Tíminn - 12.03.1988, Qupperneq 18
18 Tíminn
Laugardagur 12. mars 1988
AMERICAN CONSULTANT BUREAU
P.O.BOX 610263, MIAMI, FLORIDA 33261, U.S.A.
SÍMI (1) (305) 893-9045.
Starfsnám í Bandaríkjunum: Til
þess aö fá upplýsingar og til þess aö
koma umsóknum á framfæri, sendiö
15 Bandaríkjadollara til "American
Consultant Bureau," P.O.Box 610263,
Miami, FLA.33261, U.S.A.
Bandarísklr háskólar vllja fá tll
sín erlenda stúdenta: Til þess að
fá upplýsingar og koma umsóknum á
framfærl sendið 15 Bandaríkjadollara
til "American Consultant Bureau,
"P.O.Bóx 610263, Miami, FLA.33261,
U.SA.
Hjúkrunarfræðlngar í Banda-
ríkjunum hafa meira en 25000
dollara (9oo ooo króna) árs-
tekjur. Til þess að fá upplýsingar og
koma umsókn á framfæri sendið 15
Bandaríkjadollara til "American
Consultant Bureau," P.O.Box 610263,
Miami, FLA. 332Q1. U.S.A.
FLUGLEIDIR
Aðalfundur Flugleiða hf.
verður haldinn þriðjudaginn 22. mars 1988 í
Kristalsal Hótel Loftleiða og hefst kl. 14.00
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 10. gr. sam-
þykkta félagsins.
2. Breytingar á samþykktum félagsins, tillaga
um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
Tillögurfráhluthöfum, sem beraáframáaðalfundi,
skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi
síðan en 7 dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar verða afhentir á
aðalskrifstofu félagsins Reykjavíkurflugvelli, frá
og með 15. mars nk. frá kl. 09.00-17.00.
Afhendingu atkvæðaseðla lýkur á hádegi fundar-
dags.
Stjórn Flugleiða hf.
Tilkynning til
launaskatts-
greiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að
gjalddagi launaskatts fyrir mánuðina janúar og
febrúar er 15. mars n.k.
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til inn-
heimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík tollstjóra, og
afhenda um leið launaskattsskýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
Bárujárn
Til sölu er töluvert magn af nýju bárujárni, á góðu
verði. Upplýsingar í síma 93-51391 á kvöldin.
11 LESENDUR SKRIFA
Hún ætti að verða
forseti Bandaríkjanna
Um og eftir jólin las ég tvær bækur
eftir Shirley MacLaine, bandaríska
dansmey og kvikmyndadís: „Á ystu
nöf“ og „Dansað í ljósinu" og ég
undraðist afburða einlægni, víðsýni
og raunsæi höfundar. Mér finnst að
allir, sem í alvöru hafa hugleitt hvert
hlutverk lífsins er, og lesið víðsýnar
bækur þar um, hljóti að hafa fengið
þá niðurstöðu að markmiðið sé að
þroska manninn, og raunar allt líf,
til fullkominnar samstillingar, þar
sem kærleikurinn er allsráðandi og
sambandið við Guð - hinn æðsta
kraft, því fullkomið. Aðferðin við
að hrinda þessu markmiði í fram-
kvæmd hefur verið erfið og umdeild.
Það sýnir þroskaferill jarðlífsins um
árþúsundir. En mér finnst Shirley í
þessum bókum sínum benda á ein-
falda og mjög áhugaverða leið til
þess. Leið, sem hún einbeitir sér að
ná sem mestum árangri í á þessu
æviskeiði. Hennar „hærra sjálf“, er
hún kallar svo, er hennar leiðar-
stjarna, og jafnframt það forðabúr,
sem hún geymir í þá visku sem hún
ávinnur sér, og hefur áunnið sér í
gegnum óútreiknanlega mörg
æviskeið, efalaust gegnum árþús-
undir. Hver einasta einstaklingssál
er hluti af Guði, og því jafnframt
ómetanlegur hluti alheims-
ins:...Guð í alheimsgeimi - Guð í
sjálfum þér“, segir Steingrímur í
kvæðinu Lífshvöt. Þess vegna er öll
misþyrming á lífríki alheimsins árás
á Guð. Og hvað er til utan lífríkis
hans? „Bentu á eitthvað alveg
dautt“, var eitt sinn sagt í smá ljóði.
Shirley segir m.a.:
„Og skyndilega liggur ljóst fyrir
hvað átt er við með búddíska spak-
mælinu: „Blessaðu fjandmann þinn,
hann gerir þér mögulegt að vaxa og
þroskast". Og einnig segir hún:
„Þekkingarleið sú sem er karma er
ekki refsing í sjálfu sér. Hún fylgir
einfaldlega lögmálum vísindanna
- allar afleiðingar eiga sér orsakir
- og því túlkast karma í ástandi
mannsins sem reynsla, allt er
reynsla.
Karma getur af sér karma. En
hvert skref í átt til sátta en ekki
hefnda, er karmískt skref í rétta átt.
Jákvætt karma getur af sér jákvætt
karma. Sú leið endar ekki fyrr en við
höfum endanlega gengið í gegnum
alla hina fjölskrúðugu reynslu
mannsins og þekkjum allar hliðar á
sambandi okkar við allt sem er.
.. .Shirley heimsækir vinkonu sína
sem heitir Chris, og er nálarstungu-
sérfræðingur, með hjálpendum að
handan og segir um hana: „Hún
hafði starfað með nokkrum hópum
af alvarlega þenkjandi fólki frá ýms-
um hlutum Bandaríkjanna, sem var
að taka risastökk í andlegum þroska.
Því betur sem það skildi margbreyti-
leika fyrri æviskeiða, því betur tókst
því að glíma við markmið sín í
nútímanum. Upplýsingar um fyrri
líf eru heldur ekki bundnar atburð-
um og samskiptum. Þær fela f sér
fróðleik sem tengist rafsegulbylgjum
hraðari hugsunar, breytingum sam-
fara þeirri reynslu að hækka og
víkka sitt vitundarstig og hvernig
líkaminn aðlagast andlegri hugljóm-
un. Líkaminn, musteri sálarinnar,
tekur fíngerðum breytingum í hvert
sinn sem þrep í andlegri þróun er
yfirstigið“. „Otrúlega margt fólk“
segir Chris, „er á góðri leið með að
skynja þessar víddir. Það hefur
breytt lífi sfnu og þeirra sem það
umgengst. Líf þeirra verður á allan
hátt jákvæðara... Þessa stundina
kann alheimurinn að virðast í skipu-
lagðri upplausn, en það er til nýtt
fólk sem er reiðubúið að láta til sín
taka. Bjallan glymur ekki fyrr en
stundin er komin. Og hún er að
renna upp. Fólk er farið að skilja
það. Andlegur skilningur þess er svo
mörgum sinnum öflugri en vits-
munalegur skilningur.
„Einmitt það mun koma í veg
fyrir að við sprengjum okkur sjálf í
loft upp.“ Og Shirley bætir við:
„Hvað var það sem hafði knúið mig
til að ferðast svona mikið í áraraðir
til að draga fram hvaðeina sem ég
skildi ekki í ákveðnum útlendum
menningarheildum? Nú skildi ég
það. Ég hafði verið að leita að
týndum hlekk í sjálfri mér, vídd sem
ég hafði ekki komist í snertingu við.
Ég hafði ekki uppgötvað að það sem
ég leitaði að var að finna í garði míns
eigin anda.“ ...Miðill Kevin, andi
John: „Þú varst alloft í efnislegum
líkama, á fimm hundruð þúsund ára
tímabili, þegar sú menning sem hæst
hefir risið á jörðinni var í blóma.
Frásagnir af þessu menningartíma-
bili birtast á táknrænan hátt í Biblí-
unni, sem aldingarðurinn Eden.
...Afreksstig sérhverrar menningar
er metið eftir andlegri þróun
hennar“.
„Tækniframfarir skipta miklu
máli, ... en ef þær tefja fyrir, draga
úr, eða útiloka andlegan skilning, þá
fela þær í sér fræ sinnar eigin tortím-
ingar. Gestir úr geimnum hafa heim-
sótt jarðarbúa í aldanna rás til þess
að færa þeim nýja þekkingu og
sannindi... Þeir höfðu uppgötv-
að,...að andlégur skilningur á ein-
staklingnum er eini skilningurinn
sem þarf til þess að friður ríki. Hann
er uppspretta allrar annarrar þekk-
ingar. .. .En séð frá kosmisku sjónar-
horni, þá er hver sekúnda lífsins á
jörðinni dýrmæt - af því að hún
tengist stórbrotnu heildarmynstri,
sem við höfum hjálpað til við að
skapa. Og einmitt vegna þess að
sérhvert atóm hefur sinn tilgang, þá
var þessum líkama sem var samsafn
efniseininga, sem bylti sér hér í
rúminu, ætlað að flytja þann boð-
skap að við erum hluti af Guðskraft-
inum sem skapaði allt - og að Guðs-
krafturinn er hluti af okkur, rétt
eins og við erum hluti af honum. ...
Ég frétti hvernig upplýsingar um
fyrri æviskeið höfðu breytt viðhorf-
um margra gagnvart vandamálum í
þessu lífi. Fólkið sagði að líf vina og
kunningja sem ekki vildu taka þátt í
þessari leit, virtist innantómt - og
ekki væri hægt að ræða málin mað
gagnkvæmum skilningi“. Bella:
„Hvað hefur þá breyst?“ „Tilfinn-
ingar mínar hafa breyst. Ég lít allt
frá nýju sjónarhorni og óttinn er
ekki inni í myndinni. Það er óttinn
sem hefur gert okkur fráhverf öllu.
Hann hefur slitið tilfinningatengsl
okkar inn á við og við aðra...
Tilfinningar eru driffjöðrin í öllu
sem er lifandi á jörðinni. Við höfum
tapað dýrmætasta þætti lífsins til-
finningum umhyggju. ... við ættum
öll að losa okkur við óttann með
einlægum skilningi á andlegu eðli
okkar með því að viðurkenna hlut-
ina eins og þeir eru og öðlast tærari
vitund.
Ef við gerðum það yrðu heildar-
áhrifin stórkostleg. “ „Hvar eru dæmi
um þetta í þessari öfugsnúnu
veröld“, sagði Bella. .. „Ég ... sagði
svo næstum ósjálfrátt: Til dæmis
Anvar Sadat, Martin Luther King,
Buddha, Kristur, Móðir Teresa eða
Mahatma Gandhi. Þau trúðu öll
einlægt á guðlega leiðsögn og sú
leiðsögn gaf þeim trú á það jákvæða
sem í manninum býr:“ „Én hvað
trúðu þeir á?“ sagði Bella. „Einskon-
ar æðri samstillingu. Að allir menn
séu hluti af stóru skipulagi sem nær
langt út fyrir reynslu manna í þessu
lífi“.
„Ertu að segja að þeir hafi allir
trúað á endurfæðingar?" „Nei, ekki
endilega", sagði ég. „En Jefferson,
Washington, Benjamin Franklin
- og reyndar flestir þeirra sem undir-
rituðu réttindaskrána og sömdu
stjórnarskrána sögðust vilja stofna
nýtt lýðræði sem grundvallaðist á
andlegu gildismati, sem átti rætur
sínar að rekja allt til helgirita Hindúa
og dulspeki Egypta. Þess vegna
settu þeir pýramídann á dollaraseðil-
inn - það er fullt af andlegum
táknum á dollaraseðlinum og í ríkis-
innsigli Bandaríkjanna. Þetta eru
tákn úr forkristnum átrúnaði sem
snertir endurfæðingarkenninguna.
... Ég minntist bara á þessa menn af
því þeir voru fyrstu stjórnmála-
leiðtogar okkar.
En enginn sem er í pólitík nú á
dögum virðist vita neitt um uppruna
lýðræðisins í þessu landi. Ég get svo
sem skilið að menn séu með hugann
við annað þegar allt er í þessari
óreiðu, en ef einhverjir þeirra
kynntu sér hvað vakti fyrir þeim sem
ruddu okkur brautina, ef þeir gætu
haft það að leiðarljósi, tækju þeir
kannski skynsamlegri afstöðu til
málanna sem þeir fjalla um. Þeim
gæti jafnvel heppnast að stöðva
þessa öfugþróun sem er að gera út af
við okkur“. Bella: „Heldurðu sem
sagt að við séum hluti af háleitara
skipulagi en flesta grunar? Að hug-
myndir okkar og átrúnaður séu á
villigötum og að það sé þess vegna
sem við og veröldin erum að fara til
helvítis?“ „Já. En þetta á ekki við
um alla. Meiri hluti af öllu fólki í
heiminum trúir á endurfæðingar,
trúir á æðra skipulag. Það eru Vest-
urlandabúar sem hafa sleppt mikil-
vægasta þættinum“. Bella: „Sem er
hvað?“ „Tilurð sálarinnar - það að
við höfum verið lifandi á jörðunni
hvað eftir annað og að lífið heldur
áfram samkvæmt lögmáli orsaka og
afleiðinga".
Tónlistarmaður
Tónlistarmaður óskast til starfa í Hrunamannahreppi.
Verksvið: Tónlistarkennsla og organistastarf.
Um er að ræða fullt starf eða meira.
Ódýrt húsnæði í þægilegu umhverfi á Flúðum er í boði.
Umsóknarfrestur er til 15. apríl n.k.
Upplýsingar veitir oddviti Hrunamannahrepps í síma
99-6617 á venjulegum skrifstofutíma.
Páll H. Árnason.