Tíminn - 12.03.1988, Qupperneq 7
Laugardagur 12. mars 1988
Tíminn 7
Loogav«91
S(miV12Z
Eigandi hárræktarstofu kærður fyrir ólögmæta viðskiptahætti:
Gráskallinn glóir
Lögmaður Orkugeislans kærði í gær annan tveggja eigenda Heilsulín-
unnar fyrir ólögmæta viðskiptahætti, en fyrirtækin eiga í samkeppni um
viðskiptavini, sem þarfnast hárræktar. Bæði fyrirtæki örva hárvöxt
sköllóttra með leysigeislatækni og nota sams konar tæki. Forsaga þessa
máls hefur að einhverju leyti verið rakin í Tímanum, en það skal leiðrétt,
sem kom fram í frétt fyrir viku, að hárræktartæki Orkugeislans hafi verið
keypt af Heilsulínunni. Þau voru keypt erlendis frá af framleiðendum.
1 bréfi frá Heilsulínunni til Tím-
ans segir að tæki Orkugeislans,
sem raunar er uppnefndur Okur-
geislinn í öllu rituðu frá Heilsulín-
unni um málið, séu smygluð. Hið
rétta er, að eigendur Orkugeislans
gerðu tilraun til að koma tækjum
sínum inn í landið með þeim hætti,
en voru stöðvaðir í „græna hliðinu11
í tollinum í Leifsstöð og hafa
goldið fyrir sekt og greitt aðflutn-
ingsgjöld á tækjunum. Um okrið
svara eigendur Orkugeislans, að
verð Heilsulínunnar hafi verið
hærra en þeirra í fyrstu, en síðar
hafi það verið lækkað og upp frá
því rækilega auglýst, að okrað væri
á viðskiptavinum hjá Orkugeislan-
um og, ólíkt því hjá Heilsulínunni,
væri meðferð þar afar sársaukafull.
Jónatan Sveinsson, hæstaréttar-
lögmaður, fer með málið fyrir
hönd Orkugeislans. Hann segir
ekki lengur unnt að sitja undir
svæsnum atvinnurógi annars eig-
enda Heilsulínunnar, Sigurlaugar
Williams, og því hafi hann kært
hana. Hinn eigandi Heilsulínunnar
hefur ekki haft sig í frammi, eftir
að RLR upplýsti, að sá hafði
brotist inn í Orkugeislann og fram-
ið þar skemmdarverk í desember-
mánuði og mátt greiða 250.000 kr.
í skaðabætur. Þótt Sigurlaug hafi
fylgt meðeigenda sínum í þessari
för, neitaði hún allri hlutdeild eða
vitneskju um skemmdarverkin. f
trausti þess að ósköpunum væri
lokið féllu eigendur Orkugeisla frá
refsikröfum.
Heilsulínan hefur síðar kært inn-
brot og skemmdarverk í eigið fyrir-
tæki við Laugaveg. Það mál er enn
í rannsókn hjá RLR, en ekkert
tengir það við Orkugeislann.
„Ég kæri f.h. Orkugeislans eig-
anda og forsvarmann Heilsulín-
unnar, Sigurlaugu Williams, fyrir
brot á lögum um verðlag, sam-
keppnishömlur og ólögmæta við-
skiptahætti. Þess er krafist að
kærða sæti refsingu fyrir brot sín
og áskilnaður er um að hafa uppi
bótakröfur í væntanlegu refsi-
máli,“ sagði Jónatan Sveinsson.
„Málavextir eru þessir: Á sl. hausti
var fyrirtækið Orkugeislinn sett á
stofn. Eigendur þess og umbjóð-
endur mínir eru aílir fv. starfsmenn
Heilsulínunnar. Kærðu ásamt
stöllu hennar var frá upphafi lítið
um það gefið að sams konar fyrir-
tæki og þeirra yrði sett á fót.
Andúð þeirra var svo mögnuð, að
þann 11. desember sl. lögðu þær
leið sína að Orkugeislanum, þar
sem eigendur hans voru um það bil
að setja í gang starfsemina. Segir
ekki glöggt af ferðum þeirra.“
Frá þeirri ferð er greint hér fyrr
í fréttinni.
„Síðar fór að bera á furðulegri
auglýsingu frá Heilsulínunni og
lesendabréfum í dagblöð. Allt
gekk þetta efni út á að koma því á
framfæri við hugsanlega viðskipta-
vini að þjónusta Heilsulínu væri
ódýr og góð, en síðan gjarnan bætt
við svohljóðandi setningu: „Varist
kvalafulla heilsuspillandi okur-
geisla." Á þessu er látlaust klifað."
Lögmaðurinn sagði að komið
væri í Ijós að þeir sem skrifuðu
lesendabréfin væru eiginmenn eða
sambýlismenn þeirra sem reka
Heilsulínuna.
„Út yfir gekk svo hinn 16. þ.m.
þegar kærða birti grein í Morgun-
blaði undir fullu nafni, þar sem
hún ræðst að umbjóðendum mín-
um og starfsemi þeirra með slíkum
hætti að ekki er lengur unnt að láta
kyrrt liggja. Þar hefur kærða uppi
sömu rakalausar fullyrðingar og í
áðurgreindum auglýsingum um
það að þjónusta umbjóðenda
minna sé bæði kvalafull og fram-
kvæmd af vankunnáttu. Höfð eru
uppi stóryrði um fölsun skilríkja
og dýrselda þjónustu. Allt er þetta
sett fram gegn betri vitund til að
lama starfsemi Orkugeislans og
eyðileggja viðskiptavild hans og þá
um leið að hefja eigin þjónusta til
vegs og virðingar og draga til sín
viðskipti með rakalausum rógi um
starfsemi keppinauts. Hér er um
að ræða skýlaust brot á lögum um
óréttmæta og refsiverða viðskipta-
hætti."
Jónatan Sveinsson, hæstaréttar-
lögmaður, fer ekki aðeins fram á
opinbera rannsókn með kæru
sinni, heldur er hún einnig send
Verðlagsráði skv. lögum með ósk
um að þeir beiti heimildum sínum
til að koma í veg fyrir slíkar
athafnir, sem að framan er lýst, að
viðlögðum fébótum ef út af er
brugðið. þj
Utanríkismál:
Tómas sendiherra
í A.-Þýskalandi
Hinn fjórða mars síðast liðinn
afhenti Tómas Á. Tómasson, sendi-
herra, Erich Honecker, formanni
ríkisráðs þýska alþýðulýðveldisins,
eða Austur-Þýskalands, trúnaðar-
bréf sitt, sem sendiherra íslands í
Þýska alþýðulýðveldinu.
Tómas hefur aðsetur í Moskvu.
-SÓL
BULGARIA
1988
Baðstrandaferðir
í gæðaflokki
Hótel/strönd: 24. mai 14. júni 5. og 26. juli 16. ágúst 6. sept. 27. sept.
Drushba/Grandhotet Varna: 2 vikur 3 vikur 35.170 42.200 41.100 49.900 37.600 44.600 36.380 40.990
Albena/Dobrudja: 2 vikur 3 vikur 29.440 33.540 34.780 40.340 31.850 35.950 30.650 34.750
Albena/Bratislava 2 vikur 3 vikur 25.930 28.270 30.690 34.200 28.340 30.680 27.140 29.480
Skrifstofustjóri
Þau óþörfu mistök urðu í blaðinu
í gær að skrifa Svein Björnsson sem
ráðuneytisstjóra viðskiptaráðuneyt-
is. Hið rétta er að hann er skrifstofu-
stjóri. Þá er einnig ástæða til að
leiðrétta það að Sveinn er ekki einn
af nefndarmönnum matsnefndar á
lausafjárstöðu Útvegsbanka íslands.
Hann er hins vegar sá sem tók við
skýrslu matsnefndar af hálfu ráðu-
neytisins. KB
Frír leigubíll
Veitingahúsið Fjaran, Strandgötu
55, Hafnarfirði hefur tekið upp þá
nýbreytni fyrir gesti sína sem ætla í
leikhús eða í óperu að opna húsið
klukkan 17.30 og sjá til þess að gestir
komist á áfangastað með leigubílum
á kostnað Fjörunnar.
Fjaran tekur 36 matargesti í aðal-
sal með útsýni yfir höfnina og út
fjörðinn. Á efri hæð hússins er lítil
setustofa sem er tilvalin fyrir minni
samkomur og fundi.
Innifalið í verði er flug KEF-LUX-VAR fram og til baka, gisting á hótelum í 2ja
manna herbergjum með baði, w.c./sturtu, hálft fæði (matarmiðar), leiðsögn, ath.
ekki flugvallarskattur og annað ótalið hér. Verð er miðað við gengi US$ 20. jan.
1988 og breytist við breytingar hans gagnvart ísl. krónunni eða búlgörsku leva
og breytingar á flugmiðaverði.
Ftr&$xkritstcl»
KJARTANS
HELGASONAR
Gnoóavog 44-104 Reykjavik - Simi 91 -68 62 55
Simnefni: Istravei - Telex: 2265 Istrav-ls