Tíminn - 12.03.1988, Síða 6
6 Tíminn
Sælgætisgerð Nóa og Sirius undirbýr páskana:
Að maska páskaegg
liðlangan daginn
Þessa dagana er rífandi gangur í páskaeggjaframleiðslunni.
Þrjátíu manns í sælgætisgerð Nóa og Síríus sátu í gær við færibönd
og steyptu súkkulaöiegg í mót, fylltu þau af gómsætu konfekti og
skreyttu með blómum og kjúklingum. Framleiöslan hófst þegar í
janúar, enda eru gerð ríflega eitt egg á hvert íslenskt mannsbarn í
þessari verksmiðju.
Þórir Haraldsson, verksmiðju-
stjóri, hafði í mörg horn að líta og
sentist milli deilda. Hann áætlar að
á páskadag einan muni landsmenn
hesthúsa um 50 tonnum súkku-
laði. „Við seljum langmest af litlu
eggjunum, - en þau hafa að sjálf-
sögðu minnsta vigt. Það er ómögu-
legt að giska á hve mikið magn af
páskaeggj um er borðað um páskana.
Ætli sé ekki innbyrt um 330.000 egg
alls,“ sagði hann. „Við framleiðum
svipað magn nú og í fyrra. Ef til vill
örlítið meira.“
Hulda Björg Baldvinsdóttir, fram-
leiðslustjóri, sagði að mikill hluti af
eggjunum skemmdist í framleiðsl-
unni. Þegar eggjahelmingarnir eru
teknir úr mótunum eru þeir mjög oft
gallaðir og sitja tveir starfsmenn
liðlangan daginn við að vinsa þá út
og mölva ofan í kar. Þegar komið er
inn í þessa deild eru mannhæðarháir
staflar af körum full af möskuðum
súkkulaðieggjum, sem ekki hafa
hlotið náð fyrir augum dómaranna.
Þeir helmingar sem eru heilir eru
sendir á færibandi milli deilda, þar
sem tekur við fyllingin og skreyting
og loks pökkun.
„Það eru um þrjátíu manns sem
starfa að páskaeggjagerðinni linnu-
laust frá því í janúar fram að
páskum," sagði Hulda Björg. „Þá
verðum við að minnka við aðrar
deildir, - en þetta heppnast alltaf
einhvern veginn." -þj
Þetta egg slapp í
gegn, en viðbúið er
að það fari í smátt
um páskana.
Tímamynd Gunnar
Árshátíö Félags matreiöslu- og framreiðslumanna á Hótel Sögu:
Viðurkenningar veittar
fyrir góðan námsárangur
Á árshátíð Félags matreiðslu- og
framreiðslumanna í Súlnasal á Hótel
Sögu að kvöldi fimmtudags voru
nemendum Hótel- og veitingaskól-
ans veitt verðlaun og viðurkenningar
fyrir góðan námsárangur á lokaprófi
í framreiðslu. Viðurkenningar af-
henti Trausti Víglundsson, formað-
ur prófnefndar og yfirþjónn í Átt-
hagasal á Hótel Sögu.
Tuttugu og fjórirframreiðslunem-
ar brautskrást að þessu sinni úr
Hótel- og veitingaskólanum. Sérstök
verðlaun hlutu Hanna Margrét
Geirsdóttir og Sóley Erlendsdóttir.
Hanna Margrét fékk ágætiseinkunn
í iðnskólagreinum en Sóley fyrstu
einkunn í sveinsprófsgreinum. Þá
veittu nemendur sjálfir aukaverð-
laun, sem gefin voru fyrir hæstu
einkunn í framreiðslu. Þau hlaut
Sævar Vígsteinsson með 9,0 í eink-
unn. Verðlaun þessi eru veitt í
minningu Páls heitins Pálssonar, sem
var skólabróðir þeirra á sl. ári, og
verða framvegis veitt ár hvert. þj
Heilsugæslustöðin í Árbæ:
Tekin til
opinberrar
rannsóknar
Læknar við Heilsugæslustöð-
ina í Keflavík hafa ákveðið að
verða við tilmælum Guðmundar
Bjarnasonar, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, um að
veita Tryggingastofnun ríkisins
aðgang að sjúkraskrám vegna
rannsóknar á reikningsskilum.
Héraðslæknar á Hellu og í Ólafs-
vík hafa lagt fram sín gögn til
rannsóknar, en RLR fer nú með
þau mál og eru enn órannsökuð
að fullu.
Læknar við heilsugæslustöð í
Árbæ fengu úrskurð í Fógetarétti
að Ríkisendurskoðun fengi ekki
aðgang að sjúkraskýrslunum og
var honum ekki áfrýjað. Aftur á
móti hefur Ríkisendurskoðun
óskað eftir opinberri rannsókn á
atriðum í sjúkraskrám, sem varða
einn lækni við heilsugæslustöðina
í Árbæ, og lögðu fram gögn sem
styðja að um refsivert athæfi hafi
verið að ræða. Ríkissaksóknari
hefur af þessum sökum falið RLR
málið. Opinber rannsókn á því er
í burðaríiðnum. þj
Hækkunárækju
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins hefur ákveðið nýtt lágmarks-
rækjuverð.
Verðið á óskelflettri rækju í
vinnsluhæfu ástandi er því sem hér
segir:
230 stykki eða færri í hverju kílói,
60 krónur, en var 58 krónur. 231
stykki til 290 stykki í kílói, 55
krónur. en var 53 krónur. 291 stykki
til 350 stykki í kílói, 50 krónur, var
48 krónur. Undirmálsrækja, 351
stykki og fleiri í kílói, 23 krónur, var
21 króna. -SÓL
Hluti brautskráðra framreiðslunema úr Hótel- og veitingaskólanum á árshátíð á Hótel Sögu. Við endana hvoru megin eru prófnefndarmenn: t.v. Haukur
Tryggvason frá Hótel KEA og t.h. Trausti Víglundsson frá Hótel Sögu. (Tíminn: Gunnar)