Tíminn - 24.11.1987, Page 4

Tíminn - 24.11.1987, Page 4
4 Tíminn Tilkynning til eigenda búfjármarka Vegna útgáfu markaskráa árið 1988, skv. lögum nr. 6/1986 um afréttamál, fjallskil o.fl. og reglugerð nr. 224/1987, og tölvuskráningar á mörkum hjá Búnaðarfélaginu, beina markanefnd og Búnaðar- félag íslands þeim tilmælum til allra eigenda búfjármarka (annarra en frostmerkinga), að þeir tilkynni viðkomandi markaverði mörk sín til birting- ar í markaskrá sýslunnar, eigi síðar en 10. janúar 1988. Markanefnd, Búnaðarfélag íslands. Skógræktarfélag íslands Staða framkvæmdastjóra félagsins er laus til umsóknar. Háskólapróf í skógrækt er áskilið. Laun skv. kjarasamningi Félags íslenskra náttúru- fræðinga. Umsóknarfrestur er til 20. desember 1987. Frekari upplýsingar gefnar á skrifstofu félagsins, s. 91-18150. Rannsóknaaðstaða við Atóm- vísindastofnun Norðurlanda (nordita) Við Atómvísindaslofnun Norðurlanda (NORDITA) í Kaupmanna- höfn kann að verða völ á rannsóknaaðstöðu fyrir íslenskan eðlisfræð- ing á næsta hausti. Rannsóknaaðstöðu fylgir styrkur til eins árs dvalar við stofnunina. Auk fræðilegra atómvísinda er við stofnunina unnt að leggja stund á stjarneðlisfræði og eðlisfræði fastra efna. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi í fræðilegri eðlisfræði og skal staðfest afrit prófskírteina fylgja umsókn ásamt ítarlegri greinar- gerð um menntun, vísindaleg störf og ritsmíðar. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást í menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík. Umsóknir skulu sendar í tvíriti til NORDITA, Blegdamsvej 17, DK-2100 Köbenhavn Ö, Danmark, fyrir 12. desem- ber n.k. Auk þess skulu 2-3 meðmælabréf send beint til Nordita. Menntamálaráðuneytið, 20. nóvember 1987. Oska eftir traktor með ámoksturstækjum t.d. B414 eða B275 Inter- national eða B276, 434 NAL eða aðrar tegundir t.d. Ferguson. Þarf að vera húslaus eða með húsi sem hægt er að taka af. Upplýsingar gefur Þórarinn í síma 91 -666179 milli kl. 18 og 19. f VÉIAR& íWÓNUSTAHF Járnhálsi 2. Sími 673225 -110 Rvk Pósthólf 10180 BÍLALEIGA Útibú í krmgum landið REYKJAVIK:... 91-31815 686915 AKUREYRI:..... 96-21715 23515 BORGARNES: ...... 93-7618 BLONDUOS:...... 95-4350/4568 SAUÐARKROKUR: . 95-5913/5969 SIGLUFJORÐUR: ..... 96-71489 HUSAVIK: ..... 96-41940 41594 EGILSSTAÐIR: .... 97-1550 VOPNAFJORÐUR: . 97-3145/3121 FASKRUÐSFJORÐUR: . 97-5366 5166 HOFN HORNAFIRÐI: . 97-8303 interRent Þriðjudagur 24. nóvember 1987 Séð á íslenska básinn á Fish Expo sýningunni í Bandaríkjunum, en básinn vakti mikla athygli fyrir frumlega hönnun. Fish Expo sýningin í Bandaríkjunum: fSLENSKUR BÁS VAKTIATHYGLI Fyrir stuttu var haldin í Banda- ríkjunum sýningin Fish Expo og var hún sú stærsta sinnar tegundar í ár. Yfir 25.000 manns heimsóttu sýning- una og er það metaðsókn, en sjávar- útvegur er í miklum uppgangi á vesturströnd Bandaríkjanna. Níu íslensk fyrirtæki tóku þátt í sýningunni, en það voru Plastein- angrun hf., Sæplast hf, Vélsmiðjan Oddi hf., Sjóklæðagerðin hf. og Skipasmíðastöðin Hörður hf., en saman mynda þessi fimm fyrirtæki einn útflutningshóp á vegum Út- flutningsráðs, Marel hf., Traust hf, Sjóvélar hf. og Rafagnatækni hf. íslenski sýningarbásinn vakti mikla athygli. Hann var byggður úr stillansaefni úr stáli og gnæfði yfir sýningarsalinn. Básinn varhannaður af Steinari Sigurðssyni arkitekt í Seattle og er ekki að efa að frumleg hönnun bássins hafi dregið athygli að vörum íslensku aðilanna. Fyrirtækin fengu öll mörg tilboð og sum þeirra seldu vörur þær sem þeir buðu upp á á sýningunni,- SÓL Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi Framsóknarflokksins: Áætlun gerð um upphitun gatna Sigrún Magnúsdóttir borgarfull- trúi Framsóknarflokksins lagði það til á fundi borgarstjórnar á fimmtu- dagskvöld að gatnamálastjóra yrði falið að gera áætlun um í hvaða götur og gangstéttir æskilegt væri að koma fyrir hitalögnum miðað við gatnakerfi borgarinnar í dag. Einnig að gatnamálastjóra verði falið að athuga og hanna hitalagnir í brattar götur við skipulagningu nýrra hverfa. Þessi tillaga Sigrúnar kom í kjölfar svars gatnamálastjóra við fyrirspurn Sigrúnar í borgarráði um hvað hefði verið gert í hálkuvörnum samhliða áróðri gegn notkun nagladekkja. í skýrslu gatnamálastjóra kom fram að aukin hálkueyðing hefur nær eingöngu falist í auknum saltaustri, en ekki í upphitun gatna og gang- stétta, nema þá í gamla bænum. í skýrslunni kom einnig fram að í nýjum hverfum sé erfiðleikum bund- ið að nota heitt afrennslisvatn til gatnaupphitunar og að ekki sé í dag til heitt umframvatn til upphitunar gatna. Hins vegar segir gatnamála- stjóri að þegar Nesjavallavirkjun væri komin í gagnið yrði nóg vatn til upphitunar. í máli Sigrúnar kom fram að hún telji nauðsynlegt að undirbúa upp- hitun gatna í nýjum hverfum með því að leggja hitalagnir í þær götur sem lagðar verða í framtíðinni þann- að tillögu Sigrúnar yrði vísað til ig að hægt sé að hita þær upp þegar borgarráðs til nánari athugunar og Nesjavallavirkjun kemst í gagnið. var það samþykkt. Davíð Oddsson borgarstjóri lagði til _ HM Nýtt bakarí í Kópavogi Nýtt bakarí hefur verið opnað í Snælandi. að Furugrund í Kópavogi. Um er að ræða útibú frá bakaríinu Gullkorninu, sem bætist við þjónustumiðstöðvarkjarnann sem þarna er. Fyrir var í Snælandi söluturn. ísbúð og vídeoleiga.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.