Tíminn - 24.11.1987, Side 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 24. nóvember 1987
Hallgrímskirkjuturn endurbættur:
Pallasmiðir fá
heilt misseri
til aðlögunar
Turnspíran á Hallgrímskirkju er ekki ónýt vegna alkalískemmda.
Verið er að kanna ástand turnsins og er Ijóst að kollarnir á stuðlum
turnsins eru nokkuð frostsprungnir í toppinn. Strax á næsta vori verða
reistir verkpallar út frá 45 m hæð útsýnispallsins og upp í topp og er
í ráði að bjóða verkið iljótlega út til að væntanlegum verktaka vinnist
tími til að venja mannskapinn við loftfimleikana sem fylgja þessum
vinnuskilyrðum.
„Ég hef beðið vcrkfræðistofu
okkar, það er Sigurðar Thoroddsen.
um að ganga frá faglcgri umsögn um
ástandið, þannig að allt of margir
verði ekki of leiðir yfir því að turninn
sé ónýtur," sagði Hermann Þor-
steinsson, formaður bygginganefnd-
ar Hallgrímskirkju, og bar aftur þær
fréttir Stöðvar tvö, að turninn væri
ónýtur af alkalískemdum.
Til skýringar sagði hann að ekki
hefði verið notað venjulegt íslenskt
sement í steypuna nema að litlu
leyti. Vegna þess að unnið var við
bygginguna allt árið, varð það úr á
sínum tíma að flutt var inn danskt
fljótharðnandi sement til að forðast
frostskemmdir eins og kostur var.
Þannig eru það ekki alkalískemmdir
sem hrjá kirkjuvini, heldur miklu
frekar frostskemmdir.
Sagði Hermann að skemmdir
þessar hafi verið í skoðun hjá verk-
fræðingum kirkjunnar undanfarin
misseri og að ráðist verði í endurbæt-:
ur strax á næsta vori. Þá verða reistir
verkpallar út frá útsýnissvölunum,
eða í 45 m hæð frá jörðu. Bjóst hann
við að leitað yrði til Palla hf. í Kópa-
vogi, eins og gert var vegna kórþaks-
ins, eða hliðstæðs fyrirtækis, sem
boðið gæti einsörugga álpalla. Verk-
fræðistofan er nú að hanna uppsetn-
ingu pallanna og er það út af fyrir sig
mikið ævintýri. Plankar miklir verða
lagðir út í loftið frá útsýnispallinum
og verða þeir að halla inn að turnin-
um. Á þessum plönkum verða síðan
reistir pallar utan um turnspíruna
sem ná eiga upp í topp.
Brjóta verður ofan af hverjum
stuðlakolli og múra það með nýju
efni, sem lokar vatni leið ofan í
steypuna. Þetta efni verður með
teygjanlega eiginleika og til þess gert
að þola miklar hitasveiflur. KB
Turn Hallgrimskirkju breytir um svip á næsta vori. Út um útsýnisgötin fyrir
ofan klukkuna verða lagðir plankar og á þeim grundvallast vinnupallarnir.
Hver leggur í viðgerðirnar? Tímamynd gva
Síldarsöltun:
Rússakvóti
að klárast
Nú er lokið að salta í 228.f00
tunnur af saltsíld. Þar af eru 153.000
tunnur sem fara í samninginn við
Sovétmenn. Aðeins á því eftir að
salta í 16.000 tunnur til að Ijúka við
þann samning. Þessar 19.000 tunnur
sem koma ofan á 150.000 tunnurnar
cru vegna þess að í Suðurlandinu,
sem sökk eins og kunnugt er, var
samsvarandi magn sem fara átti til
Sovétríkjanna.
Frestur sá sem Rússar höfðu til að
staðfesta kaup á 50.000 tunnum af
saltsíld til viðbótar rann út um
miðjan mánuðin, en þrátt fyrir að
þeir hafi enn ekki staðfest nein
frekari kaup, hefur ekki verið lokað
á þau. Samninganefnd er nú stödd í
Sovétríkjunum til að reyna að semja
um önnur viðskipti landanna, en
Síldarútvegsnefnd bað nefndina fyr-
irþaðerindiaðminnast á þessi kaup.
Sovrybflot, sovéska fyrirtækið sem
kaupir saltsíldina, hefur átt í erfið-
leikum með að fjármagna kaupin,
en ekkert hefur komið fram sem
bendir til þess að um frekari kaup
verði að ræða. -SÓLj
Utanríkisviöskipti:
Norrænir
ráðherrar
funda hér
á landi
Á morgun fer fram í Reykjavík
óformlegur fundur norrænna ráð-
herra sem fara með utanríkisvið-
skipti landa sinna. Ráðherrarnir
komu til landsins í gær og sátu
kvöldverðarboð Steingríms Her-
mannssonar utanríkisráðherra í
gærkvöld.
Þeir ráðherrar, sem taka þátt í
fundinum eru Nils Wilhjelm iðn-
aðarráðherra Danmerkur, Anita
Gradin utanríkisviðskiptaráð-
herra Svíþjóðar. Pertti Salo-
lainen utanríkisráðherra
Finnlands, Karin Stoltenberg
staðgengill Kurts Mosbakk við-
skiptaráðherra Noregs og Stein-
grímur Hermannsson utanríkis-
ráðherra, sem stýrir fundinum.
Finnur
tekur sæti
a þingi
Finnur Ingólfsson varaþingmað-
ur Framsóknarflokksins í Reykja-
vík tók sæti á Alþingi í fyrsta sinn
í gær. Finnurtekursæti Guðmund-
ar G. Þórarinssonar sem nú er erl-
endis. Finnur er 33 ára að aldri.
Hann var aðstoðarmaður Halldórs
Ásgrímssonar sjávarútvegsráð-
herra síðastliðið kjörtímabil og er
nú aðstoðarmaður Guðmundar
Bjarnasonar heilbrigðis- og trygg-
ingaráðherra.
Finnur Ingólfsson.
Skák:
Þröstur alþjóð-
legur meistari
Þröstur Þórhallsson náði alþjóð-
legum meistaratitli á alþjóðaskák-
mótinu á Suðurnesjum sem Iauk á
föstudagskvöld. Hannes HlífarStef-
ánsson hafði náð fyrsta áfanga að al-
þjóðlegum meistaratitli fyrir síðustu
umferð og Björgvin Jónsson náði
einnig fyrsta áfanga í lokaumferð
mótsins.
Það var David Norwood sem sigr-
aði á mótinu, hlaut 8 vinninga af 11
mögulegum. Hannes Hlífar og Helgi
Ólafsson deildu bróðurlega með sér
2.-3.sæti mótsins, en þeir hlutu 7 'h
vinning. Þá komu þeir Þröstur og
Björgvin með 7 vinninga, en það var
einmitt sá vinningafjöldi sem þeir
þurftu til að ná áfanga að alþjóðleg-
um meistaratitli.
I síðustu umferðinni átti Þröstur í
höggi við Helga Ólafsson og hafði
Þröstur svart. Þröstur fékk ágæta
byrjun og bauð Helga jafntefli eftir
11 leiki, en Helgi varekki áþví, enda
átti hann möguleika á efsta sæti
mótsins. Helgi sá sér þó ekki annað
vænna en að bjóða Þresti jafntefli
eftir 16 leiki þegar Þröstur var að ná
undirtökunum.
Björgvin lék hins vegar við
Guðmund Sigurjónsson og stýrði
Björgvin hvítu mönnnum. Það fór á
líkan veg og hjá Þresti. Björgvin
bauð jafntefli eftir 12 leiki, en Guð-
mundur þáði það ekki. Guðmundur
bauð hins vegar upp á jafntefli eftir
19 leiki.
Þessi glæsilegi árangur þre-
menninganna lofar góðu um framtíð-
ina. Þröstur er 18 ára nú þegar hann
nær alþjóðlegum meistaratitli,
Hannes Hlífar er aðeins 15 ára þegar
hann nær sínurn fyrsta áfanga og
eflaust ekki langt að bíða þess að
hann kræki sér í annan áfanga.
Björgvin er 23 ára og tókst nú að
krækja sér í áfanga sem hann náði
ekki á mótinu í Ólafsvík þrátt fyrir
góða byrjun þar. -HM
Metsala á eggjum
„Sala á eggjum virðist litlum
breytingum hafa tekið við verðbreyt-
inguna, þó líklega heldur aukist ef
eitthvað er. Ég var t.d. með metaf-
greiðslu í síðustu viku. Þá voru að
vísu allar verslanir eggjalausar, en
það lítur einnig út fyrir að ég þurfi
að afhenda annað eins í þessari viku.
Þetta virðist því allt í góðu lagi,“
sagði Einar Eiríksson í Miklaholts-
helli, spurður hvaða áhrif þreföldun
á útsöluverði eggja fyrir rúmri viku
hafi haft.
Eggjabændur hafa tilkynnt Verð-
lagsstofnun að þeir falli frá að hafa
samráð um verð á eggjum, en jafn-
framt sóttu þeir um undanþágu frá
verðlagslögunum, þannig að þeim
yrði ekki bannað að koma sér saman
urn verð.
„Þetta þýðir að við megum ekki
lengur tala saman um verðið okkar
á milli," svaraði Einar spurður um
þýðingu þeirrar ákvörðunar. 1 raun
taldi hann að þetta muni þó ekki
hafa nein afgerandi áhrif á verðið, á
næstunni a.m.k. og ekki verða til
þess að menn færu aftur í kapp að
bjóða hver annan niður í verði.
Kannski gæti munað 1-2 krónum
sem einn seldi dýrara eða ódýrara en
annar. Hvað varðar undanþáguna
sagði Einar í lögunum um bann við
samkeppnishömlum heimild til að
sækja um undanþágur í vissum til-
vikum. - HEI