Tíminn - 12.03.1988, Side 14
14 Tíminn
Laugardagur 12. mars 1988
Arafat fellst ekki
tillögur Schultz
FRÉTTAYFIRLIT
ÚTLÖND
llllllllllllllill!
Óeiröirnar á hernumdu svæöunum:
HÖFÐABORG - Utanrík-
isráöherra Suður-Afríku, Pik
Botha mun hitta aö máli Chest-
er Crocker, sem fjallar um
málefni Afríku í utanríkisráöu-
neyti Bandaríkjanna, í Evrópu
í næstu viku. Heimildamaður í
bandaríska utanríkisráðuneyt-
inu sagðist telja að Botha hefði
mikilvæg skilaboð að færa
Crocker, þó það þýddi ekki
endilega að sattum verði kom-
ið á.
BELFAST - Sprengjusér-
fræðingar breska hersins
gerðu tværbílasprengjuróvirk-
ar á fyrrinótt, en þá brutust út
óeirðir í Belfast vegna atburð-
anna í Gíbraltar þegar breskar
sérsveitir skutu þrjá liðsmenn
IRA til bana.
LONDON - Breska fjár-
málaráðuneytið hefur nú tekið
pundseðla úr umferð, en nú
eru nær 200 ár síðan pund-
seðlar tóku við af gullmynt í
Bretlandi.
TOKYO - Japanski flotinn
mun bráðlega taka í notkun
flugmóðurskip, en flotinn hefur
ekki haft yfir flugmóðurskipi að
ráða frá því heimsstyrjöldinni
síöari lauk.
DAKAR - Senegalska þing-
ið ákvað að f ramlengja neyðar-
ástandslög þau sem sett voru
í kjölfar óeirða sem urðu eftir
kosningar sem þar fóru fram
fyrir hálfum mánuði.
NIKÓSÍA - Þrátt fyrir að
Irakar og íranar hafi lýst því
yfir að ríkin væru tilbúin að
hætta gagnkvæmum eld-
flaugaárásum gerðu írakar
eldflaugaárás áTeheran í gær.
íranar hafa heitið að hefna
árásanna.
BANKOK - Hinn gamal-
reyndi víetnamski byltingaleið-
togi Pham Hung lést úr hjarta-
bilun eftir að hafa gegnt
embætti forsætisráðherra
Víetnams í aðeinsníu mánuði.
JERÚSALEM - Um 300
Palestínumenn sem starfa í
ísraelsku löareglunni á her-
numdu svæounum á vestur-
bakka Jórdan sögðu upp starfi
sínu sólarhring eftir að leiðtog-
ar neðanjarðarhreyfingar PLO
á hernumdu svæðunum hvöttu
alla palestínska lögreglumenn
til að leggja niður störf.
MOSKVA - Sovéskir her-
menn og skriðdrekar héldu
uppi lögum og reglu í Sumgait-
borg í Azerbaijan tíu dögum
eftir að 32 menn féllu þar í
kynþáttaóeirðum milli kristinna
Armena og múslímskra Azer-
baija.
GENF - Sáttasemjari Sam-
einuðu þjóðanna í málefnum
Afganistan, Diego Cordoves,
hvatti afgönsku og pakistönsku
sendinefndirnar í friðarvið-
ræðunum að leggja fram skýr-
ari línur frá ríkisstjórnum sín-
um þegar fundir hefjast að nýju
eftir helgina svo leysa megi
þann hnút sem viðræðurnar
eru nú komnar í.
Japanskur almenningur hefur
fengið nóg af yfirgangi „Yakuza“
sem eru glæpaflokkar sem meðal
annars tengjast fíkniefnasmygli,
vopnasmygli, vændi og öðru glæp-
samlegu atferli og hafa óbreyttir
borgarar stofnað með sér flokka til
að vinna á óværunni, þar sem lög-
reglan virðist ekkert taumhald hafa
á glæpahyskinu.
Hópar þessir hafa verið skipulagð-
ir í helstu borgum Japans, en yfir-
gangur glæpaklíka þar er mun meiri
en þekkist almennt á Vesturlöndum.
„Við höfum fengið nóg af eilífri
hræðslu við glæpahyskið. Við viljum
það út úr okkar nánasta umhverfi,“
sagði húsmóðir sem er félagi í
„spörkum-út-glæpahyskinu“ her-
ferðinni í borginni Hyogo sem er í
vesturhluta Japans.
„Lögreglumenn viðurkenna að
þeir hafi ekki nægan liðstyrk til að
eiga við þetta glæpahyski. Hyskið
truflar ró okkar í hverfinu og því
verður að reka það á brott," sagði
hún.
„Þessi hreyfing er bara tískufyrir-
brigði sem gengur yfir“ sagði Shins-
uke Kato sem er leiðtogi „Yakuza-
klíku“ í borginni Nishinomiya í
viðtali við fréttamann Reuters. „Við
gerum fólki ekki mein, þvert á móti
reynum við að vinna með íbúunum
við að bæta lífskjörin.“ Kato vildi
ekki segja hvað „Yakuzaklíka" hans
fæst við, en íbúar bæjarins hafa sagt
klíkunni stríð á hendur og ætla að
flæma höfuðstöðvar hennar úr
bænum.
Kato flutti til Nishinomiya eftir að
réttur í Osaka hafði dæmt hann til
að yfirgefa Osaka.
Herferð borgara í miðborg Hama-
matsu gegn starfsemi Yamaguchi
sem eru stærstu skipulögðu glæpa-
samtök Japans, var mjög í fréttum í
Japan fyrir nokkru, þegar leiðtogi
samtaka gegn glæpum var stunginn
á hol og kveikt var í húsi annars
manns sem hefur verið áberandi í
hreyfingunni. Hefur lögreglan gefið
út handtökuskipun á einn leiðtoga
glæpasamtakanna vegna þessara at-
burða, en ekki hefur tekist að hand-
taka hann.
Árið 1985 hófst hreint og klárt
stríð milli mismunandi glæpasam-
taka í Japan. Þrátt fyrir að samtökin
hafi lýst yfir vopnahléi í febrúar á
síðasta ári hefur ofbeldinu ekki
linnt. 1 byrjun janúarmánaðar var
meðlimur glæpaklíku í Kobe skotinn
til bana á götu og annar særðist
alvarlega í skotárás sem gerð var á
hann í almenningsbaðhúsi.
varpsstöð í gærkveldi.
„Hann býður fólki okkar hreint
þrælahald, sjálfstjórn sem er minni
en í Suður-Afríku,“ sagði þessi leið-
togi PLO.
Arafat sagði að 155 Palestínu-
menn hefðu verið drepnir, 5000
særðir og 9000 teknir fastir af ísraels-
mönnum í óeirðunum á hernumdu
svæðunum á vesturbakka Jórdan og
á Gazasvæðinu.
Samkv.æmt óopinberum heimild-
um í ísrael hafa að minnsta kosti 90
Palestínumenn látið lífið í uppreisn
Palestínumanna sem staðið hefur
yfir í þrjá mánuði.
Arafat sagði að óeirðirnar myndu
leiða til róttækra breytinga í mið-
austurlöndum og myndu halda
áfram allt þar til ísraelar yfirgefi
hernumdu svæðin.
„Reagan sendi erindreka, sjálfan
Schultz, til að reyna að ná tökum á
uppreisnunum, en ekki til þess að
finna lausn á málunum, því hann
veit í hverju sú lausn felst."
Aðspurður um hvort Jórdanir
gætu samþykkt friðartilboð Schultz,
sagði Arafat að þeir yrðu fyrst að
leggja málið undir Arababandalag-
„Þeir skjóta dýrin
er það ekki?“
„Ég þjáist eins og sært dýr. Þeir
skjóta dýrin, er það ekki?“ voru ein
síðustu orð þýsku konunnar Ingrid
Frank sem framdi sjálfsmorð með
þvf að taka inn blásýru fyrir framan
myndbandsupptökuvél svo ættingjar
hennar yrðu ekki sakaðir um líkn-
armorð. Með sjálfsmorði sínu vildi
hún einnig leggja lið baráttunni fyrir
því að líknardráp verði leyfð í Þýska-
landi.
Ingrid sem lamaðist algjörlega
upp að hálsi eftir umferðarslys fyrir
tveimur árum gat ekki hugsað sér að
lifa við þessa fötlun sína og sagði að
dauðinn yrði henni endanleg hvíld.
Ingrid Frank hvatti stjórnmála-
menn „til að komast að samkomu-
lagi um líknardrápslög, vegna þess
að ég held að þeir myndu sjálfir ekki
vilja lifa ef þeir væru í sömu stöðu
og ég.“
Myndbandið sem sýndi dauða Ing-
ridar hefur vakið upp miklar umræð-
ur í Þýskalandi um líknardráp. Sam-
kvæmt þýskum lögum jafngildir
líknardráp öðrum morðum, en dóm-
ar sem fallið hafa að undanförnu
hafa sýknað ættingja sem hafa hjálp-
að sjúklingum að fremja sjálfsmorð
með því að færa þeim eitur.
Það var meðlimur í samtökum
fyrir lögleiðingu líknardrápa, hin 73
ára Greitles Schwarzmann sem
hjálpaði Ingrid að fremja sjálfsmorð
eftir að hafa rætt við hana sex
sinnum um málið. Newsweek/hm
Palestínuleiðtoginn Yasser Arafat
hefur hafnað friðartillögum George
Schultz utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna og segir þær eingöngu miða
að því að stöðva þær óeirðir sem
verið hafa á hernumdu svæðunum
og kostað hafa 155 Palestínumenn
lífið, en leysi ekki palestínuvanda-
málið á nokkurn máta.
„Aðalmarkmið George Schultz er
að ná tökum á uppreisnum Palest-
ínumanna til að koma í veg fyrir
palestínska byltingu," sagði Arafat í
sjónvarpsviðtali við spænska sjón-
Þrír mánuðir eru nú liðnir frá því óeirðir hófust á hernumdu svæðunum á
Vesturbakka Jórdan og Gazasvæðinu. Arafat segir 155 Palestínumenn hafa
fallið í átökunum.
ið. Stjórnarnefnd PLO og þing
Palestínumanna eru nú að ræða um
hvort hún eigi að setja á fót útlegðar-
stjóm. „Vjð þurfum að ræða það
mál við vini okkar og bræður því það
er ekki auðveld ákvörðun,“ sagði
Arafat.
Leiðtogi PLO Yasser Arafat fellst
ekki á friðartillögur George Schultz
utanrikisráðherra Bandaríkjanna,
en Schultz hefur ferðast um miðaust-
urlönd og kynnt tillögur sínar.
Ingrid Frank rétt áður en hún framdi
sjálfsmorðið
GAlfci
Framdi sjálfsmorð til að berjast fyrir líknardrápi:
JAPANSKUR ALMENNINGUR
RŒÐST GEGN GUEPAKLÍKUM