Tíminn - 24.11.1987, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 24. nóvember 1987
Bæjarfógetar og sýslumenn:
Telja kjördæmagjaldheimtur
fráleita hugmynd og dýra
Sýslumenn og bæjarfógetar telja
hugmyndir um stofnun sérstakra
gjaldheimtna í öllum kjördæmum
landsins vera fráleitar, og eingöngu
til þess fallnar að skerða þjónustu
við almenning og auka á kostnað
ríkis og sveitarfélaga við innheimtu
opinberra gjalda. Þeir benda m.a.
á að embætti innheimtumanna
ríkissjóðs séu vel í stakk búin til að
bæta innheimtu sveitarfélaga við
innheimtu ríkissjóðs án þess að
það hafi í för með sér kostnaðar-
auka svo nokkru nemi.
Um þetta mál var fjallað og
afstaða tekin á aðalfundi Sýslu-
mannafélags íslands sem nýlega
haldinn í Reykjavík og beinir
stjórn félagsins þcssari samþykkt
til fjármálaráðherra og annarra
sem þetta mál varðar. Bent er á að
innheimta allra ríkissjóðstekna
hafi verið mjög umfangsmikill þátt-
ur í starfi embætta sýslumanna og
bæjarfógeta. Hjá þessum embætt-
um séu því allir hlutir til staðar til
að annast áfram þessa innheimtu,
þótt eðlilegt væri að tryggja jafn-
framt sveitarfélögum íhlutunarrétt
um og eftirlit með innheimtunni.
Fyrirhugaður aðskilnaður fram-
kvæmdavalds og dómsvalds hjá
embættum sýslumanna og bæjar-
fógeta var annað aðalumræðuefni
sýslumannafundarins. Miklar um-
ræður urðu um málið, enda telja
fógetar og sýslumenn að það mundi
valda mjög mikilli röskun á um-
fangi og þýðingu embætta þeirra,
ef dómsmálin yrðu tekin frá þeim
og jafnvel stofnaðir nokkrir stórir
dómstólar, t.d. í hverju kjördæmi
landsins, til þess að fara með öll
dómsmál, eins og hugmyndir hafi
heyrst um. Slík fækkun dómstóla
mundi auk þess raska núgildandi
varnarþingsreglum og lengja leiðir
fólks í dreifbýlinu, sem leita þarf
réttar síns eða mæta fyrir dómstól-
um.
Með tilliti til þess að það geti
naumast samrýmst Mannréttinda-
sáttmála Evrópuráðsins að sami
embættismaður fari með lögreglu-
stjórn og dómsvald í opinberum
málum töldu fundarmenn rétt og
nauðsynlegt að skoða þessi mál
gaumgæfilega og leita leiða til
ásættanlegrar lausnar. Var því kos-
in fimm manna nefnd til þess að
skoða málið og gera um það tillögu
til stjórnar Sýslumannafélagsins. í
nefndinni eiga sæti Jóhannes Áma-
son sýslumaður og bæjarfógetarn-
ir: Ásgeir Pétursson, Sigurður Giz-
urarson, Jón Eysteinsson og Már
Pétursson.
Málefnið „Fógeta- og sýsluskrif-
stofa á upplýsingaöld" var tekið
fyrir á fundi sem SKÝRR hélt fyrir
félagsmenn sýslumannafélaesins í
tengslum við aðalfundinn. Á þeim
fundi voru flutt nokkur fræðsluer-
indi, m.a. um breytingar á tollalög-
um og áhrif þeirra á störf tollstjóra,
um notkun bókhalds og áætlunar-
kerfis ríkisins og um staðgreiðslu-
kerfi skatta og áhrif þess á störf
innheimtumanna ríkissjóðs.
Sömuleiðis áttu fógetar og sýslu-
menn fund með forráðamönnum
Tryggingastofnunar ríkisins, þar
sem fjallað var um tryggingaum-
boðin.
Rúnar Guðjónsson sýslumaður
var kosinn formaður Sýslumanna-
félagsins og aðrir stjórnarmenn
bæjarfógetarnir Halldór Þ.
Jónsson, Sigurður Helgason, Elías
I. Elíasson og Ríkharður Másson
sýslumaður. -HEI
Hólmavík
Nýtt verslunarhús
í sumar hófst bygging nýs versl-
unarhúss Kaupfélags Steingríms
fjarðar á Hólmavík. Húsið er nú að
verða fokhelt, og er stefnt að því að
taka það í notkun næsta haust.
Nýja verslunarhúsið er 672 m2 að
stærð á cinni hæð. Pað mun hýsa
verslun og vörugeymslur kaupfélags-
ins, en síðar verður húsið hugsanlega
stækkað og byggð skrifstofuálma í
nágrenni þess.
Nýja húsið stcndur yst í þorpinu,
í grennd við söluskála kaupfélagsins.
Það kemur í stað verslunarhúsa í
elsta hluta bæjarins, en þau hús voru
byggð á árunum kringum 1930. Par
er orðið mjög þröngt og öll vinnu-
aðstaða starfsfólks í lágmarki. Nýja
húsið markar því tímamót í verslun
Hólmvíkinga.
Nýja verslunarhúsið á Hólmavík
var teiknað hjá Nýju teiknistofunni
hf. Byggingarmeistari er Benedikt
Grímsson á Hólmavík.
Stefán Gíslason.
Nýbygging Kaupfélags Steingrímsfjarðar á Hólmavík.
Einkaleyfin
endurskoðuð
Nú er í undirbúningi endurskoðun
á lögum um einkaleyfi en núverandi
einkaleyfalöggjöf er frá árinu 1923.
Stefnt er að nýtt frumvarp þessu
lútandi sjái dagsins Ijós fyrir lok þess
þings er nú situr.
Iðnaðarráðherra hefur samið við
þrjá sérfræðinga að gera úttekt á
málinu og leggja fram fyrstu tillögur
varðandi endurskoðun einkaleyfis-
laganna.
Áhersla er lögð á að endurskoðun-
in verði gerð í nánu sambandi við
samtök t' iðnaði og öðrum starfs-
greinum sem mestra hagsmuna eiga
að gæta, aðila í stjórnkerfinu sem
fara með eða tengjast framkvæntd
einkaleyfalaga og stofnanir sem
fjalla um og veita tækni- og ráðgjafa-
þjónustu við fyrirtæki og hugvits-
menn.
Nauðsyn á nýjum einkaleyfalög-
um er mjög brýn þar sem nú eru að
koma inn ný svið sem ckki er gert
ráð fyrir í hinum gömlu einkaleyfa-
löguni. Má þar nefna tölvutækni og
líftækni.
-HM
Stjórnmálaflokkur Krists
EF GUD LOFAR
Flokkur Krists mun í byrjun næsta
árs hefja undirbúning að stofnun
formlegra stjórnmálasamtaka og ef
Guð lofar er stefnt að því að stilla
upp framboðslistum um mitt næsta
sumar. Þetta kemur fram í þriðja
hluta nýlcgrar bókar eftir Loft Jóns-
son forstjóra í Reykjavík og var
staðfest af honum í samtali við
Tímann.
Þessar vikurnar stendur yfir undir-
búningstími fyrir tíma reglulegra
fundarhalda og ákveðinnar forystu.
Undirbúningstíminn er notaður til
að bíða eftir því m.a. að væntanlegir
frambjóðendur finni hjá sér að Guð
hafi valið þá til þessara starfa eða
annarra í þágu flokksins. Hreyfingin
er m.ö.o. karismatísk að grunni til
og hefur ekki á stefnuskrá sinni að
eignast annan leiðtoga en Drottinn
sjálfan. Þess vegna er ekki unnið að
undirbúningi venjulegra kosninga
eins og tíðkast hjá venjulegum
stjórnmálaflokkum, heldur beðið
þess að Drottinn kalli menn til
ábyrgðar. Slíkt tæki auðvitað nokk-
urn tíma, en betra færi á því að bíða
þess að hann gefi hreyfingunni
ákveðnara form og krafta til starfa.
Samkvæmt upplýsingum Lofts
Jónssonar er góður hljómgrunnur
fyrir Flokki Krists og eru að sögn um
20-30 manns í sambandi við hann
vegna flokksins. Sagði Loftur að
útgáfa bókarinnar væri lykillinn að
þvf að fólki gefist tími til að íhuga
þessi mál í réttu samhengi og velta
því fyrir sér hvernig best megi vinna
Drottni gagn með þeim verkfærum
sem tiltæk væru í þjóðfélaginu. Bók-
inni er dreift ókeypis og þarf ekki
annað til en að hafa samband við
Loft á fjórðu hæðinni í JL-húsinu,
eða hringja þangað.
Ekki sagðist Loftur Jónsson starfa
í beinum tengslum við þá trúarvakn-
ingahópa og sértrúarsöfnuði sem
mikla athygli hefðu vakið að undan-
förnu. Hreyfingin ynni í anda Krists
og samkvæmt lögmálum hans. Vit-
anlega væri margt líkt með ýmsum
þáttum í Flokki Krists og öðrum
hreyfingum og söfnuðum sem leitast
við að starfa í anda hans. Grund-
völlurinn væri sá sami, en það er
Drottinn Guð. Hann sagðist fara í
kirkju til sr. Braga Friðrikssonar í
Garðabæ, enda ætti Itann kirkjusókn
þangað. Sagði hann að sömu sögu
væri að segja um flesta þá sem sæktu
óreglulega til fundar að Hringbraut
121. KB
Bræðrunum afhent verðlaunin. Tímamynd öþ.
Norðurland vestra:
Sigursælir bræður
Frá Emi Þórarínssyni fréttaritara Tímans í
Fljótum
Sveit Ásgríms Sigurbjörnssonar
bar sigur úr býtum á bridsmóti sem
fram fór í Fljótum dagana 14. og 15.
nóvember sl. Mótið var sveitakeppni
Norðurlands vestra og tóku átta
sveitir þátt í því.
Tvö efstu sætin gefa þátttökurétt
á íslandsmótið í brids sem fram fer
síðar í vetur.
Úrslit á mótinu urðu þessi:
1. Sveit Ásgríms Sigurbjörnssonar,
Siglufirði, 154 stig. 2. Sveit Valtýs
Jónassonar, Siglufirði, 130 stig. 3.
Sveit Aðalbjörns Benediktssonar,
Hvammstanga, 122 stig. 4. Sveit
Ingibergs Guðmundssonar, Skaga-
strönd 104 stig. 5. Sveit Guðlaugar
Maríusdóttur, Fljótum, 104 stig. 6.
Sveit Einars Svavarssonar, Sauðár-
króki, 87 stig. 7. Sveit Reynis Péturs-
sonar, Fljótum 67 stig. 8. Sveit
Þórarins Thorlasíus, Sauðárkróki,
62 stig.
Þetta var í þriðja skiptið sem slíkt
mót er haldið og sveit Ásgríms hefur
sigrað í öll skiptin. Sigursveitina
skipuðu bræðurnir Ásgrímur,
Anton, Bogi og Jón Sigurbjörnssyn-
ir, en þeir bræður hafa verið mjög
sigursælir á mótum norðan lands
undanfarin ár. Það var Bridsfélag
Fljótamanna sem hélt mótið en
keppnisstjóri var Albert Sigurðsson
frá Akureyri.