnþing íslendinga á Ak- ureyri, dagana 22.-24. október nk. Er það í fyrsta sinn sem þingið er haldið utan höfuðborgarsvæðisins í 10 ár. Þingfulltrúar eru tæplega 200 frá 46 aðildarfélögum Landssam- bandsins og fleiri aðilum. Auk þess verður sérstök dagskrá fyrir maka þingfulltrúa, og er því gert ráð fyrir á þriðja hundrað manns á Iðnþing- inu á Akureyri í næstu viku. Þingið hefst með setningu forseta Landssambandsins, Haraldar Sumarliðasonar og ávarpi mennta- málaráðherra, Birgis ísleifs Gunn- arssonar. Þá verður hádegisverðar- fundur í boði bæjarstjórnar Akur- eyrar og mun þá Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar flytja erindi um tengsl nýrrar tækni og byggðaþróunar. Á þinginu verður að venju fjallað um starfsemi Landssambands iðnað- armanna og stefnu í iðnaðar- og atvinnumálum. Föstudagurinn er skipulagður sem sjálfstæð ráðstefna, þar sem umræðuefnið verður „Ný tækni í iðnaði - aukin framleiðni". Frummælendur verða ýmsir sér- fræðingar á þessu sviði, bæði frá tækni- og þjónustustofnunum iðnað- arins og eins forráðamenn fyrirtækja innan Landssambandsins. Þinginu lýkur síðan á laugardag með afgreiðslu ályktana og annarra þingmála ásamt kosningu forseta og varaforseta. Þá verður einnig lýst tilnefningum í stjórn. -SOL

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.