Tíminn - 12.03.1988, Page 15
Laugardagur 12. mars 1988
Tíminn 15
lllllllllllllllllilillllll AÐ UTAN
Fötluðum meinaður
aðgangur að hótelum á
ferðamannastöðum
— af tillitssemi við aðragesti!
stjóri hjá Tjæreborg. „Við höfum
engin tök á að senda hópa fatlaðra
á aðalferðamannatímanum, því að
þá getum við ekki fengið hótelin til
að taka við þeim.“ Og fulltrúi
Spies tekur í sama streng: „Það er
rétt að í þessari atvinnugrein er
hræðsla við að þýskir ferðamenn
sniðgangi hótel þar sem of margir
fatlaðir eru meðal gesta. Þess
vegna verðum við alltaf að spyrjast
fyrirfram fyrir um hvort viðkom-
andi hótel setji sig upp á móti því
að taka á móti fötluðum gestum.“
Helle Östergaard fór í sumarleyfi til Túnis í fyrra og enginn kvartaði þá.
Nú fær hún ekki inni á hóteli þar eftir að vestur-þýskur dómstóll dæmdi
konu skaðabætur fyrir að hafa orðið að dveljast á hóteli með fötluðu fólki!
Fyrirspum í
danska þinginu
Reyndar hefur þetta furðulega
mál þegar verið tekið upp á danska
þinginu. Björn Elmquist hefur lagt
fram þá fyrirspurn til dómsmála-
ráðherrans, Erik Ninn-Hansen,
hvort það sé rétt að greiddar séu
skaðabætur í Vestur-Þýskalandi,
eða verðið sé niðursett, þegar
ferðamenn geta lagt fram sannanir
um að þeir hafi búið á hóteli þar
sem of margir fatlaðir hafi verið
meðal gesta.
Björn Elmquist hefur þá skoðun
að beita verði pólitískum þrýstingi
á ensk og vestur-þýsk stjómvöld til
að fá þessum reglum breytt.
Kannski mætti það takast á vett-
vangi Evrópuráðsins. Líka mætti
reyna að fá málið tekið upp við
mannréttindadómstól Evrópu.
„Undir eðlilegum kringumstæð-
um fær fólk ekki skaðabætur nema
það geti sýnt fram á að það hafi
orðið fyrir skaða. Og ég á bágt með
að sjá hvaða skaða fólk getur orðið
fyrir við að sjá fatlað fólk,“ segir
Björn Elmquist.
Nýlega kvað vestur-þýskur dómstóll upp þann dóm að
ferðaskrifstofu bæri að endurgreiða konu einni helming
ferðakostnaðarins þegar hún hafði ákært skrifstofuna fyrir
að hafa ekki staðið við gerða samninga. Meðal kvörtunar-
efna konunnar, sem dómstóllinn tók til greina, var að hún
hefði neyðst tii að gista á sama hóteli og fatlað fólk!
í kjölfar þessa dóms krefjast nú
ferðaskrifstofur í Vestur-Þýskalandi
og Englandi skriflegrar ábyrgðar frá
hótelum sem þær skipta við þess
efnis að þar séu engir fatlaðir meðal
gesta, svo að viðskiptavinir þeirra
þurfi ekki að eiga von á því að
sumarfríið þeirra eyðileggist vegna
nærveru fatlaðra!
Mikill meirihluti ferðamanna eru
ófatlaðir og hótelin vilja skiljanlega
ekki missa viðskipti þeirra. Þau
kjósa því heldur að úthýsa fötluðu
fólki. Þessi viðbrögð eru aleng á
vinsælum ferðamannastöðum í Vest-
ur-Evrópu og Norður-Afríku.
Hópur af Dönum sem þjást af
vöðvarýrnun, sem hafði ætlað að
dveljast í sumarleyfinu á Hotel Ei
Mouradi i Sousse í Túnis hefur
komist að raun um að nærveru
þeirra sé ekki óskað á hótelinu.
Reyndar er ekkert verið að fara í
launkofa með stefnu nýs hótelstjóra:
Engir fatlaðir fá aðgang af tillitssemi
við aðra gesti hótelsins.
Eins og vænta má brugðust Danir
ókvæða við slíkum svörum. For-
maður samtaka þeirra sem þjást af
vöðvarýrnun sagðist ekki geta
ímyndað sér að margir ferðamenn
yrðu til þess að krefjast skaðabóta
þegar heim kæmi, þó að þeir hefðu
dvalist á hóteli með einhverju fötl-
uðu fólki. „En bara sú áhætta að
verða kannski að endurgreiða við-
skiptavinunum fær enskar og þýskar
ferðaskrifstofur til að setja það skil-
yrði að fatlaðir séu ekki meðal
ferðalanga, eða þá a.m.k. ekki nema
örfáir í einu. Og hótelin krefjast
þess af dönskum ferðaskrifstofum
að þær séu hófsamar í sölu farmiða
til fatlaðra. Því annars missa hótelin
viðskipti við enskar og þýskar ferð-
askrifstofur og þar með dýrmætar
gjaldeyristekjur," segir Evald Krog,
formaður danskra landssamtaka
þeirra sem þjást af vöðvarýrnun.
Samtökin vilja nú beina þeim
tilmælum til dönsku ríkisstjórnar-
innar að hún beri fram beina kvörtun
til vestur-þýskra og enskra stjóm-
valda, auk þess sem klögumálin séu
borin fram í sendiráðum þessara
þjóða í Danmörku.
Stóm dönsku ferðaskrifstofurnar
tvær, Tjæreborg og Spies, viður-
kenna að hér sé raunverulegt vanda-
mál á ferðinni. En þó að þær vildu
svo sannarlega vinna gegn þessu
fáránlega banni, geta þær ekkert
gert.
„Við höfum staðið í stappi í
Júgóslavíu þar sem við urðum að
hætta við að senda fatlaða, vegna
þess að þýsk ferðaskrifstofa hafði
gert samning við hótelið sem hér
um ræðir og þar var skýrt tekið
fram að fatlaðir mættu ekki vera
meðal hótelgesta," segir deildar-
DAGVI8T BARIVA.
BREIÐHOLT
Fálkaborg — Fálkabakka 9
Dagheimilið/leikskólinn Fálkaborg óskar eft-
ir starfsmanni eftir hádegi nú þegar.
Upplýsingar gefur forstöðumaður
í síma 78230.
VESTURBÆR
Hagaborg — Fornhaga 8
Starfsfólk óskast í eldhús. Um er að ræða 6
klukkustundir á hverjum degi.
Upplýsingar gefur forstöðumaður
í síma 10268.
Hagakot — Fornhaga 8
Fóstra eða fólk með uppeldislega menntun
óskast til starfa í Hagakoti.
Upplýsingar gefur forstöðumaður
í síma 29270.
Ægisborg — Ægissíðu 104
Fóstrur og annað starfsfólk óskast til starfa í
Ægisborg. Um er að ræða heila og hálfa
stöðu.
Upplýsingar gefur forstöðumaður
í síma 14810.
DAGVIST BARNA
Ægisborg sérstuðningur
Sérmenntaður starfsmaður óskast til stuðn-
ings barni á Ægisborg. Um er að ræða heila
eða hálfa stöðu.
Upplýsingar veitir sálfræðingur á skrifstofu
Dagvist barna í síma 27277.
Konur í ASÍ
Kynningarfundur um kvennaþingið Nordisk Forum
sem haldið verður í Osló 30. júlí - 7. ágúst n.k.
verður í Sóknarsalnum, Skipholti 50A, Reykjavík
þriðjudaginn 15. mars n.k. kl. 20.30.
Undirbúningsnefndin