Tíminn - 12.03.1988, Blaðsíða 17

Tíminn - 12.03.1988, Blaðsíða 17
Laugardagur 12. mars 1988 Tíminn 17 í stað gamailar byggingar átti að rísa ný í grennd við Lundúnaturn. En aðeins á tveggja metra dýpi var komið niður á legstað 700 manna sem orðið höfðu plágunni miklu, svartadauða að bráð um miðja 14. öld. Kirkjugarður frá tímum svartadauða fundinn í London 29. janúar áríð 1348 veiktist sá fyrsti í London. Hann dó nokkrum dögum síðar. í byrjun dó fólk svo tugum skipti á hverjum degi. Áður en langt um leið skiptu þeir hundruð- um og enginn hafði lengur hugsun á að kasta á þá tölu. Plágan mikla, svartidauði, geisaði um þröng stræti Lund- únaborgar. Talið er að um 100.000 manns hafí orðið pestinni að bráð, meira en helmingur borgarbúa. Þegar pestin var í hámarki voru jörðuð 200 fórnarlömb hennar dag- lega og lentu flestir í fjöldagröfum. Alls létust 800.000 manns af völd- um svarta dauða í Englandi og margir voru látnir liggja þar sem þeir féllu mánuðum saman. Nú standa yfir framkvæmdir í grennd við „The Tower“; verið er að rífa þar gamla byggingu og á að reisa þar nýja skrifstofubyggingu. Til niðurrifsins voru að sjálfsögðu notaðar stórvirkar vinnuvélar, en þegar gröfurnar höfðu grafið niður á tveggja metra dýpi fóru þær að rekast á beinagrindur. Auðvitað var strax hætt að vinna þarna með stórvirkum vélum og í staðinn mættu 80 fornleifafræðing- ar á staðinn. Innan skamms höfðu þeir leitt fram í dagsljósið grafreit frá þeim mánuðum sem svartidauði Þeir gáfuðu þurfa minni þrúgusykur Þegar heilafrumurnar starfa af kappi brenna þær þrúgusykri. Nú hefur prófessor einn í Kaliforníu gert athuganir á því hvaða sam- band sé milli greindar fólks og hvað það brennir miklum þrúgu- sykri þegar það er að brjóta heilann. Hann fór þannig að að hann fékk fólk til að leysa ákveð- in verkefni og mældi hversu mikill þrúgusykurbruninn var. í ljós kom að því hærri sem greindarvísitala fólksins var því minni þrúgusykur þurfti það til að leysa verkefnin. geisaði í London og grafið upp beinagrindur 700 manns. Aðeins fá líkanna voru hulin klæðum, á flestum þeirra hafði tímans tönn unnið. Heillegt var aðeins lítill barnsskór og beltis- Baráttan gegn eiturlyfjum er löng og ströng - og vonlaus, myndu sumir bæta við. Þeir benda á hvílík ítök eiturlyfjasalar eiga í ýmsum ríkjum Rómönsku Ameríku t.d., en þar er kókajurtin ræktuð á stórum svæðum og afurðum hennar, kókaíni komið í verð um allan heim, og það er ekkert smáverð. En nú lítur út fyrir að lögleg yfirvöld í þessum ríkjum hafi eign- ast dýrmætan bandamann í baráttu sinni við kókaræktina. Malumbia- fíðrildið á heimkynni í Rómönsku Ameríku, á sömu slóðum og kóka- ræktin er hvað mest, enda nærist sylgja úr bronsi. Flestir höfðu verið grafnir klæðalausir. í nokkrum grafanna lágu silfur- peningar undir beinagrindunum, grafargjöf frá ættingjum. Alls fundust 100 myntir. Nú taka læknar allar beinagrind- urnar til athugunar. Þá verður leitt í ljós kynferði, og aldur þeirra sem þarna liggja, svo og á hverju al- menningur í London nærðist fyrir 640 árum. Læknarnir gera sér líka vonir um að finna bendingar um ýmsa sjúkdóma svo sem gigt og ensku veikina. fiðrildið eingöngu á laufum kóka- runnans fyrstu 10 daga ævi sinnar. Laufin eru auðug að eggjahvítu- efnum, orkugefandi efnum, víta- mínum og kalsíum. Fiðrildin koma í stórum skýjum, demba sér yfir kóka-akrana og skilja eftir sig algera auðn. Með þessar matarvenjur er ekki von að malumbia-fiðrildin verði langlíf, þau ná aðeins 30-35 daga aldri. Lögregluyfirvöld í ýmsum ríkj- um Rómönsku Ameríku hafa nú hafið tilraunir með ræktun á mal- umbia-fiðrildinu í stórum stíl, til að eyðileggja kókauppskeruna. Ungt malumbia-fíðrildi hámar í sig eftirlætismatinn, lauf kókaplöntu! Malumbia-fiðrildið aðstoðar í barátt- unni gegn kókaíni Styrkir til rannsókna í kvennafræðum Á fjárlögum fyrir yfirstandandi ár var einnar milljón tvö hundruð og fimmtíu þúsund króna - kr. 1.250.000 - fjárveiting færð til Háskóla íslands til rannsókna í kvennafræðum. Áhugahópur um íslenskar kvennarannsóknir auglýsir hér með, í umboði Háskólans, eftir umsóknum um styrki til rannsókna í kvennafræð- um, en til kvennafræða teljast allar þær rannsóknir sem á einhvern hátt varða konur, eru unnar á forsendum kvenna og frá þeirra sjónarhorni. Veittir verða launastyrkir fyrir rannsóknir í minnst þrjá mánuði og skulu þeir miðast við byrjunarlaun lektors. Þó getur nefndin veitt styrki til skemmri tíma ef sérstaklega stendur á. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi sem svarar til meistaraprófs eða kandidatsprófs og/eða sýnt fram á hæfni sína til rannsóknarstarfa með öðru móti. í umsókn skal greina ítarlega frá þeim rannsókn- um sem sótt er um styrk til og fjáröflun til þeirra frá öðrum. Við lok styrktímabils skal styrkþegi senda úthlutunarnefnd framvinduskýrslu. Áhugahópurinn vill vekja athygli á að hægt er fyrir fólk á ólíkum fræðasviðum að sameinast um rannsóknarverkefni og vill hvetja til samstarfs sem gæti orðið upphaf að röð rita um líf og stöðu íslenskra kvenna frá sjónarhorni mismunandi fræðigreina. Umsóknarfrestur er til 1. maí n.k. Umsóknir sendist til: Áhugahópurum íslenskar kvennarannsóknir b.t. Guðrúnar Ólafsdóttur, dósents Raunvísindadeild Háskóli íslands lf| REYKJKMÍKURBORG ||1 Aau&cvi Stödtvi Heilsuverndarstöð Reykjavíkur óskar eftir að ráða eftirtalið starfsfólk: Hjúkrunarfræðinga við BARNADEILD - bæði er um fastar stöður og sumarafleysingar að ræða. við HEIMAHJÚKRUN - sumarafleysingar. Sjúkraliða við HEIMAHJÚKRUN - um er að ræða hlutastarf á næturvaktir og einnig sumarafleysingar. Ljósmæður við MÆÐRADEILD - sumarafleysingar Upplýsingar um ofangreind störf gefur hjúkrunarforstjóri í síma 22400. Umsóknum skal skila til Starfsmannahalds Reykja- víkurborgar Pósthússtræti 9, Reykjavík, fyrir kl. 16.00, mánudaginn 21. mars 1988. Tilkynning til söluskatts- greiðenda Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að gjalddagi söluskatts fyrir febrúar mánuð er 15. mars. Ber þá að skila skattinum til innheimtu- manna ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu í þríriti. Fjármáiaráðuneytið Kartöfluniðursetningarvél óskast keypt. Upplýsingar í síma 93-47788.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.